Morgunblaðið - 13.04.2018, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 13.04.2018, Blaðsíða 29
MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. APRÍL 2018 Nýleg og kær minning um frænku er þegar ég, Elfa og Skírnir komum í heimsókn í Ás- búð. Frænka bað Sigga að kaupa uppáhaldskökuna mína og gaf Elfu nýja ævintýrabók. Svona stjanaði hún alltaf við okkur. Elfa knúsaði frænku í bak og fyrir og vildi bara kúra hjá henni í sófanum sem frænka kunni vel að meta. Bókina höfum við lesið hvert einasta kvöld síð- an og þá verður manni hugsað til frænku. Söknuðurinn er sár, elsku frænka, en ég er þakklát fyrir allar góðu minningarnar sem við eigum um þig Kveðja, Arna. Þegar mikilvægar manneskj- ur hverfa á vit feðra sinna og mæðra virðist mér lífið sjálft tapa svolitlu af litadýrð sinni og fegurð. Frænka var ein af þess- um manneskjum sem lituðu mína veröld með skærum fal- legum litum. Frænka var ríkulega gædd hæfileikum og eiginleikum sem fjölskylda hennar öll fékk að njóta. Hún var glaðlynd, góð- hjörtuð og hafði alltaf tíma fyrir fólkið sitt. Hún sýndi mér ávallt einlæga væntumþykju og hafði áhuga á öllu því sem ég tók mér fyrir hendur. Frænka var höfðingi heim að sækja, bauð alltaf upp á eitthvað gott með kaffinu – oft nýbakaða jólaköku eða hjónabandssælu. Heimsóknirnar urðu líka oftast langar því við höfðum svo margt að ræða. Eitt er víst, að við fáum mis- mikinn tíma á þessari jörð. Elsku frænka mín hefur kvatt þetta jarðlíf nú þegar farfugl- arnir tínast til landsins með boð um bjartari daga. Ég bið því vorboðann ljúfa fyrir kveðju til frænku. Vorboðinn ljúfi, fuglinn trúr, sem fer með fjaðrabliki háa vegaleysu í sumardal, að kveða kvæðin þín, heilsaðu einkum, ef að fyrir ber engil, með húfu og rauðan skúf, í peysu; þröstur minn góður, það er stúlkan mín. (Jónas Hallgrímsson) Elsku frænka, takk fyrir allt og allt – ég mun sakna þín alltaf. Þín bróðurdóttir, Margrét Soffía Einarsdóttir. Í dag kveðjum við kæra vin- konu, Steinunni Marinósdóttur, eða Steinu eins og við kölluðum hana. Við fimm kynntumst og unnum saman á innanlandsflugi Flugleiða fyrir rúmum 30 árum og höfum haldið hópinn síðan. Við unnum mislengi saman og engin okkar vinnur þar nú, en þar myndaðist vinátta okkar sem hefur haldist síðan. Okkur finnst skemmtilegt að fara í ferðalög saman og við höf- um ekki tölu á því hvað við höf- um farið í margar utanlands- ferðir. Að vinna fyrir flugfélag gerði okkur kleift að komast í ferðalög á góðum kjörum og það nýttum við okkur óspart. Eftir að því tímabili lauk fundum við aðrar leiðir til að komast út í heim á hagstæðum kjörum. Við lentum í ótrúlegustu æv- intýrum á þessum ferðalögum okkar og þreyttumst ekki á að hittast á milli ferða og rifja þau upp og hlæja út í eitt. Það var af nógu að taka. Stundum gátu lið- ið mánuðir og einstaka ár á milli þess að við hittumst en það skipti engu máli því það var allt- af eins og við hefðum hist í gær. Vinátta okkar hefur verið góð og samskipti einkennst af væntum- þykju og gleði. Steina var