Morgunblaðið - 11.04.2018, Síða 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 2018
áratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@simnet.is
Verkfæralagerinn
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
Miklu meira en bara ódýrt!
SONAX bílavörur í miklu
úrvali á mjög góðu verði.
9.999
Háþrýstidælur
1650W
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú ert miðpunktur athyglinnar og
hrókur alls fagnaðar en þarft að gæta þess
að ganga ekki of nærri vinum þínum. Ein-
hver á eftir að koma þér skemmtilega á
óvart.
20. apríl - 20. maí
Naut Það er gott að eiga trúnaðarvin sem
maður getur deilt draumum sínum og löng-
unum með. Láttu neikvæðni annarra ekki
draga úr þér.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þeir eru margir sem eiga allt sitt
undir því að þú getir lokið þeim verkefnum
sem þú hefur tekið að þér. Sökum þessa
verður þú að leika þitt hlutverk af kostgæfni.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það reynir svolítið á þig er menn
keppast um athygli þína. Alls kyns vinir úr
fortíðinni hafa látið á sér kræla að und-
anförnu, sem er dálítið óvenjulegt.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú hefur hugmyndir um að bæta
vinnuaðstöðu þína. Finnist þér að gengið
hafi verið á rétt þinn skaltu sýna festu og
rétta þinn hlut.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Alvarlegar samræður geta umturnað
sambandi við aðra, ekki endilega í neikvæðri
merkingu. Þú ættir að gæta tungu þinnar því
oft má satt kyrrt liggja.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það virðist eitthvað standa í vegi fyrir
þér í dag sama hvað þú leggur hart að þér.
Leyfðu sjálfum þér að vaxa, sama hvað aðrir
eru að bardúsa.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Með gamanseminni tekst þér
að létta á spennunni meðal félaganna. Líttu
því á björtu hliðarnar og láttu allt annað
sigla sinn sjó.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú þarft að læra að fara með
það vald sem þér er fengið. Þú þarft að beita
öllum þínum sannfæringarkrafti til þess að
vinna samstarfsmenn þína á þitt band.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Láttu ekki einhverja smámisklíð
skemma samband þitt og vinar þíns. Vertu
sem mest með þeim sem kunna að meta
þig.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Loksins er allt komið í þann far-
veg sem þú vildir og þú sérð árangur erfiðis
þíns. Hikaðu hvergi og taktu áhættu því þá
koma ýmsir duldir hæfileikar þínir í ljós.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það er hætt við að spenna sem hefur
verið að safnast upp í þér að undanförnu
brjótist fram í dag. Dragðu djúpt andann og
snúðu málunum þér í hag.
ÍVísnahorni í gær var staka eftirÁrmann Þorgrímsson og kallar
„gleðifrétt“ að nú verði seldur bjór í
Skálholti. Skírnir Garðarsson svar-
aði að bragði og sagði: „Í fyrsta og
eina skiptið sem ég man eftir í svip
er ég ósammála Ármanni, þetta er
ekki gleðifrétt að mínu mati, –
hugsið ykkur það ástand sem er
að myndast!“:
Kennimenn léttkenndir komand́i úr
messu,
þar kútveltast áfram á kirkjunnar slóð.
Biskup til Skálholts mun bæta úr
þessu,
og bannfæra ölið á staðarins lóð.
Ármann Þorgrímsson gaf sig
ekki:
Blessa ætlar biskupinn
bjórinn, svo og staðinn.
Ekki lýgur Mogginn minn
mun því bættur skaðinn.
Bjórsalan lagðist vel í Ingólf
Ómar:
Færa gleði fréttir enn
fagnar margur seggur.
Biskup yfir bjórinn senn
blessun sína leggur.
En Skírnir Garðarsson sat við
sinn keip: „Á Hólastað er bjórhátíð
og í Skálholti bráðum líka. Sveiatt-
an“:
Mannanna er misjafnt böl,
mæðutónn er klerki í,
Biskupsstólar bjóða öl
blessun lítil fylgir því.
Hífað verður hirða lið,
og hávaði á biskupsstað.
Hvað höfðingjarnir hafast við,
hinum ætti að leyfast það.
