Morgunblaðið - 26.03.2018, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 26.03.2018, Blaðsíða 23
fyrir hefðbundnum, mannlegum samskiptum og hreyfingu og úti- veru hjá okkur börnunum. Það var góður andi í þessum fjölmenna leikfélagahópi og við höfðum alltaf nóg að sýsla.“ Hanna Dóra var í Lundarskóla á Akureyri, fór þaðan í Gagnfræða- skóla Akureyrar og tók stúdents- próf frá Verkmenntaskólanum á Akureyri 1988. Hún lauk B.Ed- prófi frá Kennaraháskóla Íslands 1994. Hanna Dóra byrjaði ung að gæta barna, einkum á sumrin og passa á kvöldin. Hún var í unglingavinn- unni eins og flestir unglingar þá og var götusópari á Akureyri í tvö sumur: „Það var prýðileg vinna. Maður byrjaði kl. 5.30 á morgnana, var búinn í vinnunni fyrir hádegi og gat þá farið í sund og sólbað. Þetta hentaði mér ágætlega. Ég var svo verslunarmaður í Sporthúsinu á Akureyri í nokkur ár með námi og vann við skólagarðana í nokkur sumur og hafði þar umsjón með börnunum.“ Hanna Dóra hefur verið grunn- skólakennari í unglingadeild frá því hún lauk námi við Kennaraháskól- ann, fyrst í Gagnfræðaskóla Akur- eyrar sem síðar varð Brekkuskóli og þar starfar hún enn. Hanna Dóra ólst upp við mikla íþróttaiðkun. Hún var í fimleikum hjá Fimleikafélagi Akureyrar, æfði og keppti á skíðum með KA, tók þátt í Andrésar Andar-mótunum, kom aðeins við í handbolta í einn vetur hjá Þór og í frjálsum íþrótt- um hjá UMSE: „Ég var aldrei eins klúbbs íþróttakona heldur allra fé- laga íþróttanörd. Það skipti mig engu máli hvað félagið hét. Aðal- atriðið var að keppa og vera með.“ Hanna Dóra var fimleikaþjálfari í 20 ár, lengst af hjá Fimleikaráði Akureyrar, en einnig í tvö ár hjá Stjörnunni í Garðabæ. Hún starfaði í 15 ár í þágu kvennaknattspyrnu á Akureyri og tók virkan þátt í upp- byggingu kvennaknattspyrnunnar. Hún hefur svo verið fararstjóri fyr- ir unglingalandslið kvenna í knatt- spyrnu og einnig með A-landslið- inu. Loks má geta þess að hún stýrði hér á árum áður klapp- stýruhópi fyrir körfuboltadeild Þórs í tvö ár. Hanna Dóra sat í stjórn Fim- leikasambands Íslands í eitt kjör- tímabil og hefur starfað í landsliðs- nefndum kvenna hjá KSÍ í 10 ár. Hanna Dóra var sæmd silfur- merki fimleikasambandsins. Hún fékk silfur- og gullmerki íþrótta- félagsins Þórs fyrir störf sín þar, heiðursviðurkenningu Íþrótta- bandalags Akureyrar og hefur hlot- ið silfurmerki KSÍ fyrir störf sín í þágu kvennaknattspyrnu. Eins og gera má ráð fyrir á þess- ari upptalningu eru íþróttir ofar- lega á lista Hönnu Dóru yfir áhuga- málin. Hún er einnig svolítið veik fyrir félagsstörfum, hefur séð um félagsstörf nemenda í Brekkuskóla í rúm 20 ár, hefur gaman af fólki og hlustar mikið á tónlist, ekki síst rokk og popptónlist. Græni hatt- urinn er í miklu uppáhaldi hjá henni en það er skemmtilegur sam- komusalur á Akureyri þar sem stöðugt er leikin lifandi tónlist. Loks er Hanna Dóra mjög dug- leg að sækja tónleika og leikhús. Fjölskylda Dóttir Hönnu Dóru er Rakel Hönnudóttir, f. 30.12.1988, lands- liðskona og atvinnukona í knatt- spyrnu í Svíþjóð. Bræður Hönnu Dóru eru Stefán Markússon, f. 23.12. 1969, ketil- og plötusmiður hjá Ferro Zink á Akur- eyri, og Alfreð Markússon, f. 17.8. 1976, tölvunarfræðingur hjá Advania, búsettur í Kópavogi. Foreldrar Hönnu Dóru eru Markús Halldór Hávarðarson, f. 15.3. 