Morgunblaðið - 10.04.2018, Síða 14

Morgunblaðið - 10.04.2018, Síða 14
Sex skálar » Ferðafélag Fljótsdalshér- aðs á og rekur sex gisti- skála. » Sá nýjasti er í Loðmund- arfirði og er hann, eins og skálarnir í Breiðuvík og Húsavík, rekinn í samstarfi við ferðamálahópinn á Borg- arfirði eystra. » Tvo skála á félagið við gönguleiðina á Lónsöræfum, Geldingafell og Egilssel við Kollumúlavatn. » Einnig á FFF, ásamt Ferðafélagi Húsavíkur, Sig- urðarskála í Kverkfjöllum. Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Vaskur 10 manna hópur fór um helgina á fjórum björgunarsveitar- jeppum í Egilssel, skála Ferða- félags Fljótsdalshéraðs við Kollu- múlavatn á Lónsöræfum. Auk þess að taka til í skálanum og gera klárt fyrir sumarið var fjarskiptamálum komið í viðunandi horf. Með nýrri tetrastöð næst nú beint samband við Neyðarlínuna í gegnum fjarskiptastöð Neyðarlín- unnar á Grjóthnúki eystri, sem er um 15 kílómetra austan við Snæfell. Einnig var talstöðvarsamband lag- fært með nýrri VHF-stöð með betra loftneti þannig að samband verður öruggara á milli Egilsskála og Mú- laskála. „Þetta gerir svæðið miklu örugg- ara til ferðalaga en áður og leysir í raun úr mjög aðkallandi vanda,“ segir Þórhallur Þorsteinsson, fram- kvæmdastjóri Ferðafélags Fljóts- dalshéraðs. „Í fyrra var leitað að fólki á þessu svæði, sem skilaði sér sem betur fer. Sambandsleysið varð hins vegar til þess að ekki var hægt að afturkalla leit fyrr en eftir mjög mikla vinnu björgunarsveitar- manna,“ segir Þórhallur. Hann segir að 2-300 manns gangi árlega á þessum slóðum á vegum FFF og annarra. Svæðið hafi átt vaxandi vinsældum að fagna og vel sé bókað fyrir sumarið, þó svo að ekki sé enn fullbókað í skálana. Þór- hallur segir að óvenju mikill snjór sé á leiðinni af Héraði inn á Lóns- öræfi miðað við undanfarin ár. Verkefnið hafi verið unnið í góðri samvinnu FFF, Ferðafélags Ís- lands, Neyðarlínunnar og björg- unarsveitanna Jökuls og Héraðs. Ljósmynd/Þórhallur Þorsteinsson Í Stafafellsfjöllum Öryggi jókst til muna þegar Egilssel tengdist Neyðarlínunni um síðustu helgi. Aukið öryggi fyrir ferða- langa á Lónsöræfum  Samband við Neyðarlínuna  Hefði sparað mikla vinnu 14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2018 Suðurlandsbraut 6, Rvk. | Sími 419 9000 info@handafl.is | handafl.is Við útvegum hæfa starfskrafta í flestar greinar atvinnulífsins Markmið okkar er að spara viðskiptavinum tíma, fyrirhöfn og fjármuni. VA N TA R Þ I G STA R FS F Ó L K Handafl er traust og fagleg starfsmannaveita með margra ára reynslu á markaði þar sem við þjónustum jafnt stór sem smá fyrirtæki. Fulltrúaráð Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð hefur samþykkt framboðslista Sjálfstæðisflokksins fyrir kom- andi sveitarstjórnarkosningar. Jens Garðar Helgason, nú- verandi oddviti flokksins og formaður bæjarráðs, skipar efsta sæti listans og í næstu tveimur sætum koma bæj- arfulltrúarnir Dýrunn Pála Skaftadóttir og Ragnar Sig- urðsson. Að öðru leyti er talsverð endurnýjun á listanum frá kosningunum fyrir fjórum árum. Konur eru í meiri- hluta meðal frambjóðenda, eða tíu á móti átta körlum. Jens áfram efstur á D-lista í Fjarðabyggð Jens Garðar Helgason Á félagsfundi Vinstri grænna í Árborg nýverið var sam- þykktur listi fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Halldór Pétur Þorsteinsson verkfræðingur leiðir listann, í öðru sæti er Anna Jóna Gunnarsdóttir hjúkrunarfræð- ingur, í þriðja sæti er Sigurður Torfi Sigurðsson, sjálf- stæður atvinnurekandi, og Guðbjörg Eva Guðbjarts- dóttir ferðamálafræðingur er í fjórða sæti. Listinn er talsvert endurnýjaður frá kosningunum fyr- ir fjórum árum, en þá missti flokkurinn fulltrúa sinn í bæjarstjórn Árborgar. Halldór var síðast