Morgunblaðið - 13.04.2018, Page 4

Morgunblaðið - 13.04.2018, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. APRÍL 2018 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Hve mikið af rusli liggur á víða- vangi er beinlínis ótrúlegt. Á þessum stuttu spottum við Vesturlandsveg- inn sem plokkarahópurinn minn hef- ur tekið að undanförnu erum við eft- ir tveggja til þriggja tíma rölt komin með 20-30 stóra poka af rusli. Sveit- arfélögin virðast ekki hafa bolmagn til að sinna þessu mikilvæga verk- efni og því er þetta sjálfboðaliðastarf nauðsynlegt,“ segir Hjalti Björns- son, fararstjóri hjá Ferðafélagi Ís- lands. Apríl er besti mánuðurinn Félagar í Alla leið, sem er einn fjölmargra hópa sem starfa innan FÍ, tóku í gærkvöldi til óspilltra mál- anna og tíndu rusl við Vesturlands- veg. Þeir byrjuðu neðan við verslun Bauhaus þar sem þeim var skipt í tvo hópa og fór hvor í sína áttina og tíndi kynstrin öll af rusli. „Apríl er besti mánuðurinn í svona verkefni; tímabilið frá því snjóa leysir uns fer að grænka. Núna sést beint ofan í svörðinn þar sem er plast, pappír og ýmis efni fleiri. Þegar komið er fram í júní og gróður kominn á legg er miklu erfiðara að plokka ruslið upp,“ segir Hjalti. Í hópnum Alla leið er vant göngu- fólk sem er í góðri þjálfun, fer í fjall- göngur reglulega yfir veturinn með það að markmiði að ganga á Hvannadalshnjúk eða eitthvert af öðrum hæstu fjöllum landsins að vori. „Plokkið er frábær þjálfun fyrir fjallgöngur, sex kílómetra plokk- ganga er 500 hnébeygjur sem gera fólki gott,“ segir Hjalti um þetta framtak plokkaranna í Alla leið sem nú eru búnir að tína rusl við nánast allan Vesturlandsveginn milli Elliða- áa og Leirvogsár ofan við Mosfells- bæ. Allir í Öskjuhlíð Þá stefnir Alla leið að því að gera enn betur á degi jarðar 22. apríl en þá á að plokka Öskjuhlíðina – og er víst af nægu að taka. Í gær var svo á Facebook gefin út tilkynning undir hausnum Dagur jarðar / Earth Day. Þar er fólk hvatt til þess að plokka einn kílómetra hinn 22. apríl að eigin vali á milli klukkan 9 og 21. Það þýð- ir að á þeim degi yrði 3.500 kíló- metra strengur hreinsaður ef allir plokkarar létu til skarar skríða og hreinsuðu einn kílómetra hver. Dugnaðarfólk Hjalti Björnsson plokkari og fararstjóri hjá Ferðafélagi Íslands lætur ekki sitt eftir liggja, hann fór með plokkarahóp við Vesturlandsveg til að fjarlægja rusl, sem nóg er af. Morgunblaðið/Árni Sæberg Verk að vinna Félagar í Alla leið eru röskir, en aprílmánuður hentar vel til að fjarlægja rusl. Rusl í sverðinum og magnið ótrúlegt  Tíndu rusl og tóku 500 hnébeygjur  Frá Elliðaám að Leirvogsá  Stefna á Öskjuhlíð á degi jarðar „Rusltangirnar alveg mokast út hjá okkur þessa dagana,“ segir Sigurður Svavarsson, verslunar- stjóri hjá Húsasmiðjunni í Grafar- holti í Reykjavík. Tangir þessar eru þarfaþing sem margir þekkja, eru um hálfur metri á lengd og með handfangi sem aftur opnar kló sem grípur ruslið upp úr jörðinni, svo plokkarar þurfi ekki að beygja sig fram svo oft að bakverkir eða önnur óþægindi fylgi. Sigurður segir plokkvæðinguna skapa skemmtilega menningu og það sé líka sómi að því að fólk gangi vel um umhverfi sitt. „Sérstaklega er þetta kærkomið á opnum svæðum sem eru nokk- urs konar einkismannsland. Í Vatnsendahverfinu í Kópavogi þar sem ég bý hefur verið efnt til at- burða þar sem fólk fer út að tína rusl sem er bara mjög skemmti- legt framtak. Hér í búðinni finnum við að kominn er vorhugur í fólk – og kominn góður kippur í sölu á garðverkfærum og þau eiga eftir fara mjög grimmt á næstu vikum,“ segir Sigurður. Handfangið grípur ruslið með klónni RUSLTANGIRNAR SELJAST VEL Í VERSLUN HÚSASMIÐJUNNAR Rusltöngin góða Sigurður segir