Morgunblaðið - 10.04.2018, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 10.04.2018, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2018 HURÐIR Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is • Stuttur afhendingartími • Hágæða íslensk framleiðsla • Val um fjölda lita í RAL-litakerfinu • Vindstyrktar hurðir Bílskúrs- og iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir með gönguhurð Bílskúrshurðir Hurðir í trékarma Tvískiptar hurðir Smíðað eftir máli Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf Sunna Elvira Þorkelsdóttir kom til Íslands í gær en hún var flutt hingað með sjúkraflugi frá Spáni. Vélin lenti síðdegis á Kefla- víkurflugvelli og var Sunna flutt með sjúkrabíl á endurhæfing- ardeild Landspítalans á Grensási. Þar verður hún í einangrun í nokkra daga eftir sjúkrahúsdvölina ytra. „Það var tekið rosalega vel á móti mér hér á Grensás og mjög gott að geta talað við lækna og hjúkr- unarfólk á íslensku en ekki bjagaðri spænsku,“ sagði Sunna í samtali við Mbl.is í gærkvöldi. Sunna sagði að flugferðin heim hefði gengið vel. „Ég er enn að átta mig á því að ég er loksins komin heim,“ sagði hún. Sunna Elvira lamaðist eftir fall á Spáni í janúar. Farbanni hennar var aflétt í síðustu viku en hún var sett í það í kjölfar handtöku eiginmanns hennar, Sigurðar Kristinssonar, sem talinn er eiga aðild að fíkniefnainn- flutningi. Sunna Elvira Þorkelsdóttir komin heim Sunna Elvira Þorkelsdóttir „Í heild verður svifrykið frá flugeldum um áramótin að teljast afar varasamt. Það mælist afar hátt, stór hluti þess virðist mjög fínn, það er málmríkt, kolefn- isríkt, brennisteinsríkt og klórríkt og í því mælast efni eins og bensón(a)pýren.“ Þetta eru niðurstöður rannsókna á svifryki frá mælistöðvum á höfuðborgarsvæðinu frá síðustu ára- mótum, þ.e. Norðurhellu og Hvaleyrarholti í Hafn- arfirði, Dalsmára í Kópavogi og á fjórum stöðum í Reykjavík, á Hringbraut, Eiríksgötu, Grensásvegi og í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Laugardal. Mældir efnisþættir voru svifryk í lofti, ólífræn snef- ilefni og fjölhringa kolefnissambönd í svifrykinu. Verkefnið var unnið undir stjórn Hermanns Þórð- arssonar hjá Efnagreiningum Nýsköpunarmiðstöðvar í samvinnu við Umhverfisstofnun, Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur og Helbrigðiseftirit Hafnarfjarðar og Kópavogssvæðis. Mikið mengunarský lagðist yfir allt höfuðborg- arsvæðið á nýársnótt eftir að fólk í hátíðarskapi hafði skotið flugeldum á loft af miklum móð og kveikt hafði verið í áramótaköstum á mörgum stöðum. Veðurað- stæður áttu þátt í því að mengunin varð meiri en ella, hægir vindar og kuldi. Fram kom í Morgunblaðinu í byrjun janúar að á gamlárskvöld fóru svifryksgildi upp í allt að 4.500 míkrógrömm á rúmmetra við Dals- mára í Kópavogi, samkvæmt sjálfvirkum mælistöðv- um. Á fyrstu klukkustund ársins mældist mengun á mælingarstöð á horni Grensásvegar og Miklubrautar í Reykjavík 1.457 míkrógrömm á rúmmetra. Heilsu- verndarmörk fyrir svifryk eru 50 míkrógrömm á rúmmetra. gudmundur@mbl.is Morgunblaðið/Hari Svifryk Mengunarský lá yfir öllu höfuðborgarsvæðinu um áramótin eftir flugeldana sem skotið var upp. Svifryk frá flugeldunum sagt afar varasamt  Skýrsla komin um mengunina miklu um síðustu áramót Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Hildur Dungal, lögfræðingur hjá dómsmálaráðuneytinu og formaður stýrihóps um varnir gegn peninga- þvætti og fjár- mögnun hryðju- verka, segir að fyrstu drög að nýrri löggjöf, sem innleiðir fjórðu til- skipun Evrópu- sambandsins um aðgerðir gegn peningaþvætti, verði tilbúin um miðjan mánuð. Hún segir að verið sé að leggja mikla áherslu á að klára slíka innleiðingu en með nýju lögunum um peningaþvætti verður einnig hægt að laga tæknilegar hliðar sem nýleg úttekt Financial Action Task Force (FATF) benti á að þyrfti að laga. „Með því að innleiða og koma með ný lög um peningaþvætti, lögum við líka það sem er svona tæknilega að hjá okkur. Úttekt FATF er tvískipt að ákveðnu leyti, annars vegar hvernig við höfum tæknilega innleitt tilmæli FATF og hins vegar er þetta skilvirknisúttekt um hvernig kerfið er að virka. Það þarf til dæmis að koma nýju kerfi á hjá peningaþvættisskrifstofunni, stjórnvöld þurfa að vinna betur