Morgunblaðið - 08.03.2018, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. MARS 2018 15FÓLK
Þarftu að framkvæma?
Við eigum pallana fyrir þig
www.kvarnir.is
1996
2016
20 ÁRA
Kvarnir/Brimrás/Pallar ehf | Álfhellu 9 | 221 Hafnarfirði
sími 564 6070 | kvarnir@kvarnir.is | www.kvarnir.is | www.pallar.is
Vantar fyrirtækið þitt gæða
prentefni? Við bjóðum fjöl-
breyttar lausnir hvort sem er í
offset eða stafrænt. Komdu við
í kaffisopa og við finnum leið
sem hentar best hverju sinni.
PRENTVERK
Vefsíðan When in Iceland
(www.wheniniceland.is) er hönnuð
til að auðvelda ferðamönnum að
finna innlenda aðila sem bjóða upp á
alls kyns ferðir og upplifun.
Sigtryggur Arnþórsson, fram-
kvæmdastjóri When in Iceland, seg-
ir hugmyndina ekki ósvipaða gisti-
miðlun Airbnb, nema búið er að
heimfæra hana yfir á afþreyingar-
tengda ferðaþjónustu.
Sögu When in Iceland má rekja
allt aftur til ársins 2011 þegar Sig-
tryggi og félögum hugkvæmdist að
opna vefsíðu sem myndi auðvelda
litlum ferðaþjónustufyrirtækjum að
markaðssetja sig á netinu. Vefurinn
þróaðist hins vegar í núverandi
mynd eftir örlagaríkt sumarfrí 2015
sem Sigtryggur tók sér þegar hann
var í háskólanámi. Fríið notaði hann
til að stunda strandveiðar á Ólafs-
firði. „Ég hafði ákveðna draumsýn
um að eltast við fisk á spegilsléttum
firðinum á fallegum sumardegi, og
hélt að veiðarnar yrðu ágætis til-
breyting frá skólabókunum. Nema
hvað veðrið var alls ekki gott þetta
sumar, veltingurinn mikill og dag-
arnir langir,“ segir hann. „Síðan
varð ég var við það þegar ég landaði
að erlendir ferðamenn sem voru á
ferð um svæðið reyndust mjög
áhugasamir og spurðu oft hvort þeir
gætu farið í sjóstangveiði á bátnum.
Rann fljótlega upp fyrir mér að
mögulega gæti verið meira upp úr
því að hafa að þjónusta ferðamenn-
ina, og það sem meira er þá myndi
ég bara þurfa að sigla örstutt út á
fjörðinn þar sem var varla nokkur
öldugangur, og vinnudagurinn yrði
örugglega styttri.“
Sigtryggur rak sig þó fljótlega á
að það er hægara sagt en gert fyrir
einyrkja að bjóða ferðamönnum upp
á þjónustu af þessu tagi. „Ég sá
fram á að þurfa að gera vefsíðu,
þurfa að leggja mikla vinnu í mark-
aðsmálin og utanumhaldið, og
myndi þurfa að bæta við heilu
stöðugildi til að sinna almennum
rekstri og markaðsmálum.“
When in Iceland á að leysa þenn-
an vanda og leyfa fólki með góðar
hugmyndir að koma sér á framfæri
hratt og vel og taka við pöntunum
án nokkurrar yfirbyggingar. Segist
Sigtryggur sér í lagi vilja gera at-
hafnasömum einstaklingum um allt
land kleift að skapa sér nýja tekju-
lind sem mögulega gæti vaxið og
jafnvel á endanum orðið að litlu
fyrirtæki.
Fleiri um hituna
Greinilegt var að Sigtryggur var
ekki sá eini sem hafði kveikt á þess-
ari peru, því þegar vinna við nýja
gerð When in Iceland var komin vel
á veg svipti heimagistingarrisinn
Airbnb hulunni af nýrri vöru þar
sem notendur vefsíðunnar gátu
pantað alls kyns sniðugar ferðir.
