Morgunblaðið - 11.04.2018, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 11.04.2018, Blaðsíða 31
MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 2018 Já, ég var snarrugluð. Það vareins og allar rásir skilning-arvitanna hefðu lokast, þærhöfðu ekki hleypt nokkrum einasta lífsstraumi í gegnum sig síð- an guð má vita hvenær. Hvílík mis- tök að hafa skrúfað fyrir allan til- gang minnar eigin tilveru og gangast undir þau skilyrði sem Mar- io gat boðið mér upp á í von um far- sælt hjónaband. Hvílík mistök að halda að ég ynni mér inn umbun hans og hrifningu fyrir að styðja hann til sífellt meiri velgengni. Og hvílík mistök að hafa talið mér trú um að ég gæti ekki lifað án hans þegar ég hafði lengi vel ekki ver- ið viss um hvort ég væri einu sinni sjálf á lífi. (141) Já, Olga ruglast og gerir sér grein fyrir öllum þessum mistökum tilveru sinnar, að hún hafði hætt að vera hún sjálf þegar hún gekk að eiga Mario og lagði eftir það allan sitt metnað í þjónustu við eiginmann sem dag einn gekk á dyr og yfirgaf hana og börnin – og fimm- tán ára hjónabandið, sem Olga hafði talið traust, slitnaði. Og hún rugl- aðist, missti tökin á lífi sem hún taldi traust en kom í ljós að var byggt á blekkingu. Dagur höfnunar (I giorni dell’ab- bandono) er önnur útgefna skáld- saga hulduhöfundarins með dulnefn- ið Elena Ferrante sem hefur slegið í gegn út um heimsbyggðina fyrir svokallaðan Napolí-fjórleik. Dagur höfnunar kom út níu árum áður en fjórleikurinn tók að koma á prent og sömu tvær borgir koma við sögu; Olga er frá Napolí en eftir að hafa búið í öðrum löndum meðan eigin- maðurinn Mario aflaði sér mennt- unar komu þau sér fyrir í Tórínó þar sem hann fékk vinnu. Olga hafði ung skrifað skáldsögu og hugðist halda áfram á þeirri braut en þegar börnin tvö voru fædd fór allur hennar tími og orka í að halda utan um heimilið, þjóna eiginmanninum og börnum, og þar koma lesendur til móts við hana þegar eiginmaðurinn hefur tilkynnt dag nokkurn í apríl, skömmu eftir hádegismat, að hann vilji skilja við hana. Olga segir sjálf frá í þátíð, í 1. per- sónu frásögninni, sem er snörp og hröð; helsti styrkur sögunnar felst einmitt í þróttmikilli frásagnar- tækninni og nálguninni þar sem sögumaður gerir lesandann að nán- um trúnaðarvini og upplifir hann at- burðina og nánast taumlausar til- finningasveiflurnar með augum og orðum fórnarlambsins, sem Olga vissulega er í þessari atburðarás. Mario gengur á dyr, eftir að hafa sagt að hann vildi skilja og hefði ekkert upp á eiginkonuna eða börnin að klaga, og „skildi mig eftir stjarfa við uppþvottavélina“ (5) segir Olga og staðsetningin hamrar á stöðu hennar innan veggja heimilisins. Þá taka spurningar og efasemdaraddir að hljóma í huga hennar, hún horfir til