Morgunblaðið - 26.03.2018, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 26.03.2018, Qupperneq 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. MARS 2018 ICQC 2018-20 AF TILRAUNUM Ragnheiður Eiríksdóttir heidatrubador@gmail.com Úrslit Músiktilrauna 2018fóru fram á vordegi íHörpu síðasta laugardag og andrúmsloftið var fullt af von og eftirvæntingu, alveg eins og best verður á kosið. Þarna voru mættar 10 hljómsveitir, allar samankomnar til að gera sitt besta, og salurinn í Norðurljósum var fullur af vinum, aðstandendum og áhugafólki um ís- lenska tónlist sem lætur þennan ár- lega viðburð ekki fram hjá sér fara. Alvara lífsins tók við Eftir að sigursveitin í fyrra, Between Mountains, hafði lokið for- spili sínu (og sýnt okkur hversu vel þær eru að sigrinum komnar) var komið að alvöru lífsins og Grey Hil Mars steig á svið. Sveitin skartar prýðis-lagahöfundi sem greinilega á ágætt safn af lögum, því hún bætti tveimur nýjum lögum við eitt lag úr undankeppninni. Lokalagið, If I look back, var mjög gott, einhvers konar þjóðlaga-grugg. Bandið þarf bara aðeins að spila sig betur sam- an og fara svo að gefa út plötur og halda tónleika. 200 Mafía, fjölmennasta band Tilraunanna í ár með átta rappara innanborðs, stóð sig ágætlega, en sérstaklega var endurvinnsla þeirra á Fóstbræðrastefinu vel til fundin, og eiginlega stórfurðulegt að þetta stef hafi enn verið á lausu til að láta breyta sér í góðan rapp- takt. Beint í upptökur með þetta, strákar! Umbra, tríó úr Reykjavík sem leikur tilraunakennda leikhús- tónlist, komst nokkuð vel frá sínu en bætti afar litlu við frá undan- kvöldinu. Þarna er blússandi ímyndunarafl á ferð, en liðsmenn þurfa að æfa sig í að velja og hafna og raða hugmyndum betur, því stundum er bara allt of mikið í gangi á sama tíma. Karma Brigade, 6 ungmenni á aldrinum 15-16 ára voru næst á svið. Sveitin leikur afar vandaða og fágaða popptónlist og það er magn- að að jafn ungir krakkar séu að semja svo „fullorðna“ tónlist. Dag- mar Ýr Eyþórsdóttir rafmagnsgít- arleikari stal senunni því gítar- leikur og gítarsóló hennar voru hreint afbragð. Síðasta hljómsveit fyrir hlé var Ljósfari sem spilar eiginlega gleði- popp í anda sveitaballapopps tíunda áratugarins. Lokalagið þeirra, sem hafði verið samið daginn áður, var útvarpsvænn sumarslagari. Beint á Bylguna með þetta, strákar! Eftir viðeigandi japl, jaml og fuður og stigvaxandi spennu var komið að síðari hluta og Mókrókar tóku við sviðinu. Þeir tengdu öll þrjú lögin saman og hófu dagskrá á ómstríðu nótunum og unnu sig inná melódískari lendur í mögnuðu tón- listarferðalagi. Þarna var heiðar- legt og alvöru flæði í gangi og veru- lega reyndir spilarar á ferð. Madre Mía eru þrjár 14-15 ára stelpur af Skaganum og um mikil efni er þar að ræða. Það er helst að lagasmíðar séu ekki alveg komnar nógu langt, en hin 14 ára bassaleik- andi söngkona Katrín Lea Daða- dóttir var frábær og lokalag þeirra var mjög skemmtilegt þótt það þyrfti að þétta aðeins spila- mennsku. Æfa bara meira, stelpur! Academic lék tvær rólegar ballöður sem komust ekkert á neitt sérstakt flug, nema helst að þær flugu nokkuð átakalaust framhjá. Lokalagið var hressara, og greini- lega best æft og þar var ögn meira að gerast hjá þeim. Þá var næst komið að Atería, þremur stúlkum sem leika einhvers konar ný-goth. Lögin og textarnir voru dimmir og djúpir og einbeit- ing liðsmanna skrúfuð upp í hæstu stillingu. Hljóðfærin voru trommur, selló, bassi, gítar, hljómborð og dul- arfullar raddanir sem settu íslensk- an þjóðlagablæ á lagasmíðarnar, ekkert ósvipað og það sem Kolrassa krókríðandi gerði á sinni fyrstu plötu. Síðasta sveit á svið í Músiktil- raunum 2018 var Hugarró, tríó skipað 16 ára drengjum úr Eyja- fjarðarsveit, og mættu þeir fílefldir til leiks. Þarna var líka eina raun- verulega rokkbandið í úrslitum í ár og því um að gera að vera í stuði. Hugarró er langt frá því að vera ró- legt og líflegur gítarleikari og söngvari á stóran þátt í því. Ný- bylgjurokkið þeirra var mjög sann- færandi, og hljómsveitin hefur sinn eigin hljóm sem er bæði hrár og frumlegur. Úrslitin kynnt Þegar atkvæði voru öll talin og dómnefnd hafði lokið störfum voru niðurstöður eftirfarandi: Atería stóð uppi sem sigursveit Músiktilrauna 2018. Í öðru sæti voru Mókrókar og í því þriðja var Ljósfari. Önnur verðlaun voru eft- irfarandi: Söngkona Músiktilrauna var Eydís Ýr Jóhannsdóttir úr sveitinni Sif. Gítarleikari Músiktilrauna var Þorkell Ragnar Grétarsson úr Mó- krókum. Bassaleikari Músiktil- rauna var Snorri Örn Arnarson úr Ljósfara og Jóhönnu Elísu. Trommuleikari Músiktilrauna var Þórir Hólm Jónsson úr Mókrókum. Hljómborðsleikari Músiktilrauna var Jóhanna Elísa Skúladóttir. Raf- heili Músiktilrauna var Darri Tryggvason og verðlaun fyrir ís- lenska textagerð hlaut Agnar Dofri Stefánsson úr Agnarsmár. Hljóm- sveit fólksins var svo kosin af áhorf- endum sjónvarps og í sal, og hlust- endum Rásar 2, og Karma Brigade hlaut þau verðlaun. Mókrókar var svo kosin Blúsaðasta bandið. Skemmtilegri keppni er þá lok- ið, einu sinni enn, og niðurtalning getur hafist fyrir næsta ár. Magnað tónlistarferðalag » Þarna voru mætt-ar 10 hljómsveitir, allar samankomnar til að gera sitt besta, og salurinn í Norðurljósum var fullur af vinum. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Fyrsta sæti Atería vann Músiktilraunir 2018. „Lögin og textarnir voru dimmir og djúpir,“ segir í greininni. Annað sæti Hjá Mókrókum var „alvöru flæði í gangi og verulega reyndir spilarar á ferð“. Þriðja sæti Ljósfari „spilar eiginlega gleðipopp í anda sveitaballapopps tíunda áratugarins.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.