Morgunblaðið - 11.04.2018, Page 19

Morgunblaðið - 11.04.2018, Page 19
19 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 2018 Gangi fjármálaáætlun ríkisstjórn- arinnar eftir verða útgjöld ríkissjóðs, án fjármagnskostnaðar, um 132 millj- örðum króna hærri árið 2023 en þau voru samkvæmt fjárlögum á liðnu ári. Þetta er hækkun um tæp 20% á föstu verðlagi 2018. Aukning útgjalda jafn- gildir um 1,5 milljónum króna á hverja fjögurra manna fjölskyldu. Ef lýsa á þróun ríkisfjármála síð- ustu ár með einu orði, þá er orðið „út- gjaldaþensla“ ágætt. Það er sama á hvaða liði útgjalda ríkisins er litið, – nær allt hefur hækkað og heldur áfram að hækka á komandi árum. Í janúar síðastliðnum benti ég á að fyrstu fjárlög ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur væru sannarlega fjár- lög útgjalda, en með fyrirheitum um að á komandi árum verði álögur á fyr- irtæki og almenning lækkaðar. Í fjár- málaáætlun sem lögð hefur verið fram er því heitið að tekjuskattur ein- staklinga lækki sem og trygginga- gjald. Auðvitað þarf í þessum efnum að stíga fastar til jarðar, en það er sérstaklega ánægjulegt að ætlunin er að hefja heildarendurskoðun á tekju- skattskerfinu og þar verður meðal annars skoðað hvort rétt sé að inn- leiða breyttan persónuafslátt, með svipuðum hætti og ég hef talað fyrir hér á síðum Morgunblaðsins. Þá yrði persónuafslátturinn hækkaður veru- lega og færi stiglækkandi eftir því sem tekjur eru hærri. Hugsanlegt er að ónýttur persónuafslátturinn verði að einhverju leyti greiddur út. Þannig tekjuskattskerfi hvetur fólk til vinnu og refsar því ekki fyrir að bæta sinn hag og eykur „á sama tíma ráðstöf- unartekjur tekjulágra meira en ann- arra, án þess þó að fátæktargildrur skapist,“ eins og segir í fjármálaáætluninni. Eins og búast mátti við er fjármálaáætlunin vonlaus í huga stjórn- arandstöðunnar. 96 milljarða hækkun Í fjármálaáætluninni er lagt til að framlög til sjúkrahúsþjónustu, heil- brigðisþjónusta utan sjúkrahúsa, hjúkrunar- og endurhæfingar og lyf og lækningavara, hækki um rúmlega 56,4 millj- arða króna frá 2017 til 2023 eða lið- lega 29% að raunvirði. Útgjöld til heilbrigðismála verða um 249 millj- arðar króna árið 2023 gangi áætlunin eftir. Framlög vegna aldraðra, öryrkja og málefna fatlaðra verða liðlega 34,7 milljörðum hærri að raungildi í lok fjármálaáætlunarinnar en fjárlög lið- ins árs gera ráð fyrir. Alls nema framlögin rúmlega 162 milljörðum árið 2023. Í þessu sambandi er vert að hafa í huga að framlög til lífeyris- greiðslna aldraðra hækkuðu um nær 69% að raunvirði frá 2013 til 2017 eða um rúmlega 27 milljarða á verðlagi síðasta árs. Heildargreiðslur til ör- yrkja hækkuðu um 32% eða 12,6 milljarða að raunvirði. Í heild verða útgjöld til velferðarmála 96,3 milljörðum króna hærri árið 2023 en á síðasta ári. Þetta er hækkun um 26% eða töluvert meira en önn- ur útgjöld. Þessi mikla aukning útgjalda til velferð- armála kemur í kjölfar ára þar sem útgjöld hækkuðu gríðarlega. 