skemmtilegur fé- lagi og hafði smitandi hlátur. Hún hafði ríka frásagnargáfu og átti til að krydda örlítið frásagn- ir sínar til að gera þær meira spennandi. Hún hafði líka gam- an af að segja frá og hló þá gjarnan svo mikið sjálf að hún mátti vart mæla. Hún hafði notalega nærveru, var létt í lund og alltaf til í ný ævintýri. Hún vann lengst af í fjölbreyttum störfum tengdum ferðaþjónustu þar sem hæfileikar hennar nýtt- ust vel. Steina var mikil fjölskyldu- kona. Henni var annt um allt sitt fólk, lagði sig fram um að hlúa að þeim og gera þeim gott. Hún átti stóra fjölskyldu, eiginmann, syni og barnabörn og eitt lang- ömmubarn. Við vottum þeim öll- um, systkinum hennar og móður dýpstu samúð. Nú hefur Steina kvatt eftir erfið veikindi. Það eru ekki nema rúmir fjórir mánuðir síðan við vinkonurnar vorum í síðustu ferðinni okkar saman. Steina var þá orðin veik, en ekki vonlaus um að sigrast á þessum ófögn- uði. Við fórum til Chicago en þangað höfðum við ekki farið saman áður. Hún stóð sig eins og hetja, tók þátt í öllu og kvart- aði aldrei þó svo að engum hefði dulist að hún væri að heyja erf- iða baráttu. Við vinkonur hennar í frúarfélaginu eigum eftir að sakna hennar sárt; glettna bliks- ins í fallegu augunum hennar, dillandi hlátursins, velviljans og væntumþykjunnar sem hún bar til okkar. Við kveðjum hana með mikl- um trega í dag en við geymum minningarnar um hana í hjarta okkar því hún var, er og verður í okkar liði. Anna Jóna, Bára, Halla og Gréta. Það leita á hugann leiftur- myndir liðins tíma þar sem þær ljúfustu ljóma skærast. Svo fór mér er ég fregnaði andlát mann- kostakonunnar Steinunnar Mar- inósdóttur. Andlát hennar kom ekki á óvart, en aðdáunarrík barátta hennar var slík allt fram til hinztu stundar að enn vonaði maður að sláttumaðurinn slyngi hikaði um stund við. En vágest- urinn grimmi hrifsaði bróður hennar fyrir skömmu og mikið er á Margréti móður þeirra lagt að horfa þannig upp á sína kæru afkomendur hverfa yfir móðuna miklu. Henni eru einlægar sam- úðarkveðjur sendar. En að svo mörgum er sannur harmur kveðinn við fráfall hennar Stein- unnar, svo dýrmæt sem hún var sínum nánustu. Minningamynd ein verður þetta, svo mæt sem hún þó er. Þegar ég kom til kennslu heima á Reyðarfirði voru þau yngstu mér hugstæðust allra. Þar var að hefja nám lítil hnyðra, ein- staklega falleg og prúð og fljótt kom hennar gjöfula greind og hinar góðu námsgáfur í ljós. En ofar öllu í minningunni er bjart bros hennar og smitandi hlátur, öll hennar framkoma sýndi vel hennar ljúflyndu eiginleika, enda varð námsdvölin hennar heima gjöful henni, samnemend- unum og ekki sízt kennaranum unga sem naut kennslunnar bezt þegar slíkir afbragðsnemendur áttu í hlut. Eðliskostina átti hún ekki langt að sækja, foreldrar hennar mikið ágætisfólk góðra og traustra eiginleika. Hún reyndist enda traust í öllum sínum lífsferli og mikilli önn, heimili hennar mun hafa borið þess fallegt vitni hversu góð húsmóðir hún var og hversu hún var góður og fórnfús uppal- andi í hvívetna. Gamli kennarinn