Morgunblaðið - 10.04.2018, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 10.04.2018, Qupperneq 19
19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2018 Brandandarsteggur Brandönd á flugi yfir Leiruvogi. Brandöndin er nýlegur landnemi hér á landi en henni hefur fjölgað mikið á síðustu árum. Steggirnir eru með rauðan hnúð á goggnum. Bogi Þór Forsenda þess að sveitarfélög geti rækt lögbundnar skyldur sínar við íbúana er að stjórn á fjármálum þeirra sé markviss og stefnuföst. En er það svo í Reykjavík? Er verið að ná bestun við fjármálastjórn borgarinnar? Út- svarið er í hæstu álagningu sem lög leyfa eða 14,52%. Í hvað fara peningarnir og eru þeir að skila sér í lögbund- ið hlutverk Reykjavíkur? Við frambjóðendur Miðflokksins ætlum að endurskoða rekstrarum- hverfi Reykjavíkurborgar á fyrstu þremur mánuðunum eftir borgar- stjórnarkosningar fáum við til þess afl. Skilgreint verður hvert er lögbundið hlutverk borgarinnar og fjármunum síðan forgangs- raðað í grunnstoðir eins og lög mæla fyrir um. Ólögbundin verk- efni verða skoðuð sérstaklega og það metið upp á nýtt hvernig þeim verður forgangsraðað eða þau jafnvel tekin af dagskrá. Í þessum að- gerðum liggur mikið „fundið fé“. Á árunum 2009- 2010 var Reykjavík- urborg býsna vel rek- in. Borgin var réttum megin við núllið ólíkt ríkinu sem á þessum tíma var rekið með botnlausum halla- rekstri undir stjórn Samfylkingar og Vinstri grænna. Það stóð heima að þegar Dagur B. og Jón Gnarr komust í borgarstjórn um mitt ár 2010 byrjaði skuldasöfnun borg- arinnar sem ekki sér fyrir endann á og skuldar Reykjavíkurborg nú langt yfir 100 milljarða. Þessari alvarlegu stöðu þarf að snúa við og leggjum við í Miðflokknum fleira til í þeim efnum en að for- gangsraða í lögbundin verkefni. Í fyrsta lagi ætlum við að inn- leiða ráðningarstopp eins og gert var á árunum 2009-2010 hjá borg- inni. Um mitt ár 2010 hafði starfs- mönnum borgarinnar fækkað um 1.000 á rúmu ári einungis með því að ráða ekki í þær stöður sem losnuðu. Til að taka af allan vafa er hér ekki átt við starfsmenn í lögbundinni grunnþjónustu. Eftir þessar aðgerðir/fækkun voru starfsmenn um 7.000. Í byrjun árs 2018 eru starfsmenn Reykjavíkur rúmlega 9.000 samkvæmt svari til sjálfstæðismanna í borgarstjórn. Sveitarfélögin hafa ekki tekið að sér ný lögbundin hlutverk sem neinu nemur sem réttlætir þessa fjölgun starfsmanna. Áætla má miðað við fyrri reynslu að auðvelt verði að fækka starfsmönnum borgarinnar á ný án þess að skerða lögbundna þjónustu og í leiðinni að draga úr útgjöldum upp á fleiri milljarða. Dæmi: 1.000 stöðugildi, 7 milljóna árslaun = 7 milljarðar á ársgrundvelli. Í öðru lagi ætlum við að besta vöru- og þjónustu innkaup Reykjavíkur. Innkaupastefna borgarinnar er mjög óskýr og lítið gert til að ná besta verði í inn- kaupum. Við vitum að með því að taka upp nýja verkferla í inn- kaupum með verkfærum sem veita yfirsýn, gagnsæi og greining- arhæfni sparar það borginni um- talsverða fjármuni. Sú sem þetta ritar hefur reynt síðustu vikur að fá sundurliðað hjá Reykjavík- urborg hversu hátt hlutfall af tekjum