Morgunblaðið - 11.04.2018, Side 16
238 umsóknir
bárust í Startup
Reykjavik-ný-
sköpunarhrað-
alinn, en um-
sóknarfresti
lauk 8. apríl sl.
Þetta er 70%
aukning frá
2017 að því er
segir í tilkynn-
ingu Arion banka. Tíu fyrirtæki
verða valin til þátttöku ekki seinna
en fyrstu vikuna í maí. „Að þessu
sinni verða því einungis 4% þeirra
fyrirtækja sem sóttu um valin til
þátttöku,“ segir í tilkynningunni.
Einnig kemur fram að erlendar
umsóknir hafi aldrei verið fleiri en
nú og er hlutfall innlendra og er-
lendra umsókna jafnt í fyrsta sinn.
70% fleiri
sækja um
238 umsóknir í
Startup Reykjavík
Nýtt Jurt Hydropon-
ics var með 2016.
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 2018
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
BAKSVIÐ
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
Áætlað er að fjárfesting í hótelum á höf-
uðborgarsvæðinu á næstu árum verði
minni en verið hefur. Það er í takt við
hægari fjölgun ferðamanna. Greining
Íslandsbanka áætlar að fjárfestingin
muni nema að meðaltali 12 milljörðum
á ári á árunum 2018-2021. Til saman-
burðar var áætluð fjárfesting hótela um
16 milljarðar króna árið 2016. Þetta
kemur fram í nýrri skýrslu Íslands-
banka sem ber heitið Íslensk ferðaþjón-
usta og fjallað verður um á morgun-
verðarfundi bankans í samstarfi við
Íslenska ferðaklasann í Perlunni í dag.
Bæði verð og nýting hótela er hæst í
Reykjavík borið saman við hin norrænu
ríkin. Skýrsluhöfundar segja að það
bendi til þarfar á auknu framboði til að
auka samkeppni á hótelmarkaðinum og
dempa um leið verðþrýsting.
Fjárfest fyrir 73 milljarða
Fram kemur í skýrslunni að áætlað
sé að fjárfesting ferðaþjónustufyrir-
tækja árið 2016 hafi numið 73 milljörð-
um króna sem sé 19% aukning milli ára.
Vegur framlag flugfélaga þar langmest
en það var um 27 milljarðar króna, hót-
el fjárfestu fyrir 16 milljarða og bíla-
leigur fyrir 11 milljarða. Samanlagt hef-
ur fjárfesting þessara þriggja
starfsgeira verið um 80% af fjárfest-
ingu greinarinnar í heild frá 2011.
Á árinu 2016 námu rekstrartekjur
ferðaþjónustunnar, litið til fyrirtækja
sem höfða fyrst og fremst til erlendra
ferðamanna, 385 milljörðum króna,
samkvæmt samantekt Creditinfo fyrir
Íslandsbanka. Þar af voru rekstrar-
tekjur tíu stærstu fyrirtækjanna 208
milljarðar króna eða sem nemur 54% af
heildarrekstrartekjum greinarinnar.
Flugfélögin Icelandair og Wow air eru
langstærstu fyrirtækin í íslenskri
ferðaþjónustu með samanlagðar
rekstrartekjur upp á 147 milljarða
króna eða um 38% allra rekstrartekna
greinarinnar á árinu 2016. Skýrsluhöf-
undar segja því að ferðaþjónustan hér-
lendis einkennist af fáum afar stórum
fyrirtækjum og mörgum litlum, en um
93% fyrirtækjanna skiluðu einungis um
19% af heildarrekstrartekjum greinar-
innar.
Minni félög braggast
Gagnlegt getur verið að skoða mið-
gildi ákveðinnar rekstrarstærðar því
rekstrarstærðir íslenskrar ferðaþjón-
ustu litast talsvert af þeim fyrirtækjum
sem eru stærri, segir í skýrslunni. Mið-
gildi rekstrarhagnaðar fyrir fjár-
magnsliði og afskriftir (EBITDA) hef-
ur rúmlega fjórfaldast frá árinu 2011
hjá íslenskum ferðaþjónustufyrirtækj-
um til ársins 2016. Þegar miðgildið er
svo skoðað eftir stærðarflokkum sést
að það hefur hækkað hlutfallslega
mest hjá litlum fyrirtækjum. Þetta
bendir til þess að rekstrarhagnaður lít-
illa félaga í ferðaþjónustu hafi vaxið
hlutfallslega umfram hagnað þeirra
sem stærri eru. „Hefur því mestur ár-
angur náðst á þennan mælikvarða hjá
litlum félögum í greininni,“ segir í
skýrslunni.
Að því er fram kemur í Íslenskri
ferðaþjónustu hefur framleiðni vinnu-
afls í ferðaþjónustu aukist. Árið 2017
hafi um 81 ferðamaður verið á hvern
starfsmann í ferðaþjónustu en til sam-
anburðar voru þeir 38 á hvern starfs-
mann árið 2010. Fjöldi ferðamanna á
hvern starfsmann hefur því meira en
tvöfaldast frá upphafi áratugarins.
Samkvæmt mælingum Hagstofu jókst
framleiðni vinnuafls í rekstri, gisti-
stöðu og veitingarekstri um 44% á ár-
unum 2008-2016, næstmest allra at-
vinnugreina.
Minna fjárfest í hótelum
Íslandsbanki spáir því að það dragi úr fjárfestingum í hótelum á næstu fjórum
árum í takt við hægari fjölgun ferðamanna Icelandair og WOW langstærst
Ísland dýrast
» Tölur frá OECD benda til
þess að Ísland sé dýrasti
áfangastaður heims um þessar
mundir, segir í skýrslu Íslands-
banka.
