Morgunblaðið - 10.04.2018, Síða 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2018
Þarftu að framkvæma?
Við eigum pallana fyrir þig
www.kvarnir.is
1996
2016
20 ÁRA
Kvarnir/Brimrás/Pallar ehf | Álfhellu 9 | 221 Hafnarfirði
sími 564 6070 | kvarnir@kvarnir.is | www.kvarnir.is | www.pallar.is
10. apríl 2018
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 98.64 99.12 98.88
Sterlingspund 139.06 139.74 139.4
Kanadadalur 76.97 77.43 77.2
Dönsk króna 16.242 16.338 16.29
Norsk króna 12.61 12.684 12.647
Sænsk króna 11.746 11.814 11.78
Svissn. franki 102.67 103.25 102.96
Japanskt jen 0.9202 0.9256 0.9229
SDR 142.97 143.83 143.4
Evra 120.96 121.64 121.3
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 146.9788
Hrávöruverð
Gull 1325.6 ($/únsa)
Ál 1966.0 ($/tonn) LME
Hráolía 68.09 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● WOW air flutti
242 þúsund farþega
til og frá landinu í
síðasta mánuði. Það
er um 20% fleiri
farþegar en í mars í
fyrra. Þetta kemur
fram í fréttatilkynn-
ingu frá félaginu.
Þrátt fyrir 17%
aukningu á fram-
boðnum sætum á
milli ára jókst sætanýting félagsins og var
hún 93% í mars, en var 91% í sama mán-
uði á síðasta ári.
Icelandair Group tilkynnti flutningatölur
til Kauphallar í lok síðustu viku og þar kom
fram að farþegar Icelandair í millilanda-
flugi hafi verið 260 þúsund í mars og
fjölgað um 4% á milli ára. Framboðsaukn-
ing á milli ára nam 7% og sætanýting var
81,9% samanborið við 80,7% í sama
mánuði í fyrra. Farþegum Air Iceland
Connect fækkaði hins vegar um 2% á milli
ára og voru þeir 28 þúsund í mars.
Farþegum í millilanda-
flugi fjölgaði í mars
WOW Farþegum
fjölgaði um 20%.
STUTT
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Í gær skrifaði Ráðstefnuborgin
Reykjavík, eða Meet in Reykjavik
(MiR), undir samstarfssamning við
Háskóla Íslands, Háskólann í Reykja-
vík og Listaháskóla Íslands. Markmið-
ið með samningnum er að fjölga
alþjóðlegum akademískum fundum og
ráðstefnum á vegum háskólanna hér á
landi.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri,
sem skrifaði undir samkomulagið fyrir
hönd MiR, sagði í samtali við Morgun-
blaðið að háskólar væru lykilaðilar til
að laða að ráðstefnur og fundi til borga
og ráðstefnur gætu einnig verið snar
þáttur í að háskólar næðu markmiðum
sínum, stækkuðu tengslanet sín og
fjölguðu alþjóðlegum samstarfs- og
rannsóknarverkefnum. „Þannig fara
saman hagsmunir ferðamannaborgar-
innar og þekkingar- og háskólaborg-
arinnar Reykjavíkur. Skólarnir eflast
og tækifærum fjölgar fyrir ungt fólk.
Við erum hér að slá margar flugur í
einu höggi,“ sagði Dagur.
Dagur segir að tölur sem teknar
hafi verið saman af Ráðstefnuborginni
Reykjavík sýni að eftir að Ísland sé
valið sem ráðstefnuland dvelji gestirn-
ir sem hingað koma oft aðeins lengur
en annars staðar, mæting sé betri og
ánægja meiri. „Ég er mjög stoltur af
þróun mála hjá Ráðstefnuborginni og
þessu frábæra samstarfi við há-
skólana.“
Umhverfisvænt samstarf
Jón Atli Benediktsson, rektor Há-
skóla Íslands, segir að í skólanum sé
mikill mannauður. Þar sé fólk sem hafi
náð árangri á alþjóðavísu og það gefi
skólanum tækifæri á að laða til sín
stórar ráðstefnur. „En það að ná að
draga hingað heim slíkar ráðstefnur,
sem hafa munu margfeldisáhrif hér
innanlands, er meiriháttar mál. Að fá
svona sterkan samstarfsaðila hjálpar
okkur að vinna gögn fyrir umsóknir.
