Morgunblaðið - 10.04.2018, Síða 12

Morgunblaðið - 10.04.2018, Síða 12
Íslenskir og erlendir rithöfundar lesa úr verkum sínum í Norræna húsinu kl. 20 í kvöld, þriðjudaginn 10. apríl, Höf- undakvöldið er í tengslum við rithöf- undabúðirnar Iceland Writers Retreat, www.icelandwritersretreat.com, sem haldnar verða í fimmta sinn á Íslandi dagana 11. - 15. apríl. Frægir rithöf- undar hvaðanæva úr heiminum leið- beina þar þátttakendum í málstofum um ritlist og bókaskrif. Rithöfundarnir sem fram koma í kvöld eru Hilton Als, Lina Wolff, Gwen- doline Riley, Andri Snær Magnason, Lauren Groff, Hallgrímur Helgason og fleiri leiðbeinendur við rithöfundabúð- irnar. Upplestri og umræðum stýrir Egill Helgason. Aðgangur er ókeypis og öllum opinn. Viðburðurinn fer fram á ensku. Norræna húsið í kvöld Höfundar lesa úr verkum sínum Morgunblaðið/Kristinn Stjórnandinn Egill Helgason stýrir upplestri og umræðum. 12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2018 PIANO NÝ SENDING 14.995 Getty Images/iStockphoto Alein/n? Einmanaleiki er ekki það sama og að vera einn. Flestir finna ein- hvern tímann fyrir einsemd og þarf það ekki endilega að vera neikvætt. Valgerður þ. Jónsdóttir vjon@mbli.is Horfið er nú sumarið og sólin í sálu minni hefur gríma völd. Í æsku léttu ís og myrkur jólin, nú einn ég sit um vetrarkvöld. Þessar tregafullu ljóð-línur eru fimmta versdægurlagaperlunnarSöknuðar, sem Vil- hjálmur heitinn Vilhjálmsson söng á plötunni Hana nú árið 1977 við lag Jóhanns Helgasonar, tónlistar- manns. Lagið, sem fjallar um ein- manaleika og söknuð, hefur efalít- ið rifjast upp fyrir mörgum undanfarið því í fréttum hefur það verið helst að Jóhann hyggst stefna tónlistarútgáfu, norskum lagahöfundi og tengdum aðilum fyrir hugverkastuld. Svo fallegt þykir lagið að haft hefur verið á orði að engu sé líkara en Guð hefði samið það. Einmanaleiki er ekki aðeins innblástur fyrir fögur ljóð og söngva heldur er hann að fróðra manna mati nútíma faraldur sem veldur alls konar heislufarsvanda- málum. Svo alvarlegum augum líta Bretar á vandamálið að þar í landi var í ársbyrjun skipaður sérstakur ráðherra einmanaleika. „Einmana- leiki er sorglegur raunveruleiki allt of margra,“ sagði Theresa May, forsætisráðherra, af því til- efni og vitnaði í niðurstöður rann- sóknar sem leiddi í ljós að meira Einn ég sit um vetrarkvöld Er einmanaleiki nútíma faraldur á heimsvísu, sem veldur fólki andlegu og líkam- legu heilsutjóni? Þrátt fyrir aukin samskipti fólks á facebook og öðrum samfélags- miðlum, líta Bretar svo á og hafa skipað sérstakan ráðherra einmanaleika. Rétt eins og ástin, hamingjan og vonin er innblástur fyrir hugverk af ýmsu tagi, er ein- manaleikinn og söknuðurinn það ekki síður. Ýmsar goðsagnir hafa líka skapast um einmanaleikann, sem velta má fyrir sér hvort sannleikskorn sé í sem og hvort maður sé alltaf manns gaman. Morgunblaðið/Eggert Gott er að eiga góðan vin Mannfólkið er mismunandi mikið sjálfu sér nógt. Samtök um endómetríósu efna til málþingsins Unglingar og endómet- ríósa kl. 16.15 - 18 á morgun, mið- vikudaginn 11. apríl, í Hringsal Land- spítalans við Hringbraut. Í ár verða raddir unglinga og ungra stúlkna með endómetríósu og málefni þeirra í forgrunni í starfi samtak- anna. Endómetríósa, einnig kallað legslímuflakk, er krónískur, sárs- aukafullur sjúkdómur sem orsakast af því að frumur úr innra lagi legs- ins finnast á öðrum stöðum í kvið- arholinu, segir m.a. á vefsíðunni www.endo.is. Dagskráin hefst á því að Salvör Nordal, umboðsmaður barna, fjallar um réttindi barna og unglinga til heilbrigðisþjónustu og náms. Þá segja konur með sjúkdóminn frá reynslu sinni og Auður Smith, kven- sjúkdóma- og fæðingarlæknir, fjallar um mikilvægi klínískrar greiningar og eftirfylgni með ungum stúlkum með endómetríósu. Í lok málþings- ins verður opið fyrir fyrirspurnir. Engin skráning, allir velkomnir. Vefsíðan www.endo.is Ljósmynd/Stúdíó Stund Unglingar og endómetríósa 10% Talið er að um 10% stúlkna og kvenna séu með legslímuflakk. Sjúkraþjálfun í geðvernd er ekki ný af nálinni en hún hefur undanfarin ár verið í mikilli þróun með tilkomu Al- þjóðasamtaka sjúkraþjálfara um geð- heilsu (IOPTMH), en samtökin hafa staðið fyrir alþjóðlegum ráðstefnum og verður sú sjöunda í röðinni á Ís- landi nú í apríl. Markmið samtakanna eru m.a. að stuðla að alþjóðlegri sam- vinnu milli sjúkraþjálfara sem starfa við sálvefræna sjúkraþjálfun, auka gæði og samræmingu í störfum, stuðla að faglegri framþróun, hvetja til vísindarannsókna og stuðla að fjölgun undirfélaga. Geðheilsa kemur öllum sjúkraþjálfurum við, er slagorð ráðstefnunnar sem verður á Hilton Reykjavík Nordica 10.-12. apríl. Auk alþjóðasamtakanna standa að ráð- stefnunni Félag íslenskara sjúkra- þjálfara og undirfélag þess, Félag sjúkraþjálfara um sálvefræna heilsu. Íslenska félagið var eitt af stofn- félögum IOPTMH, og í dag eru þar fé- lög frá 20 löndum og 5 heimsálfum. Í tilkynningu kemur fram að aðal- fyrirlesarar verði þau dr. Michel D. Landry, sjúkraþjálfari sem er m.a. þekktur fyrir störf sín á hamfara- svæðum og Stephanie Saenger, for- maður Evrópusamtaka iðjuþjálfa. Nánar á: www.icppmh.org Alþjóðleg ráðstefna á Íslandi um geðheilsu Michel D. Landry Stephanie Saenger Morgunblaðið/Ásdís Geðheilsa kemur öllum sjúkraþjálfurum við Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.