Morgunblaðið - 10.04.2018, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 10.04.2018, Blaðsíða 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2018 Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is Ekki bara jeppar 2013 - 2017 Kerruöxlar & íhlutir ALLT TIL KERRUSMÍÐA „Frelsa oss frá víkingum og kon- ungum“ er yfir- skrift hádegis- fyrirlestrar Þjóðminjasafns Íslands sem Árni Björnsson þjóð- háttafræðingur heldur í fyrir- lestrasal safnsins í dag kl. 12. „Á seinustu tveim öldum hefur sú venja breiðst út um heiminn að kalla Norðurlandabúa á miðöldum vík- inga. Í því samræmi hafa landnáms- menn Íslands verið kallaðir vík- ingar,“ segir í tilkynningu um fyrirlesturinn og að Árni muni í er- indi sínu að sýna fram á að þessar staðhæfingar eigi sér ekki stoð í miðaldaheimildum. Í öðru lagi hygg- ist hann afhjúpa þann þráláta mis- skilning að landnámsmenn hafi að stórum hluta verið af konungum komnir. Frelsa oss frá víkingum og konungum Árni Björnsson Miðar á tónleika Skálmaldar, Sin- fóníuhljómsveitar Íslands, Karla- kórs Reykjavík- ur, Kammerkórs- ins Hymnodiu og Barnakórs Kárs- nesskóla í Eld- borgarsal Hörpu í ágúst seldust upp á 12 mínútum og hefur vegna mikillar eftirspurnar verið bætt við aukatónleikum sem fara fram 23. ágúst kl. 20. Miðasala hófst á þá í gær og verða tónleikarn- ir því þrennir: 23., 24. og 25. ágúst. Skálmöld hefur verið önnum kafin í hljóðveri við upptökur á nýrri breiðskífu sem bera mun heitið Sorgir, eins og sjá má á Facebook- síðu málmsveitarinnar. Þá má einnig sjá Óttarr Proppé í hljóðveri og ljóst að hann mun láta í sér heyra á skíf- unni. Aukatónleik- um bætt við Snæbjörn Ragnarsson Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Eftir að ég átti dóttur mína blómstraði röddin og ég fór að syngja safaríkari mezzóaríur en áð- ur,“ segir Dóra Steinunn Ármanns- dóttir sem ásamt Antoníu Hevesi píanóleikara kemur fram á hádegis- tónleikum í Hafnarborg í dag kl. 12. Yfirskrift tónleikanna er „Sígaunar og hefðarkonur“ en á efnisskránni eru aríur úr óperunum Carmen eftir Bizet, Samson og Dalila eftir Saint- Saëns og Il Trovatore og Don Carlos eftir Verdi. Ég ætla ekki að deyja Dóttir Dóru, Victoría Íris, kom í heiminn fyrir rúmu hálfu öðru ári og gekk fæðingin ekki þrautalaust fyrir sig. „Ég missti 4,5 lítra af blóði í fæð- ingunni og dó næstum því. Ég var send í bráðaaðgerð til að stoppa blæðinguna. Meðan á þessu stóð leið mér eins og tröll hefði sest á bringuna á mér og væri að sjúga úr mér allt líf,“ segir Dóra og tekur fram að þetta hafi staðið tæpt. „Þeg- ar ég sá ljósið hugsaði ég: „Nei, ég ætla ekki að deyja.“ Ég var stað- ráðin í því að halda lífi og lifa fyrir dóttur mína, manninn minn, fjöl- skylduna og sjálfa mig. Þegar ég vaknaði daginn eftir aðgerðina vissi ég strax að ég ætti að fara að syngja meira,“ segir Dóra og tekur fram að hún sjái lífið allt öðrum augum í dag, en fyrir fæðinguna. „Ég er virkilega þakklát og hlakka til að standa á sviði aftur,“ segir Dóra, sem hafði tekið sér smápásu frá söngnum í að- draganda fæðingar dótturinnar en er að koma sér aftur af stað eftir fæðingarorlof. Að sögn Dóru byrjaði hún ung að syngja. Hún stundaði nám við Söng- skólann í Reykjavík og útskrifaðist með burtfararpróf með hæstu ein- kunn. Þaðan lá leiðin í söngnám við óperudeildina við Universität für Musik und darstellende Kunst í Vínarborg. „Fyrsta tækifærið bauðst mér aðeins 16 ára þegar ég söng stúlkuna í Stúlkunni í vitanum eftir Þorkel Sigurbjörnsson og Böðvar Guðmundsson sem Íslenska óperan setti upp í samstarfi við Tón- menntaskóla Reykjavíkur.“ Hér- lendis söng hún líka hlutverk Elju í Gretti eftir Þorkell Sigurbjörnsson sem frumflutt var í Þjóðleikhúsinu og sýnt á Bayreuth Young Artists Festival og í Betty Oliphant Theatre í Toronto. Að námi loknu lá leið Dóru til Sydney í Ástralíu þar sem hún tók þátt í Young Artists-prógrammi við Pacific Opera þar sem hún söng hlutverk Hans í Hans og Grétu. Vildu vera nær Íslandi „Í framhaldinu söng ég með óperukór Opera Australia við Sydney-óperuhúsið og Arts Center Melbourne,“ segir Dóra sem söng einnig titilhlutverkið í Carmen hjá Rockdale-óperunni. Hún keppti í Sydney Eisteddfod-keppnunum og vann The Evelyn Hall de Izal Mezzo-Soprano Award, fyrsta sætið í Opera Awards, og fyrsta sæti í Event 15. „Ég hafði nóg að gera, en eftir fjögur ár í Ástralíu ákváðum við Eiríkur [Jóhann Gunnarsson] mað- urinn minn að flytja aftur til Evrópu til að vera nær fjölskyldunni,“ segir Dóra og tekur fram að ekki sé auð- velt að skreppa heim þegar ferðalag- ið taki 36 klukkutíma. „Noregur varð valinu og þaðan er auðvelt að kíkja til Íslands auk þess sem fjöl- skyldan getur auðveldlega heimsótt okkur.