borgarinnar fari í innkaup á vörum og þjónustu, en ekki er hlaupið að því að fá slíkar upplýs- ingar þrátt fyrir fyrirheit um gagnsæi. Skóla- og frístundarsvið Reykjavíkurborgar fékk nýsköp- unarverðlaun 2014 sem snéru að innleiðingu bestunar á innkaupum mötuneyta í skólum í Grafarvogi. Náði verkefnið til innkaupa, nær- ingarútreiknaðra matseðla, kostn- aðarvitundar starfsfólks og minni sóunar. Þrátt fyrir þessar kröfur náði verkefnið fram 10% pen- ingalegu hagræði. Á þessu má sjá að útsvarsgreiðendur eiga mikið undir við rekstur borgarinnar og spyrja má hvers vegna þetta nýsköpunarverkefni var ekki strax árið 2014 speglað yfir á öll inn- kaup borgarinnar. Í þriðja lagi ætlum við að draga úr utanlandsferðum á vegum borgarinnar og herða eftirlit með þeim svo ekki verði farið nema nauðsyn beri til. Með þessari forgangsröðun í fjármálastjórnun borgarinnar ætti reksturinn að vera kominn í gott horf á tveimur árum. Miðflokk- urinn ætlar í framhaldinu að lækka útsvar á seinni hluta kjör- tímabilsins án skerðingar á grunn- þjónustu. Traust fjármálastjórnun er forsenda góðrar þjónustu við borgarbúa. Eftir Vigdísi Hauksdóttur » Ólögbundin verkefni verða skoðuð sér- staklega og það metið upp á nýtt hvernig þeim verður forgangs- raðað eða þau jafnvel tekin af dagskrá. Vigdís Hauksdóttir Höfundur er lögfræðingur og borgar- stjóraefni Miðflokksins. Traust fjármálastjórn Í byrjun næsta árs verða liðin 25 ár frá gildistöku EES- samningsins. Án efa má fullyrða að enginn alþjóðasamningur sem Ísland hefur gert hafi haft jafn mikil og víð- tæk áhrif á íslenskt samfélag og efnahags- líf. Það er áhugavert að velta því fyrir sér hver staða almennings og fyrirtækja á Ís- landi væri án aðildar að evrópska efnahagssvæðinu. Hvaða ávinning höfum við haft af samningnum? Hvaða ókostir eru við samninginn og hvernig er best að lagfæra þá? Allt eru þetta spurningar sem mik- ilvægt er að við spyrjum okkur reglulega. Það er því fagnaðarefni að lögð hafi verið fram á Alþingi beiðni um skýrslu um kosti og galla aðildar Íslands að EES. Mikilvægt er þó að þar verði vandað til verka. Heimamarkaður úr 300 þúsund í 500 milljónir Það er erfitt að gera sér í hugar- lund hvernig íslenskt samfélag hefði þróast án EES. Samn- ingurinn veitir okkur nær óheftan aðgang að innri markaði Evrópu- sambandsins og má segja að með tilkomu hans hafi heimamark- aður okkur stækkað úr 300 þúsund í 500 millj- ónir manna. Íslensk fyrirtæki geta starfað óhindrað á þessum markaði líkt og hér heima fyrir. Það geta þau gert án þess að tollar séu lagðir á vörur þeirra eða þjónustu og með tilkomu innri markaðar ESB hefur verið rutt úr vegi ótal tæknilegum viðskipta- hindrunum sem hömluðu frjálsum og eðlilegum viðskiptum með vöru og þjónustu á milli landa EES- svæðisins. Frjálst fjármagnsflæði hefur líka haft mikil áhrif. Bein erlend fjárfest- ing hér á landi hefur ríflega 20-fald- ast sem hlutfall af landsframleiðslu frá gildistöku EES-samningsins og að sama skapi hefur bein fjárfesting íslenskra aðila erlendis stóraukist. Áhættudreifing íslenskra fjárfesta, svo sem lífeyrissjóða, hefur