sam- an og það þarf öflugri upplýsinga- skipti,“ segir Hildur en skilvirknis- þátturinn var sá sem var gagnrýndur mest í skýrslunni. Skýrsla FATF er reglubundin út- tekt sem gerð er á öllum aðildarríkj- um. Hildur segir að tilgangurinn sé að finna þá veikleika sem eru í kerf- inu svo hægt sé að bregðast við. „Ástæðan fyrir því að það sé lögð svona mikil áhersla á að skoða til- mæli FATP og hvernig þau virka, er til að standa vörð um trúverðugleika alþjóðlegs fjármálakerfis. Það er allt- af þetta mikla samspil þar og þess vegna er þetta skoðað hjá öllum. Eins og kemur fram í okkar úttekt þá þarf að þétta netið. Það er margt sem við þurfum að taka á og það er gegnumgangandi í úttektinni að það vantar samhæfingu og samvinnu stjórnvalda sem að þessu koma.“ Hildur bendir á að meðal þess sem þarf að bæta samkvæmt FATF er að koma á fót nýju upplýsingakerfi hjá peningaþvættisskrifstofu héraðssak- sóknara svo að þau geti frekar ein- beitt sér að greiningum. Stýrihópurinn um varnir gegn peningaþvætti mun að sögn Hildar skoða úttekt FATF vel enda sé hún yfirgripsmikil. Þá verður ráðist í þær úrbætur sem nauðsynlegt er að fara í. „Það er auðvitað margt sem við þurfum að laga en það er gott við skýrsluna að hún bendir á það sem við þurfum að gera og út frá því kem- ur í raun mjög góð aðgerðaráætlun.“ Ný lög um peninga- þvætti á döfinni  Fyrstu drög kynnt um miðjan aprílmánuð  Lögin inn- leiða fjórðu tilskipun ESB um aðgerðir gegn peningaþvætti Aðgerðir gegn pen- ingaþvætti á Íslandi » Auka samvinnu stjórnvalda sem koma að málum um pen- ingaþvætti. » Breyta þarf um kerfi hjá peningaþvættisskrifstofu hér- aðssaksóknara. » Innleiða fjórðu tilskipun ESB um peningaþvætti. » Auka skilvirknisþátt eftir- litsaðila. Morgunblaðið/Stella Andrea Peningaþvætti Ef veikur hlekkur er í alþjóðlega fjármálakerfinu leitar ólög- mætt fé þangað, segir Hildur Dungal, lögfræðingur í dómsmálaráðuneytinu. Hildur Dungal Erna Ýr Öldudóttir ernayr@mbl.is Veitur vita ekki hve lengi skólprusl hefur legið í fjörunni og um útivist- arsvæði Reykvíkinga við Ægisíðu. „Við fengum ábendingar á laug- ardag og þær komu okkur aðeins á óvart, því það eru tíu, ellefu dagar síðan hleypt var síðast úr stöðinni í fjórar mínútur, sem skýrir engan veginn þetta magn,“ segir Ólöf S. Baldursdóttir, einn af upplýsinga- fulltrúum Orkuveitunnar. Hvort um geti verið að ræða rusl frá biluninni sl. sumar segir Ólöf að fjörurnar hafi verið hreinsaðar nokkuð vel eftir það. Þetta séu minnst lífræn efni og ekki eigi að vera um smithættu að ræða. Þetta séu blautklútar, eyrnapinnar o.þ.h. sem hafi flækst saman við þang, en slíku rusli eigi ekki að sturta niður. Veitur séu nú í viðræðum við Um- hverfisstofnun og Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur um hvernig sé best að fjarlægja ruslið, sem sé erfitt í tínslu. „Við bilanir eða viðhald þarf að slökkva á kerfinu og þá fer allt út, annars færi skólpið til baka og inn til fólks. Ekki er um annað að ræða,“ segir Ólöf en bætir við að allir geti nú fylgst með stöðunni á „fráveitu- sjánni“ á vef Veitna, hvenær dælu- stöðvarnar eru opnar og hvenær opnað var síðast. Ef um stærri atvik sé að ræða sendi þau út frétta- tilkynningu að auki. Hvort tveggja sé bætt upplýsingagjöf síðan sl. sum- ar. Ólöf segir þau ekki vita hve lengi rusl sem þetta geti verið að velkjast í sjónum, en ákveðin veður og breytilegir hafstraumar gætu hafa borið ruslið að landi að þessu sinni. „Svo erum við ekki ein um að reka fráveitu.“ Dagur B. Eggertsson borgar- stjóri segist í samtali við Morg- unblaðið hafa fylgst með málinu og kveðst ánægður með viðbrögð Veitna. Tillögur að bættu kerfi liggi nú þegar fyrir eftir ársfund Orku- veitunnar í sl. viku. „Ruslinu virðist hafa skolað á land, Veitur brugðust strax við ábendingum og sendu fólk til að hreinsa. Stóra málið er að fráveitu- kerfið sé í lagi og að þannig kerfi verði tekin í notkun um allt land.“ Dagur ánægð- ur með Veitur  Engin skýring á miklu magni af skólprusli sem rak á land við Ægisíðu Ljósmynd/Alda Sigmundsdóttir Frá Ægisíðu Blautþurrkur, eyrnapinnar o.fl. virðast vera uppistaðan í rusl- inu sem nam land í Vesturbænum, en slíku rusli ætti ekki að henda í klósett.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.