hennar fyrstu árin man vel þetta hlýja bros hennar, kurteisina og námsgáfuna, að allt sem hún gerði var einlægni vafið og hik- laust segi ég að hún hafi verið slíkur nemandi sem allir kenn- arar óska sér allra helzt. Sigurði manni hennar og son- um svo og öllu hennar góða fólki sendum við Hanna samúðar- kveðjur. Þau öll hafa svo mikils misst. Megi minningin um sanna sæmdarkonu verma og veita birtu á veginn fram á við. Bless- uð sé hin kæra minning Stein- unnar Marinósdóttur. Helgi Seljan. ✝ Guðný HarpaKristinsdóttir húsfreyja fæddist á Akureyri 21. jan- úar 1947. Hún and- aðist á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja 29. mars 2018. Foreldrar Guð- nýjar voru Hulda Ingibjörg Péturs- dóttir, f. 7. júní 1917, d. 15. maí 1994, og Kristinn Karlsson, f. 22. október 1919, d. 22. nóv- ember 1992. Systkini Guðnýjar eru Geir Ómar Kristinsson, f. 30. ágúst 1973, hann er kvæntur Maríu Höbbý Sæmundsdóttur, börn þeirra eru Andri Páll, Arnar Ási og Guðni Sigurður. Guðný og Páll bjuggu lengst af sinni hjúskapartíð á Auðs- stöðum við Brekastíg 15b í Vest- mannaeyjum. Í Eyjagosinu bjuggu þau tímabundið í Hafn- arfirði. Guðný vann í ýmsum þjón- ustustörfum á yngri árum en Smárakaffi var alltaf efst í huga hennar. Eftir að hún flutti til Vestmannaeyja vann hún lengst í Vinnslustöðinni og Lifrar- samlaginu. Guðný var virkur meðlimur í Hvítasunnukirkjunni í Vest- mannaeyjum og á Aglow- fundum í safnaðarheimili Landakirkju. Útför Guðnýjar fer fram frá Landakirkju í Vestmannaeyjum í dag, 13. apríl 2018, klukkan 11. 1950, Ásdís Petra Kristinsdóttir, f. 18. nóvember 1951, Kristinn Birgir Kristinsson, f. 12. júlí 1955, og Yngvi Örn Kristinsson, f. 16. október 1956. Eftirlifandi eig- inmaður Guðnýjar er Páll Árnason, f. 21. júlí 1945. Frá fyrra sambandi átti Guðný með Bjarna Ragnari Haraldssyni soninn Kristin Karl Bjarnason, f. 9. mars 1966. Guðný og Páll áttu soninn Guð- mund Árna Pálsson, f. 29. júlí Guðný er flestum Eyjamönn- um minnisstæð, hún fluttist til Eyja og hóf búskap með Páli Árnasyni múrara. Ég sé ljóslif- andi myndina þegar hún trítlar niður Skólaveginn og það small í hælunum í stuttum hröðum skrefunum og hún hélt báðum höndum fast um verskið í fangi sér. Hún fór hratt yfir þótt hún væri ekki há í loftinu eða skre- flöng. Stoppaði við vegginn á Hlíðarenda og kastaði mæðinni, leit snöggt til hvorrar handar svona rétt til að kanna hvort einhver væri til að spjalla við. Þegar hún hafði náð andanum tók hún aftur sprettinn og leit inn í nokkrar búðir. Hún elskaði búðir, alls konar glingur og smáhluti og safnaði þeim á heimili sitt. Af smekkvísi valdi hún hvern hlut áður en hún gerði kaupin. Hún vildi mikið af fallegum hlutum í kringum sig og bjó fjölskyldunni heimili að hennar hætti. Guðný var trúuð kona sem sótti árum saman samkomur í Betel í Eyjum. Það gaf henni hugarró að hafa Drottin að leið- toga lífs síns og varð henni til hjálpar þegar dökk skýin hrönn- uðust upp í lífi hennar og sál. En myrkrið varð aldrei svo mik- ið að það birti ekki til og stóð