Morgunblaðið - 11.04.2018, Page 20

Morgunblaðið - 11.04.2018, Page 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 2018 ✝ SigurveigRagnarsdóttir fæddist í Hafn- arfirði 28. febrúar 1931. Hún lést á Grund 29. mars 2018. Foreldrar henn- ar voru Guðrún Guðmundsdóttir frá Skáholti í Reykjavík, f. 7. nóvember 1899, d. 29. ágúst 1976, og Ragnar Guð- laugsson, bryti og veitinga- maður í Reykjavík, f. 8. nóv- ember 1897, d. 11. desember 1977. Systkin Sigurveigar eru Mar- grét Sigrún, f. 1924, Sigurjón Rúnar, f. 1929, og Guðrún, f. 1936. Sigurveig giftist Sigurði Markússyni tónlistarmanni árið 1952. Þau skildu. Synir Sigurveigar og Sigurð- ar eru: 1) Ragnar framhalds- skólakennari, f. 28. feb. 1953, maki Margrét Jónsdóttir kenn- ari, f. 8. júní 1954. Börn þeirra eru a) Tómas Orri viðskipta- fræðingur, f. 1. apríl 1973, maki Bryndís Eva Birgisdóttir, dr. í næringarfræði, f. 26. febrúar 1972. Börn þeirra eru Theo- dóra, f. 2001, Bríet Natalía, f. Ólafur Steinn Ingunnarson. Börn þeirra eru Katrín Nanna, f. 2010, Matthildur Saga, f. 2014, og Nína Melkorka, f. 2018. b) Edda Lind stærðfræð- ingur, f. 25. ágúst 1989. c) Salka Sól lögfræðingur, f. 14. nóv- ember 1990, maki Daníel Þór Magnússon viðskiptafræðingur, f. 1. febrúar 1991. Dóttir þeirra er Aría Björk, f. 2016. Börn Styrmis og Dóru eru d) Sunna Herborg, f. 21. júní 2004. e) Högna Sólveig, f. 29. desember 2007. Sigurveig lauk Kvennaskóla- prófi 1949. Síðar vann hún ýmis störf, m.a. hjá Eimskip, Hress- ingarskálanum og í New York. Meðan Sigurður var við nám í Bandaríkjunum vann hún við tryggingastörf þar. Þegar þau komu heim var hún um skeið heimavinnandi en vann um ára- bil á gestamóttöku Hótel Sögu. Einnig starfaði hún lengi á Ís- lenskri tónverkamiðstöð. Hún lærði m.a. tækniteiknun, vefnað og leiðsögn. Um miðjan áttunda áratug síðustu aldar fór Sigur- veig í sjúkraliðanám og lauk prófi úr Sjúkraliðaskóla Íslands 1976. Eftir baráttu við erfið veikindi undir lok áttunda ára- tugarins starfaði hún jafnan við umönnun sjúkra, m.a. um tíma í Kaupmannahöfn, en lengst af á gjörgæsludeild sjúkrahússins í Fossvogi uns hún lét af störfum fyrir aldurs sakir. Útför Sigurveigar fer fram frá Grensáskirkju í dag, 11. apríl 2018, klukkan 13. 2004, og Soffía Margrét, f. 2008. b) Anna Sigurveig umhverfisfræð- ingur, f. 21. desem- ber 1977, maki Paolo Gian- francesco arkitekt, f. 8. janúar 1976, c) Guðrún Inga íslenskufræðingur, f. 6. febrúar 1983. d) Jón Ragnar framhaldsskólakennari, f. 8. september 1985, maki Sigríður Halldórsdóttir fréttamaður, f. 31. júlí 1986. Börn þeirra eru Urður Ása, f. 2010, og Hallveig Lóa, f. 2016. d) Elísabet hug- búnaðarverkfræðingur, f. 15. ágúst 1994. 2) Markús raf- magnstæknifræðingur, f. 13. desember 1959, maki Kristín Kristinsdóttir hjúkrunarfræð- ingur, f. 22. september 1962. Börn þeirra eru a) Unnur Emma nemi, f. 19. september 1985. b) Erna læknanemi, f. 20. júní 1992, c) Ellen, f. 9. janúar 1998. 3) Styrmir kvikmynda- gerðarmaður, f. 30. nóvember 1967, maki Halldóra G. Ísleifs- dóttir hönnuður, f. 28. júlí 1970. Börn Styrmis eru a) Hildigunn- ur H. Thorsteinsson verkfræð- ingur, f. 16. febrúar 1980, maki Nú hefur amma Bagga kvatt okkur eftir að hafa átt við erfið veikindi að stríða sl. tvö ár, veikindi sem drógu úr henni þann mikla kraft og lífsorku sem einkenndu hana. Amma var sannkölluð kjarnakona, sjálfstæð, drífandi og kunni að njóta þess sem lífið hafði upp á að bjóða. Hún var mikill heimsborgari, bjó ung í New York, Fíladelfíu og Eng- landi, síðar