Morgunblaðið - 13.04.2018, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. APRÍL 2018
AÐALFUNDUR
Dagskrá
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 4.11 gr. í samþykktum félagsins.
2. Önnurmál.
Aðalfundur HBGranda hf. verður haldinn föstudaginn
4. maí 2018 í matsal félagsins að Norðurgarði 1, 101 Reykjavík
og hefst hann klukkan 17:00. Fundurinn fer fram á íslensku.
Réttur hluthafa til að fá mál sett á
dagskrá hluthafafundar og kosning
Hver hluthafi á rétt á að fá ákveðin mál
tekin til meðferðar á hluthafafundi ef hann
gerir um það skriflega eða rafræna kröfu
og sendir til félagsstjórnar á netfangið
adalfundur@hbgrandi.ismeð það
löngum fyrirvara að unnt sé að taka málið
á dagskrá fundarins. Þannig skulu óskir
hluthafa liggja fyrir eigi síðar en kl. 17:00
24. apríl 2018, þ.e. 10 dögum fyrir
fundinn.
Á hluthafafundum fylgir eitt atkvæði
hverri einni krónu í hlutafé. Eigin bréf
félagsins njóta ekki atkvæðisréttar.
Atkvæðaseðlar og fundargögn verða
afhent á fundarstað.
Hluthafar sem ekki eiga kost á að sækja
fundinn geta:
a) veitt öðrum skriflegt umboð.
b) greitt atkvæði skriflega.
Þeim hluthöfum sem hyggjast nýta sér
annan hvorn þessara kosta er bent á að
kynna sér á heimasíðu félagsins hvernig
þeir skuli bera sig að. Þar er að finna
leiðbeiningar um skráningu, form skjala og
hvernig þeim skuli skilað til félagsins.
Aðrar upplýsingar
Hluthöfum er bent á að skv. 63. gr.
hlutafélagalaga skal tilkynna skriflega,
minnst fimm dögum fyrir hluthafafund, um
framboð til stjórnar. Tilkynnt verður um
framkomin framboð tveimur dögum fyrir
aðalfundinn.
Dagskrá og öll skjöl sem lögð verða fyrir
aðalfundinn, þ.m.t. ársreikningur félagsins
og tillögur, verða hluthöfum tiltæk á
íslensku á heimasíðu félagsins og á
skrifstofu félagsins á venjulegum
skrifstofutíma, frá og með 20. apríl 2018.
Endanleg dagskrá og tillögur verða birtar
viku fyrir fundinn.
Allar nánari upplýsingar um aðalfundinn
verður að finna á vefsíðu félagsins,
www.hbgrandi.is
Stjórn HBGranda hf.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
G
R
A
88
12
6
04
/1
8
Óvenju mikil umferð var um Akur-
eyrarflugvöll í gær og hefur ekki
verið jafn þétt á einum degi síðan
Eyjafjallajökull gaus árið 2010, að
sögn Hjördísar Þórhallsdóttur,
flugvallarstjóra á Akureyri.
Ástæða þessarar miklu umferðar
var að Samherji bauð starfs-
mönnum og mökum í árshátíðar-
ferð til Póllands. Auk þess fóru það-
an skemmtikraftar til að skemmta
gestunum.
Þrjár þotur Icelandair fóru frá
Akureyri til Gdansk í gær og sú
fjórða fer í dag frá Akureyri til Pól-
lands. Fimmta þotan fer svo frá
Keflavíkurflugvelli í dag með fólk á
árshátíðina. Um 900 manns taka
þátt í árshátíðarferðinni. Árshá-
tíðin verður haldin í bænum Sopot,
mitt á milli Gdansk og Gdynia.
Hjördís sagði að greiðlega hefði
gengið að afgreiða alla þessa far-
þega enda hefði það verið undir-
búið vel. Flugvélarnar fóru ekki all-
ar á sama tíma og dreifðist
umferðin yfir daginn og var vel við-
ráðanleg, að sögn Hjördísar.
gudni@mbl.is
Árshátíðarstemning
á Akureyrarflugvelli
Ljósmynd/Þorgeir Baldursson
Akureyri Það vakti athygli þegar þotur Icelandair komu í gær að sækja fólkið í árshátíðarferðina.
