Morgunblaðið - 13.04.2018, Síða 2

Morgunblaðið - 13.04.2018, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. APRÍL 2018 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Magnús Heimir Jónasson Guðrún Hálfdánardóttir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis- ráðherra segir að ráðuneytið muni funda með SÁÁ á næstu dögum til að finna sameiginlega lausn fyrir ung- menni sem glíma við áfengis- og fíknivanda eftir að Arnþór Jónsson, formaður SÁÁ, tilkynnti í gær að Vogur myndi hætta að taka við ung- mennum yngri en 18 ára. „Við mun- um funda með SÁÁ um næstu skref. Ég var mjög ánægð að sjá í tilkynn- ingunni að þau eru tilbúin að sinna þjónustunni þangað til við sjáum hvernig við vilj- um þróa þetta, hvaða fyrirkomu- lag sem verður á því, en það verður þá einhvern tím- ann á næstu dög- um,“ segir Svan- dís í samtali við Morgunblaðið. Hún segir líklegt að bæði Land- spítalinn og Barnaverndarstofa muni einnig koma að þessum ákvörðunum. Arnþór sagði við mbl.is í gær að það væri erfið ákvörðun að hætta að taka við ungmennum yngri en átján ára en ef ekki væri vilji fyrir því að Vogur veitti þessa þjónustu væri ekki annað í boði. Lögreglan fer nú með rannsókn á því hvort brotið hafi verið gegn 16 ára stúlku á Vogi af eldri einstaklingi og bendir Arn- þór á að það sé þannig að ábyrgðin á broti sé aldrei hjá þeim sem verður fyrir því heldur gerandanum. „Það getur enginn komið í veg fyrir þessi brot hvar sem er nema gerandinn,“ segir Arnþór. Að hans sögn verður miðað við átján ára aldur á ungmennadeildinni á Vogi eftir þetta en þangað til við- eigandi úrræði finnst muni Vogur að sjálfsögðu taka á móti börnum yngri en átján ára. Hann segir hins vegar engan mun vera á sautján ára krakka og þeim sem er nítján ára þegar kemur að vímuefnanotkun. Fyrir þennan sjúklingahóp er ung- mennadeildin á Vogi langbesta úr- ræðið. „Mörg hundruð ungmenni hafa fengið þarna frábæra þjónustu og stigið fyrstu skrefin inn í nýtt líf. Þarna er frábært starfsfólk sem er sérhæft í því sem það er að gera,“ segir Arnþór og bendir á að þau ung- menni sem þar hafi verið hafi átt fullt erindi í meðferð á Vogi. „En maður getur ekki troðið sér þangað sem maður er ekki velkom- inn,“ segir hann og bætir við að ekki sé hægt að bjóða starfsfólki á Vogi upp á að sitja stöðugt undir ákúrum sem það á ekki skilið. Þá sé ekki endalaust hægt að skamma SÁÁ fyrir að ekki skuli vera til úrræði sem allir séu að kalla eftir fyrir ungmenni en eins og staðan sé í dag sé ungmennadeildin á Vogi besta úrræðið fyrir þennan aldurs- hóp. Ef vilji sé fyrir því að koma sér- stökum spítala í gagnið fyrir þennan aldurshóp fagni SÁÁ því að sjálf- sögðu. Fundað um lausn fyrir ungmenni  Sjúkrahúsið Vogur mun framvegis ekki taka við ungmennum yngri en 18 ára  Formaður SÁÁ segir það erfiða ákvörðun en ekki sé annað í boði  Heilbrigðisráðherra mun funda með SÁÁ Svandís Svavarsdóttir Þorgerður Anna Gunnarsdóttir thorgerdur@mbl.is „Þetta er grafalvarleg staða,“ segir Marta Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, um stöðu á bið- listum eftir plássum á leikskólum Reykjavíkurborgar. Marta situr í skóla- og frístunda- ráði og fékk í fyrradag svör við fyr- irspurn sinni um fjölda barna á bið- lista og stöðu starfsmannamála á leikskólum borgarinnar. Í svari frá Helga Grímssyni, sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs, kemur fram að 1.155 börn fædd á árunum 2013 til 2016, auk yngri barna með forgang, séu á biðlista eftir leikskólaplássi. Þar af eru 377 flutningsumsóknir á milli borgarrekinna leikskóla eða frá sjálf- stætt starfandi leikskólum yfir á borgarrekna leikskóla. Séu börn fædd árið 2017 talin með er fjöldi barna á biðlista 1.629. Í svarinu kem- ur einnig fram að áætla megi að öllum börnum fæddum á árunum 2013 til 2016 verði boðin vist fyrir haustið 2018, en 1.310 börn sem eru með vist- un munu hætta fyrir haustið. Aðspurð segir Marta tölurnar koma talsvert á óvart vegna þess hve mikil fjölgunin hefur orðið. Síðast þegar óskað var eftir þessum upplýs- ingum, sem var einhvern tíma fyrir áramót, hafi fjöldinn verið í kringum 900. „Það er alveg ljóst að það þarf að fara í stórátak til þess að leysa þenn- an vanda og það verður ekki við það unað lengur að börn bíði þetta lengi á biðlistum og að þeim fjölgi stöðugt á biðlistum eða að við stöndum frammi fyrir þessari manneklu öllu lengur.