Morgunblaðið - 13.04.2018, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 13.04.2018, Qupperneq 22
Umræðan MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. APRÍL 2018 Ásmundur Frið- riksson þingmaður var í fréttum fyrir skemmstu vegna þess að hann hefur hugsanlega misnotað ökutækjastyrk (=ökustyrk) sem hann fær frá Alþingi í eigin þágu. Morgun- útvarpið á Rás 2[1] fékk FÍB til að reikna út hvað það kostar að reka bíl eins og þann sem Ásmundur á í eitt ár. Niðurstaðan var sú að reksturinn, með fjármagnskostn- aði, kostar 2,07 milljónir á ári en það er um 2,53 milljónum króna minna en Ásmundur fékk í endur- greiddan aksturskostnað í fyrra sem var 4,6 milljónir króna. Mikið hefur verið rætt og ritað um þátt Ásmundar en látum hans þátt liggja milli hluta. Það sem þetta mál varpar ljósi á fyrst og fremst er meðferð ökustyrkja í skattalegu tilliti samkvæmt tekju- skattslögum og skattmati Ríkis- skattstjóra (Rsk.)[2]. Þingmaður- inn fær greitt 4,6 millj. og um 55% af upphæðinni er umfram rekstr- arkostnað ökutækis sem nemur aðeins 45% af endurgreiddum aksturskostnaði. Endurgreiddur ökustyrkur er sem sagt langt um- fram eðlilegan rekstrarkostnað bíls. Fjárhæðin á km sem út er greidd er í samræmi við ákvörðun ferðakostnaðarnefndar ríkisins [3] en sú upphæð er mjög rífleg og umfram skattmat Ríkisskattstjóra Rsk. og skattmat Rsk. er síðan enn umfram rekstrarkostnað bíls þannig að það er útilokað annað enn að fá ofgreiddan ökustyrk. Hvernig Ásmundi farnast í skatta- skýrslunni þegar hann telur akst- urinn fram hefur ekki komið í ljós en gera má því skóna að hann ríði feitum hesti frá þeim viðskiptum við Rsk. Mergur málsins er að skattlagn- ing ökustyrkja er með þeim hætti frá hendi tekjuskattslaga og skatt- mats Rsk. að menn stórgræða á því að fá greidda ökustyrki því þeir eru langt umfram rekstrar- kostnað og skattaeftirlit er síðan nánast ekkert. Því er mikil freist- ing fyrir hendi að dul- búa laun og yfirborg- anir sem ökustyrki. Það er því líklega viða stundað í atvinnulífinu að greiða mönnum ökustyrki fyrir akstur sem þeir inna ekki af hendi fyrir vinnuveit- endur einfaldlega vegna þess að því fylgir skattalegt hag- ræði fyrir báða aðila, launamann og vinnu- veitanda. Launamaður þarf ekki að greiða tekjuskatt af þessum tekjum eða a.m.k. mjög lágt skatthlutfall og launagreið- andi getur greitt hærri laun án þess að standa skil á trygginga- gjaldi og öðrum launatengdum gjöldum. Skattlagning ökustyrkja er með þeim hætti að tekju- skattshlufall fyrir þann hluta öku- styrkja sem er umfram rekstrar- kostnað ökutækis nálgast 0% ef menn halda akstrinum innan ákveðinna marka. Jafnvel þótt mikið sé ekið eins og hjá Ásmundi eru reglurnar það lausar í reip- unum að skatthlutfallið af þessum tekjum verður mjög lágt. Misnotkun ökustyrkja er þrí- þætt: 1. Greiddir eru ökustyrkir fyrir akstur sem er ekki inntur af hendi fyrir vinnuveitanda. Oft er það gert i formi yfirborgana upp að þeim mörkum í skattmati Rsk. að ekki þurfi að telja fram rekstrar- kostnað bíls (um 3.000 km. = 330.000 kr)[4]. 2. Upphæðin sem ferðakostn- aðarnefnd ríkisins ákvarðar er allt of há m.v. raunverulegan rekstrar- kostnað bils og kostnaðarmat Rsk. er sömuleiðis of hátt. 3. Skattlagning ofgreiddra öku- styrkja er of lág og langt undir skattlagningu venjulegra launa- tekna. Sem dæmi má nefna að hægt er að draga sömu upphæð frá sem afskriftir af bíl ár eftir ár óháð verðgildi bílsins í skatt- framtali. T.d. má draga frá 0,72 millj. í afskriftir fyrir bíl sem upp- haflega kostar 1,5 milljónir. Eftir að hafa átt bílinn í 8 ár er búið að afskrifa þennan 1,5 millj. kr. bíl um 5,7 milljónir sem koma til frá- dráttar í framtali eða gróft talið um 4 milljónir umfram raunveru- legt kaupverð. Þar sem ökutækið er einkabíll og er líka notað til einkaerinda er ekki eðlilegt að rík- ið niðurgreiði kaupverðið að fullu og meira til. Það er líklega óþarfi að taka það fram að það eru sennilega karlar sem eru oftast þiggjendur ökustyrkja og gæti þetta verið umtalsverður þáttur í launamun kynjanna. Að mínu mati er það slæmt að byggja upp kerfi sem mismunar fólki eftir því á hvaða formi launa- tekjur þess eru greiddar. Það ætti að vera sama eða svipað skatthlut- fall fyrir launatekjur, fjármagns- tekjur, hlunnindagreiðslur og öku- styrki. Besta leiðin til að draga úr misnotkun ökustyrkja er líklega að lagfæra skatthlutfall þeirra þannig að það verði ekki lægra en lægsta skattprósenta