í Kaupmannahöfn um skeið, og hún hafði yndi af því að ferðast. Það má vera að ferðabaktería okkar systkin- anna komi frá henni en hún sýndi okkur ávallt eindreginn stuðning og hvatningu þegar við lögðum land undir fót í hin- um ýmsu erindagjörðum, enda taldi hún fátt jafn þroskandi og gefandi og að sjá og upplifa önnur lönd og menningarheima. Amma var ótrúlega vel á sig komin allt þar til hún veiktist, létt á fæti og svo lipur í hreyf- ingum að hún minnti oft frekar á ungling en eldri konu. Hún var mikil smekkkona, hafði gaman af tísku og unni menn- ingu og listum en var þó hóg- vær með eindæmum yfir eigin hæfileikum, en eftir hana liggja m.a. einstaklega falleg málverk. Amma Bagga hafði hlýja nærveru og bros sem lýsti upp allt andlitið. Hennar verður sárt saknað, en fyrst og fremst erum við þó þakklát að hafa átt hana að, þakklát fyrir allar góðu stundirnar, stuðninginn, sögurnar, brosin og hláturinn. Guðrún Inga, Tómas Orri, Anna Sigurveig, Jón Ragnar og Elísabet. Elsku amma mín er farin frá okkur en hún kvaddi eftir erfið veikindi sem höfðu að lokum betur. Amma mín var harðasti naglinn sem fyrirfinnst og því hlýtur henni að vera ætlað eitt- hvað stórt í hverju því sem við tekur, fyrst veikindin höfðu bet- ur. Minningar mínar um ömmu eiga það sammerkt að gleði hennar, hreinskilni og yndislegt viðmót koma við sögu í þeim öll- um. Við amma áttum saman eina hefð eftir að ég komst á unglingsaldurinn. Það var að hvenær sem mig langaði til og hefði tíma gæti ég komið til ömmu og þá fengi ég uppá- haldsmatinn minn, nætursaltað- an fisk, kartöflur og rófur og svo berjasúpu með bruðum í eftirrétt. Þá sátum við amma og spjölluðum um daginn og veg- inn, aðallega ég að lýsa fyrir henni atburðum lífs míns þá stundina. Amma sagði mér skemmti- legar sögur um líf sitt og hvað hefði drifið á daga hennar og fyndnast var þegar hún sagði einstaka sinnum frá því þegar eitthvað eða einhver fór í taug- arnar á henni. Þá lýsti hún at- burðum á sinn eigin hátt sem létu mig alltaf hlæja. Amma var alltaf hreinskilin við mig. Hún hikaði ekki við að láta mig vita ef fataval eða orða- val mitt mætti vera betra. Ég hef ömmu oft í huganum í dag þegar ég máta ný föt og hugsa hvað amma hefði sagt um þetta. Sem barn var amma mín allt- af til staðar. Amma átti einn kassa af dóti og það var nóg. Þar var dót sem var bæði nýtt og líka dót sem pabbi og bræð- ur hans léku með þegar þeir voru litlir. Það var alltaf eins og ævintýri að fá að leika með þetta „gamla“ dót. Amma las fyrir mig söguna um Padding- ton oftar en einu sinni og oftar en tvisvar, en ég vildi aldrei prufa nýja sögu hjá ömmu, þetta var sagan hennar ömmu. Amma var oft með mér þegar ég var veik og gat ekki farið í skólann. Þá las amma fyrir mig og spilaði við mig ólsen ólsen. Amma kenndi mér að leggja kapal og sat við hliðina á mér og leiðrétti mig þegar ég lagði vit- laust saman í Pýramída. Amma tók þátt í morgunleikfiminni í útvarpinu og leyfði mér að taka þátt þegar ég var ekki of lasin. Það var alltaf gaman að vera með ömmu. Þetta er einungis lítið brot af því sem við amma höfum gert saman en ég mun varðveita þessar minningar í mínu hjarta. Ég get ekki lýst því hvað ég sakna ömmu mikið. Þegar ég horfi til baka vildi ég að stund- irnar okkar yfir nætursöltuðum hefðu verið miklu fleiri. Ég vildi að ég hefði eytt meiri tíma í fá að heyra hennar sögur af lífinu, en ég verð víst bara að fá að heyra þær seinna. Fyrir ömmu mína er þakklát. Hún var svo góð og besta amma sem ég hefði getað