fjölskyldan við bak hennar þótt gæfi á bátinn. Það var mikil gleði þegar son- ur hennar Guðmundur Árni og María Höbbý dóttir okkar hét- ust hvort öðru, giftu sig og eign- uðust drengina, barnabörnin okkar Guðnýjar. Þeir voru lífs- neistar hennar og sólargeislar. Stutt símtöl í Frostaþingið þar sem glaðlegar raddir bræðranna bræddu hjarta ömmunnar sem átti ekki meiri gleði til en líf ömmustrákanna sinna. Þeir komu líka reglulega í heimsókn til ömmu og afa í Eyjum og þá var kátt á Auðsstöðum. Ég man þegar ég sótti þá snemma morg- uns fyrir Herjólfsferð. Þeir höfðu komið sér fyrir í stofunni innan um alla fínu munina henn- ar ömmu. Þeir höfðu tekið með sér gesti og stofan var smekk- full af peyjum og allt dótið hennar ömmu var eins og með- alkjarnorkubomba hefði hitt stofuna í Auðsstöðum. Guðný var æðruleysið uppmálað og ég held að henni hafi verið alveg sama hvernig umgengnin var eftir peyjana. Það giltu aðrar reglur á heimilinu þegar svona kraftapeyjar voru á staðnum og minni- eða meiriháttar sprengjuárásir ekki mál til að æsa sig yfir. Og litli putti spila- mann, nafni ömmu sinnar, Guðni Sigurður, hafði ótakmarkaðar heimildir til að láta að sér kveða á hvern þann hátt sem hann kaus. Hún hló skærum hlátri þegar hann lét til sín taka og söng af lyst. Tónlistina og list- hneigðina sækja drengirnir til Guðnýjar og Palla og sú náð- argjöf mun fylgja þeim alla ævi og minna þá á ömmuna góðu sem leyfði þeim allt. Í dag eru það þessar stundir sem standa upp úr og fjölskyld- an minnist þegar við kveðjum góða konu sem þurfti oft að tak- ast á við lífið sem ekki var henni alltaf létt. Guðný hefur mætt skapara sínum og mun vaka yfir Palla, drengjunum sínum tveim- ur og ömmustrákunum sem kveðja góða ömmu sem var þeim kær. Við fjölskyldan erum þakklát fyrir samfélagið sem við áttum saman, fyrir tengdasoninn sem Guðný gaf dóttur okkar, dreng- ina þeirra og stundirnar góðu sem við áttum öll saman. Við vottum fjölskyldu Guðnýjar samúð á kveðjustund. Ásmundur Friðriksson og fjölskylda. Elsku vinkona mín Guðný Harpa hefur kvatt þennan heim. Ég er svo þakklát fyrir allar þær góðu minningar sem ég á frá því að ég kynntist henni sem er orðnir nokkrir tugir ára. Guðný Harpa var einlæg per- sóna og vildi alltaf gleðja mann. Þegar við hittumst var eins og hún hafi ekki séð mig í langan tíma. Þannig var hún, mat vin- áttu mikils. Við áttum margt sameigin- legt. Báðar mjög trúaðar og settum traust okkar á Drottin Jesúm. Söngur átti stóran sess í lífi Guðnýjar og oft þegar komið var saman var sungið „Er frels- arann sá ég við vatnið“, uppá- haldslag Guðnýjar. Þegar ég leit við í heimsókn til hennar var alltaf eins og þjóðhöfðingjar væru á ferð. Allt sem hún gerði bar með sér einstaka smekkvísi: hvernig hún lagði á borð og veisluföngin sem báru með sér að fagurkeri var þar á ferð. Og hvað hún elskaði barna- börnin sín. Alltaf ljómaði hún þegar hún talaði um „hjörtun hennar ömmu sinnar“. Hún bar fjölskyldu sína fyrir brjósti. Við Simmi höfum átt góðar stundir með Guðnýju og