baka og leitar að ástæðu, hugsar um sprungur sem kunna að hafa ver- ið til staðar í hjónabandinu sem út- skýrt er um leið fyrir lesandanum. En Mario hamrar á ákvörðun sinni í daglegum heimsóknum til barnanna fyrstu vikuna en eftir að hann viður- kennir að önnur kona sé í spilinu fer Olga virkilega að missa tökin. Mario hverfur þá sjónum vikum saman og andlegt ástand Olgu er vel speglað í endurteknum upprifjunum hennar um nágrannakonu í barnæsku sem hafði verið blómleg eiginkona og ást- rík móðir en sölnað eins og deyjandi skrautjurt eftir að eiginmaðurinn tók saman við aðra – og fyrirfór hún sér að lokum. Eftir að Mario er farinn er Olga eins og alein í heiminum með börnin tvö og stóran hund og lesandinn fylgist með henni reyna að stappa í sig stálinu, að reyna að verða ekki fórnarlamb örvæntingar og þung- lyndis, en það tekst ekki, þráhyggj- an tekur völdin, til að mynda um unga ástkonu Marios og líf þeirra saman. Eitur kemur við sögu – Olga eitrar fyrir maura og það er eitrað fyrir hundinum, börnin fjarlægjast hana og verða hálfgerðir fjandmenn, hljóðfæraleikarinn á neðri hæðinni er óvinur en engu að síður bankar Olga eitt sinn uppá hjá honum, frá- vita af harmi og þrá og hálfpartinn nauðgar manninum. Og hún sekkur djúpt áður en hún nær að spyrna sér upp og byrja að ná tökum á lífinu að nýju; fær sér vinnu og tekst á yfir- vegaðri hátt á við sorgina. Og eigin- manninn fyrrverandi. Eins og fyrr segir felst styrkur sögunnar einkum í frásagnarhætt- inum, samkenndinni og samlíðaninni sem höfundi tekst að byggja upp með Olgu þar sem hún sekkur sífellt dýpra í örvæntingarfenið. En þar er jafnframt einn galli sögunnar; sturl- unarmóðan varir of lengi fyrir þenn- an lesanda og varð endurtekningar- söm, það var ekki trúverðugt hvað það tók sögupersónuna langan tíma að lofta út í lífi sínu. Og þá er Olga fulleinföld frá höfundarins hendi, of saklaus (þótt unnið sé á vissan hátt gegn því með kynlífspælingum hennar), of flöt. Þessi lesandi átti bágt með að trúa því að undir lok tuttugustu aldar beygði ung og menntuð evrópsk kona sig svo gjör- samlega undir karlrembulegt valda- kerfi eins og það sem fjallað er um í frásögninni – þótt samféagð ítalska kunni að vera merkt karlrembunni – og léti algjörlega reka á reiðanum þar til skipið væri strand. En bókin er lipurlega skrifuð og af snerpu, það vantar ekki, og þýðing Höllu Kjartansdóttur rennur vel eins og vera ber, í óvenjulegri spennusögu um konu sem læsist inn- an veggja heimilisins er karlinn fer. Wikipedia Sögusviðið Skáldsagan Dagar höfnunar eftir Elenu Ferrante gerist í Tór- ínó og segir sögu konu sem eiginmaðurinn yfirgefur fyrir aðra yngri. Skilin eftir stjörf við uppþvottavélina Skáldsaga Dagar höfnunar bbbmn Eftir Elena