“ Geislandi óperusöngkona Stuttu eftir búferlaflutningana tók Dóra þátt í sumarprógrammi LidalNorth og söng á sviði aríur Brynhildar úr Valkyrjunum eftir Wagner. „Sem stendur er ég í námi, en ég ákvað að skella mér í geisla- fræði og stefni að því að verða geisl- andi óperusöngkona,“ segir Dóra kímin og tekur fram að það sé ekki endilega auðvelt að lifa af listinni og sé því gott að hafa plan b. „Ég er hins vegar ekkert búin að gefa söng- inn upp á bátinn og er reglulega að syngja fyrir. Þó að ég hafi ekki búið á Íslandi um langt árabil eru rætur mína hér og því langaði mig til að syngja heima líka og hafði því sam- band við Antoníu sem bauð mér að koma fram í Hafnarborg. Þegar búið var að festa tónleikadaginn ákvað ég að syngja allt sem mér þætti skemmtilegt og sem betur fer finnst Antoníu þetta líka skemmtilegar arí- ur,“ segir Dóra og dásamar sam- starfið við Antóníu, en þær hafa þekkst um langt árabil þó að rúmur áratugur sé síðan þær héldu síðasta tónleika saman. „Hún er virkilega flottur píanisti og ástríðufullur lista- maður sem gaman er að vinna með.“ Aðspurð segir Dóra óperur heilla hana fremur en ljóðasöngur. „Óperusviðið hefur alltaf verið mitt annað heimili og þar lifna ég ávallt við. Það gefur mér svo mikið að hreyfa við áhorfendum með tónlist- inni og upplifa viðbrögð þeirra. Þannig verður þetta samspil allra, þ.e. söngvarans, píanóleikarans og áhorfenda,“ segir Dóra. Sem fyrr segir hefjast tónleikarn- ir kl. 12, en húsið verður opnað kl. 11.30 og er aðgangur ókeypis. Ljósmynd/Áslaug Íris Friðjónsdóttir Listakonur Antoníu Hevesi og Dóra Steinunn Ármannsdóttir. „Geislandi óperusöngkona“  Dóra Steinunn Ármannsdóttir syngur dramatískar mezzóaríur í Hafnarborg  Segir röddina hafa blómstrað eftir barnsburð sem dró hana næstum til dauða Hamilton eftir Lin-Manuel sópaði að sér Olivier-verðlaunum þegar þau voru veitt í London á sunnu- dag. Frá þessu greinir BBC. Söng- leikurinn hafði verið tilnefndur til 13 verðlauna og hlaut alls sjö, þar á meðal sem besti söngleikurinn, framúrskarandi afrek á sviði tón- listar, fyrir lýsingu, hljóðhönnun og kóreógrafíu auk þess sem Giles Teresa og Michael Jibson voru verðlaunaðir fyrir leik. Teresa fyr- ir túlkun sína á Aaron Burr (helsta andstæðingi Hamilton) og Michael Jibson sem Georg þriðji Bretakon- ungur, en hlutverkið krefst aðeins átta mínútna viðveru á sviðinu. Þar með jafnaði Hamilton metið sem Matilda setti 2012 fyrir flest verðlaun til handa söngleik. En Hamilton tókst samt ekki að slá metið sem Harry Potter and the Cursed Child setti í fyrra þegar uppfærslan vann níu verðlaun. Hamilton, sem frumsýndur var á Broadway í Bandaríkjunum 2015, var settur upp á West End í Bret- landi síðla árs 2017 og hlaut ein- róma lof gagnrýnenda. Verkið fjallar um Alexander Hamilton, fyrsta fjármálaráðherra Bandaríkj- anna og einn þeirra sem lögðu grunn að sjálfstæðisyfirlýsingunni. Giles Terera var að vonum ánægður með gott gengi söngleiks- ins. „Við tókum engu sem gefnu. En ég er ánægður með að við hlutum umbun,“ sagði Teresa og líkti Ha- milton við stórkostlega söngleiki á borð við West Side Story og Vesa- lingana. Jamael Westman, sem fer með hlutverk Hamilton, sagði söng- leikinn hafa umbreytt skilningi fólks á söngleikjum með því að blanda saman tungutaki í anda Shakespeare við hipp hopp og sam- tímatónlist og telur að þessi blanda útskýri vinsældir verksins. Af öðrum vinningshöfum kvölds- ins má nefna að söngleikurinn Follies eftir Stephen Sondheim (sem Bíó Paradís sýndi í upphafi árs í samstarfi við NT Live) þótti besta enduruppsetning á söngleik. Ljósmynd/Matthew Murphy fyrir Victoria Palace Theatre Ekkert gefið Giles Teresa í hlut- verkinu sem Aaron Burr í Hamilton. Hamilton jafnaði met með sjö Olivier-verðlaun

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.