hugsað mér. Amma situr nú á næsta stað og leggur kapal og hlustar á út- varpið og ég hlakka til að hitta hana síðar. Guð geymi hana og varðveiti. Salka Sól Styrmisdóttir. Sigurveig Ragnarsdóttir  Fleiri minningargreinar um Sigurveigu Ragnarsdóttur bíða birtingar og munu birt- ast í blaðinu næstu daga. ✝ RögnvaldurÓlafsson bifvélavirkja- meistari fæddist í Brekkubæ á Hellis- sandi 9. júní 1931. Hann lést á heimili sínu Holti í Búð- ardal 31. mars 2018. Foreldrar hans voru Ólafur Pét- ursson frá Malarrifi í Breiðuvík og Guðrún Ágústa Rögnvaldsdóttir frá Fagradals- tungu í Saurbæ. Alsystkin Rögn- valdar voru Ingibjörg Ragna (látin) og Pétur Ingvi (látinn). Eftir andlát Guðrúnar, móður Rögnvaldar, kvæntist Ólafur faðir hans Hönnu Jónsdóttur. Synir Hönnu eru Birgir Breið- fjörð Pétursson (látinn) og Gunnar Hjörtur Breiðfjörð Gunnlaugsson. Sonur Hönnu og Ólafs er Árni Breiðfjörð. Fjölskylda Rögnvaldar bjó á Hellissandi þar til hann var sjö ára gamall en þá fluttust þau til Reykjavíkur. Rögn- valdur lærði bif- vélavirkjun í Iðn- skólanum í Reykja- vík. Árið 1954 keypti hann bif- reiðaverkstæði í Búðardal og flutti vestur þar sem hann bjó eftir það. Árið 1965 söðlaði hann um og hóf rekstur á skurð- gröfu og síðar jarðýtu og vöru- bílum. Við þann rekstur starfaði hann alla tíð síðan. Árið 1955 hóf hann sambúð með Dóru Jó- hannesdóttur, f. 6. febrúar 1938, d. 26. desember 2003. Þau Dóra giftust árið 1968. Foreldrar Dóru voru Jóhannes Jakobsson, f. í Hvolsseli í Saurbæ, og Ólafía Stefánsdóttir frá Felli í Breið- dal. Góð vinkona Rögnvaldar eftir andlát Dóru var Fjóla Benediktsdóttir í Álfheimum í Miðdölum. Börn Rögnvaldar og Dóru eru: 1) Ólafur Rögnvaldsson, f. 22. apríl 1956, maki Þóra Pét- ursdóttir. Börn þeirra eru: Ragnheiður, maki Andrés Páll Hallgrímsson, börn þeirra eru: Sif og Daníel Búi. Viðar Örn, maki Rósa Matthildur Guttorms- dóttir, börn þeirra eru: Guðni Grétar, Agnes Ósk og Ólafur Páll. Guðný Gréta, maki Davíð Sigurðsson, börn þeirra eru: Ar- on Snær, Emil Breki, Daníel Kári og Lilja Karen. Dóra Björk, maki Ásdís Guttormsdóttir. 2) Guðrún Ágústa Rögnvalds- dóttir, f. 29. maí 1961, maki Karl Ingason. Börn þeirra eru: Ingi Níels og Rakel, maki Bjarki Rúnar Guttormsson, sonur þeirra er Rúnar Karl. 3) Úlfhild- ur Rögnvaldsdóttir, f. 31. maí 1962, maki Einar Þórir Krist- jánsson. Dætur þeirra eru: Harpa, maki Gunnlaugur Einar Sævarsson, dætur Hörpu eru: Viktoría Rós og Arndís Rán. Valdís Hrund. 4) Jóhannes Rögnvaldsson, f. 24. ágúst 1976, maki Natasa Sorgic. Dætur þeirra eru: Dóra Anastasija og Emma María. Útför Rögnvaldar fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 11. apríl 2018, klukkan 13. Með fáeinum orðum langar mig að kveðja góðan vin og sam- ferðamann. Rögnvaldur Ólafsson og fjölskylda hans bjuggu í Búð- ardal þegar ég flutti þangað. Hann var bifvélavirki og rak verkstæði, auk þess að vinna á jarðvinnslutækjum og vörubíl. Maðurinn minn, Sturla Þórðar- son, og Rögnvaldur kynntust fljótlega enda báðir áhugamenn um bíla, vélar og vegagerð. Þeg- ar fyrstu sjónvörpin komu í þorpið var algengt að menn leit- uðu til Rögnvaldar ef einhver vandi kom upp. Hann var alltaf greiðvikinn og mjög flinkur að finna út og leysa vandann. Ég held að sjaldan hafi hann viljað taka við nokkurri greiðslu fyrir viðvikið. Öll börn hans voru nemendur mínir, öll góðir náms- menn og prýðisfólk og átti ég góð samskipti við þau og for- eldra þeirra. Eftir að maðurinn minn hætti að vinna og var mikið einn heima meðan ég var í vinnu fór