Morgunblaðið - 10.04.2018, Page 31

Morgunblaðið - 10.04.2018, Page 31
MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2018 Um þessar mundir eru sex-tíu ár síðan Allt sundrast(Things Fall Apart),þessi merka og mikil- væga skáldsaga nígeríska rithöfund- arins Chinua Achebe (1930-2013) kom fyrst á prent. Upphaf nútíma skáldsagnaritunar í gjörvallri Afríku er oft rakið til þessarar fyrstu skáld- sögu Achebe, sem var 28 ára gamall þegar hún kom á prent, en hún var ein af fyrstu afrísku skáldsögunum sem vöktu athygli á alþjóðavett- vangi. Og hún hefur flogið víða, hef- ur verið þýdd á fleiri tugi tungumála og selst í yfir 20 milljónum eintaka; þrátt fyrir að fjölmargir höfundar innan álfunnar og utan hafi síðan tekist á við það að lýsa nýlendu- tímanum í Afríku er Allt sundrast enn ein áhrifa- mesta lýsingin á gríðarlegum um- brotatímum í álf- unni, seint á 19. öld, þegar vest- rænar þjóðir lögðu lönd og ættbálka undir sig, kristnuðu, deildu og drottnuðu, iðulega með hörmulegum afleiðingum fyrir heimamenn, eins og hér er fjallað um. Sagan kom á prent aðeins ári eftir að fyrsta Afríkulandið, Gana, öðl- aðist sjálfstæði, og sjálfstæðishreyf- ingar voru óðum að styrkjast í mörgum öðrum, þar á meðal í Níger- íu þar sem sagan gerist en landið varð sjálfstætt tveimur árum síðar, 1960. Sagan hverfist um öflugan stríðs- mann og bónda, Okonkwo að nafni, sem varð ungur kunnur glímukappi í samfélagi Igbo-fólksins. Okonkwo bjó ásamt þremur eiginkonum og barnahópi í einu níu nágrannaþorpa ættbálksins. Hann þurfti að berjast til metorða og virðingar og óttaðist ekkert meira en að sýna veiklyndi eins og faðir hans hafði gert, veik- lyndi sem hann fyrirleit, og gerði allt hvað hann gat til að fylgja siðum samfélagsins, hversu grimmir og óréttlátir sem þeir kunnu að virðast. Okonkwo er ímynd krafta og styrks þar sem hann er kynntur til sögu, svo minnir á Gunnar Hámund- arson: „… hár og afar þrekvaxinn og úfnar augabrúnirnar og breitt nefið léðu honum alvörugefið yfirbragð. Hann andaði þungt og sagt var að þegar hann svaf gætu konur hans og börn í húsunum fjær heyrt í honum andardráttinn. Á göngu námu hælar hans tæpast við jörðu og hann virtist ganga á gormum eins og hann væri í þann mund að stökkva á einhvern Og það gerði hann reyndar iðulega.“ (17) En í næstu setningu kemur fram að Okonkwo var ekki maður orðsins, „stamaði ofurlítið og þegar hann reiddist og kom orðunum ekki nógu hratt út úr sér beitti hann hnefunum“. Hnefarétturinn og lík- amlegur styrkur dugði honum fram- an af en ekki þegar heimur hans tók að molna sundur. Sögunni er skipt í þrjá hluta. Í þeim fyrsta og lengsta er fjallað um líf Okonkwos í hinu rótgróna ætt- bálkasamfélagi, þar sem jafnvægi er