Morgunblaðið - 10.04.2018, Side 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2018
Meira til skiptanna
Í tilefni dagsins mun yngri dóttir mín væntanlega baka franskasúkkulaðitertu og maðurinn minn elda nætursaltaðan þorsk semborinn verður fram með vestfirskum hnoðmör. Þú færð fátt
betra og með þessum veitingum getur afmælisdagurinn varla klikk-
að,“ segir séra Ásta Ingibjörg Pétursdóttir, sóknarprestur í Bolung-
arvík sem er 51 árs í dag. Hún hefur þjónað í Víkinni um sex ár og var
þar áður nokkur ár prestur á sunnanverðum Vestfjörðum og sat á
Bíldudal.
„Það hefur margt breyst fyrir vestan síðustu árin. Svæðið er að ná
sér aftur á strik með auknum umsvifum í atvinnulífinu, til dæmis fisk-
eldi. Bolungarvíkin heldur vel utan um fólkið sitt og mér finnst gott
að vera Vestfjarðaprestur, þó svo að rætur mínar séu í Vesturbænum
í Reykjavík,“ tiltekur sr. Ásta Ingibjörg sem segir kirkjustarfið í Bol-
ungarvík vera öflugt og þátttaka sóknarbarna góð. Framundan séu
fermingarmessur um hvítasunnu en nær í tíma sé messa í Hólskirkju í
Bolungarvík næstkomandi sunnudag þar sem Þorsteinn Haukur Þor-
steinsson í Súðvík sér um tónlistina.
„Áhugamálin eru mörg eins og lesa bækur. Nú er ég til dæmis alveg
heilluð af Njálu. Svo hefur mér alltaf fundist gaman að dansa, topp-
urinn á tilverunni er dansballett sem við nokkrar konur hér í Bolung-
arvík á aldrinum 14 til 72 ára höfum æft í vetur,“ segir sr. Ásta Ingi-
björg. Hennar maður er Helgi Hjálmtýsson og dæturnar eru
Sigurveig og Svanhildur og svo ömmustrákurinn Pétur. sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Bolvíkingurinn Áhugamálin eru mörg, segir séra Ásta Ingibjörg.
Vestfjarðaprestur
æfir dansballett
Ásta Ingibjörg Pétursdóttir er 51 árs í dag
E
inar Sigurðsson fæddist
í Gvendareyjum 10.4.
1933 og ólst þar upp.
Hann lauk stúdents-
prófi frá MR 1955,
cand. mag. í ísl. fræðum frá HÍ 1963,
stundaði jafnframt nám í bókasafns-
fræði við HÍ 1959-60 og var síðar við
nám og störf í bókasöfnum í Bret-
landi og Bandaríkjunum í nokkra
mánuði..
Einar starfaði við Handritastofn-
un Íslands 1963-64, var bókavörður í
Háskólabókasafni frá 1964, háskóla-
bókavörður 1974 og landsbókavörð-
ur frá 1994 en fór á eftirlaun 2002.
Hann var stundakennari í bókasafns-
fræði 1965-77: „Ég hafði einungis
verið starfsmaður Háskólabókasafns
í um hálfan áratug þegar undirbún-
ingur sameiningar þess safns og
Landsbókasafns hófst fyrir alvöru.
Eftir að safnið tók til starfa 1. des.
1994 gerbreyttist aðstaða til bóka-
safnsþjónustu til hins betra, ekki síst
gagnvart HÍ, og líka gagnvart verk-
efnum á sviði netvædds aðgangs að
þekkingu, svo og til almennrar
menningarstarfsemi. Það var mikil
áskorun og skemmtilegt verkefni að
vera þátttakandi í að koma þessu öllu
á laggirnar, en starfsfólk var vel und-
ir það búið að takast á við nýjar að-
stæður.“
Einar var form. Mímis, fél. stúd-
enta í ísl. fræðum, 1959-60, form.
Deildar bókavarða í ísl. rannsókn-
arbókasöfnum 1975-77, í stjórn Sam-
bands norrænna rannsókn-
arbókavarða 1976-82, í stjórn
NORDINFO 1980-88, form. Sam-
starfsnefndar um upplýsingamál
1982-90, í kjörstjórn vegna kjörs
rektors HÍ 1973, 1976, 1979, 1982
(form.) og 1985 (form.), í Samstarfs-
nefnd um Þjóðarbókhlöðu 1987-91,
ritari Samstarfsnefndar um nýtt
þjóðbókasafn 1992-94 og form.
nefndar um endurskoðun laga um
skylduskil til safna 1997-99.
Einar tók saman Skrá um efni í
tímaritum Bókmenntafélagsins,
Rvík 1966, Bókmenntaskrá Skírnis 1
(1968) -26 (1993), Rvík 1969-94,
Nafna- og atriðaskrár við Íslenskar
þjóðsögur Ólafs Davíðssonar 1-4, pr.
í 4. b., Rvík 1980, Íslensk tímarit í
200 ár, Rvík 1991 (ásamt Böðvari
Kvaran), Stúdentatal MR 1955, Rvík
2005. Nú kveð ég þig Slétta (vísna-
gerð Sigurðar Árnasonar) Rvík,
2011. Ritstjórn: Stúdentablaðið 1955,
Upplýsingar eru auðlind (1990), Rit-
Einar Sigurðsson, fyrrv. landsbókavörður – 85 ára
Stór hópur og myndarlegt fólk Einar og Margrét Anna með börnum, barna- og barnabarnabörnum og tengdafólki.
Breiðfirðingur í húð og hár
Einar á Snækolli 1954 Hann gekk
á Heklu, 1948, árið eftir gos, þá 15
ára, á skátamóti á Þingvöllum.
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Reykjavík Hanna Maria
Olszanska fæddist 4. mars kl.
9.14. Hún vó 2795 g og var 47
cm löng. Foreldrar hennar eru
Agata og Lukas Olszanski.
Nýr borgari
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is