í 9. sæti listans. Halldór Pétur efstur hjá VG í Árborg Halldór Pétur Þorsteinsson Ingibjörg Guðlaug Jónsdóttir, mannauðsstjóri á Siglu- firði, skipar efsta sætið á nýjum framboðslista, Betri Fjallabyggð, fyrir sveitarstjórnarkosningarnar. Í frétta- tilkynningu segir að um þverpólitískt og óháð framboð sé að ræða. Í öðru sæti er Nanna Árnadóttir, sem hefur verið varabæjarfulltrúi í Fjallabyggð fyrir Samfylk- inguna, og Konráð Karl Baldvinsson, fv. forstjóri Heil- brigðisstofnunar Fjallabyggðar, er í þriðja sæti. Heið- urssæti listans skipar Steinunn María Sveinsdóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar. Ingibjörg leiðir lista Betri Fjallabyggðar Ingibjörg Guðlaug Jónsdóttir 2018 Baldur Arnarson baldura@mbl.is Gísli Jafetsson, framkvæmdastjóri Félags eldri borgara (FEB), gagn- rýnir sölu á lóð sem ætluð var félag- inu. Borgin hafi ákveðið að selja lóð- ina til verktaka á háar fjárhæðir í stað þess að selja FEB lóðina. Með því hafi tækifæri farið forgörðum til að auka framboð á hagkvæmum íbúðum fyrir 60 ára og eldri. Um er að ræða óbyggða lóð, vest- ur af Hraunbæ 103-105, á horni Bæjarháls og Höfðabakka. Þar er gert ráð fyrir 60 íbúðum fyrir 60 ára og eldri. Fjölbýlishúsið Hraunbær 103-105 er nú ætlað þeim hópi. Á jarðhæð hússins er félagsmiðstöð og matsala sem eldri borgarar í ná- grenninu hafa aðgang að. Yrðu 85 fermetrar að meðaltali Gísli rifjar upp að borgin hafi aug- lýst að Félag eldri borgara myndi byggja íbúðir á lóðinni. Nú síðast með bæklingnum Uppbygging íbúða í borginni sem dreift var á heimili í október. Sagði þar að meðalstærð íbúða væri áætluð 85 fermetrar. „Lóðin var ætluð Félagi eldri borgara í skipulagi. Við byggðum íbúðir á lóðinni við hliðina og hvatti borgin okkur til að sækja um lóð. Sem og við og gerðum í félagi við Byggingarfélag Gylfa og Gunnars (BYGG). Við vorum hins vegar að fara í aðra framkvæmd. Við erum að byggja 68 íbúðir í Árskógum 1-3 sem stendur,“ segir Gísli. Skal tekið fram að BYGG mun ekki byggja á lóðinni. Höfnuðu tilboði FEB Gísli segir borgina hafa hafnað til- boði Félags eldri borgara í lóðina. Hún hafi farið á uppboð og verið slegin á 700 milljónir. Hæstbjóðandi hafi hins vegar fallið frá tilboðinu. Næstbjóðandi, sem bauð 600 millj- ónir, hafi þá fengið lóðina. Það tilboð samsvarar 10 millj. á íbúð. Gísli segir Félag eldri borgara hefðu viljað byggja á lóðinni ef hún hefði kostað um 400 millj., eða tæp- lega 6,67 millj. á íbúð. Það hefði ver- ið í efri mörkum en þó viðráðanlegt. Stór þáttur í íbúðaverði „Ef það á að lækka húsnæðisverð í Reykjavík hvar á þá að byrja? Lóða- verð er stór þáttur í húsnæðisverði. Þetta úthverfi hefur ekki verið talið bera þetta lóðaverð. Verktakinn ætl- ar væntanlega ekki að niðurgreiða lóðaverðið. Lóðaverð og framlegð kemur því fram í endanlegu íbúða- verði. Hann er að byggja í hagn- aðarskyni. Það erum við hjá Félagi eldri borgara hins vegar ekki að gera. Við viljum leggjast á sveif með borgaryfirvöldum á hverjum tíma til að lækka lóða- og húsnæðisverð. Einn liður í því, eins og gert var í Ár- skógum í Suður-Mjódd, er að fá út- hlutaða lóð á betra verði til að byggja og skila því áfram til okkar félagsmanna,“ segir Gísli. Hann segir íbúðirnar í Árskógum verða afhentar næsta vor. Um 400 manns eru á lista félagsins yfir áhugasama, hugsanlega kaupendur. Upphaflega var gert ráð fyrir 52 íbúðum. Vegna mikils áhuga var þeim fjölgað í 68. Gísli segir félagið hafa áhuga á að byggja meira í Suður-Mjódd. Leiðir til hærra verðs á íbúðum  Félag eldri borgara gagnrýnir sölu á lóð undir blokk fyrir 60 ára og eldri Teikning/Reykjavíkurborg Drög Útlínur fjölbýlishúss fyrir 60 ára og eldri í Hraunbæ í Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.