Palla. Fastur liður til margra ára var að fá þau bæði á jólum og pásk- um í mat til okkar. Gleðistundir þegar Palli greip í píanóið og Guðný gædd skemmtilegri frá- sagnargáfu með tilheyrandi bak- föllum og hlátri. Guðný var litrík persóna og stóð fast á sínu. Sterkur karakter. Hún var sannur vinur og bera margar gjafir sem hún gaf mér vitni um smekkvísi og vináttu. Hún hitti alltaf í mark með sínum gjöfum. Það var sárt að sjá þessa elsku veikjast á haustdögum 2017. Hún sem alltaf var svo duglega að ganga og fara út á meðal fólks, sækja allskonar við- burði og samkomur, gat nú allt í einu ekki komist úr rúmi. Það gerðu ekki margir sér grein fyrir hversu veik Guðný Harpa var. Hún bar það ekki á torg og var ekki að kvarta í sína nánustu og vini. Hún var ótrú- lega dugleg og æðrulaus þessa síðustu mánuði sem hún var að berjast við þennan sjúkdóm sem leiddi hana til dauða. Krabba- meinið tók hana á stuttum tíma. Guðný Harpa átti trúarfull- vissu. Hún hlakkaði til þess dags þegar allar þrautir enda og hún mætti frelsara sínum. Ég trúi því að nú sé hún á þeim afangastað sem hún hlakkaði til að komast á. Ég kveð þessa einstöku og yndislegu vinkonu mína með söknuði og bið Guð um að hugga, blessa og styrkja Palla, Kidda, Gumma, Maríu, Andra Pál, Arnar Ása og Guðna Sig- urð. Þin vinkona að eilífu, Unnur Ólafsdóttir. Guðný Harpa Kristinsdóttir Ástkær móðir okkar, systir, tengdamóðir, amma og langamma, ERLA HAFSTEINSDÓTTIR, Gili, Svartárdal, lést á Landspítalanum að morgni sunnudagsins 8. apríl. Útför hennar fer fram frá Blönduóskirkju laugardaginn 14. apríl klukkan 16. Þeim sem vilja minnast hinnar látnu er bent á Krabbameinsfélag Íslands. Örn Friðriksson Hólmfríður Rögnvaldsdóttir Guðríður Erla Friðriksdóttir Jón Hallur Pétursson Hafrún Friðriksdóttir Gauti Höskuldsson Sigþrúður Friðriksdóttir Guðmundur Guðbrandsson Björn Grétar Friðriksson Harpa Hrund Hafsteinsdóttir Stefán Hafsteinsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓHANNA ÓLAFSDÓTTIR frá Reynisvatni, Suðurlandsbraut 60, lést á líknardeildinni í Kópavogi 8. apríl í faðmi fjölskyldu sinnar. Hún verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 16. apríl klukkan 14. Þorgeir Þorkelsson Þóra Ólöf Þorgeirsdóttir Magnús Smári Þorvaldsson Ástríður Þorgeirsdóttir Guðni Haukur Sigurðsson Jón Þorgeir Þorgeirsson Elín Guðrún Pálsdóttir Halldóra Þorgeirsdóttir Björn Jóhannsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, HEIÐBJÖRT BJÖRNSDÓTTIR, Vopnafirði, lést á hjúkrunarheimilinu Sundabúð þriðjudaginn 10. apríl. Útför hennar fer fram frá Vopnfjarðarkirkju miðvikudaginn 18. apríl klukkan 14. Þeir sem vilja minnast hennar láti Slysavarnadeildina Sjöfn - Landsbjörg njóta þess. Fyrir hönd afkomenda hennar. Þorgerður Tryggvadóttir Gylfi Ingimundarson Hulda Tryggvadóttir Jóhann Jakobsson Gunnar Björn Tryggvason Birna Einarsdóttir Emma Tryggvadóttir Steindór Sveinsson Aðalbjörn Björnsson Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri grein- ar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.