Morgunblaðið - 26.03.2018, Síða 19

Morgunblaðið - 26.03.2018, Síða 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. MARS 2018 ✝ Helgi Guð-brandur Vil- hjálmsson fæddist 10. apríl 1918 í Hafnarfirði. Hann lést á Grund 4. mars 2018. Foreldrar hans voru Vilhjálmur Guðmundsson bíl- stjóri þar og kona hans, Bergsteinunn Bergsteinsdóttir. Hann var ungbarn tekinn í fóst- ur af Þorgrími Jónssyni verka- manni í Hafnarfirði og konu hans Guðrúnu Guðbrandsdóttur. Helgi lauk prófi frá Iðnskóla Hafnarfjarðar 1937 og lauk klæð- skeranámi 1939. Klæðskera- sveinn í Rvk. 1939-40. Veitti for- stöðu saumastofu Kaupfél. Húnvetninga, Blönduósi, árin 1940-43, klæðskerameistari í Hafnarfirði í þrjú ár og síðan á Siglufirði í átta ár. Verkstjóri við ur ár, þar af formaður í eitt ár. Hann söng í Kirkjukór Siglu- fjarðar og karlakórnum Vísi. Þegar Valla og Helgi fluttust suður gerðist hann formaður Al- þýðubandalags Hafnarfjarðar. Hann var í Söngsveitinni Fílharm- óníu. Maki 1) Hulda Jakobína Ágústsdóttir, f. 1.10. 1920. Þau skildu. Barn þeirra: Friðrik Ágúst, f. 21.2. 1939. Kona hans er Margrét Guðmundsdóttir, f. 12.7. 1939. Börn þeirra: 1) Guðmundur Viðar, f. 15.6. 1960, kvæntur Tau Azegau Friðriksson. 2) Helgi Val- ur, f. 13.4. 1962, kvæntur Stein- unni Ingólfsdóttur. 3) Árný Hulda, f. 18.9. 1970, gift Bjarna Karvel Ragnarssyni. Barnabörnin eru níu talsins, langafabörnin fjögur og langalangafabörnin fjögur. Seinni kona Helga Guð- brands var Valgerður Jóhann- esdóttir, f. 1.3. 1926, d. 3. apríl 2010. Seinna hjónabandið var barnlaust. Helgi var vinstri mað- ur. Söng í kórum og lék á leik- sviði. Hann er einnig sá af stofn- endum Hauka í Hafnarfirði sem síðastur fellur frá. Útför Helga fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 26. mars 2018, klukkan 13. síldarsöltun á Siglu- firði 1958-64. Ráðs- maður við Sjúkra- húsið á Húsavík 1964 til 1966. Vann síðan við versl- unarstörf hjá versl- uninni Verðanda í Reykjavík, einnig hjá ÁTVR og endaði sinn vinnuferil hjá Verðlagsstjóra kom- inn hátt á áttræðis- aldur. Einn af stofnendum Knatt- spyrnufélags Hauka í Hafnarfirði 1931og varaformaður 1932. For- maður Knattspyrnufél. Óðins á Blönduósi 1942-43. Varabæjar- fulltrúi á Siglufirði 1950-54. Vara- formaður Sósíalistafél. Siglu- fjarðar árin 1952-61. Formaður Alþýðubandalagsfélags Siglu- fjarðar árin 1958-62. Einn af stofnendum Leikfélags Siglu- fjarðar 1951 og í stjórn þess nokk- Það er einhvern veginn svo að tíminn til að kveðja ástvin er aldrei réttur. Þó að árin hafi verið orðin 99 og aðeins nokkrar vikur í 100 ára afmælið, þá finnst mér þetta hafa verið of snemmt. Hann var reyndar búinn að lofa okkur því að reyna að vera hjá okkur á 100 ára afmælinu og spila fyrir okkur á munnhörpuna sína. En dauðinn gefur engin grið. Það er svo margs að minnast á langri samleið. Næst- um 60 ár. Hann var einstaklega góður tengdafaðir og afi. Það var alltaf gaman að heimsækja Helga og Völlu og fá þau í heimsókn til okkar. Í mínum huga segir maður alltaf Helgi og Valla. Þau voru órjúfanleg heild. En það var alltaf sama hvort það var á Siglufirði, Húsavík, Reykjavík eða Hafnar- firði. Alltaf voru þau jafn gestrisin og höfðu gaman af að bjóða heim gestum. En árin í Kaplakrika voru skemmtileg. Barnabörnin elskuðu að komast í „sveitina“ í Kapla- krika. Ótrúlegt þegar maður lítur til baka og sér svo í dag að Kapla- krikinn er nú aðalhöfuðstöðvar FH og alls ekki nein „sveit“. Mér finnst að Haukarnir hefðu frekar átt að vera þarna, en það er nú bara mín skoðun. Það