„Það var vissulega ekki skemmti-
legt að fá þennan stóra keppinaut,
en tíminn hefur leitt í ljós að það er
töluverður munur á okkar vöru og
vöru Airbnb, og okkar ferðir meira
sniðnar að þörfum einstaklinga og
smárra hópa á meðan upplifanirnar
hjá Airbnb eru fyrir stærri hópa og
varan ekki jafn persónuleg.“
When in Iceland, sem tekur þátt í
Startup Tourism-hraðlinum, þarf að
yfirstíga ýmsar hindranir, jafnt
stórar sem smáar. Nefnir Sig-
tryggur að þeir sem vilja bjóða upp
á ferðir þurfi að hafa sótt um til-
skilin leyfi hjá Ferðamálastofu og
kosti það 23.000 kr. „Hindranirnar
eru þó mun meiri ef fólk vill leigja
út íbúð á Airbnb, en engu að síður
væri æskilegt ef stjórnvöld liðkuðu
enn frekar fyrir því að einyrkjar
gætu spreytt sig á þessu sviði.“
Þá þurfa vefsíður eins og When in
Iceland að gæta vandlega að því að
hafa rétt jafnvægi á milli framboðs
og eftirspurnar. Ef framboðið vant-
ar verða ferðamennirnir fyrir von-
brigðum, og ef eftirspurnin er ekki
nægilega mikil verða seljendur
óhressir. „Við höfum farið varlega
af stað og fengið þolinmóða selj-
endur til liðs við okkur. Á næstunni
ráðumst við síðan í markaðs-
setningu á hverri einustu ferð sem
When in Iceland býður upp á, og
notum til þess auglýsingar á
Facebook og Google til að ná beint
til markhópsins.“
Sigtryggur segir fyrirtækið orðið
rekstrarhæft og standa vonir til að
auka hlutafé á næstunni svo starf-
semin geti vaxið hraðar. „Ef vel
gengur hér á landi mætti yfirfæra
hugmyndina á önnur lönd og höfum
við þegar keypt nokkur vel valin lén
með það fyrir augum. Lítum við
einkum til Evrópulanda þar sem at-
vinnuleysi mælist mikið en mikið er
af ferðamönnum og gæti þetta t.d.
verið góður kostur fyrir ungt fólk að
skapa sér atvinnu.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sigtryggur Arnþórsson með félögum sínum Björgvini Pétri Sigurjónssyni og
Sveini Dal. Útrásarhugmyndir When in Iceland snúa m.a. að Evrópulöndum
þar sem atvinnuleysi er mikið en enginn hörgull á ferðamönnum.
Hjálpa ferðamönnum að finna ævintýri
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Nýr íslenskur sproti á sviði
ferðaþjónustu vonast til að
geta farið í útrás til Evrópu
ef vel gengur hér á landi og
stuðlað að atvinnusköpun
bæði hérlendis og erlendis.
SPROTAR
Truenorth Guðmundur Arason hefur verið ráðinn fram-
kvæmdastjóri kvikmyndafyrirtækisins Truenorth, sem
meðal annars þjónustar erlend kvikmyndaver hér á landi
og í Noregi. Hann tekur við starfinu af Helgu Margréti
Reykdal sem gegnt hefur starfinu frá stofnun félagsins árið
2003.
Guðmundur hefur starfað með hléum hjá Securitas frá árinu 1992 sem
framkvæmdastjóri og síðar sem forstjóri. Hann hefur leitt skipulagsbreyt-
ingar og stefnumótun ýmissa fyrirtækja á Íslandi og erlendis með setu í
stjórn og sem ráðgjafi.
Guðmundur hefur setið í stjórn Neyðarlínunnar, Íslenska gámafélagsins,
Arctic Track, Servio og fleiri félaga á síðustu árum.
Guðmundur tekur við sem framkvæmdastjóri
Expectus Emil Hjaltason hefur verið ráðinn ráðgjafi í við-
skiptagreind hjá Expectus, en félagið er íslenskt ráðgjafar-
fyrirtæki sem sérhæfir sig í ráðgjöf á sviði stefnumótunar,
rekstrar og upplýsingatækni.
Emil er B.Sc. í fjármálaverkfræði frá Háskólanum í
Reykjavík og B.Sc. í tölvunarfræði frá sama skóla.
Áður en Emil kom til starfa hjá Expectus vann hann við
hugbúnaðarþróun hjá Kviku, aðallega við innleiðingu umsýslukerfis
skýrsluskila til opinberra aðila auk sjálfvirknivæðingar skýrslugerðar.
Jón Orri Sigurðarson hefur verið ráðinn ráðgjafi í við-
skiptagreind hjá Expectus.
Jón Orri er M.Sc í viðskiptagreind frá Dalarna University
og B.Sc í tölvunarfræði frá Háskóla Íslands.
Jón Orri kemur til Expectus frá Svíþjóð, en þar starfaði
hann sem ráðgjafi í viðskiptagreind hjá Acando í þrjú ár,
eftir að hafa þar áður starfað við gagnaöflun og úrvinnslu
hjá Maskínu um árabil.
Nýir ráðgjafar í viðskiptagreind og uppýsingatækni
VISTASKIPTI