Morgunblaðið - 13.04.2018, Síða 1

Morgunblaðið - 13.04.2018, Síða 1
F Ö S T U D A G U R 1 3. A P R Í L 2 0 1 8 Stofnað 1913  86. tölublað  106. árgangur  ALLT ER SVO FALLEGT VIÐ BÓKBANDIÐ HEIMANÁM MEÐ ÖÐRUVÍSI GLERAUGUM BILL MURRAY KEM- UR FRAM MEÐ TÓNLISTARFÓLKI MENNTAVÍSINDI 12 LISTAHÁTÍÐ 2018 KYNNT 39EINAR SVEINN 6 skráðir í facebookhópinn Plokk á Íslandi þar sem finna má ýmsar reynslusögur fólks sem fyllir heilu sekkina af rusli á skömmum tíma. Í gær var send út hvatning til fólks um að láta til sín taka 22. apríl næstkomandi, sem er dagur jarðar. Er hugsunin að þann dag gangi allir plokkarar Íslands einn kílómetra og tíni upp rusl á leiðinni, svo sem plast og pappa. Sér- staklega er skorað á stjórnendur fyrirtækja að leggja lið og fá starfsfólk til að hreinsa til í nærumhverfi sínu. Plokkarar úr Alla leið, gönguhópi Ferðafélags Íslands, tíndu mikið rusl þegar þeir gengu með- fram Vesturlandsvegi við Úlfarsfell í gærkvöldi. „Plokkið er frábær þjálfun fyrir fjallgöngur,“ segir Hjalti Björnsson sem fór fyrir hópnum sem stefnir á Hvannadalshnjúk í næsta mánuði. Plokkið segir hann vera mikilvægt sjálf- boðaliðastarf í umhverfismálum og þar að auki góðan félagsskap fyrir þá sem taka þátt í því. Óhætt er að segja að um þessar mundir sé plokkæði á Íslandi. Nú eru um 3.500 manns Einar Bárðarson, samskiptastjóri Hafnar- fjarðarbæjar, er einn af upphafsmönnum þess- arar vakningar, en fyrirmyndin er sænsk. „Undirtektirnar hafa alls staðar verið góðar og sveitarfélögin verið tilbúin að leggja lið eins og við á,“ segir Einar, sem leggur áherslu á að verkefnið sé sjálfsprottið framlag hvers og eins í þágu síns samfélags. Slíkt sé afar dýrmætt fyrir samfélagið og skapi líka gott fordæmi á tímum þegar umhverfismál og barátta gegn sóun séu ofarlega á baugi. sbs@mbl.is »4 Morgunblaðið/Árni Sæberg Plokkuðu við Vesturlandsveg Sjálfsprottið verkefni sem skapar gott fordæmi í umhverfismálum  Tíndu rusl við Úlfarsfell  Plast og pappi úti um allt  Í þágu samfélagsins Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Samkvæmt gildandi stefnu og aðgerðaáætlun stjórnvalda í geðheilbrigðismálum átti aðgengi fólks að sálfræðingum á heilsugæslustöðvum að vera orðið 50% í lok síðasta árs. Nú þegar komið er fram á vor 2018 er aðeins einn sálfræðingur fyrir fullorðna kominn til starfa á höfuðborgarsvæðinu. Þetta segir Anna Gunnhildur Ólafsdóttir, fram- kvæmdastjóri Geðhjálpar. Aðgengi að sálfræðingum á heilsugæslustöðv- um á að vera orðið 90% í lok árs 2019. Anna segir að stjórnvöld þurfi að spýta í lófana ef það á að ganga eftir. Hún segir mikilvægt að sálfræðiþjónusta sé nið- urgreidd en svo er ekki í dag. Talsvert er um að einstaklingar ráði ekki við þann kostnað að leita sér aðstoðar. Það getur ráðið úrslitum fyrir sjúk- ling að hafa sterkt bakland ættingja og vina til að fá þjónustu við hæfi. Fram kom í Morgunblaðinu í gær að móðir ungrar konu með geðraskanir þurfti að greiða úr eigin vasa næstum eina milljón króna fyrir þjónustu og lyf. Stærsti hluti kostnaðarins var vegna sálfræðimeðferðar. Geðlæknar starfa innan heilbrigðiskerfisins og er þjónusta þeirra niðurgreidd. Þeir anna hins vegar ekki eftirspurn. Þá hefur kostnaðarhluti fólks með geðraskanir hækkað um 30% að með- altali með nýlegum breytingum á lögum um sjúkratryggingar. „Við erum sífellt að þrýsta á stjórnvöld í þessum efnum,“ segir Anna. Hún segir að það hafi sannað sig að fjármagn til geðheilbrigðismála skipti ekki aðeins sköpum fyrir fólk með geðraskanir heldur sé það samfélagslega arðbært að veita sálfræði- þjónustu gegn lágri eða engri greiðslu. Ekki staðið við stefnuna  Aðgengi að sálfræðingum á heilsugæslustöðvum ekki í samræmi við fyrirheit  Fólk með geðraskanir greiðir nú 30% meira en áður fyrir geðlæknisaðstoð MSálfræðiþjónustu ætti … »14  Rússneskir valdhafar virðast raunverulega trúa því að setið sé um Rússland og áhrifasvæði þess. Hættan komi fyrst og fremst utan frá. Þannig tala þeir í eigin hópi að sögn Alberts Jónssonar, fyrrver- andi sendiherra Íslands í Rússlandi. Þetta sé þannig ekki einungis áróð- ur heimafyrir. Valdhafarnir trúi þessu sjálfir. Albert ræddi um utanríkisstefnu Rússlands, norðurslóðir og stöðu Ís- lands á fjölmennum hádegisfundi Varðbergs í gær. »20 Hætta komi fyrst og fremst utan frá Albert Jónsson  Sú mikla loftmengun sem lagðist yfir allt höfuðborgarsvæðið um síð- astliðin áramót er óviðunandi og er tilefni til að hafa af því áhyggjur. Þetta segir Guðmundur Ingi Guð- brandsson umhverfis- og auðlinda- ráðherra við Morgunblaðið. Hann telur jafnframt þörf á að bregðast við loftmengun frá skoteldum. „Það á ekki að vera svo að þeir sem eru viðkvæmastir fyrir þurfi að halda sig innandyra þegar mengunartoppar eins og þessi myndast,“ segir hann, en niður- stöður rannsókna sýna að meng- unin er afar varasöm fólki. »11 Morgunblaðið/Hari Mengun Loftgæði rýrnuðu víða mjög. Bregðast þarf við skoteldamengun  „Við hlökkum til að bjóða leik- húsáhorfendum, líkt og lesendum fram til þessa, upp á að taka völdin og ákveða hvað gerist næst. Það er ljóst að engar tvær sýn- ingar verða ná- kvæmlega eins,“ segir Ævar Þór Benediktsson um leiksýninguna Þitt eigið leikrit sem frumsýnd verður í Kúlunni í Þjóð- leikhúsinu í janúar 2019 í leikstjórn Stefáns Halls Stefánssonar. Leik- ritið byggist á sömu hugmynda- fræði og Þín eigin-bókaflokkurinn sem Ævar hefur skapað. „Þessa dagana er verið að þróa og útfæra afar spennandi aðferð sem áhorf- endur munu nota til að kjósa.“ » 38 „Engar tvær leik- sýningar eins“ Ævar Þór Benediktsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.