voru líka ljúfar stundir sem við áttum með Helga og Völlu í sumarbústöðun- um sem þau byggðu með eigin höndum. Annar á Vatnsleysu- ströndinni og hinn á Stafnesi. Staðarhóll var reistur í landi Bala á Stafnesi, afar fallegum stað við hraunkantinn. Frá Bala átti Helgi góðar minningar frá æsku sinni. Hann var þar í sveit mörg sumur og hélt vináttu við fólkið þar alla sína löngu ævi. Við vorum saman öll aðfanga- dagskvöld síðan 1966. Dásamlegt að eiga allar þessar minningar. Það var eiginlega alveg óhugsandi að halda upp á einhverja viðburði í fjölskyldunni án þess að Helgi og Valla væru með. Og mörg góð ferðalög, bæði löng og stutt, fór- um við saman. Efst í mínum huga er þakklætið fyrir að hafa átt svo margar gleðistundir með Helga og alltaf átt hans stuðning vísan ef eitthvað hefur bjátað á hjá okkur. Síðast hjálpaði hann okkur að leggja parket á alla íbúðina okkar, þá kominn á níræðisaldur. Ekki neitt blávatn þessi karl! Síðustu árunum eyddi hann á hjúkrunarheimilinu Grund. Þar fékk hann frábæra umhyggju og umönnun sem við getum aldrei þakkað nógsamlega. Kærar þakk- ir til allra sem þar komu við sögu. Blessuð sé minning Helga Vil- hjálmssonar. Margrét. Elsku afi, í hvert skipti sem ég fór frá Íslandi eftir stuttar heim- sóknir síðustu árin kvöddumst við eins og það væri í síðasta sinn. Síðasta skiptið varð samt í nóv- ember 2016 og ég er þakklátur fyrir þá minningu. Við sátum í herberginu þínu á Grund, ég spil- andi á gítar, þú á munnhörpu og pabbi sá um aðalsönginn. Ekki kannski ferskasta hljómsveit landsins, þú 97 ára, pabbi 77 og ég 56, en við skemmtum okkur vel. Minningarnar hlaðast upp og ég man fyrst eftir mér hjá ykkur ömmu og langömmu Siggu á Siglufirði, kannski bara tveggja ára, fyrsta hjólið, ferð í vörubíl og síldarplanið eru hlutir sem ég man eftir. Það var á Húsavík sem þú kenndir mér að lesa og bókin sem við stögluðumst í gegnum var um hetjuna Gretti Ásmundarson. Kaplakrikinn skipar samt stærsta sessinn og helgar í sumarbústaðn- um á Vatnsleysuströnd. Þú varst heiðarlegur, harðdug- legur og hæfileikaríkari en flestir. Klæðskeri, smiður, bókagerðar- maður, söngvari, munnhörpuleik- ari af guðs náð og það eru ekki margir sem þekktu Íslendinga- sögurnar og íslensk ljóð betur en þú. Þú kynntir okkur fyrir Bör Börssyni, Góða dátanum Svejk og tímaritinu Íslenskri fyndni, sem við höfðum mjög gaman af, en ein- hvern veginn gengu þeir brandar- ar ekki alveg upp þegar í skólann kom. The Golden Gate Quartet, Pavarotti og Maria Callas voru oft á plötuspilaranum svo og sunnu- dagsmessurnar í útvarpinu. Þú varst einn af stofnendum Hauka í Hafnarfirði og staðfastur Alþýðu- bandalagsmaður allt þitt líf. Matarboðin ykkar ömmu voru alltaf stórkostleg og veisluborðin hlaðin. Stundirnar sem við áttum saman hjá ykkur ömmu með Pétri (látinn), Doddu, Siggu, Haraldi (látinn) Margeiri og Vigdísi voru ávallt tilefni mikillar tilhlökkunar. Þú varst sannkallaður „trend- setter“ í klæðaburði og það skipti ekki máli hvort þú varst að fara í morgunverð á Grund, í ferðalag, veislu eða bara liggjandi uppi í rúmi að gera krossgátu, þú varst alltaf flott klæddur með bindi eða slaufu og ef út var farið trónaði franska alpahúfan auðvitað á koll- inum. Þú elskaðir fjölskylduna þína og varst áhugasamur um hag okk- ar allra og það var mikil tilhlökkun að taka mynd af fimm ættliðum á afmælisdaginn þinn, sem augljós- lega verður ekki, en við „photo- shoppum“ þig inn í myndina. Það er dásamlegt til þess að hugsa hversu mikinn þátt þú og amma Valla