Ferrante. Halla Kjartansdóttir þýddi. Benedikt bókaútgáfa, 2018. Kilja, 191 bls. EINAR FALUR INGÓLFSSON BÆKUR Fyrsta stóra umhverfislistaverk búlgarska listamannsins Christos í Bretlandi mun verða sett upp í sumar í Serpentine-vatninu í Hyde Park í London. Christo, sem er 82 ára gamall, varð frægur fyrir um- fangsmikla umhverfisskúlptúra sem hann vann lengst af ásamt eigin- konu sinni, Jeanne-Claude, sem er látin; þau pökkuðu meðal annars inn þinghúsinu í Berlín og brú í Parísarborg. Verkið sem fer upp í London kallar Christo Mastaba og segir í samtali við The Guardian að það byggist á fornu formi frá Mesó- pótamíu. Verkið mun vega um 150 tonn og fljóta á vatninu; gert úr 7.506 tunnum sem verður staflað upp. Það verður 20 metra hátt, 30 metrar á breidd og 40 metra langt. Christo gerir verk í London Hugmyndin Skissa Christos að verki hans í London. Listamaðurinn greiðir fyrir uppsetningu umhverfisverka sinna með sölu myndverka sem þessa. Ljósmynd/André Grossmann/© 2 Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is Rocky Horror (Stóra sviðið) Mið 11/4 kl. 20:00 aukas. Mið 2/5 kl. 20:00 26. s Lau 19/5 kl. 20:00 37. s Fim 12/4 kl. 20:00 aukas. Fim 3/5 kl. 20:00 27. s Mið 23/5 kl. 20:00 aukas. Fös 13/4 kl. 20:00 aukas. Fös 4/5 kl. 20:00 28. s Fim 24/5 kl. 20:00 aukas. Lau 14/4 kl. 20:00 8. s Lau 5/5 kl. 20:00 29. s Fös 25/5 kl. 20:00 38. s Sun 15/4 kl. 20:00 9. s Sun 6/5 kl. 20:00 30. s Lau 26/5 kl. 20:00 39. s Mið 18/4 kl. 20:00 aukas. Þri 8/5 kl. 20:00 31. s Sun 27/5 kl. 20:00 40. s Fim 19/4 kl. 20:00 10. s Mið 9/5 kl. 20:00 32. s Mið 30/5 kl. 20:00 aukas. Fös 20/4 kl. 20:00 11. s Fös 11/5 kl. 20:00 33. s Fim 31/5 kl. 20:00 41. s Lau 21/4 kl. 20:00 aukas. Lau 12/5 kl. 16:00 34. s Fös 1/6 kl. 20:00 46. s Sun 22/4 kl. 20:00 12. s Þri 15/5 kl. 20:00 aukas. Lau 2/6 kl. 20:00 47. s Fim 26/4 kl. 20:00 13. s Fim 17/5 kl. 20:00 35. s Sun 3/6 kl. 20:00 48. s Lau 28/4 kl. 20:00 25. s Fös 18/5 kl. 20:00 36. s Mið 6/6 kl. 20:00 49. s Besta partý sem þú munt nokkurn tímann upplifa. Elly (Stóra sviðið) Fös 31/8 kl. 20:00 139. s Sun 9/9 kl. 20:00 142. s Sun 16/9 kl. 20:00 145. s Lau 1/9 kl. 20:00 140. s Mið 12/9 kl. 20:00 143. s Lau 22/9 kl. 20:00 146. s Fös 7/9 kl. 20:00 141. s Fim 13/9 kl. 20:00 144. s Sun 23/9 kl. 20:00 147. s Sýningar haustið 2018 komnar í sölu. Sýningin sem klikkar (Nýja sviðið) Mið 11/4 kl. 20:00 9. s Mið 18/4 kl. 20:00 14. s Fim 26/4 kl. 20:00 20. s Fim 12/4 kl. 20:00 10. s Fim 19/4 kl. 20:00 15. s Fös 27/4 kl. 20:00 21. s Fös 13/4 kl. 20:00 11. s Fös 20/4 kl. 20:00 16. s Lau 28/4 kl. 20:00 22. s Lau 14/4 kl. 20:00 12. s Lau 21/4 kl. 20:00 18. s Sun 29/4 kl. 20:00 23. s Sun 15/4 kl. 20:00 13. s Sun 22/4 kl. 20:00 19. s Það er alveg öruggt að þetta fer úrskeiðis! Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið) Fös 13/4 kl. 20:30 Frums. Sun 22/4 kl. 20:30 6. s Fim 3/5 kl. 20:30 aukas. Lau 14/4 kl. 20:30 2. s Mið 25/4 kl. 20:30 7. s Fös 4/5 kl. 20:30 12. s Sun 15/4 kl. 20:30 3. s Fim 26/4 kl. 20:30 8. s Lau 5/5 kl. 20:30 13. s Mið 18/4 kl. 20:30 aukas. Fös 27/4 kl. 20:30 aukas. Sun 6/5 kl. 20:30 14. s Fim 19/4 kl. 20:30 4. s Lau 28/4 kl. 20:30 9. s Mið 9/5 kl. 20:30 15. s Fös 20/4 kl. 20:30 5. s Sun 29/4 kl. 20:30 10. s Fim 10/5 kl. 20:30 aukas. Lau 21/4 kl. 20:30 aukas. Mið 2/5 kl. 20:30 11. s Fös 11/5 kl. 20:30 16. s Komumst við vímulaus af í geggjuðum heimi? Slá í gegn (Stóra sviðið) Fim 12/4 kl. 19:30 Auka Lau 21/4 kl. 16:00 18.sýn Sun 13/5 kl. 19:30 29.sýn Fös 13/4 kl. 19:30 15.sýn Sun 22/4 kl. 19:30 19.sýn Sun 27/5 kl. 19:30 30.sýn Lau 14/4 kl. 19:30 16.sýn Sun 29/4 kl. 20:00 25.sýn Lau 2/6 kl. 19:30 31.sýn Sun 15/4 kl. 19:30 Auka Lau 5/5 kl. 19:30 27.sýn Sun 3/6 kl. 19:30 32.sýn Fös 20/4 kl. 19:30 17.sýn Sun 6/5 kl. 16:00 28.sýn Lau 9/6 kl. 19:30 33.sýn Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna! Svartalogn (Stóra sviðið) Fim 26/4 kl. 19:30 Fors Lau 28/4 kl. 19:30 2.sýn Fös 4/5 kl. 19:30 4.sýn Fös 27/4 kl. 19:30 Frum Fim 3/5 kl. 19:30 3.sýn Fös 11/5 kl. 19:30 5.sýn Heillandi verk um óvæntu möguleikana í lífinu Stríð (Stóra sviðið) Mið 16/5 kl. 19:30 Frums Fim 17/5 kl. 19:30 2.sýn Fös 18/5 kl. 19:30 3.sýn Ragnar og Kjartan hafa tvívegis skapað í sameiningu sviðsverk fyrir Volksbühne-l Faðirinn (Kassinn) Fös 13/4 kl. 19:30 32.sýn Fös 20/4 kl. 19:30 33.sýn Lau 21/4 kl. 19:30 34.sýn Áhrifamikið nýtt verðlaunaverk. Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari) Mið 11/4 kl. 20:00 Mið 18/4 kl. 20:00 Mið 25/4 kl. 20:00 Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins! Oddur og Siggi (Á flakki um landið) Mið 11/4 kl. 11:00 Höfn Þri 17/4 kl. 11:00 Selfoss Þri 15/5 kl. 11:00 Vestm.eyjar Mán 16/4 kl. 11:00 Selfoss Þri 24/4 kl. 11:00 Hveragerði Skemmtileg, sorgleg og hjartnæm sýning Pörupiltar (Þjóðleikhúskjallarinn) Fim 26/4 kl. 10:00 Fös 27/4 kl. 11:30 Mið 2/5 kl. 10:00 Fim 26/4 kl. 11:30 Mán 30/4 kl. 10:00 Mið 2/5 kl. 11:30 Fös 27/4 kl. 10:00 Mán 30/4 kl. 11:30 Hlátur og skemmtun í bland við eldfimt efni Barnamenningarhátið (Þjóðleikhúsið) Fös 20/4 kl. 10:00 Ég get Lau 21/4 kl. 13:00 Pétur og úlfurinn Sun 22/4 kl. 13:00 Oddur og Siggi Fös 20/4 kl. 10:00 Pétur og úlfurinn Lau 21/4 kl. 13:00 Ég get Sun 22/4 kl. 15:00 Oddur og Siggi Lau 21/4 kl. 10:00 Pétur og úlfurinn Lau 21/4 kl. 15:00 Ég get Barnamenningarhátíð 2018 leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200 ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS ÞARFTU AÐ LÁTA GERA VIÐ?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.