Morgunblaðið - 11.04.2018, Síða 8

Morgunblaðið - 11.04.2018, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 2018 Gildi–lífeyrissjóður Ársfundur 2018 Dagskrá fundarins Venjuleg ársfundarstörf. Tillögur til breytinga á samþykktum. Önnur mál, löglega upp borin. Allir sjóðfélagar eiga rétt til setu á ársfundinum með málfrelsi og tillögurétti. Sérstakt fulltrúaráð, að jöfnu skipað fulltrúum stéttarfélaga og samtaka atvinnurekenda sem að sjóðnum standa, fer með atkvæði á ársfundinum. Tillögur til ályktunar sem taka á fyrir á ársfundi þurfa að berast stjórn sjóðsins eigi síðar en viku fyrir ársfund. Stjórn Gildis-lífeyrissjóðs. 1. 2. 3. Grand hótel Reykjavík, fimmtudaginn 12. apríl kl. 17.00 www.gildi.is Með atburðum síðustu dagavirtist Assad augnlæknir og harðstjóri í Sýrlandi hafa geirneglt stöðu sína sem ófor- betranlegt illmenni.    En Páll Vil-hjálmsson sér óvæntan vinkil á málinu sem ber hæst á himni alþjóða- stjórnmála um þess- ar mundir:    Vestræn velvildgerði Assad Sýrlandsforseta að glæpamanni gegn mannkyni þegar hann var hvorki betri né verri en leiðtogavinir vestrænna ríkja í Tyrklandi, Sádí-Arabíu og Kína.    Eftir að búið var að útmála Ass-ad sem glæpamann studdu Vesturlönd ýmsa hópa uppreisnar- manna með vopnum og fégjöfum.    Borgarastríðið í Sýrlandi erkomið á áttunda ár.    Í Guardian segir Simon Jenkinsað eina vonin til að binda enda á blóðsúthellingar sé að Assad fari með sigur af hólmi.    Jenkins klykkir út með þessumorðum: Vesturlönd verða að láta af þeim leiða vana að ætla sér að stjórna heiminum.    Assad forseti er ábyggilega ekkibesti vinur barnanna.    Stjórnmálamenn eru það sjaldn-ast.    Sum varmenni þarf einfaldlegaað umbera þar sem aðrir kostir eru verri.“ Páll Vilhjálmsson Er önnur hlið til? STAKSTEINAR Bashar al-Assad Veður víða um heim 10.4., kl. 18.00 Reykjavík 7 skúrir Bolungarvík 8 skýjað Akureyri 7 léttskýjað Nuuk -1 skýjað Þórshöfn 7 alskýjað Ósló 9 heiðskírt Kaupmannahöfn 10 heiðskírt Stokkhólmur 5 heiðskírt Helsinki 7 heiðskírt Lúxemborg 11 rigning Brussel 18 rigning Dublin 7 súld Glasgow 6 rigning London 12 skúrir París 15 léttskýjað Amsterdam 15 þoka Hamborg 9 heiðskírt Berlín 24 heiðskírt Vín 17 skýjað Moskva 15 skúrir Algarve 15 léttskýjað Madríd 7 rigning Barcelona 14 léttskýjað Mallorca 16 skýjað Róm 16 heiðskírt Aþena 18 heiðskírt Winnipeg -1 snjókoma Montreal 1 snjókoma New York 6 alskýjað Chicago 3 léttskýjað Orlando 21 þrumuveður Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 11. apríl Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 6:10 20:49 ÍSAFJÖRÐUR 6:07 21:01 SIGLUFJÖRÐUR 5:50 20:45 DJÚPIVOGUR 5:37 20:20 Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Sigrún Birgisdóttir, fram- kvæmdastjóri Einhverfusamtak- anna, segir að samtökin hafi aldrei tekið þátt í átakinu Bláum apríl því að þau tengi litinn við bandarísku samtökin Autism speaks. Þau sam- tök eru með herferðina „Light it up blue“ á alþjóðavísu en hafa verið gagnrýnd fyrir viðhorf sitt til ein- hverfra á síðustu árum. „Við erum ekki að gagnrýna starfsemi Blás apríls, þau eru með mjög flott starf, halda flott námskeið og hafa gert frábær myndbönd og það er allt gott um það að segja. En innan okk- ar samtaka er töluverður hópur af fullorðnu einhverfu fólki sem teng- ir bláa litinn við Autism speaks. Þegar Blár apríl var stofnaður á sínum tíma á Íslandi, fólst fyrsta herferðin sem þau fóru í á alþjóð- legum degi einhverfra, í því að biðja fyrirtæki um að lýsa sig upp í bláum lit,“ segir Sigrún en slíkt er hluti af átaki Autism speaks á er- lendri grundu. Ragnhildur Ágústs- dóttir, formaður Blás apríls, segir að engin tenging sé á milli Blás apr- íls hérlendis og samtakanna Autism speaks. Samtökin Autism speaks hafa bæði verið gangrýnd fyrir orðalag og rannsóknir sínar tengdar ein- hverfu. Þau hafa m.a. talað um ein- hverfu sem vandamál sem þurfi að leysa. „Umræðan hjá þessum sam- tökum var lengi vel á mjög nei- kvæðum nótum, þetta var vanda- mál og fólk þjáðist. En sem betur fer tóku þau ýmist svona orðalag úr sinni stefnuskrá 2016, en það eru bara tvö ár síðan og ég held að það séu fáir fullorðnir með einhverfu til í að stökkva á vagninn með þeim enn sem komið er,“ segir Sigrún. „Við getum ekki tekið þátt í her- ferðum þar sem blái liturinn er not- aður ef það meiðir okkar félags- menn, þetta er bara svo einfalt. Við erum í samstarfi við einhverfu- samtök á Norðurlöndunum á hverju ári og þau eru heldur ekki að nota þennan lit, út af þessari tengingu sem fólk vill meina að sé við Autism speaks. Okkur finnst það mjög leiðinlegt en þetta er staðan,“ segir Sigrún sem áréttar að lokum að samtökin tengist ekki en að með því sé hún ekki á neinn hátt að gagnrýna Bláan apríl. Liturinn fælir Einhverfusamtökin frá Ljósmynd/Wikimedia commons Blár Hvíta húsið var lýst upp í bláum lit á degi einhverfra í fyrra.  Einhverfusamtökin taka ekki þátt í Bláum apríl  Tengja bláa litinn við sam- tökin Autism speaks  Samtökin og átakið Blár apríl á Íslandi eru ekki tengd Skástæðin senn aflögð Öllum skábílastæðum við Lauga- veg, milli Barónsstígs og Frakka- stígs, verður breytt í samsíða stæði með sama hætti og gert hefur verið við tvö stæði fyrir fatlaða við Laugaveg 77. Þetta var samþykkt í borgarráði. Skástæðin eru 29 tals- ins og gert er ráð fyrir að samsíða bílastæðin eftir breytingu verði á bilinu 18-22 talsins. Fram kemur í greinargerð Ólafs Ingibergssonar, sérfræðings hjá umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkur, að skástæðin þrengi mjög að umferð gangandi og hjól- andi vegfarenda um gangstétt- arnar. Fjöldi gangandi og hjólandi vegfarenda hefur aukist mikið á svæðinu undanfarin ár, ekki síst vegna fjölgunar erlendra ferða- manna. „Skástæðin skapa auk þess hættu fyrir gangandi vegfarendur þegar bílum er lagt svo innarlega í stæðin að fótgangandi vegfarendur geta ekki mæst á gangstéttinni og neyðast til að fara út á akbraut- ina,“ segir í greinargerð Ólafs. sisi@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.