áttuð í lífi okkar allra og við erum öll betri manneskjur fyrir vikið. Elsku afi minn, ég þakka þér af öllu hjarta fyrir samfylgdina og fyrir þá ást og umönnun sem þú og amma sýnduð okkur öllum. Guðmundur Viðar Friðriksson. Við ætluðum í stórafmælið hans afa Helga um páskana og hlusta á hann spila á munnhörp- una sína. En endum svo á að fara í jarðarförina hans nokkrum dög- um fyrir fyrirhugað afmæli. En hann fær kannski að halda upp á afmælið sitt í Sumarlandinu með ömmu Völlu í staðinn. Við verðum að hugga okkur við það. Þau voru alltaf nefnd í sömu andrá, alltaf svo samheldin. Ég á svo margar góðar minningar með ömmu og afa. Fékk oft að fara í sumarbú- staðinn á Vatnsleysuströndinni til að hugsa um og hlúa að Huldu- lundinum, sem þau bjuggu til fyr- ir mig. Fallegan lítinn trjálund. Mér þótti svo vænt um það. Ég fékk að smíða alls konar með afa uppi í bústað og fór svo með þeim í fjöruferðir fyrir kvöldkaffið. Syn- ir okkar fengu svo snemma að upplifa að smíða með langafa sín- um. Ég dáðist að afa og ömmu þegar þau byggðu sumarbústað- inn á Stafnesi orðin sjötug. Alltaf var afi eitthvað að dytta að og smíða. Hann smíðaði til dæmis litla dúlluhúsið sem krakkarnir okkar léku sér í. Mér þótti alltaf svo gaman að gera slátur með ömmu og afa. Það gerðum við fjölskyldan í nokkur ár, ásamt mömmu og pabba. Afi reiknaði fram og til baka hvað við værum að spara mikið á hverjum kepp og hvað verkamaðurinn væri lengi að vinna fyrir búðar- keyptu slátri. Enda vann hann hjá Verðlagseftirlitinu í mörg ár. Þau voru bæði nýtin og sparsöm, sem okkar kynslóð gæti lært margt af. Við Bryndís og afi fórum einu sinni saman að skoða húsið sem hann hjálpaði fósturforeldrum sínum að byggja í Hellisgerði í Hafnarfirði. Hann var svo stoltur að segja okkur frá þessu og við vorum stoltar af honum. Ég læt hér staðar numið, en gæti nefnt margar aðrar góðar minningar með ömmu og afa. Þau voru ynd- islegt og gott fólk. Við minnumst alltaf afa Helga þegar við skerum sunnudagssteikina með hans orð- um: „Nú ráðumst við á drekann!“ Hvíl í friði, afi minn. Þín sonardóttir, Árný Hulda og fjölskylda. Þau sómahjónin Helgi Vil- hjálmsson og Valgerður Jóhann- esdóttir, móðursystir okkar, léku stórt hlutverk í bernsku okkar systkinanna, fyrst á Siglufirði og síðan í Kaplakrika. Þær Valgerð- ur og Halldóra móðir okkar voru mjög samrýndar og það var mikill fengur þegar þau Valla og Helgi fluttu suður í Kaplakrika í Hafn- arfirði árið 1966 og festu sér hús þar sem nú er íþróttasvæði FH. Í stað sumarferða norður komu nú tíðar ferðir í Krikann. Á sjöunda áratugnum var þetta sannkallað ævintýraland með læk og hrauni en mestu máli skipti samt létt lund og ótakmörkuð gestrisni þeirra hjóna. Helgi Vilhjálmsson var þarna húsbóndi og hrókur alls fagnaðar, kominn á æskuslóðirnar í Hafn- arfirði þar sem hann hafði alist upp á kreppuárunum og gerst einn af stofnendum Hauka tólf ára gamall. Það var oft gest- kvæmt hjá þeim hjónum en hin árlega þrettándagleði þeirra sló öll met. Þau eignuðu sér þann dag og slógu jafnan upp mikilli veislu. Héldu þau þessum sið langt fram eftir aldri. Helgi tók okkur börnunum jafnan vel og tókst þar mikill vin- skapur og væntumþykja sem ent- ist ævilangt. Hann kenndi okkur að ráða mynda- og krossgátur og valdi okkur bækur sem hann þótt- ist viss um að þættu skemmtileg- ar. Þar bar hæst Bör Börsson og Góða dátann Svejk. Sjálfur bjó Helgi yfir ríflegri kímnigáfu og sagði margar sögurnar. Ein sú besta átti það sameiginlegt með áðurnefndum bókmenntum að hægt