plokkvæðinguna skapa skemmtilega menningu. Sólrún Lilja Ragnarsdóttir solrun@mbl.is „Ég fór að hugsa út í það hvort hann væri að gera þetta við fleiri og það fékk mig til að kæra hann síð- asta haust. Ég vildi ekki að fleiri þyrftu að lenda í því sem ég lenti í með honum,“ segir ungur maður sem í ágúst á síðasta ári lagði fram kæru á hendur fyrrverandi starfs- manni Barnaverndar Reykjavíkur fyrir að hafa brotið kynferðislega gegn honum þegar hann var barn. Brotin eiga að hafa átt sér stað á árunum 2004 til 2010, þegar mað- urinn var á aldrinum átta til 14 ára. Maðurinn sem braut á honum var einhvers konar stuðningsfulltrúi hans og sem barn dvaldi hann reglulega á heimili á vegum Fé- lagsþjónustunnar í Reykjavík sem maðurinn hafði umsjón með. Mað- urinn lét hann sofa uppi í rúmi hjá sér þar sem hann braut gegn hon- um. Tvö systkini unga mannsins dvöldu einnig á heimilinu og er talið að hann hafi einnig brotið gegn þeim. Ungi maðurinn, sem nú er rúm- lega tvítugur, sagði ekki frá ofbeld- inu fyrr en um tveimur árum eftir að því lauk, eða þegar hann var 16 ára gamall. „Ég ætlaði aldrei að segja foreldrum mínum frá þessu. Ég skammaðist mín svo mikið.“ Hann man vel eftir því hvaða til- finningar hann upplifði á meðan of- beldið stóð yfir. „Fyrst þegar hann byrjaði á þessu skildi ég ekkert hvað var í gangi, ég var í sjokki. Mér leið illa en ég fór að venjast þessu. Ég hélt í fyrstu að þetta væri eðlilegt, en ég man eftir að hafa spurt sjálfan mig að því þegar ég fermdist hvort þetta væri eðlilegt eða ekki. Smám saman áttaði ég mig á því að svo var ekki. Ég áttaði mig líka á því af hverju hann var að kaupa mig. Hann dekraði við mig, leyfði mér að vera í tölvunni og gaf mér pening fyrir nammi.“ Hélt hann væri einn Eins og áður sagði lagði ungi maðurinn fram kæru gegn mann- inum í ágúst á síðasta ári, en hann hafði þó fyrir löngu tekið þá ákvörð- un að kæra. „Ég vildi bíða með þetta þegar ég var 16 ára. Ég vildi bíða þangað til ég yrði lögráða og væri búinn að melta þessa hluti.“ Í dag er hann mun sterkari en hann var fyrir nokkrum árum. Hefði hann farið fyrr af stað hefði hann ekki verið tilbúinn að takast á við allt sem fylgir því að kæra kynferð- isbrot; að þurfa að rifja ofbeldið upp aftur og aftur og svara erfiðum spurningum. Hann hefur unnið mik- ið í sjálfum sér með góðri aðstoð. Í kjölfar umfjöllunar fjölmiðla um málið lögðu fleiri fram kæru gegn manninum, en hann er grunaður um að hafa brotið kynferðislega gegn a.m.k. sjö börnum á tíu ára tímabili. Embætti héraðssaksókn- ara hefur staðfest að maðurinn verður ákærður, en ákærufrestur rennur út í dag. Hann bjóst ekki við að fleiri myndu kæra í kjölfarið, enda hélt hann að hann væri sá eini. „Ég reiknaði ekki með þessu. Ég hélt ég væri sá eini. Þegar ég frétti að það væru fleiri, og svona margir, þá breyttist hugarfarið aðeins. Mér fannst ég hafa meiri stuðning en ég átti von á. Þetta hafði gríðarlega mikil áhrif á mig og hefur breytt mér mikið. Ég er allt annar maður í dag en ég var áður. Það hefur bæði komið slæmt og gott út úr þessu. Ég hef áttað mig á því að ég hef stuðning ef það koma upp vandamál og lít á þetta sem uppbyggingu fyrir bjart- ari framtíð.“ Viðtalið við unga manninn má lesa í heild sinni á mbl.is. Spurði sig hvort þetta væri eðlilegt  Ungi maðurinn sem kærði starfsmann Barnaverndar Reykjavíkur fyrir kynferðisofbeldi segir manninn hafa látið sig sofa uppi í rúmi hjá sér  Ætlaði aldrei að segja foreldrum sínum frá þessu Morgunblaðið/Eggert Barnavernd Brotin eiga að hafa átt sér stað þegar drengurinn var á aldr- inum átta til 14 ára. Maðurinn lét hann sofa uppi í rúmi hjá sér.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.