því auk- ist til muna á sama tíma og erlend fjárfesting hér á landi hefur fært með sér sérþekkingu og ný störf. Liðlega 30 þúsund erlendir ríkis- borgarar hafa flust hingað til lands á gildistíma samningsins, fyrst og fremst frá öðrum ríkjum EES- svæðisins, til að búa hér og starfa. Það er enginn vafi á því að án þeirra hefði hagvöxtur og hagsæld þjóð- arinnar orðið mun minni en ella. Einangraður íslenskur vinnumark- aður hefði aldrei ráðið við þann mikla hagvöxt sem Ísland hefur not- ið á undanförnum aldarfjórðungi. EES snertir flesta þætti samfélagsins En EES-samningurinn hefur haft miklu víðtækari áhrif en bara á við- skiptaumhverfi okkar og efnahag. Áhrif samningsins (og Schengen) leynast víðar en okkur órar fyrir. Við getum ferðast, búið, starfað og lært án hindrana í öllum aðildar- ríkjum svæðisins. Það hefur fært okkur mikið frelsi og aukin lífsgæði. Neytendavernd hefur stórbatnað og samkeppnisumhverfið tekið stakka- skiptum vegna innleiðingar á sam- evrópskri löggjöf á þessum sviðum. Áhrifa samningsins gætir í heil- brigðiskerfinu okkar, félagslega kerfinu, í jafnréttismálum, sam- göngumálum, menntamálum, á vinnumarkaði, í vinnuvernd, í rann- sóknum og þróun, í byggðastefnu, í löggæslumálum og landamæra- vörslu, í fjarskiptum, í umhverf- ismálum, orkumálum og svo mætti lengi áfram telja. Norðmenn létu vinna úttekt á EES-samningnum og samskipt- unum við Evrópusambandið og var niðurstaðan birt í skýrslunni Uden- for og Indenfor árið 2012. Niður- staða skýrsluhöfunda var að áhrif samningsins væru mjög mikil á norskt samfélag en þau áhrif væru heilt yfir mjög jákvæð. Víðtæk póli- tísk sátt ríkti um aðild Noregs að EES og þrátt fyrir að samningurinn hefði haft í för með sér innleiðingu á yfir 6.000 evrópskum gerðum hefði Noregur aðeins áskilið sér réttinn til fyrirvara í 17 tilvikum en aldrei nýtt hann í raun. Þá væru þessar gerðir í yfirgnæfandi meirihluta sam- þykktar nær samhljóða í norska þinginu. Vissulega væri ákveðinn lýðræðishalli falinn í samningnum í ljósi þess að Noregur ætti ekki sæti við samningaborðið en sá halli yrði aðeins lagfærður með fullri aðild. Ekki er ástæða til að ætla að niðurstaða íslenskrar úttektar yrði önnur. Áhrif samningsins hafa verið mikil og að langstærstum hluta já- kvæð. Raunar væri óhugsandi fyrir íslenskt atvinnulíf að standa utan EES-svæðisins í dag enda hefur vægi EES-svæðisins í utanríkis- viðskiptum aukist verulega frá gild- istöku samningsins. Það eitt og sér ber vitni um hversu mikilvægur og hagstæður sá markaðsaðgangur sem EES veitir okkur er fyrir efna- hagslífið. Samningurinn hefur að sama skapi skilað Íslendingum mikl- um ávinningi með aukinni sam- keppni, bættri neytendavernd og ekki hvað síst með auknu aðgengi að meginlandi Evrópu til náms og starfs. Eftir Þorstein Víglundsson » Við getum ferðast, búið, starfað og lært án hindrana í öllum aðildarríkjum svæðisins. EES hefur fært okkur mikið frelsi og aukin lífsgæði. Þorsteinn Víglundsson Höfundur er varaformaður Viðreisnar. Hvað græðum við eiginlega á EES?

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.