Morgunblaðið - 13.04.2018, Side 16

Morgunblaðið - 13.04.2018, Side 16
Ný hönnun Hagkaupsverslana í Smáralind og Kringlunni fékk á dög- unum gullverðlaun í The Transform Awards Europe, fyrir bestu upplifun á vörumerki eða „Best Brand Ex- perience“, eins og verðlaunin heita á frummálinu. Í tilkynningu frá Hagkaupi segir að verðlaunin séu aðeins ein af mörgum viðurkenningum sem hönn- unin hefur fengið síðustu misseri, en alls hefur hún verið tilnefnd til verð- launa í fjórum alþjóðlegum hönn- unarkeppnum upp á síðkastið. Auk gullsins þá vann hönnunin silfur í DBA Design Effectiveness Awards fyrir áhrifamestu breytingar á versl- un. Gunnar Ingi Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri Hagkaups, segir í til- kynningunni að um mikla viðurkenningu sé að ræða. Við- skiptavinirnir hafi auk þess tekið breytingunum vel. tobj@mbl.is Hagkaup fékk gull Útlit Breytingar verslananna hófust í Hagkaupi í Smáralind árið 2016. Ríkið beri ábyrgð á ímyndinni  Ferðaþjónustan getur ekki borið ábyrgð á ímynd viðkomandi lands, segir sérfræðingur á þessu sviði  Auglýsingar nægja ekki til að bæta orðspor þjóða BAKSVIÐ Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is „Sumir telja, þó ekki á Íslandi, að ferðaþjónusta sé ábyrg fyrir ímynd viðkomandi lands. Það stenst ekki skoðun. Land hefur upp á svo miklu meira að bjóða en einungis ferða- þjónustuna. Stjórnvöld ættu að bera ábyrgðina,“ segir dr. Robert Govers, í samtali við Morgunblaðið. Hann flutti erindi á ársfundi Íslandsstofu í gær sem fram fór fyrir fullu húsi á Grand Hótel. Glovers segir að ef litið sé svo á að ferðaþjónustan beri ábyrgð á ímynd viðkomandi lands geti það haft í för með sér að lagðir séu ríkulegir fjár- munir í auglýsingaherferðir í fjöl- miðlum. „Við þær aðstæður hefði náðst betri árangur við að laða að er- lenda ferðamenn hingað fyrir minna fé með því að beina kröftunum að ferðaheildsölum og tryggja góðar flugsamgöngur til landsins,“ segir hann. Hann gerir greinarmun á mark- aðsmálum (e. marketing) og þróun vörumerkis (e. branding). Markaðs- mál lúti að því að kynna vöru og þjónustu og markaðurinn ráði því hvernig til tekst. „Þróun vörumerkis þjóðar snýr að því hvaðan þið komið, hver sjálfsvitund ykkar er, hvernig þið hagið ykkur, og fleira, og hvernig það er nýtt til að skapa orðsporið.“ Það er 80% fylgni á milli þeirra landa sem flestir hafa í hávegum og þeirra sem leggja mest til heimsmál- anna að teknu tilliti til höfðatölu, seg- ir Glovers. Hann á þar við framlag til vísinda, tækni, menningar, umhverf- isins, loftslagsmála og fleira. „Af þeim sökum stoðar ekki að auglýsa á CNN og BBC World til þess að bæta ímyndina,“ segir Glover. „Ég hef ekki séð rannsóknir sem benda til þess að þjóðir sem eytt hafa miklu í stórar auglýsingaherferðir hafi bætt orðspor sitt. Þótt vissulega hafi þeim auðnast að fjölga ferðamönnum.“ Framarlega í tækni Glover tekur Eistland og borgina Haag sem dæmi. Eistland, sem gat af sér Skype, hafi lagt ríka áherslu á að vera framarlega á internetinu til þess að skapa dýnamískt samfélag og aðgreina sig frá öðrum baltnesk- um löndum. Haag sé fámenn borg, þar búi 300 þúsund manns, en hún sé samt sem áður þekkt því þar sé Al- þjóðadómstóllinn á vegum Samein- uðu þjóðanna. Borgin hafi því hafist handa við að hleypa af stokkunum viðburðum sem tengjast friði. Talið berst að því hvort ferðamenn séu orðnir of margir hér á landi. Hann segir að vöxturinn hafi verið hraður á undanförnum árum en bendir á að fyrir þann tíma hafi fáir ferðamenn heimsótt landið. Gert sé ráð fyrir að einungis 2,5 milljónir ferðamanna komi til landsins í ár. „Miðað við land af þessari stærð þykir það ekki mikið, þótt það þyki mikið miðað við höfðatölu. Til sam- anburðar heimsækja 20 milljónir manna París á ári – ekki það að ég sé að mæla með að jafn margir ferðamenn sæki Ísland heim,“ segir hann. Verkefnið framundan, ef vilji sé fyrir hendi, sé að skapa aðstöðu og innviði fyrir ferðamenn. „Ég tel að núverandi fjöldi ferðamanna hafi ekki neikvæð áhrif á orðspor lands- ins.“ Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Dr. Glover Ferðamannafjöldi á Íslandi hefur ekki neikvæð áhrif á orðsporið. Góðir lifnaðarhættir auka vegsauka » Það er 80% fylgni á milli þeirra landa sem flestir hafa í hávegum og þeirra sem leggja mest til heimsmálanna að teknu tilliti til höfðatölu, segir dr. Robert Glovers. 16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. APRÍL 2018 lækka upphitunarkostnað Rafstjórn tekur út og þjónustar kæli- og loftræstikerfi Varmadælur Stangarhyl 1A • 110 Reykjavík • Sími 587 8890 • rafstjorn.is Verð frá kr. 181.890 m/vsk ❁ Auðveldara að þrífa penslana ❁Gufar ekki upp ❁Má margnota sama löginn ❁Notendur anda ekki að sér eiturefnum ❁ Bjargar hörðnuðum olíumálningarpenslum ❁UNDRI brotnar hratt niður í náttúrunn Hágæða umhverfisvæn hreinsivara Fást í betri byggingavöruverslunum og matvöruverslunum Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á Bendir bankinn á að velta með atvinnuhúsnæði hafi vaxið mikið að raunvirði frá árinu 2013 og að hún hafi verið sérlega mikil undir lok síðasta árs. Hins vegar hafi versl- unar- og skrifstofuhúsnæði á höfuð- borgarsvæðinu skorið sig út í þessu efni því þar hafi veltan dregist sam- an. „Hafi hátt verð verslunar- og skrifstofuhúsnæðis haldið aftur af kaupendum atvinnuhúsnæðis á árinu er það e.t.v. til marks um sterkari áhættuvitund atvinnurek- enda og lánveitenda en í síðustu uppsveiflu,“ segir í ritinu. Útlán og aðrar kröfur viðskiptabankanna með veði í atvinnuhúsnæði námu 834 milljörðum í lok síðasta árs og jafngildir það 32% af heildarút- lánum innlánsstofnana. Umfang áhættuskuldbindinga bankanna sem tengjast atvinnu- húsnæði er svipað og það sem snýr að íbúðarhúsnæði. Seðlabankinn bendir hins vegar á að markaðirnir tveir séu ólíkir og sveiflurnar á markaði með atvinnuhúsnæði mun meiri. Þannig sé breytileiki raun- verðs „tvö- til fimmfalt meiri á atvinnuhúsnæði en íbúðum á höfuð- borgarsvæðinu síðasta aldarfjórð- unginn, eftir mismunandi mæli- kvörðum.“ Raunverð atvinnuhúsnæðis hefur hækkað mikið hin síðustu ár. Frá árinu 2014 hefur hækkunin verið á bilinu 10-21% á ári og reyndist 16,6% á síðasta ári. Þetta kemur fram í nýju riti Seðlabanka Íslands, Fjár- málastöðugleika, sem bankinn gefur út árlega. Segir þar að raunverð at- vinnuhúsnæðis sé hátt í sögulegu samhengi og að það hafi hækkað talsvert umfram verðvísitölu vergrar landsframleiðslu á umliðnum árum. Það sé til marks um að húsnæðis- kostnaður sé að aukast umfram af- komu fyrirtækja og verðlag þeirrar framleiðslu sem húsnæðið hýsir og einnig umfram byggingarkostnað. Aukin áhætta í atvinnuhúsnæði  Útlán og aðrar kröfur bankastofnana með veði í atvinnuhúsnæði 834 milljarðar Morgunblaðið/Eggert Spenna Mikið hefur verið byggt af atvinnuhúsnæði á síðustu árum. 13. apríl 2018 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 98.82 99.3 99.06 Sterlingspund 140.14 140.82 140.48 Kanadadalur 78.43 78.89 78.66 Dönsk króna 16.366 16.462 16.414 Norsk króna 12.704 12.778 12.741 Sænsk króna 11.734 11.802 11.768 Svissn. franki 102.65 103.23 102.94 Japanskt jen 0.922 0.9274 0.9247 SDR 143.64 144.5 144.07 Evra 121.86 122.54 122.2 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 146.8431 Hrávöruverð Gull 1345.2 ($/únsa) Ál 2251.0 ($/tonn) LME Hráolía 71.03 ($/fatið) Brent Akureyrarbær var rekinn með 557 milljóna króna afgangi á árinu 2017 þegar tekið hefur verið tillit til ríflega 1.123 milljóna króna gjald- færslu vegna lífeyris- skuldbindinga á árinu. Árangurinn er nokkru betri en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir, en meginskýringin sem gefin er á því í tilkynningu frá bænum er að fjármagnskostnaður samstæð- unnar var lægri en áætlun ársins gerði ráð fyrir. Bætt afkoma Akureyrar Uppgjör Lægri fjár- magnskostnaður.  Niðurstaða síðasta árs umfram áætlun

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.