Morgunblaðið - 10.04.2018, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 10.04.2018, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2018 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is „Það er forgangsatriði hjá fyrirtæk- inu að þjónusta og svara þeim fyrir- spurnum sem hægt er varðandi eig- ur viðskiptavina í húsnæði Geymslna sem brann í Miðhrauni í Garðabæ. Allt okkar púður fer í það,“ segir Ómar Jóhannsson, framkvæmdastjóri hjá Geymslum ehf. Hann segir að þeir aðilar sem leigi Geymslum ehf. húsnæði verði kallaðir á fund en eina húsnæðið sem fyrirtækið á er á Tunguhálsi. „Að sjálfsögðu förum við yfir öll okkar mál í kjölfar svona atburða. Við teljum okkur vel búna á öllum stöðum. Það á svo eftir að koma í ljós hvað olli brunanum í Miðhrauni og draga lærdóm af því,“ segir Óm- ar sem telur að húsaleigusamningar sem Geymslur geri við viðskiptavini sem fasteignafélag um leigu á sér- hæfðu geymsluhúsnæði standist alla skoðun. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur unnið sleitulaust að rannsókn á orsökum brunans í Miðhrauni á fimmtudaginn. Lögreglan fékk að- gang að brunavettvangi á föstudag en beið fram á mánudagsmorgun með vettvangsrannsókn þar sem vonast var eftir að vettvangurinn yrði þá kólnaður og hreinsun vegna slökkvistarfs lokið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Þar kemur fram að enn sé mikill hiti á svæðinu, eldhreiður og hrunhætta og því sé óljóst hvernig rannsókninni miði eða hvenær henni ljúki. Samvinna um öryggismál Andri Ólafsson, samskiptastjóri VÍS, segir að búið sé að skrá 14 mál tengd brunanum í Miðhrauni og þeim eigi eflaust eftir að fjölga. Andri segir að VÍS vinni með fyrirtækjum í greiningu á áhættu- mati og forvörnum. Það hafi komið fyrir að VÍS hafi ekki treyst sér til þess að tryggja fyrirtæki vegna lé- legra öryggismála. „Það er allra hagur að öryggis- mál séu í lagi og slysum og tjónum fækki. Við erum með gott teymi sem vinnur með fyrirtækjum eins og til dæmis útgerðarfyrirtækjum með flókna starfsemi og mikinn fjölda starfsmanna. Það hefur skil- að sér í færri slysum á starfs- mönnum og óhöppum og lækkað ið- gjaldið fyrir fyrirtækin. Þannig fáum við stöðu þar sem allir græða; fyrirtækin, starfsfólkið og trygging- arnar,“ segir Andri. Andri segir að þegar kemur að einstaklingstryggingum fari verð- lagning eftir stöðluðum verðlistum og hann viti ekki til þess að trygg- ingar séu ódýrari ef ákveðnum ör- yggisatriðum sé framfylgt líkt og hjá stórfyrirtækjum. Ekki hægt að skoða brunavettvang enn  Allt púður fer í að aðstoða viðskiptavini  Eldhreiður og fallhætta í Miðhrauni  Tryggingar vinna með fyrirtækjum að öryggismálum  Öll mál Geymslna verða skoðuð í kjölfar brunans Morgunblaðið/Valli Bruni í Garðabæ Enn er mikill hiti á svæðinu, eldhreiður og brunahætta. Framburðurinn ótrúverðugur  Maður sem grunaður er um að hafa banað bróður sínum lýsti átökum í símtali Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Héraðsdómur Suðurlands féllst í gær á kröfu lögreglustjórans á Suðurlandi um að maður, sem handtekinn var um þarsíðustu helgi, grunaður um að hafa orðið bróður sínum að bana á heimili sínu í uppsveitum Árnessýslu, skuli sæta áframhaldandi gæslu- varðhaldi til 7. maí næstkomandi. Maðurinn hringdi í lögreglu klukkan 8.58 að morgni og til- kynnti að bróðir sinn væri látinn. Lýsti hann í símtalinu því hvernig þeir bræður hefðu lent í átökum kvöldið áður eftir að hafa setið að drykkju á heimilinu. Minni hans af atburðum væri óljóst en hinn látni hefði orðið brjálaður, þeir tekist á, en svo hefði rjátlast af hinum látna. Þetta kemur fram í gæsluvarðhaldsúrskurði Héraðs- dóms Suðurlands sem kveðinn var upp 