“ Í svarinu er varðar starfsmanna- mál á leikskólum borgarinnar kemur fram að til að bjóða börnum laus pláss vanti tæplega 40 stöðugildi, eða 39,6. „Það þarf í rauninni að fara í ein- hverjar bráðaaðgerðir strax til þess að leysa þetta. Foreldrar þurfa að vera heima með börnin sín og þurfa jafnvel að sækja þau á leikskóla á vinnudegi og það gengur auðvitað ekki upp.“ 1.629 börn á biðlista Morgunblaðið/Hari Leikskólar 1.155 börn fædd 2013 til 2016 eru á biðlista eftir plássi.  Biðlisti eftir leikskólaplássum í borginni langur  Starfs- menn vantar í tæp 40 stöðugildi  Grafalvarleg staða „Ég er svo glöð að vera með allar tennur mínar og að nefið sé ekki skakkt,“ segir Birna Rún Ei- ríksdóttir leikkona sem varð fyrir því óláni á Sýningunni sem klikkar á miðvikudagskvöldið að fá hurð í andlitið með þeim afleiðingum að hún marðist og vör sprakk. Hún þurfti að fara á slysadeild til aðhlynningar og leikhúsgestir þurftu því frá að hverfa í hléi. Birna Rún var aftur mætt á svið Borgarleik- hússins í gærkvöldi og héldu sýningar áfram samkvæmt áætlun. Hún bar sig vel í sminkinu baksviðs fyrir sýningu þar sem hún sýndi ljós- myndara bólgna vörina, sem ekki þurfti að sauma saman. Viðtal er við Birnu Rún í menn- ingarhluta blaðsins. »41 Morgunblaðið/Valli Aftur á svið eftir að hafa fengið hurð í andlitið Sýningin sem klikkar í Borgarleikhúsinu klikkaði þegar leikkona slasaðist Tuttugu og eitt skilríkjamál kom upp í Flugstöð Leifs Eiríkssonar á fyrstu þremur mánuðum ársins og hafa þau aldrei verið fleiri á sama tímabili ársins. Tvö mál hafa komið upp það sem af er aprílmánuði. Þá var árið 2017 einnig metár þegar heildarfjöldi skilríkjamála er skoðaður, en upp komu 92 mál í flugstöðinni, þar af fjórtán fyrstu þrjá mánuði ársins. Af því 21 máli sem upp hefur komið á árinu voru skilríkin breytifölsuð í 10 tilvikum, grunn- fölsuð í níu tilvikum en í tveimur tilvikum framvísuðu aðilarnir ófölsuðum skilríkjum annarra. Albanar komu við sögu í flestum málum en alls voru aðilarnir af átta þjóðernum. Skilríkin sem um ræðir voru oftast grísk og ítölsk. Flestir frá Schengen-ríkjum Flestir þeir sem ferðast á fölsk- um skilríkjum ferðast frá öðrum Schengen-ríkjum og millilenda í Keflavík. Þeir eru þá gripnir þeg- ar þeir ætla að ferðast um landa- mærin í Flugstöð Leifs Eiríks- sonar til áfangastaða ýmist í Bretlandi, Írlandi eða Kanada. Metfjöldi gripinn með fölsk skilríki  23 mál komið upp í Leifsstöð frá áramótum Atkvæðagreiðslu um þingsályktun- artillögu, þess efnis að þing Kenn- arasambands Íslands skori á Ragnar Þór Pétursson, tilvonandi formann KÍ, að leita endurnýjaðs umboðs til þess að leiða félagið, verður afgreidd í dag kl. 14:30 undir liðnum önnur mál. Kallað var fram í fyrir flutningsmönnum tillögunnar og mikil læti urðu í ráðstefnusalnum á Hótel Nordica í gær þegar lagt var til að tillagan yrði tekin fyrir sem forgangs- tillaga án umræðu vegna tíma- skorts og að um hana yrði leynileg kosning. Guðríður Arnardóttir, formaður Félags framhaldsskólakennara og mótframbjóðandi Ragnars Þórs í formannskjöri í haust, sagði í sam- tali við mbl.is að hún hefði haldið að stuðningsmenn Ragnars og Ragnar sjálfur myndu taka tillög- unni fagnandi, þar sem hún væri mjög hófstillt. Engum dylst að Guðríður er fylgjandi tillögunni, en hún var þó ekki í þeim hópi kvenna sem lögðu hana fram. „Ég hef áður sagt að ég mun ekki skapa það fordæmi að ásökun ein og sér dugi til að hrekja fólk úr starfi,“ segir Ragnar. Í bloggi á vef Stundarinnar segist hann „harma það að þessi mikilvægi málaflokkur sé notaður með þess- um hætti í valdabaráttu“, en áskorunin var lögð fram í tengslum við umræður á kennara- þingi um byltingar kvenna gegn ofbeldi. „Slíkt fordæmi gæti opnað á atburðarás sem gæti orðið kenn- arastétt og samfélaginu verulega skaðleg,“ segir Ragnar. athi@mbl.is Áskorun á for- mann tekin fyrir  Atkvæðagreiðsla á KÍ-þinginu í dag

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.