338 milljarðar í innviði Ríkisstjórnin hefur lagt áherslu á fjárfestingu í innviðum og sú áhersla kemur fram í fjármálaáætluninni. Svigrúmið hefur enda aukist á und- anförnum árum þar sem tekist hefur að lækka skuldir ríkisins verulega og lækka þar með vaxtakostnað um tugi milljarða á ári. Fjárfestingar aukast um 13 milljarða á næsta ári og ná há- marki árið 2021 en alls er gert ráð fyrir að fjárfestingar nemi 338 millj- örðum króna á fimm árum áætlunar- innar eða að meðaltali tæplega 68 milljörðum á ári. Svo koma útgjaldasinnarnir og krefjast hærri útgjalda. Þeir eru allt- af tilbúnir að mæta á uppboðsmarkað stjórnmálanna og bjóða betur en allir aðrir. Í huga þeirra er útgjaldaþensl- an ekki nægilega mikil – það þarf að gefa meira í og auðvitað verður að láta af þeim vonda sið að ríkið „afsali“ sér tekjum með því að launafólk haldi meiru eftir í launaumslaginu. Tillögur um lækkun skatta er sagðar merki um „getuleysi“ ríkisstjórnarinnar við að afla tekna og fjármálaráðherra sit- ur undir ásökunum um að „gefa eftir“ milljarða. „Tekjuleiðirnar eru ekki nýttar,“ er mantra þeirra sem hæst láta á uppboðstorgi stjórnmálanna. Mælikvarðinn á opinbera þjónustu sem margir þingmenn og þrýstihópar styðjast við sé hversu miklum pen- ingum varið er í hana. Stöðugt krafist hærri útgjalda – gæði þjónustunnar eru aukaatriði. Virka bremsurnar ekki? Það skal viðurkennt að það er oft erfitt að standa á bremsunni þegar kemur að útgjöldum ríkisins. Á stundum er líkt og bremsurnar virki ekki. En ég er sannfærður um að á næstu árum verður að endurskoða rekstur ríkisins frá grunni. Við stönd- um frammi fyrir því að straumlínu- laga ríkið, gera auknar kröfur til þjónustu sem við kaupum sameigin- lega, auka skilvirkni og nýsköpun í opinberum rekstri. Fyrst og síðast verðum við að horfast í augu við að sameiginlegum fjármunum er víða sóað á sama tíma og það vantar pen- inga í annað og við búum í sannköll- uðu háskattalandi. Við Íslendingar höfum flestir notið góðæris á síðustu árum. Hagvöxtur var 3,6% á síðasta ári og 7,5% árið á undan. Ef þjóðhagsspá Hagstofunnar gengur eftir mun landsframleiðslan halda áfram að vaxa fram til ársins 2023, þótt krafturinn verði ekki sá sami og síðustu þrjú ár. Íslendingar hafa þar með fengið að njóta 13 ára hagvaxtarskeiðs. En nú eins og svo oft áður er langt í frá sjálfgefið að þjóðhagsspáin gangi eftir enda óvissuþættir fjölmargir. Kjarasamningar geta sett strik í reikninginn og alþjóðleg þróun efna- hagsmála hefur áhrif. Íslenskt sam- félag hefur alltaf verið viðkvæmt fyr- ir efnahagslegri stöðu helstu viðskiptalanda. Þar eru blikur á lofti. Bogi útgjalda er spenntur til hins ýtrasta í fyrirliggjandi fjár- málaáætlun. En það kemur ekki í veg fyrir að kröfur um aukin útgjöld verða háværar á komandi vikum. Nái útgjaldasinnar fram vilja sínum mun boginn að lokum brotna. Eftir Óla Björn Kárason » Það skal viðurkennt að það er oft erfitt að standa á bremsunni þegar kemur að út- gjöldum ríkisins. Á stundum