Morgunblaðið - 11.04.2018, Page 1
M I Ð V I K U D A G U R 1 1. A P R Í L 2 0 1 8
Stofnað 1913 84. tölublað 106. árgangur
SÆNSKA
AKADEMÍAN Í
DJÚPRI KRÍSU
HLAKKAR TIL
AÐ FARA MEÐ
LIÐ KÍNA Á HM
ERUM ÖLL MEÐ
INNRI MÁTT
TIL AÐ SKAPA
KVENNABOLTINN ÍÞRÓTTIR GEGGA Á SAGNAKAFFI 12GRÍPUR KÓNGUR INN Í? 30
Ekki einasta syngur tónlistarmaðurinn Kristján
Kristjánsson, KK, sjómannalög heldur er hann
rétt að ljúka námi við Tækniskólann og fær í
vor skipstjórapróf gangi allt upp. Til slíks þarf
svonefnd BS-réttindi en þau gefa heimild til að
stýra allt að 45 metra löngum skipum, svo sem
farþegabátum, flestum fiskiskipum og minni
togurum.
„Ég tók pungaprófið svonefnda fyrir mörg-
um árum og hef lengi átt lítið færeyskt trillu-
horn, Æðruleysið, sem ég hef stundum gert út
á strandveiðarnar á sumrin. Mér hefur fundist
þetta skemmtilegt enda held ég að sjómanns-
blóð sé í æðum allra Íslendinga,“ segir KK sem
byrjaði haustið 2016 í skipstjórnarnáminu og
stefndi þá á réttindi á 24 metra löng skip. Þeg-
ar í ljós kom að ekki þurfti að bæta við nema
fáeinum fögum og námseiningum til að fá rétt-
indi á 45 metra skip var sjálfsagt að stíga
skrefið til fulls.
Skipstjórnarnám er fjölbreytt og nemend-
urnir hafa margir reynslu af sjónum og kunna
að stíga ölduna. „Sumir eru gamlir sjóhundar
en síðan er einn fimmtán ára strákur í hópnum.
Þetta er frábær félagsskapur,“ segir KK. Bætir
við að sumar námsgreinar séu nokkuð krefj-
andi, svo sem siglingafræðin og stöðugleiki
skipa. Góðum kennurum hafi hins vegar tekist
að gera námið auðskilið og áhugavert, sama
hver greinin sé.
Sjómannalögin blítt og létt
„Ef stemningin í skólanum er góð er auðveld-
ara að muna það sem þarf og læra aðferðir og
formúlur. Allt nám gengur út á slíkt,“ segir KK,
sem er elstur skipstjórnarnemanna, 62 ára. Sjálf-
ur segist hann ekki stefna á að munstra sig sem
skipstjóri enda með mörg önnur járn í eldinum.
Megi þar nefna umsjón með útvarpsþáttum á
Rás 1 og spilamennsku á ýmsum mannamótum
hvar ætla má að íslensk sjómannalög muni óma,
bæði blítt og létt. sbs@mbl.is
Söngvari útskrifast sem skipstjóri
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sjómaður KK við trilluhornið Æðruleysi í Snarfarahöfn við Elliðavog í Reykjavík í gær. Hafið bláa hafið hugann dregur gæti skipstjórinn sungið.
Þrjátíu læknar báru ábyrgð á
64% allra samþykktra lyfja-
skírteina fyrir metýlfenídatlyf á
borð við rítalín og concerta á ný-
liðnu ári. Alls fengu 6.965 ein-
staklingar lyfjaskírteini fyrir slík-
um lyfjum og voru umsóknirnar
samþykktar af 357 læknum. Einn
barna- og unglingageðlæknir var
með samþykki fyrir 365 umsóknum
en það er um 5,2% þeirra sem fengu
umrædd skírteini. »6
30 læknar með
64% lyfjaskírteina
Íslenska kvennalandsliðið í knatt-
spyrnu stendur áfram vel að vígi í
undankeppni heimsmeistaramóts-
ins eftir öruggan sigur á Færey-
ingum, 5:0, í Þórshöfn í gær. Það
tók þó langan tíma að brjóta varn-
arleik færeyska liðsins á bak aftur.
