Morgunblaðið - 13.04.2018, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 13.04.2018, Blaðsíða 33
einstaka handverk sem var fyr- ir augunum á mér öll þessi ár og sé hve fögur listaverk þetta eru. Amma hélt sig nokkuð til hlés síðustu árin en kjarninn hennar hélt sér. Hún dáði barnabörnin og barnabarna- börnin sín og alltaf þegar ég kom með Huldar son minn í heimsókn í Sóltún til langömmu og langafa þá ljómaði amma Dollý og tók ekki augun af hon- um. Þó hún gleymdi ýmsu þá mundi hún alltaf afmælisdaginn minn, hún hafði enn sitt ein- staka bros, sinn fallega hlátur og sína friðsælu nærveru. Í dag kveðjum við ömmu Dollý, að mér finnst allt of snemma þó hún hafi verið orðin 88 ára. Ég kveð elsku ömmu með söknuði, virðingu og þakk- læti fyrir allt. Kristín Anna Hermannsdóttir. Þegar ég sá ömmu Dollý og afa Sveinbjörn síðast vorum við að dást að útsaumsverkinu sem amma saumaði þegar hún var ung. Ég hafði auðvitað séð það svo oft, það hafði hangið uppi á vegg í Hvassaleitinu alla mína ævi. En í þetta skipti talaði afi sérstaklega um hvað amma hefði alltaf verið flink að sauma. Amma brosti bara og kinkaði kolli. Þó að ég hafi verið í burtu síðustu árin þá á ég svo margar fallegar minningar um ömmu Dollý. Ég man svo vel eftir sumrunum á Þingvöllum, og bátsferðum yfir Þingvallavatnið. Amma var alltaf svo róleg, og það var svo afslappandi að vera með henni. Hún svaraði öllum spurningum með ró, og þegar ég var fjögurra ára og spurði hana hvort pylsur lifðu í sjó, þá svaraði hún mér bara: „Nei, þær gera það nú ekki.“ Nú hefur amma Dollý fengið hvíldina og það er kominn tími til að kveðja. Takk, amma mín, fyrir allt. Þitt barnabarn, Vigdís María Her- mannsdóttir. Dollý frænka var ein af föstu stærðunum í tilverunni. Systir pabba í Hvassaleitinu. Mamma Daffa frænda, sem hún kallaði Danna. Það er merkilegt hvað maður freistast til að halda að manneskja í lífi manns, eins og Dollý frænka, muni alltaf vera til. Að maður muni alltaf setjast niður einstaka sinnum tilviljun- arkennt út af einhverju stússi með Daffa yfir fyrirvaralausum kaffibolla í Hvassaleiti með henni og Sveinbirni og ræða hvernig maður hafi það, hvernig fólkið í fjölskyldunni hafi það, hvernig pólitíkin sé og hvað allt sé nú þrátt fyrir allt bara ágætt í lífinu. En svona tifar tíminn. Dollý frænka er farin. Ég veit ekki hvort það er hægt að óska sér það fallegra, en að kveðja þessa tilvist á háum aldri umvafin ást stórrar fjölskyldu. Hvernig get- ur það verið annað en fallegt þegar 70 ára ástarsamband, eins og þeirra hjóna Dollýar og Sveinbjörns, endar svona. Hún kveður. Hún bíður hinum meg- in. Jafnvel þótt allir viti í hvað stefni og allir viti hvernig lífið alltaf endar, er sorgin samt svo mikil. Í ljós kemur, kannski sterkar en nokkru sinni, hvað böndin voru alltaf sterk, móð- urástin mikil, kærleikurinn djúpur og hvað minningarnar eru margar og fallegar. Ég samhryggist innilega, Svein- björn og þið öll. Farsælli ævi er lokið. Í mínum huga er þessi mynd sterkust: Dollý stendur í dyragættinni í Hvassaleiti. Það er sumar. Ég er að stússast eitthvað með honum Danna. Kannski að fara í Kusukot. Hún heilsar mér brosandi og býður mér að koma aðeins inn og spjalla. Það er þetta bros og blikið í augunum sem er mynd- in í huga