Morgunblaðið - 13.04.2018, Síða 11

Morgunblaðið - 13.04.2018, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. APRÍL 2018 Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Þessar niðurstöður eru áhyggju- efni og er mengun sem þessi ekki ásættanleg. Það á ekki að vera svo að þeir sem eru viðkvæmastir fyrir þurfi að halda sig innandyra þegar mengunartoppar eins og þessir myndast,“ segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auð- lindaráðherra við Morgunblaðið og vísar til þeirrar miklu loftmengunar sem myndaðist á höfuðborgarsvæð- inu um síðastliðin áramót. Niðurstöður rannsókna sýna m.a. að svifryk mældist afar hátt um ára- mótin og var stór hluti þess mjög fínn, það var málmríkt, kolefnisríkt, brennisteinsríkt og klórríkt. Slík mengun er sögð afar varasöm fólki. Guðmundur Ingi segir brýnt að skoða málið nánar og verður það verkefni nýs aðgerðahóps í loft- gæðamálum. „Búið er að óska eftir tilnefningum í aðgerðahópinn sem á að fylgja eftir gildandi loftgæða- áætlun. Ég mun beina því til hóps- ins að leggja áherslu á að fylgja eft- ir aðgerðum er varða svifryk og svifryksmengun til samræmis við hana, enda aðkallandi,“ segir hann og heldur áfram: „Að mínu mati þurfum við að skoða það sérstak- lega hvort við eigum líka að taka mið af mengunartoppum eins og meðaltölum yfir tiltekinn tíma þeg- ar við setjum viðmið varðandi loft- gæði.“ Ekki gert á kostnað loftgæða Spurður hvort taka þurfi til að- gerða sem miða að því að draga úr áhrifum skotelda á loftgæði kveður Guðmundur Ingi já við. „Við verðum vitanlega að bregð- ast við. Það er ljóst að stór hluti tekna björgunarsveita kemur frá sölu skotelda. Einn angi viðbragðs- ins verður að taka mið af því að björgunarsveitirnar geti áfram fjár- magnað sína mikilvægu og ósér- hlífnu vinnu án þess þó að það verði á kostnað loftgæða,“ segir hann. Jón Svanberg Hjartarson er framkvæmdastjóri Slysavarna- félagsins Landsbjargar. Hann segir niðurstöður rannsókna á svifryki vegna skotelda um síðastliðin ára- mót hafa verið sendar framleiðend- um skotelda í Kína. „Um leið og við sáum þessa skýrslu sendum við upplýsingar úr henni til framleið- enda okkar. Við munum hitta þá úti í Kína um miðjan apríl næstkom- andi og þá verða þessi mál eflaust til umræðu,“ segir Jón Svanberg. „Hvort við fáum á þeim fundi ein- hverjar hugmyndir eða leiðbeining- ar um hvernig hægt sé að minnka mengun veit ég ekki.“ Þá segir hann björgunarsveitir vera „stöðugt á tánum“ þegar kem- ur að nýjum fjármögnunarleiðum. „Ég sé þó ekkert í hendi sem gæti leyst flugeldasölu af hólmi. Þetta eru það miklir hagsmunir. Í dag yrði það ekki leyst öðruvísi en með aukinni aðkomu ríkisins í formi fjár- magns.“ Morgunblaðið/Hari Heilsuspillandi Mikil skoteldaþoka lagðist yfir öll hverfi borgarinnar. Loftmengun um áramót óviðunandi  Bregðast verður við vegna loftmengunar frá skoteldum Guðmundur Ingi Guðbrandsson Jón Svanberg Hjartarson Kringlunni 4c – Sími 568 4900 sileg föt frá Við erum á facebook Bæjarlind 6 | sími 554 7030 30% afsláttur af völdum vörum Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Umhverfis- og auðlindaráðherra skilaði skýrslu til Alþingis um að- draganda og útgáfu starfsleyfis til