1948, húsvörður við Lundar- skóla, og k.h., Svala Stefánsdóttir, f. 6.4. 1948, skrifstofukona hjá Norðlenska. Þau eru búsett á Akureyri, nýsloppin á eftirlaun. Úr frændgarði Hönnu Dóru Markúsdóttur Hanna Dóra Markúsdóttir Alfreð Steinþórsson verkam. á Akureyri Helga Alfreðsdóttir starfsm. SundlaugarAkureyrar Svala Stefánsdóttir skrifstofuk. á Akureyri Stefán Helgason bifreiðarstj. á Akureyri Þuríður Pálsdóttir húsfr. á Þórustöðum Helgi Stefánsson b. á Þórustöðum í Kaupangssveit Fjóla Stefáns- dóttir húsfr. á Akureyri Arna Hrönn Skúladóttir starfsm. hjá Höldi Halla Hrund Skúladóttir viðmótshönnuður hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Stefnu Fjóla Katrín Jónsdóttir húsfr. á Akureyri, bróðurdóttir Jónasar Tómassonar tónskálds Sigurgeir Jónsson bifreiðarstj. á AkureyriGísli Sigugeirsson fréttamaður á N4 og víðar Jónas Karl Þórhallsson hjá Þorbirni í Grindavík og form. knattspyrnud.Grindavíkur Ástrún Jónasdóttir húsfr. í Sandgerði Jónas Ragnarsson útgerðarm. í Súðavík Guðrún Jónasdóttir húsfr. í Súðavík Björn Helgason málaram. og íþróttafulltr.Helgi Björnsson söngvari Kristjana Jónasdóttir húsfr. í Hnífsdal Karítas Elísabet Kristjánsdóttir húsfr. í Súðavík Jónas Sigurðsson verkam. í Súðavík Jóhanna Sigurveig Jónasdóttir verkak. á Ísafirði Hávarður Hálfdánarson vélstj. og skipasmiður á Ísafirði Jóhanna Sigurðardóttir húsfr. á Þingeyri Hálfdán Ágúst Bjarnason smiður á Ísafirði Markús Halldór Hávarðarson húsvörður á Akureyri ÍSLENDINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. MARS 2018 Haukur Claessen fæddist íReykjavík 26.3. 1918. Hannvar sonur Arents Valgards- sonar Claessen stórkaupmanns og k.h., Helgu Kristínar Þórðardóttur húsfreyju. Meðal systkina Arents var María Kristín, móðir Gunnars Thor- oddsen forsætisráðherra og amma Jóns G. Tómassonar, fyrrverandi borgarlögmanns. Helga Kristín var systir Símonar, föður Guðrúnar óperusöngkonu. Systir Hauks var Sigríður Þórdís Claessen, móðir Þórðar Þ. Þorbjarn- arsonar borgarverkfræðings. Eiginkona Hauks var Guðrún Arn- bjarnardóttir Claessen húsfreyja, f. 18.4. 1921, d. 17.7. 2006. Börn þeirra: Sigríður Ingibjörg lífeindafræðingur, Gunnlaugur Claessen, fyrrv. hæsta- réttardómari, og Helga Kristín versl- unarmaður. Haukur lauk stúdentsprófi frá MR 1936 og embættisprófi í lögfræði frá HÍ 1941. Hann starfaði hjá banda- ríska varnarliðinu 1942-44, Almenn- um tryggingum hf. 1944-45 og var framkvæmdastjóri Sölumiðstöðvar sænskra framleiðenda í Reykjavík frá 1945. Haukur hóf störf hjá flugvalla- stjóra í ársbyrjun 1948, var fulltrúi þar og flugvallarstjóri á Keflavíkur- flugvelli 1948-55, var fulltrúi flug- málastjóra við stjórn flugvalla ríkis- ins 1955-59, framkvæmdastjóri allra flugvalla hérlendis annarra en Reykjavíkur- og Keflavíkurflugvall- ar frá 1959, staðgengill flugmála- stjóra frá 1960, skipaður varaflug- málastjóri haustið 1969 og var vara- formaður Flugráðs frá 1971. Haukur samdi, öðrum fremur, samningsdrög um yfirtöku íslenskra flugmálayfirvalda á öllum rekstri á borgaralegu flugi á Keflavíkurflug- velli, 1951, vann ötullega að yfirtöku Íslendinga á þeirri starfsemi og ann- aðist fjölda tvíhliða loftferðasamn- inga við önnur ríki. Haukur lést í flugslysi á afmælis- daginn