Þetta minnkar álagið á okkur og er til
hagsbóta fyrir alla. Það er gríðarleg
vinna að halda stórar ráðstefnur. Þá
má nefna að þetta er umhverfisvænt,
þar sem okkar fólk þarf þá ekki að
ferðast eins mikið til útlanda.“
Hann segir að miklu skipti einnig að
geta verið í fararbroddi í alþjóðlegu
samstarfi. „Það má ekki vera ein-
göngu þiggjandi.“
Undir þau orð tekur Fríða Björk
Ingvarsdóttir, rektor Listaháskóla Ís-
lands, en henni líst vel á samstarfið.
„Þetta þýðir að við getum gert ým-
islegt sem við höfum ekki talið okkur
geta gert hingað til. Við erum lítil
stofnun og fámenn og höfum ekki bol-
magn til að sinna risastórum ráð-
stefnum. Þótt við höfum leitt alþjóð-
legt tengslanet í sviðslist m.a. höfum
við aldrei getað boðið þessu fólki hing-
að,“ sagði Fríða í samtali við Morg-
unblaðið.
Svanhildur Konráðsdóttir, forstjóri
Hörpu, segir að miklu skipti að
Reykjavík eflist sem ráðstefnuborg.
„Mitt markmið er að fjölga svona
stórum alþjóðlegum ráðstefnum eins
og Arctic Circle sem var hér í haust,
þannig að þær yrðu svona þrjár til
fjórar á ári.“
Vilja fjölga alþjóðlegum
ráðstefnum háskólanna
Morgunblaðið/Hari
Samstarf Starfsfólk háskólanna mun m.a. fá aðstoð frá MiR við tilboðsgerð og kynningu á áfangastaðnum Íslandi.
Ráðstefnur
» Snýst um þekkingarsam-
starf og betri boðleiðir.
» Háskólinn í Árósum marg-
faldaði áherslu á ráðstefnur;
fór úr sjö í 200 slíkar ár-
lega.
» 20% af öllum seldum
hótelnóttum í Edinborg eru
fyrir ráðstefnugesti.
» Tvö ár eru síðan byrjað
var að undirbúa samstarf
Meet in Reykjavík og háskól-
anna þriggja.
Mikilvægt að verða leiðandi en ekki eingöngu þiggjandi Verðmætir gestir
Lyf og heilsa hefur keypt glugga-
framleiðandann Börk. Þetta eru önn-
ur kaup apótekakeðjunnar á rót-
grónu iðnaðarfyrirtæki en síðla árs
2017 keypti hún Glerverksmiðjuna
Samverk á Hellu.
Kjartan Örn Þórðarson, fram-
kvæmdastjóri Lyfja og heilsu, segir í
samtali við Morgunblaðið að stjórn
félagsins hafi ákveðið að leita tæki-
færa í ótengdum rekstri vegna tak-
markaðra vaxtartækifæra í núver-
andi starfsemi. Ekki sé stefnt að
áframhaldandi vexti í ótengdum
rekstri að svo stöddu.
Börkur, sem er á Akureyri, er eitt
af stærstu fyrirtækjum landsins á
sínu sviði og eru helstu viðskiptavin-
ir þess mörg af stærri verktakafyr-
irtækjum landsins. Að sögn Kjartans
Arnar spila fyrirtækin tvö vel sam-
an, Börkur framleiðir glugga en
Samverk gler. „Börkur hefur keypt
mikið af gleri af Samverki í áranna
rás.“
Byggingariðnaður hefur verið vax-
andi á undanförnum árum en Kjart-
an Örn segir að það séu ekki jafn
miklar sveiflur í sölu á gleri og
gluggum vegna viðhaldsþarfar.
Hjá Berki og Samverki starfa
samanlagt um 70-75 manns, segir
Kjartan Örn. Þar af eru um 20 hjá
Berki, samkvæmt fréttatilkynningu.
Til samanburðar eru um 250 starfs-
menn að meðaltali hjá Lyfjum og
heilsu í mismiklu starfshlutfalli.
helgivifill@mbl.is
Morgunblaðið/Golli
Vöxtur Lyf og heilsa keyptu gluggaframleiðandann Börk á Akureyri.
Vaxtartækifærin í
ótengdum rekstri
Lyf og heilsa á nú tvö iðnfyrirtæki