Rögn- valdur að heimsækja hann og þótti honum mjög vænt um það. Rögnvaldur hélt þessum sið að kíkja í heimsókn til okkar allt fram til andláts mannsins míns. Ég þakkaði Rögnvaldi oft fyrir þessar heimsóknir því ég vissi að maðurinn minn kunni vel að meta þær. Eftir lát hans hélt Rögnvaldur áfram að líta inn og þakka ég honum fyrir allar heimsóknirnar til okkar beggja. Rögnvaldur var fróður um menn og málefni og þekkti marga víða um landið. Hann leit inn hjá fleiri íbúum í þorpinu, einkum þeim sem voru einir og voru ekki mikið á ferð- inni.Hann var sterkur persónu- leiki og hafði ákveðnar skoðanir á hlutunum. Það er sjónarsviptir að slíkum mönnum úr samfélag- inu. Ég sendi börnum hans og fjöl- skyldum þeirra innilegar samúð- arkveðjur og bið Guð að blessa minningu hans. Þrúður Kristjánsdóttir. Rögnvaldur Ólafsson Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, sambýlismaður, bróðir og afi, RAGNAR LÝÐSSON húsasmíðameistari, lést laugardaginn 31. mars. Útförin fer fram frá Skálholtskirkju laugardaginn 14. apríl klukkan 14 og jarðsett verður í Haukadal. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vilja minnast hans er bent á að styrkja Björgunarsveit Biskupstungna, kennitala 520288-1049 og reikningsnúmer 0151-26-1100. Ólafur Ragnarsson Ragnhildur H. Sigurðardóttir Hilmar Ragnarsson Elfa Björk Kristjánsdóttir Ingi R. Ragnarsson Heiða Sigurðardóttir Ellen Ragnarsdóttir Davíð Örn Friðriksson Sigurlaug Jónsdóttir barnabörn og aðstandendur Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTÍN SIGRÍÐUR BJÖRNSDÓTTIR, Tjarnarási 7a, Stykkishólmi, sem lést fimmtudaginn 5. apríl, verður jarðsungin frá Stykkishólmskirkju mánudaginn 16. apríl klukkan 14. Eyþór Benediktsson Unnur H. Valdimarsdóttir Ingibjörg H. Benediktsdóttir Gretar D. Pálsson Bryndís Benediktsdóttir Birgir Jónsson Björn Benediktsson Árþóra Steinarsdóttir Lára Benediktsdóttir Anne Bau barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir mín, dóttir okkar, systir, mágkona, barnsmóðir og frænka, ERLA SIGRÍÐUR HALLGRÍMSDÓTTIR félagsráðgjafi, verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju föstudaginn 13. apríl klukkan 13.00. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Ljósið eða Krabbameinsfélag Íslands. Helga Júlíana Jónsdóttir Guðríður J. Guðmundsdóttir Hallgrímur Hallgrímsson Elín Hallgrímsdóttir Steinn Guðmundsson Berglind Hallgrímsdóttir Helgi Skúli Friðriksson Guðmundur S. Hallgrímsson Jón Bjarni Magnússon Þórdís Elín, Hildur, Vilborg Júlíana, Birta Júlía, Daníel Freyr og Hilmar Alexander Ástkær móðir okkar, systir, tengdamóðir, amma og langamma, ERLA HAFSTEINSDÓTTIR, Gili, Svartárdal, lést á Landspítalanum að morgni sunnudagsins 8. apríl. Útför hennar fer fram frá Blönduóskirkju laugardaginn 14. apríl klukkan 16. Örn Friðriksson Hólmfríður Rögnvaldsdóttir Guðríður Erla Friðriksdóttir Jón Hallur Pétursson Hafrún Friðriksdóttir Gauti Höskuldsson Sigþrúður Friðriksdóttir Guðmundur Guðbrandsson Björn Grétar Friðriksson Harpa Hrund Hafsteinsdóttir Stefán Hafsteinsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, KRISTJÁN GUNNLAUGSSON, lést á líknardeild Landspítalans laugardaginn 7. apríl. Útförin fer fram frá Hellnakirkju laugardaginn 14. apríl klukkan 14. Sigríður Einarsdóttir Linda Hrönn Kristjánsdóttir Harpa Elísa Þórsdóttir Pétur Þórðarson Bryndís Eva Sigurðardóttir Þórhallur Þórðarson Íris Aðalsteinsdóttir Karen H. Kristjánsdóttir Gunnlaugur H. Gunnlaugsson og barnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.