Morgunblaðið - 10.04.2018, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 10.04.2018, Qupperneq 8
Ljósmynd/Wikimedia Þvottabjörn Einn fannst við Hafnir. Þvottabjörninn, sem fannst við Hafnir á Reykjanesi um miðjan febrúarmánuð, var ekki með hundaæði. Það staðfesta sýni sem tekin voru úr birninum og send til rannsókna í Svíþjóð. Jarðneskar leifar þvottabjarn- arins eru núna í frysti hjá Til- raunastöð Háskóla Íslands í meina- fræði að Keldum í Reykjavík og ráðgert er að rannsaka þær á næstunni með tilliti til dýraheil- brigðis og dýrasjúkdóma. Hundurinn enn í einangrun Hjalti Andrason, fræðslustjóri hjá Matvælastofnun, segir að ákveðið hafi verið að ganga fyrst úr skugga um hvort þvottabjörninn hafi verið með hundaæði. „Það er gert til að tryggja öryggi starfs- manna vegna hættu á smiti þeirra sem rannsaka hann frekar,“ segir Hjalti. Hundur, sem komst í snert- ingu við dýrið, var settur í ein- angrun á heimili sínu vegna hættu á að hann hefði smitast af dýra- sjúkdómum. Hundurinn er enn í einangrun, að sögn Hjalta. Nú taka frekari rannsóknir á dýrinu við og segir Hjalti ekki liggja fyrir hve- nær niðurstöður þeirra muni liggja fyrir. annalilja@mbl.is Þvottabjörn var ekki með hundaæði  Enn óvíst hvaðan þvottabjörninn sem fannst við Hafnir kom 8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2018 Minningarsjóður Sigurlaugar Margrétar Pétursdóttur Auglýsir eftir umsóknum um styrki til krabbameins- rannsókna eða forvarna. Einstaklingar og fyrirtæki geta sótt um styrki. Í umsóknum þarf að koma fram lýsing, tímasetning og áætlaður kostnaður verkefnisins. Stjórn Umsóknir skulu sendast á netfangið smpminning@gmail.com fyrir 1. maí nk. Brynjar Níelsson alþingismaðurvar gestur þáttarins Ísland vaknar á K100 í gærmorgun og ræddi þar með- al annars um Ríkisútvarpið. Þar lýsti hann þeirri skoðun sinni að stofn- unin væri orðin úrelt og að réttast væri að leggja hana af.    Hann sagðist vita að margirhefðu áhyggjur af að efnið hyrfi, en benti á að aðrir myndu ef- laust taka að sér framleiðslu á því efni sem fólk mundi sakna.    Þá benti hann á þá óeðlilegustöðu að Ríkisútvarpið fengi meira en fjóra milljarða króna í forgjöf á markaðnum og spurði hvort slíkt yrði liðið á öðrum svið- um.    Þessi óeðlilega forgjöf er eitt afþví sem varð til þess að skipuð var nefnd til að gera tillögur um bætt rekstrarumhverfi einkarek- inna fjölmiðla.    Eftir rúmt ár skilaði sú nefndniðurstöðu og hefur sú niður- staða nú verið sett í einhvers konar nefnd. Á sama tíma hefur verið ákveðið að fella niður virðis- aukaskatt af bókum frá næstu ára- mótum.    Ekki hefur verið útskýrt hversvegna annað ritmál, sem einn- ig er mikilvægt fyrir íslenska tungu, verður undanskilið.    En á meðan málið er gaumgæftkeppa einkareknir fjölmiðlar áfram við milljarða Ríkisútvarps- ins, að ógleymdum erlendum netr- isum sem starfa í allt öðru um- hverfi en íslenskir fjölmiðlar. Ríkisútvarpið og rekstrarumhverfið STAKSTEINAR Veður víða um heim 9.4., kl. 18.00 Reykjavík 6 skýjað Bolungarvík 4 léttskýjað Akureyri 5 heiðskírt Nuuk 5 léttskýjað Þórshöfn 5 skýjað Ósló 4 þoka Kaupmannahöfn 13 þoka Stokkhólmur 2 rigning Helsinki 7 heiðskírt Lúxemborg 17 léttskýjað Brussel 16 heiðskírt Dublin 10 skýjað Glasgow 11 léttskýjað London 9 þoka París 12 rigning Amsterdam 11 súld Hamborg 18 heiðskírt Berlín 21 heiðskírt Vín 24 heiðskírt Moskva 15 heiðskírt Algarve 15 léttskýjað Madríd 6 skýjað Barcelona 16 léttskýjað Mallorca 17 léttskýjað Róm 13 rigning Aþena 18 heiðskírt Winnipeg -5 skýjað Montreal -3 skýjað New York 4 heiðskírt Chicago 0 snjókoma Orlando 26 skýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 10. apríl Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 6:13 20:46 ÍSAFJÖRÐUR 6:11 20:58 SIGLUFJÖRÐUR 5:54 20:41 DJÚPIVOGUR 5:41 20:17 Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi íslenska ríkið í gær til að greiða karlmanni á þrítugsaldri 700 þúsund krónur í bætur. Maðurinn sat í einangrun í tvo sólarhringa vegna gruns um kynferðisbrot. Málinu lauk með að rannsókn þess var hætt og niðurfell- ingu. Maðurinn krafðist 5,75 millj- óna króna í miskabætur vegna hand- töku, einangrunarvistar og far- banns. Í bótakröfu hans kom fram að maðurinn hefði orðið fyrir stór- felldum miska vegna þvingunar- aðgerða lögreglu og íslenskra yfir- valda. Hann hefði verið ranglega sakaður um kynferðisbrot og þurft að þola langvarandi frelsissviptingu og fordæmingu samfélagsins. Ríkið sagði allar aðgerðir lögreglu hafa verið lögmætar og öðru var mót- mælt. Héraðsdómur dæmdi að mað- urinn ætti rétt á miskabótum, þótt þær séu töluvert lægri en það sem hann fór sjálfur fram á. Miskabæt- ur fyrir einangrun  Kynferðisbrotamál sem var fellt niður Einangrunarklefi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.