» Þannig er verðlag hér 11%
hærra en í Sviss og 28% hærra
en annars staðar á Norður-
löndum að meðaltali.
» Verðlagið er 1,5 til tvisvar
sinnum hærra en á vinsælustu
áfangastöðum heims.
Fjárfesting í hótelum á höfuðborgarsvæðinu
Áætluð fjárfesting 2018-2021 Áætluð fjölgun herbergja
400
300
200
100
0
15
10
5
0
2018 2019 2020 2021 2018 2019 2020 2021
8,3
14,8
12,6
7,9
381
547
453
328
ma. kr. herbergi
Heimild: Greining Íslandsbanka, Íslensk ferðaþjónusta apríl 2018
um iðnfyrirtækjum að tæknilausn-
um í sjávarútvegi. Samstarf okkar
við Völku er nýjasta birtingarmynd
þessarar stefnu Samherja og ég er
mjög ánægður með útkomuna,“
segir Þorsteinn Már Baldvinsson,
forstjóri Samherja, í tilkynning-
unni.
Gestur Geirsson, framkvæmda-
stjóri landvinnslu Samherja, segir
að með kaupunum séu stór skref
stigin inn í framtíðina.
Í tilkynningunni segir að með
nýju skurðartækninni náist mjög
mikill sveigjanleiki og nákvæmni í
bitaskurði, sem uppfylli vel kröfur
markaðarins. „Aukið hlutfall fer í
verðmætustu afurðirnar því skurð-
arvélin tryggir að hámarks-
verðmæti fáist fyrir sérhvert flak.
Beingarður er um 1-4 prósentustig-
um minni en í handskurði og mark-
miðið er að hann verði enn minni í
nýrri skurðarvél með tvöfaldri
röntgenvél sem mælir hallann á
beinunum mjög nákvæmlega og
sker samkvæmt því.“
Þá tryggi nýjar tvöfaldar rönt-
genvélar enn betur en áður bein-
lausar afurðir. tobj@mbl.is
Samherji hefur fest kaup á vinnslu-
kerfi frá íslenska hátæknifyrirtæk-
inu Völku fyrir 2,5 milljarða króna.
Í tilkynningu frá Samherja segir að
kerfið verði það fullkomnasta sem
þekkist í heiminum.
Tækin verða sett upp í vinnslu-
húsum félagsins á Akureyri og Dal-
vík. Um er að ræða sex nýjar vatns-
skurðarvélar, þrjá ferskfiskflokk-
ara, þrjá flokkara fyrir frosna bita
og tengdan búnað frá Völku í bæði
vinnsluhús félagsins. „Stefna Sam-
herja er að vinna náið með íslensk-
Kaupa 2,5 milljarða kerfi frá Völku
Fullkomnasta vinnslukerfi í heimi
Nákvæmt Skurðartæknin tryggir
hámarksverðmæti fyrir flökin.
● VÍS sendi frá sér jákvæða afkomu-
viðvörun eftir lokun markaða í gær.
Drög að árshlutauppgjöri sýna að
hagnaður á fyrsta ársfjórðungi fyrir
skatta er um 930 milljónir króna en
afkomuspá félagsins gerði ráð fyrir
hagnaði upp á 276 milljónir króna.
Ávöxtun skráðra fjárfestingaeigna fé-
lagsins reyndist hagstæðari um sem
nemur 350 milljónum króna umfram
afkomuspá og afkoma af vátrygg-
ingarekstri var umfram væntingar
sem nemur 300 milljónum króna.
Góður árangur af vátryggingarekstri á
fyrsta ársfjórðungi gerir það jafnframt
að verkum að ekki gerist þörf á að
uppfæra spá félagsins um samsett
hlutfall fyrir árið þrátt fyrir tjón sem
félagið ber vegna brunans sem varð í
Miðhrauni 4 í síðustu viku.
VÍS sendir frá sér já-
kvæða afkomuviðvörun
11. apríl 2018
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 98.23 98.69 98.46
Sterlingspund 139.08 139.76 139.42
Kanadadalur 77.43 77.89 77.66
Dönsk króna 16.243 16.339 16.291
Norsk króna 12.551 12.625 12.588
Sænsk króna 11.755 11.823 11.789
Svissn. franki 102.68 103.26 102.97
Japanskt jen 0.9168 0.9222 0.9195
SDR 142.68 143.54 143.11
Evra 120.98 121.66 121.32
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 147.0825
Hrávöruverð
Gull 1328.5 ($/únsa)
Ál 2112.0 ($/tonn) LME
Hráolía 67.1 ($/fatið) Brent
● Rekstrarafgangur fyrir A- og B-hluta
Hafnarfjarðarkaupstaðar nam 1.326
milljónum króna árið 2017 samkvæmt
frétt frá bænum. Veltufé frá rekstri var
3.646 milljónir króna, sem samsvarar
14,4% af heildartekjum.
Góð afkoma leiddi til þess að sveitar-
félagið tók engin lán á árinu 2017, ann-
að árið í röð. Langtímaskuldir voru
greiddar niður um 300 milljónir króna
umfram gjaldfallnar afborganir á árinu.
Skuldaviðmið er komið niður í 135% og
skuldahlutfall í 159% fyrir A- og B-hluta.
Hafnarfjörður með 1,3
milljarða afgang
STUTT
Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi
Sími 535 4300 · axis.is
Vandaðar íslenskar innréttingar