mér. Hæverskt bros og í augunum er hlýja. Mikil hlýja. Kannski smá glettni. Guðmundur Steingrímsson. Þrjátíu ár eru í senn langur eða stuttur tími eftir því hver viðmiðunin er. Okkur hjónum finnst stutt síðan við kynntumst Pálínu, eiginkonu Sveinbjörns, ráðuneytisstjóra landbúnaðar- ráðuneytisins, er undirritaður hóf þar störf 1987. Frá upphafi tókust með okkur góð kynni sem þróuðust í kæran vinskap. Ráðuneytið var þá vel búið mál- efnum sem og starfsfólki og lögð áhersla á að efla góðan starfsanda, m.a. með samkom- um starfsfólks þar sem makar voru ekki aðeins velkomnir heldur hluti af heildinni. Það leið því ekki á löngu uns leiðir okkar og Pálínu lágu saman. Pálína var trúlega hlédræg í eðli sínu en framkoma hennar öll bar með sér að hún hafði frá barnæsku umgengist helstu fyr- irmenn landsins, setið virðuleg samkvæmi sem og staðið fyrir þeim sjálf. Best þekkti hún samt hið daglega líf húsmóð- urinnar; að annast sitt heimili og skapa fjölskyldu sinni traust og fallegt athvarf. Þessu feng- um við hjónin að kynnast; að vera boðin heim til þeirra hjóna ásamt öðrum vinum þeirra og njóta þar glæsilegra veitinga, lagaðra og framreiddra af hús- móðurinni af mikilli smekkvísi. Það var upphefð fyrir okkur að fá að sitja svo fallegt kvöldverð- arboð, þar sem virðuleg og fal- leg húsgögn ásamt listaverkum prýddu stofur. Við minnumst einnig heimsóknar þeirra til okkar. Eftir kvöldverð var setið fram á nótt og spjallað um svo margt sem þau höfðu upplifað og inn á milli tókum við lagið og sungum saman þjóðleg sönglög sem við öll kunnum að meta; dásamleg stund. Þá koma upp í hugann stutt innlit í Hvassaleit- ið – kannski komið með einn eða tvo blóðmörskeppi með rús- ínum sem við vissum að húsráð- endur kunnu að meta, eða lítil erindi til þeirra sem leiddu af sér kaffisopa og spjall um menn og málefni og rifjaðar upp skemmtilegar minningar. En þótt heimili þeirra í Hvassaleit- inu hefði sinn virðulega blæ, mátti glöggt sjá að þar höfðu börn og unglingar alist upp í sínu frjálsræði og síðar barna- börnin sem skipuðu ríkulegan sess í huga þeirra beggja. Sum- arbústaður hjónanna við Þing- vallavatn, Kusukot, var athvarf sem þeim þótti vænt um og þar sem annars staðar kom smekk- vísi og myndarskapur Pálínu vel fram. Pálína og Sveinbjörn höfðu ferðast mikið, ekki aðeins ekið um landið heldur var hesta- mennska með tilheyrandi ferða- lögum vinsæl skemmtun þeirra áður fyrr og þá farið um fjall- vegi sem áttu sínar sögur. Þau þekktu Ísland – fjölda fólks og áttu góða vini. Fyrir nokkru fór Alzheimer- sjúkdómurinn að gera vart við sig hjá Pálínu og ágerðist eftir því sem tímar liðu. Meðan stætt var bjuggu þau heima í Hvassa- leitinu en að því kom að Pálína varð að fá meiri umönnun en Sveinbjörn – sem allt vildi þó gera – gat veitt henni heima. Einbeittur vildi hann vera hjá konu sinni og saman áttu þau dvalarstað í hjúkrunarheimilinu í Sóltúni þar til Pálína kvaddi þennan heim. Á útfarardegi Pálínu erum við norður í landi. Kæri vinur Sveinbjörn og aðrir aðstandendur. Við sendum ykkur okkar einlægustu sam- úðarkveðjur á erfiðum tímum og biðjum algóðan guð að blessa og varðveita Pálínu Her- mannsdóttur. Níels Árni Lund og Kristjana Benediktsdóttir. MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. APRÍL 