Morgunblaðið - 11.04.2018, Page 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 2018
VEIÐIHNÍFAR Í ÚRVALI
VERÐ FRÁ 3 750 -. .
Laugavegi 29 | sími 552 4320 | verslun@brynja.is | brynja.is
Opið
virk
a
dag
a frá
9-18
lau
frá 1
0-16
Ný
vefvers
lun
brynja.i
s
ICQC 2018-20
Steven Spielberg, einhverþekktasti og vinsælastikvikmyndaleikstjóri sög-unnar, hefur verið afkasta-
mikill undanfarna mánuði. Aðeins
örfáum mánuðum eftir að hafa
frumsýnt hina ágætu kvikmynd
The Post, þar sem hann tók fyrir
sögulegan atburð, lekann á Penta-
gon-skjölunum, tekur hann algjöra
u-beygju og frumsýnir Ready
Player One þar sem raunsæi víkur
fyrir afþreyingu, tölvuteiknuðum
sýndarveruleika- og tölvuleikja-
heimi.
Ready Player One gerist árið
2045 og heimurinn auðvitað til
fjandans farinn. Söguhetja
myndarinnar, hinn tæplega tvítugi
Wade Watts (Sheridan), býr við
mikla fátækt í þeirri borg Banda-
ríkjanna sem hefur vaxið hvað
hraðast eftir uppskerubrest og
aðrar hörmungar, Columbus í
Ohio. Wade er munaðarleysingi og
býr í einhvers konar hjólhýsa-
blokkahverfi hjá geðvondri frænku
sinni og heimskum kærasta henn-
ar. Líkt og aðrir borgarbúar ver
hann öllum sínum stundum í sýnd-
arveruleikaheimi með til þess gerð
gleraugu á höfði og hlaupabretti
undir fótum. Heimur þessi nefnist
Oasis og er sköpunarverk mikils
snilldarhönnuðar, James Halliday
(Rylance), sem er í guðatölu hjá
notendum. Í Oasis ægir öllu mögu-
legu saman, sýndarheimurinn er
líkt og risavaxinn hrærigrautur úr
hinum ýmsu tölvuleikjum, kvik- og
teiknimyndum og þá einkum frá
níunda áratugnum. Menningu þess
tíma hefur Halliday drukkið í sig í
æsku og líkt og í tölvuleikjum get-
ur fólk brugðið sér í allra kvikinda
og manna líki, barist til síðasta
blóðdropa, lifnað við á ný og rakað
til sín gullpeningum þegar and-
stæðingarnir missa líf og limi. Oas-
is er, eins og nafnið bendir til, vin í
eyðimörk vonleysisins og hinn full-
komni veruleikaflótti.
Áður en Halliday lætur lífið skil-
ur hann eftir sig mikla þraut og sá
sem leysir hana mun fá vegleg
verðlaun, sjálfan sýndarheiminn og
öll þau auðæfi sem honum fylgja.
En til að komast á leiðarenda þarf
að finna þrjá lykla og á endanum
páskaegg (hér er átt við leynileg
skilaboð eða verðlaun í tölvuleik
sem kölluð eru páskaegg) og einn
þeirra sem þráir það hvað heitast
er vondi karlinn Nolan Sorrento
(Mendelsohn), stjórnandi fyrirtæk-
isins IOI sem hefur á að skipa her
manns sem hefur það eina mark-
mið að leysa þrautirnar og losa sig
við andstæðingana, hvað sem það
kostar. Wade, sem gengur undir
nafninu Parzifal í Oasis (og ekur
um á sama Delorean-kagga og
Marty McFly í Back to the Fut-
ure), reynist öðrum leikmönnum
snjallari og kemst fljótlega yfir
fyrsta lykilinn. Um leið kynnist
hann bleikhærðri stúlku, Art3mis
(Cooke) og verður ástfanginn af
henni þrátt fyrir að hafa aðeins
kynnst sýndarveruleikaútgáfunni
af henni. Saman takast þau á við
Sorrento og skósveina hans ásamt
nokkrum vinum sínum í Oasis.
Fljótlega verða átökin öllu raun-
verulegri, færast yfir í hinn raun-
verulega heim og Wade og vinir
hans eiga fótum sínum fjör að
launa.
Þessi snarruglaða en skemmti-
lega kvikmynd Spielbergs er
byggð á vísindaskáldsögu Ernest
nokkurs Cline frá árinu 2011 og er
yfirfull og í raun ofhlaðin af alls
konar vísunum í dægur- og tölvu-
leikjamenningu níunda áratug-
arins, sem fyrr segir, sem og tón-
list þess tíma. Það er til dæmis
frekar furðulegt að vera staddur í
æsilegum kappakstri í New York
með King Kong á hælunum og
„Jump“ með Van Halen í eyrunum.