kísilverksmiðjunnar Sameinaðs síli- kons hf. í Helguvík í gær. Í skýrsl- unni kemur m.a. fram að ef eigi að vera áframhaldandi starfsemi í verk- smiðjunni í Helguvík þurfi rekstrar- aðilar að uppfylla kröfur laga og reglugerða um starfsemina. Í því sambandi þurfi að ljúka endanlegum úrbótum í tengslum við mann- virkjagerðina og skipulag. Þá hafi Umhverfisstofnun tilkynnt rekstr- araðila um endurskoðun á starfsleyfi verksmiðjunnar m.a. vegna nauð- synlegrar uppfærslu í ljósi breyt- inga á lögum. Í skýrslunni segir ráðuneytið að það sé ljóst að rekstraraðili Samein- aðs sílikons hf. uppfyllti ekki til- teknar kröfur í lögum og reglugerð- um auk þeirra krafna sem settar voru fram af stjórnvöldum. Þá hafi útgefið byggingarleyfi og mann- virkjagerð hvorki verið í samræmi við mat á umhverfisáhrifum né gild- andi skipulag. Ráðuneytið tekur einnig fram að Umhverfisstofnun hafi aldrei haft jafnumfangsmikið eftirlit með atvinnurekstri og reynslan af því víðtæka eftirliti sem haft var með starfsemi verksmiðj- unnar í Helguvík hafi þegar verið nýtt við undirbúning starfsleyfa fyr- ir sambærilega starfsemi á öðrum stöðum, s.s. með ítarlegri ákvæðum um varnir gegn lyktarmengun við útgáfu starfsleyfis kísilverksmiðju PCC við Bakka á Húsavík. „Ljóst er að málefni Sameinaðs sílikons hf. eiga sér engin fordæmi hérlendis. Mikilvægt er að læra af þeirri reynslu sem hér hefur skap- ast,“ segir í niðurlagi skýrslunnar. Önnur skýrsla á leiðinni Ríkisendurskoðun vinnur nú að úttekt og gerð annarrar skýrslu um málefni Sameinaðs sílikons, þar sem könnuð verður á heildstæðan hátt aðkoma og eftirlit stjórnvalda með uppbyggingu og rekstri verksmiðj- unnar í Helguvík. Ríkisendurskoðun er jafnframt að skoða það sem snýr að ívilnunum stjórnvalda til starf- semi af þessu tagi. Ráðuneytið tekur þá fram að þegar skýrsla Ríkisend- urskoðunar liggi fyrir muni ráðu- neytið taka til skoðunar tilmæli stofnunarinnar til ráðuneytisins og stofnana þess sem þar kunna að koma fram. Morgunblaðið/Rax Sameinað sílikon Kísilverksmiðja United Silicon í Helguvík verður ekki opnuð að nýju fyrr en tryggt er að verksmiðjan uppfylli lög og reglur. Verksmiðjan þarf að standast lög  Umfangsmesta mál Umhverfis- stofnunar  Ljúka þarf úrbótum Allt að 117% eða 8.050 kr. munur er á umfelgun fyr- ir stóra jeppa með 18 tommu dekk. Eftir því sem dekkin eru minni því minni er verð- munurinn. Þetta kemur fram í verðkönnun á umfelgun sem Verð- lagseftirlit ASÍ framkvæmdi á mánu- dag. Könnunin var framkvæmd á 30 hjólbarðaverkstæðum víðsvegar um landið og var Bifreiðaverkstæðið Stormur á Patreksfirði oftast með lægsta verðið eða í 9 tilvikum af 10 en Klettur var oftast með það hæsta eða í 5 tilvikum af 10. Nicolai bílaverkstæði býður upp á lægsta verðið á umfelgun 18 tommu dekkja, 6.900 krónur, en það hæsta er hjá Kletti, 14.950 krónur. Verðmun- urinn er minni, 82% eða 5.096 krónur á umfelgun fyrir jepplinga með 16 tommu dekk, en lægsta verðið mátti finna hjá Stormi á Patreksfirði, 6.200 krónur en það hæsta á Hjólbarða- verkstæði Ísafjarðar, 11.296 krónur. Verðmunurinn er síðan kominn í 51%-54% fyrir minni bíla. Mikill verð- munur á umfelgun

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.