Morgunblaðið - 08.03.2018, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. MARS 2018 13SJÓNARHÓLL
TIL LEIGU
Skipholt 31 – 105 Reykjavík
Skrifstofuhúsnæði
2. og 3. hæð hússins
Stærð samtals 1.200 fm.
Virðisaukaskattslaust.
Ólafur Jóhannsson
Rekstrarfræðingur
Löggiltur leigumiðlari
Löggiltur fasteignasali
534 1023 / 824 6703
olafur@jofur.is
Allar nánari upplýsingar veitir:
Til leigu tvær samliggjandi skrifstofuhæðir samtals um 1.200 fm. Um er að ræða 2. og 3. hæð hússins (efstu hæð). Lyfta í
sameign. Gott útsýni og gluggar allan hringinn. Tveir rafmagnsstofnar eru inn í húsið og tveir ljósleiðarar, lagnaskápur fyrir
netkerfi með lögnum í allar skrifstofur á hæðum og tengibox fyrir ljósleiðara. Aðgangsstýrt bílaplan með yfir 50 stæðum er
við húsið. Getur hentað mjög vel fyrir t.d. tölvufyrirtæki eða almenna skrifstofustarfsemi. Uppl. um leiguverð gefur Ólafur í
síma 824-6703. Laust strax.
Sérhæfum okkur í sölu og leigu á atvinnuhúsnæði
Pantaðu verðmat eða skoðun – 534 1020 // sala@jofur.is
Bolholt 6, 105 Rvk. um 223 fm. verslunarhúsnæði á góðum stað.
Skiptist upp í opið verslunarrými, geymslu, eina kaffistofu, lagerrými og snyrtingu.
Vsk. leggst ekki við leigufjárhæðina. LAUST STRAX!
534 1020
Ármúla 7, Reykjavík - www.jofur.is
Ólafur
S: 824 6703
Magnús
S: 861 0511
Sigurður J.
S: 534 1026
Helgi Már
S: 897 7086
Bergsveinn
S: 863 5868
TIL I
Bolholt 6 – 105 Rvk.
Gerð: Verslunarhúsnæði
Stærð: 223 m2
Leiguverð: Tilboð
Allar nánari upplýsingar veitir:
Helgi Már Karlsson
Löggiltur fasteignasali og
löggiltur leigumiðlari
534 1024 / 897 7086
hmk@jofur.is
BÓKIN
Í mars 2016 úrskurðaði bandarísk-
ur dómstóll að útgáfufyrirtækið
Gawker Media, eigandi netslúður-
síðunnar Gawker og fleiri miðla,
skyldi greiða fjöl-
bragðaglímustjörnunni
Hulk Hogan, réttu
nafni Terry Gene
Boella, samtals 140
milljónir dala í skaða-
bætur fyrir að hafa
birt búta úr mynd-
bandi sem sýndu hann
njóta ásta með eigin-
konu besta vinar síns.
Dómurinn reið
rekstri Gawker að
fullu og nokkrum
mánuðum síðar óskaði félagið eftir
gjaldþrotaskiptum. Síðar sama ár
náðu Gawker og Boella sam-
komulagi um að lækka bótagreiðsl-
una niður í 31 milljón dala.
En þar með er ekki öll sagan
sögð, því Boella átti sér bakhjarl:
milljarðamæringinn Peter Thiel
sem m.a. var einn af stofnendum
PayPal og fyrsti utanaðkomandi
fjárfestir Facebook. Thiel hafði
lengi haft horn í síðu Gawker en
árið 2007 ljóstraði vefsíðan því upp
að Thiel væri samkynhneigður.
Hefur núna komið í ljós að Thiel
lét samtals 10 milljónir dala af
hendi rakna vegna ýmissa mála-
ferla gegn Gawker, og er eftir hon-
um haft að sú hjálp
sem hann veitti Boella
við að gera út af við
Gawker hafi verið
„eitt mesta góðverk
sem [hann] hafi gert“.
Var það ekki fyrr
en löngu eftir að dóm-
ur var fallinn að eig-
endur Gawker komust
að því að á bak við
tjöldin hafði Thiel
unnið staðfastlega að
því að knésetja útgáf-
una.
Komin er út bók um málið:
Conspiracy: Peter Thiel, Hulk
Hogan, Gawker and the Anatomy
of Intrigue eftir Ryan Holiday.
Bendir höfundurinn á að umsátrið
um Gawker hafi haft áhrif á þróun
prent- og málfrelsis á tímum þegar
smellirnir virðast ráða öllu, og sýni
líka hvers megnugir sterkefnaðir
einstaklingar geta verið þegar þeir
einsetja sér eitthvað. ai@mbl.is
Þegar Thiel og Hog-
an knésettu Gawker
Hvað þýðir það þegar talað er um að fasteign séskráð frjálsri skráningu? Í lögum nr. 50/1988um virðisaukaskatt kemur fram sú almenna
regla að útleiga á fasteignum er undanþegin virðis-
aukaskatti. Aftur á móti getur aðili, sem í atvinnuskyni
leigir út fasteign, eða hluta fasteignar, sótt um frjálsa
skráningu vegna slíkrar útleigu. Þýðing þess að fá sam-
þykkta frjálsa skráningu er sú að leigusali skal leggja
virðisaukaskatt ofan á leigugjaldið en hann öðlast á
sama tíma rétt til að telja til innskatts þann virð-
isaukaskatt sem fellur til eftir skráninguna vegna
kaupa hans á vörum og þjónustu vegna endurbóta og
viðhalds þeirrar fasteignar sem frjáls skráning tekur
til, svo og vegna rekstrar- og stjórnunarkostnaðar sem
varðar eignina. Að sama skapi öðlast leigutaki sem leig-
ir fasteign sem skráð er frjálsri skráningu heimild til
þess að telja skattinn til innskatts
samkvæmt almennum reglum.