haldið með tilstilli boða og banna sem öldungar samfélagsins sjá um að framfylgja og margt er afar grimmt og mismunnarlaust. Þetta er harðneskjulegur karlaheimur þar sem tvíburar eru bornir út og Okonkwo þarf að myrða hálfgildings fósturson sinn, til að viðhalda jafn- vægi og fara eftir reglum. En þegar hann deyðir fullgildan þorpsbúa tek- ur heimur Okonkwos að breytast og hann er dæmdur til sjö ára útlegðar í þorpi móðurfjölskyldu sinnar. Það er í útlegðnni, þar sem Okonkwo þarf að vinna sig aftur til virðingar, sem segja má að innrás sé gerð í hið gamla ættbálkasamfélag þegar fyrstu hvítu trúboðarnir mæta. Og eru komnir til að vera – með afdrifaríkum afleiðingum. Þeg- ar Okonkwo má aftur snúa til heima- þorpsins verður ekkert eins og var og er gamli glímukappinn stolti einn þeirra sem leiða vonlausa baráttu gegn ofureflinu – sem einskonar tákn hins gamla heims sem stendur með hnefana eina að vopni gegn hvíta ofríkinu. Þriðju persónu frásögn Allt sundrast er látlaus en afar grípandi þar sem hún sígur seigfljótandi og með sívaxandi þunga fram að óum- flýjanlegum endalokunum. Sögumaður sér í hug persónanna og lýsir hugsunum þeirra og tilfinn- ingum þar sem listavel er dregin upp mynd af hinum gamla afríska heimi sem má sín lítils gegn ofríkinu. Elísu Björgu Þorsteinsdóttur tekst vel að færa afrískan heiminn á íslensku, heim sem er gerður enn trúverðugri með notkun orða úr máli Igbo-fólksins sem eru skýrð í lista í bókarlok. Þá er fengur að eft- irmála Maríu Ránar Guðjónsdóttur þar sem sagt er frá höfundinum og þessu merka bókmenntaverki sem vert er að fagna að loksins sé hægt að lesa á íslensku. Frumkvöðull Rómuð frásögn Achebe er „grípandi þar sem hún sígur seig- fljótandi og með sívaxandi þunga fram að óumflýjanlegum endalokunum“. Þegar afrískir hnefar dugðu ekki til varna Skáldsaga Allt sundrast bbbbb Eftir Chinua Achebe. Elísa Björg Þorsteinsdóttir þýddi. María Rán Guðjónsdóttir ritar eftirmála. Angústúra, 2018. Kilja, 262 bls. EINAR FALUR INGÓLFSSON BÆKUR Bandaríski djasspíanistinn Cecil Taylor er látinn, 89 ára að aldri. Hann var þekktur fyrir að ögra þeim hefð- um djasstónlist- arinnar sem hann ólst upp við og varð einn fremsti og frumlegasti spunameist- ari sinnar kynslóðar á píanóið, og var lítið gefinn fyrir málamiðlanir í sinni list. Taylor samdi mikið af tónlist, leiddi eigin hljómsveitir og hljóðrit- aði margar plötur. Hann kom reglulega fram á djassklúbbum og á hátíðum, þar til versnandi heilsa neyddi hann á síðustu árum til að rifa seglin. Djasspíanlistinn Cecil Taylor látinn Cecil Taylor Dómari við hæstarétt New York- ríkis hefur úrskurðað að tveimur teikningum eftir Egon Schiele (1890-1918), einn dáðasta en jafn- fram umdeildasta listamann