sinn, 1973, ásamt flugmanni og þremur starfsmönnum Flugmála- stjórnar, er flugvélin TF-VOR fórst vegna ísingar í Búrfjöllum, norðan Langjökuls. Merkir Íslendingar Haukur Claessen 90 ára Sigurður Blöndal 80 ára Júlíus Snorrason Kristinn B. Kristinsson Magnús Guðbrandsson 75 ára Guðmundur Jens Guðmundsson Guðríður Inga Elíasdóttir Irma Karlsdóttir Mikael Marlies Karlsson Ragnheiður Eyjólfsdóttir Sigurður Pálmi Pálsson Þorgerður Halldórsdóttir Þyri Axelsdóttir 70 ára Ásrún Hauksdóttir Guðrún Agnes Svavarsdóttir Magdalena Olsen Ragnheiður Sigurðardóttir 60 ára Birgir Sigurjónsson Daniel Calvin Gribb Drífa Heiðarsdóttir Eiríkur Már Georgsson Elín Helgadóttir Guðmundur Helgi Magnússon Guðný Hafbjörg Jónsdóttir Hildur Hjálmarsdóttir Ísleifur Ástþórsson Pálmi Jónsson Sólveig Hrönn Kristinsdóttir 50 ára Brynja Haraldsdóttir Ellý Halldóra Guðmundsdóttir Goran Nikolic Gunnar Ellert Geirsson Hanna Dóra Markúsdóttir Hólmfríður Ólafsdóttir Hólmfríður Svava Einarsdóttir Jón Gunnar Sigurðsson Klara Björg Jakobsdóttir Loftur Guðmundsson Maciej Orzechowski Stefán Helgi Valsson Stephen W. Lárus Stephen Þorsteinn Hjaltason 40 ára Anna Jóna Garðarsdóttir Binh Thi Nguyen Burkni Reyr Jóhannesson Guðmundur Pálsson Gunnsteinn Rúnar Sigfússon Hjalti Þór Bergsson Hörður Gylfason Ismar Hadziredzepovic Jón Fannar Kolbeinsson Katarzyna Jablonska Nikolai M. Novikov Sigríður Sif Gylfadóttir Sólberg Fannar Sólbjartsson Sólveig Pétursdóttir Wioleta Janiszewska- Wroblewska 30 ára Adrian Jan Sokolowski Atli Freyr Guðjónsson Ágústa Sigríður Jónsdóttir Árni Guðjónsson Daníel Már Pálsson Dawid Jerzy Hermanowicz Einar Valur Skagfjörð Einarsson Heiða Björg Guðjónsdóttir Jónas Þór Viðarsson Lisa Christine Vidal Marko Pavlov Sigríður Th. Sigbjörnsdóttir Til hamingju með daginn 30 ára Sigríður ólst upp á Lundum í Stafholts- tungum, býr í Borgarnesi, lauk sveinsprófi í klæð- skurði og kjólasaum og rekur eigin stofu. Maki: Árni Ólafsson, f. 1988, verktaki. Dóttir: Jóhanna Ósk, f. 2017. Foreldrar: Sigbjörn Björnsson, f.1955, og Ragna Jóhanna Sigurð- ardóttir, f. 1951, hrossa- bændur á Lundum. Sigríður Th. Sigbjörnsdóttir 30 ára Jónas Þór býr í Ár- dal í Kelduhverfi, lauk sveinsprófi í húsasmíði, smíðar á eigin vegum og kennir smíði. Maki: Salbjörg Matthías- dóttir, f. 1989, bóndi í Árdal. Dóttir: Heiðný, f. 2016. Foreldrar: Harpa J. Jón- asdóttir, f. 1967, starfs- maður Flugf. Ernis á Húsa- vík, og Guðmundur Karl Sigríðarson, f. 1959, flug- vallarvörður á Húsavík. Jónas Þór Viðarsson 30 ára Heiða Björg ólst upp á Akureyri, býr þar, lauk prófi í framreiðslu við MK og stundar B.Ed- nám við HA. Sonur: Ólíver Stefán, f. 2016. Bræður: Grétar Þór, f. 1979, og Hallur Örn, f. 1983. Foreldrar: Harpa Þ. Jóns- dóttir Reykdal, f. 1960, húsfreyja, og Guðjón Ei- ríksson, f. 1961, bifeiðar- stjóri. Heiða Björg Guðjónsdóttir Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is silestone.com Bakteríuvörn Kvarts steinn frá Silestone er fáanlegur í fjölbreyttum áferðum og litum. Silestone bjóða einir upp á borðplötur með varanlegri bakteríu- og sveppavörn. Gefðu heimilinu ferskleika og líf á þínum forsendummeð Silestone. Blettaþolið Sýruþolið Högg- og rispuþolið Kvarts steinn í eldhúsið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.