Morgunblaðið - 13.04.2018, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 13.04.2018, Blaðsíða 34
Guðni Sigurður Sigurðsson fæddist 24. mars kl. 19.39. Hann vó 4128 g og var 53 cm langur. Foreldrar hans eru Steinunn Helga Ómarsdóttir og Sigurður Karl Guðnason. Nýr borgari 34 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. APRÍL 2018 Árin hafa fært mér skemmtilegar minningar og framundan eruspennandi tímar. Ég á góða fjölskyldu og er í starfi sem líka eráhugamál svo ég get í raun ekki beðið um meira. Við ætlum út að borða í tilefni af afmælinu, en dagurinn verður þó í meginatriðum öðrum líkur,“ segir Freyr Gígja Gunnarsson fréttmaður á RÚV sem er 40 ára í dag. Foreldrar Freys eru Gunnar Gunnarsson skólastjóri Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og Laufey Bragadóttir innanhúsarktiekt. „Einhverjar ljúfustu minningar mínar eru frá þeim tíma þegar fjölskyldan bjó í Kaupmannahöfn, frá 1984 til 1989. Ég get enn kallað fram í hugann myndir frá þessum árum; sé fyrir mér leik á einhjóli, eplatré í garð- inum og svo var spilaður fótbolti löngum stundum. Sem strákur var ég síðan mjög fljótt farinn að fylgjast með fréttum, las blöðin og setti mig inn í mál. Að ég færi að starfa við fjölmiðla kom því nánast af sjálfu sér, enda er þetta skemmtilegt.“ Freyr Gígja er með BA-próf í trúarbragðafræði en eftir nám gerð- ist hann blaðamaður á Fréttablaðinu. Hann hóf störf á RÚV fyrir um sex árum og vinnur fréttir fyrir hljóðvarp og vefinn. „Ég er gall- harður Liverpool-maður, meira að segja svo að ég finn til líkamlega ef mínum mönnum gengur illa í boltanum,“ segir Freyr sem er í sam- búð með Júlíu Margréti Alexandersdóttir blaðamanni á Morgun- blaðinu. Saman eiga þau soninn Gunnar Alexander, tíu ára og fyrir á Júlía dótturina Katrínu sem er tvítug í ár. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Ómar Fréttamaður „Þetta er skemmtilegt,“ segir Freyr Gígja um starfið. Fótbolti, einhjól og eplatré í garðinm Freyr Gígja Gunnarsson er fertugur í dag V igdís Guðlaug Sigvalda- dóttir fæddist að Ausu í Andakíl 13.4. 1933 og ólst þar upp. Hún hlaut barnaskólamenntun í farskóla og lauk gagnfræðaprófi frá Héraðsskólanum á Laugarvatni ár- ið 1950. Vigdís sinnti bústörfum í for- eldrahúsum til tvítugsaldurs en starfaði næstu átta árin m.a. við skólann í Bifröst og Veitingaskál- ann við Hvítárbrú. Hún hóf búskap að Brennistöðum í Flókadal með Árna, manni sínum, vorið 1961, og ári síðar stofnuðu þau nýbýli á Brennistöðum og reistu nýtt íbúð- arhús á jörðinni. Í fimm ár bjuggu þau félagsbúi með tengdaforeldrum Vigdísar sem þá brugðu búi sökum aldurs. Árið 1971 komu fyrstu fóstur- börnin til dvalar á Brennistöðum. Fjöldi barna sem dvöldu yfir sum- artímann skiptir hundruðum og rúmlega 30 börn dvöldu þar einnig yfir veturinn og sóttu grunnskóla frá Brennistöðum. Brennistaðir voru með fyrstu ferðaþjónustubæjum á Vesturlandi. Ferðaþjónusta hefur verið starf- rækt þar samfellt frá 1970 og ennþá er Vigdís liðtæk að aðstoða dóttur sína við að sinna ferðamönn- um. Vigdís hefur ávallt haft mikinn áhuga á sauðfjárrækt. Áður fyrr, þegar erfiðara reyndist að ná í dýralækna, var hún einatt beðin um aðstoð í burðarhjálp á næstu bæj- um og jafnvel að búa um beinbrot. Þegar fór að hægjast um og auð- veldara var að fá afleysingu á búið gátu Árni og Vigdís notið þess að ferðast á hverju sumri. Þau fóru víða um Ameríku, Kanada, Kína, Indland, Egyptaland, Tyrkland og um Evrópu þvera og endilanga. Vigdís og Árni hættu búskap árið 2000 og dóttir þeirra og tengdason- Vigdís Guðlaug Sigvaldadóttir, fv. húsfr. á Brennistöðum – 85 ára Hluti fjölskyldunnar Vigdís með stórum hluta barnanna, fósturbarna, tengdabarna, barnabarna og langömmubarna. Sýnir börnum og sauðfé næmi og mikla umhyggju Nöfnur Vigdís með barnadætrum og nöfnum Sigvalda- og Bjarnadóttur. Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. SAMSTARFSAÐILI Hringdu í 580 7000 eða farðu á heimavorn.is AR SEM ÞÚ ERTHV Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.