Morgunblaðið - 26.03.2018, Page 22
22 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. MARS 2018
Birgir Sigurjónsson flugvirki á 60 ára afmæli í dag. Hann ersjálfstætt starfandi og hefur tekið að sér verkefni víða úti íheimi síðastliðin tíu ár. Undanfarna fjóra mánuði hefur hann
verið að vinna fyrir Israel Airline Iindustry og er með aðsetur í Tel
Aviv.
„Þetta er búin að vera bullandi vinna, tólf til fjórtán tímar á dag.
En núna er ég nýkominn heim í Mosfellsbæinn og verð á landinu í
tíu daga. Ég verð með smá bröns fyrir systkini mín í dag en annars
ætla ég bara að njóta þess að vera heima með fjölskyldunni.“
Áhugamál Birgis eru annars stangveiði og skotveiði og síðustu árin
hefur hann verið duglegur að ganga á fjöll með konunni sinni. „Ég
ætla mér að koma heim í sumar og veiða en það er spurning hvort það
tekst. Skipulagið fyrir sumarið er ekki komið.“
Miklar breytingar hafa verið á starfi flugvirkjans vegna evrópskra
flugmálayfirvalda. „Þetta er orðið mikið reglugerðafargan og passa
þarf upp á að unnið sé eftir réttum bókum og viðhaldsreglum, en öll
umgjörð í flugmálum hefur stórskánað, tækin og flugvélarnar orðin
betri og allar reglur orðnar staðlaðar.“
Starf flugvirkjans er annars tvíþætt; annars vegar viðhaldsverkefni
í flugskýli og hins vegar línuviðhald en þá er tekið á móti flugvélum
þegar þær lenda og farið yfir þær.
Eiginkona Birgis er María Finnbogadóttir, sjúkraliði og heilsu-
nuddari. Dætur þeirra eru Berglind, nemi í margmiðlun í Tækniskól-
anum, og Dagný, sveinn í bílamálun. Fóstursonur Birgis er Finnbogi
Óskar Ómarsson, sölustjóri atvinnubíla hjá Ræsi.
Flugvirkinn Birgir er sjálfstætt starfandi og hefur verið úti um víða
veröld að vinna, síðustu fjóra mánuðina í Ísrael.
Nýkominn heim í frí
Birgir Sigurjónsson er sextugur í dag
H
anna Dóra Markús-
dóttir fæddist á
Akureyri 26.3. 1968
og ólst þar upp á
Brekkunni, í Gerða-
hverfi: „Fjölskyldan flutti þangað
inn í nýtt hús sem pabbi byggði,
ásamt fleiri íbúum raðhússins, þeg-
ar ég var sex ára. Þetta var því nýtt
hverfi. Við krakkarnir vorum mikið
„úti á Velli“ þar sem nú er KA-
svæðið. Þar var malar-knattspyrnu-
völlur og skautasvell á veturna svo
þetta varð vinsæll samverustaður
okkar krakkanna og tilvalinn leik-
vettvangur.
Hverfið varð snemma barnmargt
og við krakkarnir vorum alltaf úti
að leika, allan ársins hring, hvernig
sem viðraði. Þá voru engar tölvur
til að liggja yfir og því fór meira
Hanna Dóra Markúsdóttir, grunnskólakennari á Akureyri – 50 ára
Við kennslu Hanna Dóra lifir sig inn í eðlisfræðikennsluna, en hún kennir einnig náttúrufræði, dönsku og lífsleikni.
Félagslyndur og ötull
íþróttaálfur á Akureyri
Mæðgur Hanna Dóra samfagnar með Rakel, dóttur sinni, er hún, sem fyrir-
liði meistaraflokks, varð Íslandsmeistari með Breiðabliki, árið 2015.
Hólmavík Hilmar Gauti
fæddist 9. mars 2017 kl.
03.15 á Heilbrigðisstofnun
Suðurlands á Selfossi.
Hann vó 3.180 g og var 50
cm langur við fæðingu.
Foreldrar hans eru Inga
Hjörleifsdóttir og Jón Þór
Gunnarsson.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími 534 9600 · heyrn.is
GÓÐ HEYRN
GLÆÐIR SAMSKIPTI!
Með þeim heyrist talmál sérstaklega vel
vegna þess að þau þekkja tal betur
en önnur tæki.
Tæknin sem
þekkir tal
Nýju ReSound LiNX 3D
eru framúrskarandi heyrnartæki
ReSound LiNX3
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is