Ljósmynd/Þorgeir Baldursson
Hátíðarskap Það var létt stemning
í flugstöðinni og tilhlökkun í lofti.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Von er á að fyrstu arfhreinu Aber-
deen Angus kálfarnir hér á landi
fæðist í september í einangrunar-
stöð Nautgriparæktarmiðstöðvar
Íslands (NautÍs) á Stóra-Ármóti í
Flóahreppi. Fósturvísar úr norskum
kynbótagripum voru settir upp í 32
íslenskar kýr í desember. Skoðun
hefur leitt í ljós að ellefu kýr hafa
fest fang þannig að aðeins er von á
11 kálfum í fyllingu tímans.
Sigurður Loftsson, formaður
stjórnar NautÍs, segir að þegar
komin verði regla á fósturvísaupp-
setningu ætti að geta náðst 50% ár-
angur. Innflutningurinn hefði dreg-
ist og uppsetningin lent á dimmasta
tíma ársins í vetur auk þess sem
streita hafi verið í umhverfinu þar
sem verkefnið var að hefjast. Telur
hann að miðað við þessar aðstæður
sé hægt að vera sáttur við þriðjungs
árangur.
Búið er að panta nýja fósturvísa
og er ætlunin að setja þá upp á hent-
ugri tíma, í ágúst. Þannig verður það
í framhaldinu.
Nautkálfarnir seldir
Fyrstu kálfarnir munu fæðast í
september og fara í einangrun
vegna sóttvarna á Stóra-Ármóti.
Tekið verður sæði úr nautkálfunum
næsta sumar og byrjað að selja
bændum sem eru með holdanauta-
hjarðir. Þegar fengist hefur vottorð
um að nautin séu laus við alla sjúk-
dóma verða nautkálfarnir seldir sem
kynbótagripir til bænda Ekki hefur
verið ákveðið hvernig það verður
gert. Þar sem búist er við að eftir-
spurn verði eftir kynbótagripunum
hefur komið til tals að bjóða þá upp.
Sigurður segir að stöðin verði þó
einnig að huga að því sjónarmiði að
gripirnir dreifist um landið svo að
sem flestir geti notið starfsins.
Ákvörðun hafi ekki verið tekin um
fyrirkomulagið.
Kálfar undan þessum gripum
ættu að fæðast á árinu 2020 og ef allt
gengur samkvæmt áætlun ætti kyn-
bótastarfið að skila sér í beinum af-
urðum, nautakjöti af fljótvaxnari
gripum, á markað í lok árs 2021 eða
byrjun árs 2022.
Kvígurnar sem fæðast í haust og
síðar verða notaðar til að byggja upp
kynbótastofn á Stóra-Ármóti. Eftir
um það bil þriggja ára starf verður
kominn nægilega stór og góður
stofn, um 20 kýr, til þess að hægt sé
að draga úr innflutningi fósturvísa
og grundvalla kynbótastarfið mest á
sæðingum. Innflutt sæði er mun
ódýrara en fósturvísar. Hver fóstur-
vísir kostar nokkuð á annað hundrað
þúsund krónur.
Flestir undan sama nautinu
Tilviljun ræður því að tíu af ellefu
kálfum sem fæðast væntanlega í
haust eru undan sama nautinu. Þótt
faðirinn sé úrvals kynbótagripur,
Li’s Great Tigre, er það talinn ókost-
ur vegna skyldleikans. Þá eru þeir
fósturvísar sem NautÍs á í birgðum,
frá innflutningi á síðasta ári, allir úr
þessu sama nauti. Til þess að reyna
að tryggja viðunandi fjölbreytni
ákvað stjórn miðstöðvarinnar að
kaupa fleiri fósturvísa í ár en annars
hefði verið þörf á.
Aðeins 11 kálfar
úr 32 fósturvísum
Fyrstu arfhreinu Aberdeen Angus
kálfarnir hér á landi fæðast í haust
Ættfaðir Kynbótanautið Lı́s Great Tigre er úr Sogni í Noregi eins og marg-
ir landnámsmenn Íslands. Það mun setja mark sitt á holdanautastofninn.