2018 Atvinnuauglýsingar Starfskraftur Veiðifélag Ytri rangár óskar eftir að ráða starfskraft í fiskeldisstöð sýna í Húsafelli Stöðinn sér um seiðaeldi fyrir Ytri rangá umsóknir skulu sendar á laxeyri@emax.is Raðauglýsingar Raðauglýsingar Nauðungarsala Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Fálkagata 20, Reykjavík, fnr. 202-8520 , þingl. eig. Anika Laufey Baldursdóttir og Guðmundur Jörundsson, gerðarbeiðendur Lands- bankinn hf., Vátryggingafélag Íslands hf. og Borgun hf., þriðjudag- inn 17. apríl nk. kl. 11:30. Óðinsgata 8A, Reykjavík, fnr. 200-5798 , þingl. eig. Volcanic Property Fund III slhf, gerðarbeiðendur Landsbankinn hf., Tollstjóri, Reykja- víkurborg og Orkuveita Reykjavíkur-vatns sf., þriðjudaginn 17. apríl nk. kl. 14:00. Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu 12. apríl 2018 Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður haldið á skrif- stofu embættisins að Hlíðasmára 1, 201 Kópavogi , sem hér segir: GÍSLI, KÓ, Kópavogur, (FISKISKIP), fnr. 1909 , þingl. eig. Sælind ehf, gerðarbeiðandi Tollstjóri, þriðjudaginn 17. apríl nk. kl. 10:30. Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu 12. apríl 2018 Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir Torfastaðaskóli, Vopnafjarðarhreppur, fnr. 217-1620 , þingl. eig. GSV ehf., gerðarbeiðendur Tollstjóri og Arion banki hf. og Vopna- fjarðarhreppur, þriðjudaginn 17. apríl nk. kl. 11:00. Sýslumaðurinn á Austurlandi 12 apríl 2018 Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9 og bingóið vinsæla kl. 13:30, verið velkomin! Árskógum Smíðastofan er lokuð. Opið hús kl. 13-16. Bókabíllinn kemur við Árskóga 6-8 kl. 16.15-17. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. S. 535-2700. Boðinn Vatnsleikfimi kl. 9.10. Vöflukaffi kl. 13.30. Línudans fyrir byrj- endur og lengra komna kl. 15.15. Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa 9-16. Heimsókn frá ungling- um í Háteigsskóla kl. 10-11. Morgunkaffi 10-10:30. Leikfimi kl. 12:50- 13:30. Landið skoðað með nútímatækni kl. 13:40, Borgarfjörður Eystri og nágrenni. Opið kaffihús 14:30-15:15. Félagsmiðstöðin Vitatorgi Aðstoð við notkun á æfingatækjum 9:30-10:30, föstudagshópurinn 10-12, fjjáls spilamennska 13-16:30, bingó í sal 13:30-14:30, Handaband - ókeypis vinnustofa í handverki sem er öllum opin 13:30-16, vöfflukaffi 14:30-15:30. Verið öll velkomin til okkar á Vitatorg. Síminn okkar er 411-9450 Furugerði 1 Útskurður fyrir hádegi. Leikfimi kl. 11:00 og ganga kl. 13:00. Föstudagsfjör kl. 14:00. Að þessu sinni mun Bryndís virkniþjálfi segja frá ferð sinni til Suður-Afríku til þess að heimsækja eldriborgara af Zulu ættbálknum. Garðabæ Gönguhópur frá Jónshúsi kl. 10:00. Félagsvist FEBG í Jónshúsi kl. 13:00. Bíll fer frá Litlakoti kl. 12:20, Hleinum kl. 12:30, og frá Garðatorgi 7. kl. 12:40 og til baka að loknu félagsvist ef óskað er. Smiðjan í Kirkjuhvoli er opin kl. 13-16. Allir velkomnir. Kaffiteria í Jónshúsi lokar í dag kl. 14:30. Gerðuberg Opin handavinnustofa kl.08:30-16:00. Glervinnustofa m/leiðb. kl 09:00-12:00. Prjónakaffi kl. 10:00-12:00. Leikfimi göngu- hóps kl. 10:00-10:20. Gönguhópur um hverfið kl.10:30. Bókband m/leiðb. kl. 13:00-16:00. Kóræfing kl.13:00-15:00. Allir velkomnir. Gjábakki Kl. 9.00 handavinna, kl. 9.10 boccia, kl. 9.30 Postulíns- málun, kl. 13.00 tréskurður, kl. 13.00 léttgönguhópur (frjáls mæting). Gullsmári Handavinna kl 9.00. Leikfimi kl. 10.00. Fluguhnýtingar kl. 13.00. Gleðigjafarnir kl. 14.00. Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9. Opin handavinna kl. 9-12. Útskurður kl. 9, verkfæri á staðnum og nýliðar velkomnir. Boccia kl. 10-11. Hádegismatur kl. 11.30. Bíó kl 13, kostar ekkert að horfa, allir velkomnir. Hvassaleiti 56 - 58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8-16, morgunkaffi og spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl og liggja frammi, morgunleikfimi kl. 9.45, jóga kl. 10 hjá Carynu, hádegismatur kl. 11.30. Spilað bridge kl. 13, bingó kl. 13.15, kaffisala í hléi. Fótaaðgerðir 588-2320, hársnyrt- ing 517-3005. Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnar kl. 8.50, við hringborðið kl.8.50, Thai Chi með Guðnýju kl.9, boccia kl.10.15, listasmiðjan er opin fyrir alla frá 9-16, Zumba dans leikfimi með Auði kl.13, síðdegis- kaffi kl.14.-15.30, Hæðargarðs bíó kl.14.30. Allir velkomnir óháð aldri. Nánari upplýsingar í Hæðargarði 31 eða í síma 411-2790. Korpúlfar Hugleiðsla og létt yoga í Borgum kl. 9, Bridgehópur kl. 12:30 í Borgum, hin vinsæli hannyrðahópur kl. 12:30 í Borgum. Tréút- skurður á Korpúlfsstöðum kl. 13:00 í dag og sundleikfimi í Grafar- vogssundlaug kl. 15:00 í dag. Vöfflukaffi í Borgum kl. 14:30 til 15:30. Selið, Sléttuvegi 11-13 Selið er opið frá kl. 10-14. Upp úr 10 er boð- ið upp á kaffi og gaman að koma í spjall og kíkja í blöðin. Ganga kl. 10.00. Hádegisverður kl. 11.30-12.15. Framhaldssaga kl. 13.00. Allir eru hjartanlega velkomnir í Selið. Nánari upplýsingar hjá Maríu í síma 568-2586. Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl.10.30. Syngjum saman í saln- um á Skólabraut kl.13. Spilað í króknum á Skólabraut kl.13.30 og bridge í Eiðismýri 30 kl. 13.30. Skráning er hafin í sameiginlega ferð félagsstarfsins og kirkjunnar þann 8. maí. Stykkishólmur og Breiða- fjarðareyjar. Skráningarblöð liggja frammi á Skólabraut, Eiðismýri og í kirkjunni. Einnig er skráning og upplýsingar hjá Kristínu í síma 8939800. Stangarhylur 4 Dansleikur sunnudagskvöld kl. 20.00, hljómsveit hússins leikur. Allir velkomnir. Vesturgata 7 Enska leiðb. frá kl. 10:00-12:00 Peter R.K.Vosicky. Sungið við flygilinn kl. 13:00-14:00. Gylfi Gunnarsson. Kaffiveitingar kl.14:00-14:30. Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Ýmislegt HÆTTUM MEÐ GÖTUSKÓ - AÐEINS EITT VERÐ 7.990,- Laugavegi 178, sími 551 2070. Opið mán. - fös. kl. 10–18, Laugardaga kl. 10 - 14 Jessenius Faculty of Medicine Martin, Slóvakíu Inntökupróf verða haldin í læknis- fræði í Reykjavík 25. apríl og 1. júní. Á Akureyri 26 apríl. Margir íslendingar stunda nám við skólann. Uppl. fs. 8201071 kaldasel@islandia.is Húsviðhald FLÍSALAGNIR - MÚRVERK FLOTUN - SANDSPARSL MÁLUN - TRÉVERK Ásamt öllu almennu viðhaldi fasteigna Áratuga reynsla og þekking skilar fagmennsku og gæðum Tímavinna eða tilboð Strúctor byggingaþjónusta ehf. S. 893 6994 Hreinsa þakrennur, laga ryð á þökum og tek að mér ýmis smærri verkefni. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com Smáauglýsingar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.