launatekna. Við það ætti sjálfkrafa að draga úr þessari misnotkun. Ríkisskatt- stjóri ætti líka að gefa skýr skila- boð um að misnotkun ökustyrkja verði ekki liðin. Ríkisstjórnin ætti sömuleiðis að skipa ríkisstofn- unum að hætta að nota ökustyrki sem yfirborganir ef það tíðkast enn þá. [1] http://www.ruv.is/frett/ kostar-rumar-2-milljonir-ad-reka- bil-asmundar [2] https://www.rsk.is/ein- staklingar/tekjur-og-fradraettir/ okutaekjastyrkur/#tab1 [3]https://www.stjornarradid.is/ verkefni/mannaudsmal-rikisins/ kjarasamningar-laun-og-starfs- kjor/ferdakostnadur/auglysingar/ [4] https://skattalagasafn.rsk.is/ ?reg=591.1987.0&tab=1 (1. mgr. 3. gr. „ ... undir þeim mörkum sem ríkisskattstjóri setur hverju sinni.“). Misnotkun ökutækjastyrkja Eftir Árna Davíðsson Árni Davíðsson »Kerfi sem mismunar launamönnum eftir formi tekna er slæmt. Svipað skatthlutfall ætti að vera fyrir ökustyrki og venjulegar launa- tekjur. Höfundur er líffræðingur. arnid65@gmail.com citroen.is KOMDU OGMÁTAÐU CITROËN C4 CACTUS 2.540.000KR. VERÐ ÁÐUR 2.940.000 KR. Nýir og notaðir bílar: Söludeildir eru opnar alla virka daga kl. 9-17 og laugardaga kl. 12-16 Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 8, S. 515 7040 I Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, S. 515 7050 Í tilefni þess að nýr C4 Cactus verður kynntur í maí þá seljum við síðustu bílana af núverandi gerð með 400.000 kr. afslætti! Keyrðu inn í vorið á nýjum, sparneytnum Citroën C4 Cactus! Citroën C4 Cactus er nettur en rúmgóður með opið og bjart innra rými. Mælaborðið er stílhreint og 7” snertiskjárinn gerir allar aðgerðir einfaldar og þægilegar. Citroën C4 Cactus er sparneytinn, með skilvirkri vél og nýrri undurþýðri sjálfskiptingu. CITROËN C4 CACTUS FEEL SJÁLFSKIPTUR FRÁ Á aðalfundi Lands- samtaka sauðfjár- bænda sem haldinn var fyrir nokkru var vandi greinarinnar mjög til umræðu. Ætti það ekki að koma neinum á óvart enda hefur þessi vandi ver- ið til umræðu í ein- hverri mynd svo lengi sem undirritaður hef- ur fylgst með. Á undanförnum ár- um og áratugum er búið að verja gífurlegum fjárhæðum af opinberu fé í tilraunum til að leysa vandann, bæði með beinum og óbeinum framlögum, m.a. með fjárfram- lögum til að leita nýrra markaða fyrir íslenskar sauðfjárafurðir. Þrátt fyrir öll þessi opinberu inn- grip er staða íslenskra sauðfjárbúa nú verri en nokkru sinni fyrr. Af- urðastöðvarnar, sem eru að mestu í eigu bænda, hafa sl. tvö ár tilkynnt eigendum sínum um verulega lækkun á afurðaverði. Skýringar sem gefnar hafa verið eru tíma- bundnir erfiðleikar á erlendum mörkuðum. Enn var því seilst í vasa skattgreiðenda sl. haust þegar 665 milljónum króna var úthlutað til að leysa hinn tímabundna vanda. Svo vísað sé til mats sauðfjárbænda sjálfra er staðan í greininni sú að búin teljast vart rekstr- arhæf. Erfitt er að sjá hvernig vandi grein- arinnar geti verið tímabundinn. Sam- kvæmt nýútkominni ársskýrslu Slátur- félags Suðurlands er framleiðsla á kindakjöti um 50% umfram innan- landsmarkað. Útflutningur, án op- inbers stuðnings, mun í fyr- irsjáanlegri framtíð ekki geta skilað þeim tekjum sem réttlætt geta útflutning. Hann skilar af- urðastöðvunum 30-50% lægra verði en innanlandsmarkaður. Þrátt fyrir að afurðastöðvar séu flestar í eigu bænda dró formaður Landssamtaka sauðfjárbænda upp þá mynd af stöðunni að bændur væru valdalausir í verðlagsmálum sínum og vandi þeirra lægi fyrst og fremst í „fákeppni í smásölunni“. Sala og markaðssetning sauðfjár- afurða á innanlandsmarkaði er í höndum afurðastöðvanna. Afurða- stöðvarnar eru í sömu stöðu og aðrir birgjar á markaði, hvort sem þeir heita heildsalar eða iðnrek- endur, afurðir þeirra eru í sam- keppni við aðrar vörur um hylli neytenda. Sú spurning er óneitan- lega áleitin hvort afurðastöðvarnar hafi sinnt þörfum viðskiptavina sinna vel, t.d. varðandi vöruþróun. Vandi sauðfjárbænda hefur ekk- ert með aðstæður á smásölumark- aði að gera. Vandi sauðfjárbænda er einfaldlega sá að þeir framleiða langt umfram það sem markaður- inn hefur þörf fyrir. Fyrsta verk- efnið til lausnar á vanda greinar- innar hlýtur því að vera að aðlaga framleiðsluna þörfum markaðarins og að sinna betur þörfum við- skiptavina sinna. Sauðfjárbændur og samkeppnin Eftir Andrés Magnússon » Vandi sauðfjár- bænda er einfald- lega sá að þeir framleiða langt umfram það sem markaðurinn hefur þörf fyrir. Andrés Magnússon Höfundur er framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.