Austur- ríkis á síðustu öld, verði skilað til af- komenda fyrrverandi eiganda, austurrísks gyðings sem var myrtur í Dachau-útrýmingarbúðum nasista árið 1941. Lengi hefur verið tekist á um eignarhald á teikningunum tveimur, „Kona í svörtum slopp“ (1911) og „Kona felur andlit sitt“ (1912). Verkin voru upphaflega í safni 449 listaverka þekkts kabar- ettlistamanns af gyðingaætttum, Fritz Grunbaum, og átti hann meðal annars 81 verk eftir Schiele. Afkom- endur hans hafa árum saman barist fyrir því, innan réttarsala og utan, að fá viðurkennt að nasistar hafi stolið verkunum og að þeim verði skilað. Þetta er einn fyrsti úrskurður bandarísks dómstóls sem er felldur á grundvelli nýrra laga frá 2016, sem eiga að auðvelda afkomendum gyð- inga sem voru myrtir í útrýming- arbúðum nasista að leita réttar síns og endurheimta listaverk sem síðan hafa mörg gengið kaupum og sölum. Teikningarnar tvær eru í eigu gallerista í London sem hyggst áfrýja úrskurðinum. Teikningum verði skilað Dómsmál Önnur teikinganna eftir Egon Schiele sem ber að skila. Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is Rocky Horror (Stóra sviðið) Mið 11/4 kl. 20:00 aukas. Mið 2/5 kl. 20:00 26. s Lau 19/5 kl. 20:00 37. s Fim 12/4 kl. 20:00 aukas. Fim 3/5 kl. 20:00 27. s Mið 23/5 kl. 20:00 aukas. Fös 13/4 kl. 20:00 aukas. Fös 4/5 kl. 20:00 28. s Fim 24/5 kl. 20:00 aukas. Lau 14/4 kl. 20:00 8. s Lau 5/5 kl. 20:00 29. s Fös 25/5 kl. 20:00 38. s Sun 15/4 kl. 20:00 9. s Sun 6/5 kl. 20:00 30. s Lau 26/5 kl. 20:00 39. s Mið 18/4 kl. 20:00 aukas. Þri 8/5 kl. 20:00 31. s Sun 27/5 kl. 20:00 40. s Fim 19/4 kl. 20:00 10. s Mið 9/5 kl. 20:00 32. s Mið 30/5 kl. 20:00 aukas. Fös 20/4 kl. 20:00 11. s Fös 11/5 kl. 20:00 33. s Fim 31/5 kl. 20:00 41. s Lau 21/4 kl. 20:00 aukas. Lau 12/5 kl. 16:00 34. s Fös 1/6 kl. 20:00 46. s Sun 22/4 kl. 20:00 12. s Þri 15/5 kl. 20:00 aukas. Lau 2/6 kl. 20:00 47. s Fim 26/4 kl. 20:00 13. s Fim 17/5 kl. 20:00 35. s Lau 28/4 kl. 20:00 25. s Fös 18/5 kl. 20:00 36. s Besta partý sem þú munt nokkurn tímann upplifa. Elly (Stóra sviðið) Fös 7/9 kl. 20:00 139. s Mið 12/9 kl. 20:00 141. s Sun 16/9 kl. 20:00 143. s Sun 9/9 kl. 20:00 140. s Fim 13/9 kl. 20:00 142. s Lau 22/9 kl. 20:00 144. s Sýningar haustið 2018 komnar í sölu. Sýningin sem klikkar (Nýja sviðið) Þri 10/4 kl. 20:00 8 .s Sun 15/4 kl. 20:00 13. s Sun 22/4 kl. 20:00 19. s Mið 11/4 kl. 20:00 9. s Mið 18/4 kl. 20:00 14. s Fim 26/4 kl. 20:00 20. s Fim 12/4 kl. 20:00 10. s Fim 19/4 kl. 20:00 15. s Fös 27/4 kl. 20:00 21. s Fös 13/4 kl. 20:00 11. s Fös 20/4 kl. 20:00 16. s Lau 14/4 kl. 20:00 12. s Lau 21/4 kl. 20:00 18. s Það er alveg öruggt að þetta fer úrskeiðis! Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið) Fös 13/4 kl. 20:30 Frums. Sun 22/4 kl. 20:30 6. s Fim 3/5 kl. 20:30 aukas. Lau 14/4 kl. 20:30 2. s Mið 25/4 kl. 20:30 7. s Fös 4/5 kl. 20:30 12. s Sun 15/4 kl. 20:30 3. s Fim 26/4 kl. 20:30 8. s Lau 5/5 kl. 20:30 13. s Mið 18/4 kl. 20:30 aukas. Fös 27/4 kl. 20:30 aukas. Sun 6/5 kl. 20:30 14. s Fim 19/4 kl. 20:30 4. s Lau 28/4 kl. 20:30 9. s Mið 9/5 kl. 20:30 15. s Fös 20/4 kl. 20:30 5. s Sun 29/4 kl. 20:30 10. s Fim 10/5 kl. 20:30 aukas. Lau 21/4 kl. 20:30 aukas. Mið 2/5 kl. 20:30 11. s Fös 11/5 kl. 20:30 16. s Komumst við vímulaus af í geggjuðum heimi? Slá í gegn (Stóra sviðið) Fim 12/4 kl. 19:30 Auka Lau 21/4 kl. 16:00 18.sýn Sun 13/5 kl. 19:30 29.sýn Fös 13/4 kl. 19:30 15.sýn Sun 22/4 kl. 19:30 19.sýn Sun 27/5 kl. 19:30 30.sýn Lau 14/4 kl. 19:30 16.sýn Sun 29/4 kl. 20:00 25.sýn Lau 2/6 kl. 19:30 31.sýn Sun 15/4 kl. 19:30 Auka Lau 5/5 kl. 19:30 27.sýn Sun 3/6 kl. 19:30 32.sýn Fös 20/4 kl. 19:30 17.sýn Sun 6/5 kl. 16:00 28.sýn Lau 9/6 kl. 19:30 33.sýn Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna! Svartalogn (Stóra sviðið) Fim 26/4 kl. 19:30 Fors Lau 28/4 kl. 19:30 2.sýn Fös 4/5 kl. 19:30 4.sýn Fös 27/4 kl. 19:30 Frum Fim 3/5 kl. 19:30 3.sýn Fös 11/5 kl. 19:30 5.sýn Heillandi verk um óvæntu möguleikana í lífinu Stríð (Stóra sviðið) Mið 16/5 kl. 19:30 Frums Fim 17/5 kl. 19:30 2.sýn Fös 18/5 kl. 19:30 3.sýn Ragnar og Kjartan hafa tvívegis skapað í sameiningu sviðsverk fyrir Volksbühne-l Faðirinn (Kassinn) Fös 13/4 kl. 19:30 32.sýn Fös 20/4 kl. 19:30 33.sýn Lau 21/4 kl. 19:30 34.sýn Áhrifamikið nýtt verðlaunaverk. Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari) Mið 11/4 kl. 20:00 Mið 18/4 kl. 20:00 Mið 25/4 kl. 20:00 Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins! Oddur og Siggi (Á flakki um landið) Þri 10/4 kl. 11:00 kirkjub.klaustur Mán 16/4 kl. 11:00 Selfoss Þri 24/4 kl. 11:00 Hveragerði Mið 11/4 kl. 11:00 Höfn Þri 17/4 kl. 11:00 Selfoss Þri 15/5 kl. 11:00 Vestm.eyjar Skemmtileg, sorgleg og hjartnæm sýning Pörupiltar (Þjóðleikhúskjallarinn) Fim 26/4 kl. 10:00 Fös 27/4 kl. 11:30 Mið 2/5 kl. 10:00 Fim 26/4 kl. 11:30 Mán 30/4 kl. 10:00 Mið 2/5 kl. 11:30 Fös 27/4 kl. 10:00 Mán 30/4 kl. 11:30 Hlátur og skemmtun í bland við eldfimt efni Barnamenningarhátið (Þjóðleikhúsið) Fös 20/4 kl. 10:00 Ég get Lau 21/4 kl. 13:00 Pétur og úlfurinn Sun 22/4 kl. 13:00 Oddur og Siggi Fös 20/4 kl. 10:00 Pétur og úlfurinn Lau 21/4 kl. 13:00 Ég get Sun 22/4 kl. 15:00 Oddur og Siggi Lau 21/4 kl. 10:00 Pétur og úlfurinn Lau 21/4 kl. 15:00 Ég get Barnamenningarhátíð 2018 leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200 ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS VANTAR ÞIG PÍPARA?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.