Og síðan bætti Skírnir við:
„Ástandið í Biskupstungunum er
nógu slæmt fyrir þó ekki bætist í!“
Hjalti Pálsson á Sauðárkróki birt-
ir á facebooksíðu sinni þessa fallegu
hringhendu:
Björt hvar fjalla brosir sýn.
Brátt fær kall að líta.
Opna falleg Fljótin mín,
faðminn mjallahvíta.
Árið 1932 var gamla skólavarðan
rifin og þótti lítið menningarverk
og lítil bekkjarbót að fá standmynd
af Leifi heppna í staðinn. Þá kvað
Karl Friðriksson, vegaverkstjóri á
Akureyri:
Vikið burt er vörðunni
– valt er lífsins gengi –
svo að ekki af henni
óorð Leifur fengi.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Bjórhátíð og vísur
að norðan
„GÆTI VERIÐ VERRA. ÉG HÉLT AÐ
ÉG VÆRI AÐ FARA AÐ LENDA Í
NIÐURSKURÐI.“
„HR. MARKAN HÉRNA ER BESTI KENNARINN
SEM VIÐ HÖFUM.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að vita að hann er að
hugsa til þín.
GRETTIR… ÉG VEIT AÐ ÞAÐ ER
KALT ÚTI Í DAG, EN…
HVAÐ EF EINHVER ANNAR VILL
HEITT SÚKKULAÐI?
ÞÁ ÆTTU ÞEIR AÐ
VERA ÉG
MMM! ÉG ÆTLA AÐ FÁ ÞAÐ SEM
ILMAR SVONA VEL!
LOKAÐU GLUGGANUM! HANN FINNUR LYKTINA
AF VEITINGAHÚSINU HÉR VIÐ HLIÐINA!
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
Kvikmyndin Dauði Stalíns er tilsýninga hér þessa dagana.
Myndin er meinfyndin lýsing á at-
burðarásinni í kringum andlát Stal-
íns og valdabaráttunni í kjölfarið.
Stalín hélt ekki bara sovésku þjóð-
inni í greipum ógnar og skelfingar,
heldur einnig sínum nánustu sam-
starfsmönnum. Þótt frjálslega kunni
að vera farið með ýmislegt í mynd-
inni, er sleginn réttur tónn, að
minnsta kosti ef marka má lýsingar
sagnfræðinga á þeim atburðum, sem
fjallað er um í myndinni. Myndin
hefur þó ekki vakið mikla kátínu í
Rússlandi. Stalín var felldur af stalli
eftir andlátið í mars 1953 og
myrkraverk hans voru afhjúpuð. Í
valdatíð hans voru milljónir manna
teknar af lífi og fangelsaðar í gúlag-
inu.
x x x
Ekki eru þó Rússar á eitt sáttir umarfleifð Stalíns. Margir horfa
einkum til sigurs Sovétmanna á nas-
istum í seinni heimsstyrjöldinni og
iðnvæðingu landsins. Reynt hefur
verið að torvelda starfsemi samtak-
anna Memorial, sem hafa leitt rann-
sóknir á glæpum Stalíns, með því að
skylda þau til að skrá sig sem „er-
lendan erindreka“ í krafti umdeildra
laga, sem sett voru fyrir sex árum.
Styttur og minnismerki um Stalín
voru fjarlægð eftir að Nikita Krúst-
sjov komst til valda. Nú skjóta
minnisvarðar um hann upp kollinum
á ný. Eitt dæmi er bronsstytta af
Stalín sem reist var í Moskvu í fyrra
fyrir tilstuðlan rússneska hersögu-
félagsins þar sem mennta-
málaráðherra landsins er stjórn-
arformaður.
Í fyrra var gerð könnun í Rúss-
landi þar sem þátttakendur voru
spurðir hvern þeir teldu skara fram
úr í mannkynssögunni. Flestir
nefndu Stalín.
x x x
Það ætti því kannski ekki að komaá óvart að rússnesk stjórnvöld
skyldu banna sýningar á myndinni
Dauði Stalíns þegar taka átti hana
til sýningar í Rússlandi í janúar.
Uppgefin ástæða var að þar væri að
finna „upplýsingar, sem bannað er
með lögum að dreifa í Rússlandi“.
vikverji@mbl.is
Víkverji
Og ég segi yður: Biðjið og yður mun
gefast, leitið og þér munuð finna, kný-
ið á og fyrir yður mun upp lokið verða.
(Lúk: 11.9)