er líkt og bremsurnar virki ekki. Óli Björn Kárason Höfundur er þingmaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Útgjaldaboginn spenntur til hins ýtrasta Útgjaldaaukning 2017-2023* *Áætlun, á verðlagi 2018 Heimild: Fjármálaáætlun 2019-2023 Hlutfallslega mesta aukning útgjalda Yfir 25% (almennur varasjóður ekki talinn með) %-aukning Lyf og lækningavörur 66,3% Umhverfismál 34,7% Heilbrigðisþjónusta utan sjúkrahúsa 33,9% Utanríkismál 32,0% Örorka og málefni fatlaðs fólks 29,9% Sjúkrahúsþjónusta 28,4% Æðsta stjórnsýsla 26,9% Dómstólar 25,5% Málefni aldraðra 25,0% Mesta aukning útgjalda í krónum Yfir 10 þúsund milljónir milljónir kr. Sjúkrahúsþjónusta 24.300 Málefni aldraðra 17.692 Örorka og málefni fatlaðs fólks 17.044 Heilbrigðisþjónusta utan sjúkrahúsa 14.757 Lyf og lækningavörur 10.918 Útgjöld til velferðarmála 2023 milljónir kr. Sjúkrahúsþjónusta 109.953 Heilbrigðisþjónusta utan sjúkrahúsa 58.263 Hjúkrunar- og endurhæfingarþjónusta 53.382 Lyf og lækningavörur 27.393 Örorka og málefni fatlaðs fólks 73.989 Málefni aldraðra 88.361 Fjölskyldumál 37.881 Vinnumarkaður og atvinnuleysi 5.561 Húsnæðisstuðningur 11.727 Samtals 466.509 Aukning í milljónum kr. frá fjárlögum 2017 96.326 Aukning í % frá fjárlögum 2017 26% Fjárlög 2017 Áætlun 2023 Breyting í krónum í % Alþingi og eftirlitsstofnanir þess 5.287 4.605 -682 -12,9% Dómstólar 2.481 3.114 633 25,5% Æðsta stjórnsýsla 1.831 2.323 492 26,9% Utanríkismál 13.853 18.286 4.433 32,0% Skatta-, eigna- og fjármálaumsýsla 21.443 22.438 994 4,6% Hagskýrslugerð, grunnskrár og upplýsingamál 3.705 3.672 -33 -0,9% Nýsköpun, rannsóknir og þekkingargreinar 13.567 14.684 1.117 8,2% Sveitarfélög og byggðamál 2.109 2.300 192 9,1% Almanna- og réttaröryggi 24.206 29.046 4.840 20,0% Rétt. einstakl., trúmál og stjórnsýsla dómsmála 13.050 13.508 458 3,5% Samgöngu- og fjarskiptamál 35.010 36.010 1.000 2,9% Landbúnaður 16.138 15.424 -713 -4,4% Sjávarútvegur og fiskeldi 6.486 6.509 23 0,3% Ferðaþjónusta 1.708 1.625 -83 -4,9% Orkumál 3.791 3.717 -74 -2,0% Markaðseftirlit, neytendamál og stjórnsýsla atvinnumála 4.189 4.707 518 12,4% Umhverfismál 15.855 21.359 5.504 34,7% Menning, listir, íþrótta- og æskulýðsmál 11.429 13.529 2.101 18,4% Fjölmiðlun 4.978 5.271 293 5,9% Framhaldsskólastig 30.883 32.311 1.428 4,6% Háskólastig 42.381 47.397 5.016 11,8% Önnur skólastig og stjórnsýsla mennta- og menningarmála 5.380 5.054 -326 -6,1% Sjúkrahúsþjónusta 85.654 109.953 24.300 28,4% Heilbrigðisþjónusta utan sjúkrahúsa 43.506 58.263 14.757 33,9% Hjúkrunar- og endurhæfingarþjónusta 46.944 53.382 6.438 13,7% Lyf og lækningavörur 16.475 27.393 10.918 66,3% Örorka og málefni fatlaðs fólks 56.946 73.989 17.044 29,9% Málefni aldraðra 70.669 88.361 17.692 25,0% Fjölskyldumál 30.458 37.881 7.423 24,4% Vinnumarkaður og atvinnuleysi 5.180 5.561 380 7,3% Húsnæðisstuðningur 14.352 11.727 -2.625 -18,3% Lýðheilsa og stjórnsýsla velferðarmála 8.524 8.346 -178 -2,1% Almennur varasjóður og sértækar fjárráðstafanir 