31. mars og birtist á vef Landsréttar í gær. Þegar lögregla kom á vettvang hefði hinn grunaði verið blóðugur á höfði og hægri hendi. Áverkar hefðu verið á höfði hans. Hinn látni lá á gólfi þvottahúss og stór boga- laga skurður var á vinstra gagn- auga hans, efri vör var bólgin og töluvert blóð á andliti hans. Við skýrslutöku hjá lögreglu bar hinn grunaði við minnisleysi um það sem þeim bræðrum fór á milli en peningalán sem hann veitti hin- um látna hefði þó borið á góma. Hann gat ekki gefið haldbærar skýringar á því hvers vegna áverk- ar hefðu verið á honum sjálfum eða hvers vegna blóð hefði verið á and- liti hans, hendi og fötum þegar lög- reglu bar að. „Honum hafi brugðið í brún að sjá bróður sinn liggja lát- inn á gólfi þvottahússins … Hafi kærði séð að gleraugu sín hafi leg- ið brotin við fætur hins látna og hann hafi ákveðið að hreyfa ekki við þeim,“ segir í úrskurðinum. Lögreglumenn á vettvangi töldu af ummerkjum ljóst að til átaka hefði komið. Þeir töldu að blóð- slettur á hinum grunaða gætu ekki hafa komið til af því að hann hreyfði við olnboga hins látna til þess að athuga með stirðnun, eins og hann hefði staðhæft í skýrslu- töku. Framburður hans hjá lög- reglu teldist „ótrúverðugur“ og „það væri smekksatriði hvort litið yrði á þetta atvik sem morð“, segir þar ennfremur. Héraðsdómur Gæsluvarðhald framlengt til 7. maí næstkomandi. Þemaþing Norðurlandaráðs stendur nú yfir á Akureyri. Hafið er í brenni- depli á þinginu og fjallað er um það frá ýmsum sjónarhornum. Hafið er enda afar mikilvægt fyrir afkomu margra Norðurlandabúa. Það var því viðeigandi að þingmenn tækju sér hlé frá þingstörfum og skelltu sér í siglingu með hvalaskoðunarbátnum Hafsúlunni. Veðrið lék við þingmenn þegar lagt var úr höfn síðdegis í gær. Þingmenn skelltu sér í siglingu í blíðviðri Ljósmynd/Þorgeir Baldursson Ásmundur Einar Daðason félags- málaráðherra sagði á Alþingi í gær að fréttir af vanda ungmenna sem glímdu við fíkn krefðust þess að gripið yrði hratt inn í. Hann boðar að úrræði fyrir þessi ungmenni verði komin í gagn- ið innan tveggja vikna. Halldóra Mogensen, formaður velferðarnefndar og þingmaður Pír- ata, spurði ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnartíma hvaða úrræða hann ætlaði að grípa til í þessum málaflokki. Vísaði Halldóra í opið bréf foreldra sautján ára ungmenn- is sem birt var í gærmorgun en þar er rakin þrautaganga fjölskyld- unnar vegna fíknivanda ungmenn- isins. Sagði Halldóra að líf þessara ungmenna væri í hættu og spurði hvað liði því að nýtt vistheimili yrði tekið í notkun. Ráðherra svaraði því til að unnið væri að fjármögnun vegna þessa nýja vistheimilis en það myndi liggja fyrir innan tveggja vikna, eins og áður var nefnt. „Það má ekki gerast aftur það sem gerðist um síðustu helgi að börn séu vistuð í fangaklefa vegna úrræðaleysis,“ sagði Ásmundur Einar og lýsti því jafnframt yfir að lögregla og aðrir sem hafa með mál þessara ung- menna að gera hefðu aðgang að ráðherra allan sólarhringinn væri þess þörf. Sérstök umræða var um starf- semi smálánafyrirtækja á Alþingi í gær. Málshefjandi var Bjarkey Ol- sen Gunnarsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, og sagði hún það mál margra að smálánum væri beint að samfélagshópum sem byggju við slakan efnahag og slík starfsemi væri óforskömmuð. Þór- dís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferða- mála-, iðnaðar- og nýsköpunar- ráðherra, kvaðst hafa ákveðið að skipa starfshóp sem ætti að gera heildræna úttekt á starfsemi smá- lánafyrirtækja. hdm@mbl.is Boðar úr- ræði fyrir börnin  Líf ungmenna sagt vera í hættu Ásmundur Einar Daðason

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.