Morgunblaðið - 11.04.2018, Page 14

Morgunblaðið - 11.04.2018, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 2018 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Hreinn Haraldsson lætur af emb- ætti vegamálastjóra 30. júní næst- komandi eftir að hafa gegnt því í rúm 10 ár. Jafnframt verða þau tímamót að þetta 100 ára gamla embættisheiti verður aflagt. Það mun framvegis heita embætti for- stjóra Vegagerðarinnar og hefur samgönguráðherra auglýst það laust til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 23. apríl n.k. Mörg kunn embættisheiti frá fyrri tíð hafa verið aflögð. Má þar nefna siglingamálastjóri, vitamálastjóri, veðurstofustjóri, verðlagsstjóri, fiskimálastjóri, skipaskoðunarstjóri og póst- og símamálastjóri. Enn er notast við nokkur slík embættisheiti, t.d. landlæknir, orkumálastjóri og fiskistofustjóri. Fékk að halda heitinu Hreinn Haraldsson verður 69 ára í júní n.k. Hann lauk doktorsnámi í jarðfræði frá Háskólanum í Upp- sölum í Svíþjóð, með áherslu á mannvirkjajarðfræði og jarðverk- fræði. Hreinn kom til starfa hjá Vegagerðinni árið 1981 og gegndi starfi framkvæmdastjóra þróun- arsviðs þegar hann var settur vega- málastjóri 1. maí 2008. Hann fékk síðast skipun til fimm ára 1. júlí 2013 og rennur hún út í lok júní n.k. Eftir sameiningu Vegagerð- arinnar við hluta Siglingastofnunar 1. júlí 2013 breyttist heitið í forstjóra Vegagerðarinnar. Af því að Hreinn hafði þá setið í embætti vega- málastjóra í rúm fimm ár fékk hann leyfi til að nota heitið vegamálastjóri áfram út sinn starfstíma. Fram kemur á vef Vegagerðar- innar að árið 1893 var ráðinn til starfa fyrsti verkfræðingur landsins. Það stöðuheiti varð síðar að embætti landsverkfræðings. Fyrsti lands- verkfræðingurinn var Sigurður Thoroddsen en hann varð jafnframt fyrsti Íslendingurinn til að ljúka prófi í verkfræði. Sigurður gegndi embætti til 1904 en tók þá við starfi kennara við Lærða skólann í Reykjavík. Tveir aðrir gegndu emb- ætti landsverkfræðings, þeir Jón Þorláksson og Thorvald Krabbe. Í upphafi árs 1918 var embætti landsverkfræðings skipt í tvo hluta, embætti vegamálastjóra (Geir G. Zoëga) og vitamálastjóra (Thorvald Krabbe) en frá þeim þróuðust stofn- anirnar Vegagerð ríkisins og Vita- og hafnamálaskrifstofan. Vegagerð ríkisins heitir nú samkvæmt vega- lögum Vegagerðin. Hreinn Haraldsson er aðeins sjötti einstaklingurinn sem gegnt hefur embætti vegamálastjóra síð- ustu 100 árin. Fyrsti vegamálastjór- inn, Geir G. Zoëga, gegndi embætt- inu í tæp 40 ár. 100 ára embættis- heiti lagt niður  Vegamálastjóri lætur af störfum  Forstjóri tekur við Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson Borðaklipping Hreinn hefur klippt á marga borðana s.l. 10 ár. Hér er hann ásamt Kristjáni L. Möller ráðherra á Mjóafjarðarbrú í Ísafjarðardjúpi 2009. VW TOUAREG R-LINE PANORAMA Dísel, sjálfskiptur, mjög vel útbúin, sjón er sögu ríkari. Verð 9.980.000. Rnr. 247928. DACIA DUSTER Dísel, sjálfskiptur, leiðsögukerfi, bakkmyndavél ofl. Okkar verð 2.990.000.- Rnr. 247978. NÝ R B ÍLL ! NÝ R B ÍLL ! 562 1717 Kletthálsi 2 - bilalif@bilalif.is bilalif.is Eigum mikið úrval af nýjum og nýlegum bílum á staðnum Þvottadagar WW70vottavélKG. 1400 SN. co Bubble olalaus mótor. erð nú 59.900,- V70M urrkari A++ KG. barkarlaus urrkari. armadæla í stað ments. erð nú 76.900,- TM 59.90 0,- URRKARI 6DBM720G ekur 7 kg af þvotti. ður: 99.900,- Nú: ,- 160 15% ÞVottAVél L6FBE720I Tekur 7 kg af þ i. 1200 snú gsa ottak Ísl k n nd . V áðu 9. ,- 914913404 15% Lágmúla 8 - Sími 530 2800Umboðsmenn um allt land - Ormsson.is loKAð lAU gARDAg vegna ársh átíðarferða r Sæmundur Helgason, grunn- skólakennari og formaður bæj- arráðs Sveitarfé- lagsins Horna- fjarðar, er áfram efstur á E-lista 3. framboðsins í Hornafirði fyrir komandi sveit- arstjórnarkosningar. E-listi hefur skipað meirihluta bæjarstjórnar ásamt sjálfstæðismönnum. Sigrún Sigurgeirsdóttir landvörður er í öðru sæti og Hjálmar Jens Sigurðs- son, sjúkraþjálfari og varabæjar- fulltrúi, er í þriðja sæti. Sjö konur og sjö karlar skipa listann. Sæmundur fer aftur fyrir 3. framboðinu Sæmundur Helgason Íslenska þjóðfylk- ingin hefur til- kynnt framboð fyrir borgar- stjórnarkosn- ingar í næsta mánuði. Guð- mundur Karl Þor- leifsson, formað- ur flokksins, skipar efsta sætið, í öðru sæti er Hjördís Bech Ásgeirs- dóttir félagsliði og Jens. G. Jensson skipstjóri skipar þriðja sætið. Í fréttatilkynningu segir að eitt helsta áherslumálið verði að draga til baka lóð undir mosku og allar leyfisveitingar vegna viðbyggingar á bænahúsi múslima í Öskjuhlíð. Íslenska þjóðfylk- ingin býður sig fram Guðmundur Karl Þorleifsson Bæjarfulltrú- arnir Stefán Bogi Sveinsson og Gunnhildur Ingv- arsdóttir skipa tvö efstu sæti Framsóknar- flokksins fyrir kosningarnar á Fljótsdalshéraði í vor, en listinn var samþykktur nýverið. Þriðja sætið skipar Guðfinna Harpa Árnadóttir, bóndi, ráðunautur og formaður Fé- lags sauðfjárbænda á Héraði og Fjörðum, og í fjórða sæti er Aðal- heiður Björt Unnarsdóttir, búfræð- ingur og varabæjarfulltrúi. Listann skipa átta konur og tíu karlar. Stefán efstur hjá Framsókn á Héraði Stefán Bogi Sveinsson SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR 2018 ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS VANTAR ÞIG PÍPARA?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.