var að hlæja að henni enda- laust og var af því þegar hann saumaði föt á Björn Pálsson al- þingismann frá Löngumýri. Vísur og kvæði kunni Helgi og var söng- maður mikill og lagviss. Hafði enda sungið með karlakórnum Vísi á Siglufirði. Helgi var laghentur þúsund- þjalasmiður. Kom það sér vel þeg- ar klæðskeraiðnin lét undan síga. Þau hjónin reistu sér einbýlishús á Siglufirði áður en þau fluttu suð- ur. Þar sat Helgi heldur ekki auð- um höndum. Fljótlega byggðu þau sér glæsilegt sumarhús á Vatnsleysuströnd í félagi við Gústa son Helga og síðan annað suður á Reykjanesi. Um svipað leyti færðu þau okkur fjölskyld- unni að gjöf áhaldahús sem Helgi smíðaði og enn stendur á Kjalar- nesi. Þau Valla fóru í margar ferð- ir til útlanda til að sjá ný lönd og til og heimsækja skyldmenni og vini. Þau voru vinmörg og áttu bæði stóran frændgarð. Árið 1980 fluttu þau til Reykja- víkur en 2004 komst Helgi aftur á heimaslóðir í Hafnarfirði þegar þau hjónin fluttust í vistlega íbúð fyrir eldri borgara. Þau voru afar samrýnd og það var Helga mikið áfall þegar Valgerður féll frá vorið 2010, hann þá orðinn háaldraður og þrotinn kröftum. Eins og hann sagði sjálfur „ég er einn eftir“ úr stórum systkinahópi og löngu orð- inn eini stofnandi Hauka á lífi. Hann fylgdist þó með og þótti vænt um það þegar Haukar sýndu honum sóma og ræktarsemi. Síðustu árin hafði Helgi stund- um á orði að þetta væri orðið ágætt hjá sér, en undir það síð- asta bar þó væntanlegt aldaraf- mæli hans oft á góma. Ekki varð af því og munaði aðeins fimm vik- um. Í staðinn kveðjum við hann nú hinstu kveðju með miklu þakk- læti fyrir alla góðvildina og vin- skapinn. Sigríður, Margeir og Vigdís Pétursbörn. Kveðja frá Knattspyrnu- félaginu Haukum Það var sólbjartur sunnudagur 12. apríl 1931 þegar 13 ungir pilt- ar komu saman í húsi KFUM í Hafnarfirði í þeim tilgangi að stofna íþróttafélag. Einn þessara pilta var Helgi Vilhjálmsson, þá nýorðinn 13 ára. Á þessum fundi var Knattspyrnufélagið Haukar stofnað. Nafnið Haukar var síðan valið að tillögu séra Friðriks Frið- rikssonar á fundi 8. júlí. Á þeim fundi var Helgi kjörinn varafor- maður félagsins og „hvatti hann félagana að vera áhugasama um félagið“ eins og segir í fundar- gerð. Í viðtali við Helga í tilefni 90 ára afmælis hans segir m.a: „Þeg- ar við stofnuðum Hauka var einn- ig til Knattspyrnufélag Hafnar- fjarðar og líka annað sem hét 17. júní, síðan var til Þjálfi og svo komu Haukar og FH. Það höfðu því verið stofnuð þrjú félög á und- an Haukum sem ég man eftir. Þá var íbúafjöldinn um 2.000 manns. Þegar ég flutti úr Firðinum eru þeir um 3.600. Það var alltaf slag- ur á milli félaganna. Haukarnir voru þá allir úr Vesturbænum og þeir litu dálítið niður á Suðurbæ- inga, töldu þá vera litla karla.“ Alla tíð bar Helgi hlýjan hug til félagsins og var fyrstur manna til að rétta fram hjálparhönd þegar á þurfti að halda. Hann var sæmdur gullstjörnu félagsins 1981 og kjörinn heiðurs- félagi 2001. Nú þegar við kveðjum þennan síðasta stofnanda félagsins okkar sendum við fjölskyldu Helga inni- legar samúðarkveðjur. Fyrir hönd aðalstjórnar Hauka, Bjarni Hafsteinn Geirsson. Helgi Guðbrandur Vilhjálmsson Kæri bróðir! Til hamingju með dag- inn. Þó svo að það séu nú nærri þrír mánuðir frá því að ég ansaði símanum og orðin voru „Heiðar er dáinn“ þá hljóma þessi orð líkt og ómur af bjöllu sem virðist nær aldrei ætla að þagna. Einhvern veginn heldur allt áfram og ekki stoppar tíminn, enda kannski ekki það sem á að gerast þegar einhver fellur