8.327 17.111 8.784 105,5% Samtals 666.794 798.855 132.061 19,8% Útgjöld A-hluta ríkissjóðs eftir málefnasviðum Rekstrargrunnur, m.kr. á verðlagi 2018 (án fjármagnskostnaðar) Heimild: Fjármálaáætlun 2019-20232017 og 2023 Ungir frumkvöðlar héldu árlega vöru- messu sína í Smáralind nú um helgina. Um 600 framhaldsskólanemar taka þátt í fyrir- tækjaverkefni Ungra frumkvöðla í ár. Í verkefninu stofna nem- endur sín eigin smáfyr- irtæki og fá reynslu af frumkvöðlastarfi. Dóm- nefnd velur svo bestu hugmynd- irnar. Keppnin er hluti af námi nemendanna og fá þau einingar fyrir. Samtök atvinnulífsins, Arion banki, Eimskip og Landsvirkjun eru helstu stuðnings- aðilar Ungra frum- kvöðla auk þess sem Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Háskólinn í Reykjavík og Sjáv- arklasinn styðja verkefnið. Auk fjár- hagsleg stuðnings leggja stuðningsaðil- arnir til leiðbein- endur til að aðstoða nemendurna við að þróa hugmyndir sín- ar. Ég vissi ekki hvers ég ætti að vænta þegar ég sótti messuna á laugardaginn, en það er skemmst frá því að segja að hugmyndauðgin og gæðin voru langt umfram mínar björtustu vonir. Í samtölum við krakkana kom fram að þau hefðu alls staðar í atvinnulífinu komið að opnum dyrum. Fyrirtæki, allt frá einyrkjum til stórfyrirtækja, voru boðin og búin til að leggja hönd á plóginn og aðstoða. Ungir frum- kvöðlar eru eitt besta dæmið um vel heppnað samstarfs atvinnulífs og skólakerfis. Slíkt samstarf mætti gjarnan sjást víðar. Þrettán af 22 framhaldsskólum landsins taka þátt í verkefninu frá Akureyri, Garðabæ, Hafnarfirði, Kópavogi, Reykjavík og Vest- mannaeyjum. Nýsköpun á að vera órofa hluti af skólastarfi á öllum stigum. Velferð þjóðarinnar veltur á nýsköpun. Forsenda þess að við náum að auka útflutningstekjur þjóðarinnar til langs tíma er að við eflum nýsköpun og kennum ungu fólki að stofna og reka arðbær fyr- irtæki um hugmyndir sínar. Ef við ætlum að viðhalda 3% hagvexti á næstu 20 árum, án þess að auka skuldsetningu, þurfum við að tvöfalda útflutning, eða auka hann um 1.000 milljarða. Þrjár stærstu atvinnugreinar okkar, ferðaþjónusta, sjávarútvegur og stóriðja, byggjast allar á nýtingu náttúruauðlinda. Það blasir því við að þeim eru þröngar skorður settar varðandi vöxt til framtíðar. Stærsti hluti nýs útflutnings verður því að koma úr nýjum greinum með nýj- um vörum og nýrri þjónustu. Ef við ættum að halda áfram að búa við ein mestu lífsgæði heims verðum við að halda áfram að skapa meira. Nú, þegar fréttir af versnandi námsárangri og lestr- arkunnáttu íslenskra nema dynja á okkur er hughreystandi að sjá þessa grósku í framhaldsskólunum. Fleiri ungir og aldnir frumkvöðlar eru lykillinn að lífsgæðum okkar til framtíðar. Ungir frumkvöðlar – lykill að hagsæld Eftir Halldór Benja- mín Þorbergsson »Ungir frumkvöðlar eru eitt besta dæmið um vel heppnað sam- starf atvinnulífs og skólakerfis. Halldór Benjamín Þorbergsson Höfundur er framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.