Yfirþyrmandi, raunar, enda virka
nútímatölvuleikir margir þannig á
miðaldra fólk í dag, fólk sem ólst
upp við Pacman og Space Invad-
ers. Slíkir leikir eru eins og huggu-
legt kaffiboð hjá ömmu í saman-
burði við tölvuleiki þess sýndar-
veruleikatíma sem þegar er hafinn.
Og þó að þetta virki gjörsamlega
galið er kannski stutt í að við get-
um öll flúið inn í heim á borð við
Oasis.
Þó að þessi ævintýramynd Spiel-
bergs sé á margan hátt ófrumleg
og klisjukennd (fátækur mun-
aðarleysingi reynist mikil hetja,
berst við vondan karl, sigrar hann
að lokum og hlýtur að launum
prinsessuna og konungsríkið) kem-
ur hún einstaka sinnum á óvart.
Ber þar hæst stórfurðulegt atriði í
sýndarheimi þar sem Wade og fé-
lagar fara bókstaflega inn í hroll-
vekjuna The Shining eftir Stanley
Kubrick. Óhuggulegu tvíburasyst-
urnar birtast bíógestum á ný, blóð-
hafið streymir úr lyftunni og nakta
konan í baðinu stígur í vænginn við
eina tölvuteiknuðu aðalpersónuna
sem líkist meira orka úr Hringa-
dróttinssögu en manni. Þetta atriði
er verulega skrítið, virðist engum
tilgangi þjóna en er þó heillandi í
furðuleika sínum og spaugilegt fyr-
ir þá fullorðnu bíógesti sem þekkja
The Shining en fullhrollvekjandi
fyrir barnunga bíógesti. Og hver
veit hvenær við getum öllu brugðið
okkur inn í kvikmynd og leikið á
móti okkar uppáhaldsleikurum?
Eflaust styttist í það ef það er ekki
þegar mögulegt.
Ready Player One er hrein og
klár afþreying og prýðileg sem slík
en skilur lítið eftir sig, einhverja
töfra vantar hjá Spielberg að þessu
sinni. Myndin er að stórum hluta
eins og tölvuleikur og er óður til
níunda áratugarins og fyrstu tölvu-
leikjanna, til tölvuleikja almennt og
dægurmenningar fyrrnefnds ára-
tugar og síðast en ekki síst er hún
leikfangakassi leikstjóra sem kom-
inn er á áttræðisaldur en hefur
greinilega enn gaman af því að
leika sér (reyndar voru engir
tölvuleikir til þegar Spielberg var
barn og unglingur en það er önnur
saga). Og líkt og leikur barna er
Ready Player One ekki alltaf rök-
rétt og getur tekið óvæntar og
furðulegar beygjur, sumar í rétta
átt en aðrar ekki.
Ófullkominn veruleikaflótti
Í sýndarheimi Wade Watts, söguhetja Ready Player One, með sýndarveruleikagleraugu á höfði, djúpt sokkinn í
hinn tilbúna heim James Halliday. Myndin er prýðileg afþreying en einhverja töfra vantar þó hjá Spielberg.
Sambíóin Egilshöll
og Kringlunni
Ready Player One bbbnn
Leikstjórn: Steven Spielberg. Handrit:
Ernest Cline, Zak Penn og Eric Eason.
Aðalleikarar: Tye Sheridan, Ben Mendel-
sohn, Olivia Cooke, Mark Rylance og
Simon Pegg. Bandaríkin, 2018. 140 mín.
HELGI SNÆR
SIGURÐSSON
KVIKMYNDIR
Gítarleikarinn Lindsey Buckingham
hefur sagt skilið við hljómsveitina
Fleetwood Mac, fáeinum mánuðum
áður en tónleikaferð hljómsveitar-
innar hefst. Á vefjum tímaritsins
Rolling Stone og dagblaðsins Inde-
pendent segir að Buckingham hafi
verið rekinn úr hljómsveitinni í kjöl-
far deilna um umrædda tónleikaferð.
Mike Campbell, gítarleikari Tom
Petty and the Heartbreakers, mun
hlaupa í skarðið fyrir Buckingham
og einnig Neil Finn úr hljómsveit-
inni Crowded House.
Í yfirlýsingu sem hljómsveitin
sendi frá sér í fyrradag kemur fram
að Buckingham hafi sagt skilið við
hana og honum óskað velfarnaðar.
Buckingham gekk til liðs við
Fleetwood Mac árið 1974 ásamt Ste-
vie Nicks og samdi mörg þekktustu
lög hljómsveitarinnar, m.a. „Go Yo-
ur Own Way“, „Tusk“ og „Second
Hand News“. Hann hætti í hljóm-
sveitinni árið 1987 og leysti Billy
Burnette hann þá af. Hann gekk svo
aftur í sveitina fyrir tónleikaferða-
lagið The Dance árið 1996 og lék
með sveitinni reglulega næstu 20 ár
eða þar um bil.
Buckingham rekinn
Ljósmynd/Wikipedia
Ekki með Lindsey Buckingham hefur verið rekinn úr Fleetwood Mac.