Ísland er komið með 13 stig eftir
fimm leiki og er í harðri baráttu við
Þjóðverja um efsta sætið og keppn-
isréttinn á HM. Þýskaland er með
15 stig en hefur leikið sex leiki og
þjóðirnar mætast á Laugardalsvell-
inum í haust. Sara Björk Gunnars-
dóttir fyrirliði, sem hér fyrir ofan
er í hörðum slag við tvo Færeyinga,
er orðin næstleikjahæsta landsliðs-
kona Íslands frá upphafi. » Íþróttir
Fimm mörk
gegn Fær-
eyingum
Ljósmynd/Sverri Egholm
HM Lið Íslands stendur vel að vígi í
undankeppninni sem nú stendur yfir.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Tekjur leigusala í gegnum Airbnb-
íbúðir á Íslandi námu 19,4 millj-
örðum króna á síðasta ári. Tekjurnar
jukust um 109% frá fyrra ári. Tekju-
hæsti Airbnb-leigusali landsins velti
230 milljónum króna í fyrra og var
með 46 rými í útleigu. Tíu tekju-
hæstu leigusalarnir veltu alls 1,3
milljörðum króna árið 2017. Þetta
kemur fram í skýrslu Íslandsbanka,
Íslenskri ferðaþjónustu, sem kynnt
verður í dag.
Samkvæmt skýrslunni nær
Airbnb-útleiga nú til tæps þriðjungs
af markaði með gistirými hér á landi.
Þegar gistinóttum á Airbnb er bætt
við skráðar gistinætur kemur í ljós
að hótelin eru með 37% markaðs-
hlutdeild, 4,3 milljónir gistinótta, en
Airbnb er með 27% hlutdeild, 3,2
milljónir gistinótta. Gistiheimili
dekka svo 12% markaðarins.
Gistinóttum fjölgaði um 2,1 millj-
ón í fyrra. Nemur það um 24% fjölg-
un frá árinu 2016. „Vöxtur Airbnb
hefur verið margfalt hraðari en vöxt-
ur annars konar gistiþjónustu und-
anfarin ár. Fyrir vikið hefur hagur
skráðrar gistiþjónustu á Íslandi ekki
vænkast í samræmi við þá miklu
fjölgun ferðamanna sem átt hefur
Airbnb nálgast hótelin
Tekjur leigusala frá Airbnb jukust um 109% milli ára og námu 20 milljörðum
króna í fyrra Tíu tekjuhæstu leigusalar landsins veltu 1,3 milljörðum króna
Mikil aukning
» Vöxtur Airbnb hefur verið
margfalt hraðari en vöxtur
annars konar gistiþjónustu
undanfarin ár.
» Á árinu 2017 voru um 3,2
milljónir gistinótta seldar í
gegnum Airbnb. Er það tvö-
földun frá fyrra ári og tæplega
sjöföldun frá 2015.
» Mikil aukning á landsbyggð-
inni.
MMinna fjárfest í hótelum »16
sér stað undanfarið. Hefur fjölgunin
þess í stað að mestu drifið áfram
vöxt deilihagkerfisins,“ segir í
skýrslunni.
Liðin er sú tíð að Airbnb-
starfsemi sé fyrst og fremst í
Reykjavík. Umfang deilihagkerf-
isins hefur vaxið mun hraðar á lands-
byggðinni en á höfuðborgarsvæðinu
á síðastliðnum tveimur árum. Á
árinu 2015 seldust 18 þúsund gisti-
nætur á landsbyggðinni en 1,3 millj-
ónir á árinu 2017. Seldar gistinætur
á landsbyggðinni voru því 73 sinnum
fleiri á árinu 2017 en á árinu 2015.