frá. Upplifunin er samt einhvern veg- inn þannig, manni finnst allt Sigþór Heiðar Ingvason ✝ Sigþór HeiðarIngvason fædd- ist á Egilsstöðum 26. mars 1966. Út- för hans fór fram 27. janúar 2018. stopp, upphugsar sömu hlutina aftur og aftur. Já hvað ef og hvað ef ekki? Þrír mánuðir eru kannski ekki svo ýkja langur tími, það fer eftir því hvernig maður setur það upp. Í gegnum árin hafa eflaust liðið þrír mánuðir án þess að við hefðum sam- skipti, sérstaklega á okkar uppvaxtarárum þegar þú varst á vertíð og komst ekki heim fyrr en að vori. Ekki höfðum við í þá daga síma og tölvur til að eiga samskipti okkar á milli, né við aðra. Sennilega hefði margt verið öðruvísi ef sú tækni hefði verið til staðar þá. Sennilega væru til hundruð mynda, ef þá hefði verið eins auðvelt að taka myndir og er í dag, já og setja inn á „Facebook“ en það varst þú allnokkuð dugleg- ur við að gera, og hafðir gott auga fyrir því sem var að gerast í kring- um þig. Sennilega er það aldurinn, en oftar og oftar verður manni hugsað til þess hversu gaman það væri nú að hafa fleiri myndir frá þessum tíma. Myndir af lífi okkar í sveitinni, hinu daglega lífi sem fer svo hratt hjá að fyrr en varir er það þotið hjá. Ferðir til fjalla og fjöru og allt þar á milli. Undarleg- um uppátækjum, já eins og þegar „bagginn“ hvarf og leitað var mik- ið að honum, það hefði sennilega verið gert vídeó. Þessir atburðir eru óteljandi enda ætti það að vera svo, þó svo að við tölum um tímann eins og hann hverfi þá skil- ur hann alltaf eftir sig stundir. Stundir sem stundum er gott að rifja upp og fara yfir, já það skilur eftir sig aðrar minningar, „já manstu þegar við vorum að rifja þetta upp þarna um árið?“ En þannig hafa þessir síðastliðnu mis- köldu vetrardagar liðið hver af öðrum, rifja upp liðna atburði, hvar hver var og gerði. Gleði-, hamingju- og sorgarstundir, þannig sveiflast lífið fram og til baka. Eflaust hefur maður verið lánsamur í gegnum lífið, í það minnsta ekki gengið mjög dimm él yfir, þó svo að manni finnist það á þessari stundu. En einhvern veg- inn hefði maður aldrei getað gert sér grein fyrir því fyrirfram, hvernig allt getur breyst á ör- skotsstundu, enda ekki ástæða til þess þegar allt virðist ganga vel. Einhvern tímann var víst sagt „gott er að vera vitur eftir á“, ef- laust væri margt öðruvísi ef mað- ur vissi endinn og gæti spilað út eftir því. Þannig var það ekki þeg- ar við spiluðum og ekki heldur í lífinu. En nú er okkur ljós end- irinn á þinni lífsbók, og megum við vernda og minnast þeirra minn- inga sem í henni eru sem lengst, og rifja sem oftast upp með gleði í huga. Hafðu þökk fyrir allt og allt sem lífið gaf okkur í þinni návist. Þinn bróðir, Ómar Ársæll Yngvason. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, FRIÐRIK SVEINSSON læknir, lést á Hrafnistu í Reykjavík föstudaginn 23. mars. Útför hans fer fram frá Áskirkju föstudaginn 6. apríl klukkan 13. Þeir sem vilja minnast hans láti SÍBS njóta þess. Guðrún Friðriksdóttir Heimir Örn Jensson Rósa Friðriksdóttir Þorsteinn Óli Kratsch Jóhanna Friðriksdóttir Sigurður Jónsson Þóra Friðriksdóttir Guðmundur Ragnarsson Hildur Kristín Friðriksdóttir Sigurður Reynisson barnabörn og barnabarnabörn Eiginmaður minn og faðir okkar, INGIMUNDUR SIGFÚSSON, fv. forstjóri og sendiherra, lést í Reykjavík 20. mars. Útför hans fer fram frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 4. apríl klukkan 11. Valgerður Valsdóttir Valur Ingimundarson Sigfús Ingimundarson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.