Skilyrði frjálsrar skráningar
eru að eigandi hennar sé skráður
á virðisaukaskattsskrá, til staðar
sé skriflegur leigusamningur og
að yfirlýsingu leigutaka um að
hann samþykki fyrir sína hönd
frjálsa skráningu og þar með
greiðslu virðisaukaskatts af leigu-
gjaldi hafi verið þinglýst. Frjáls
skráning getur aldrei verið til
skemmri tíma en tveggja ára. Það
skal þó tekið fram að frjáls skrán-
ing getur aldrei tekið til húsnæðis
sem notað er að öllu leyti eða
hluta sem íbúðarhúsnæði.
Frjáls skráning hefur hins vegar í för með sér þá
kvöð að það myndast leiðréttingaskylda vegna þess inn-
skatts sem nýttur er til frádráttar í skattskilum leigu-
sala. Verði breyting á forsendum skráningarinnar ber
leigusala að leiðrétta (bakfæra) innskattinn sem nýttur
hefur verið til frádráttar í virðisaukaskattsskilum. Sam-
kvæmt 16. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt fyrn-
ist þessi leiðréttingarskylda á tuttugu árum þegar um
er að ræða fasteignir. Komi til þess að notkun fast-
eignar sem frjáls skráning tekur til breytist þannig að
skilyrði fyrir skráningunni séu ekki lengur fyrir hendi
skal framreikna innskattinn miðað við bygging-
arvísitölu og leiðrétta innskattsfrádrátt. Þegar þessi
leiðréttingarskylda innskatts virkjast þá er oft talað um
að virðisauka-skattskvöðin falli, enda þarf þá að gera
framreiknaðar eftirstöðvar hennar upp. Leiðréttingar-
kvöð innskatts vegna frjálsrar skráningar fasteigna
getur numið talsverðum fjárhæðum og því mikilvægt
að aðilar séu meðvitaðir um tilvist þessarar leiðrétting-
arskyldu og hvaða atvik og aðstæður geta leitt til þess
að hún virkist.
Algengast er að það komi til skoðunar hvort leiðrétt-
ingarskylda innskatts hafi virkjast þegar breyting verð-
ur á leigutaka, þeirri starfsemi sem fram fer í fasteign-
inni eða þegar fasteignin er seld. Þegar fasteign sem
skráð er frjálsri skráningu er seld getur kaupandi yfir-
tekið leiðréttingarskyldu innskatts. Í slíkum tilvikum
ber seljanda að gæta að því að kaupandi samþykki slíka
yfirtöku og sé bær til að taka
yfir leiðréttingarskylduna. Sé
ekki mælt fyrir um slíka yf-
irtöku með sérstökum hætti í
kaupsamningi um fasteignina þá
virkjast leiðréttingar-skyldan og
seljanda ber að gera upp áhvíl-
andi leiðréttingarkvöð innskatts.
Á þetta reyndi í úrskurði yf-
irskattanefndar nr. 396/2005 en í
því tilviki var ekkert kveðið á
um slíka yfirtöku í kaupsamn-
ingi aðila. Leiddi það til þess að
leiðréttingarskyldan féll á selj-
anda fasteignarinnar þrátt fyrir
að ekki hafi orðið breyting á
notkun fasteignarinnar. Þá ber seljandi jafnframt
ábyrgð á því að kaupandi fasteignarinnar sé bær til
þess að taka leiðréttingarskylduna yfir, þ.m.t. að fyr-
irhuguð nýting kaupandans á fasteigninni sé þess eðlis
að frjáls skráning geti átt við. Sú staða getur því komið
upp að seljandi þurfi að bera leiðréttingarskylduna
þrátt fyrir að mælt sé fyrir um yfirtöku hennar í kaup-
samningi. Af þeim sökum kann að vera skynsamlegt að
kveðið sé á um það í kaupsamningi að kaupandi takist á
hendur ábyrgð á því að hann sé bær til yfirtöku leið-
réttingarskyldunnar þannig að seljandi eigi þá skýra
kröfu á hendur kaupanda komi í ljós að hann geti ekki
tekið leiðréttingarskylduna yfir.
Frjáls skráning fasteigna
LÖGFRÆÐI
Garðar Víðir Gunnarsson,
héraðsdómslögmaður á LEX
”
Algengast er að það
komi til skoðunar hvort
leiðréttingarskylda inn-
skatts hafi virkjast þeg-
ar breyting verður á
leigutaka, þeirri starf-
semi sem fram fer í
fasteigninni eða þegar
fasteignin er seld.