Morgunblaðið - 13.04.2018, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 13.04.2018, Blaðsíða 35
ur tóku við. En Vigdís býr enn á heimili sínu að Brennistöðum. Fjölskylda Vigdís giftist 31.12. 1961, Árna Theódórssyni, f. 11.1. 1929, d. 4.4. 2010, smið og bónda á Brennistöð- um. Hann var sonur Theódórs N. Sigurgeirssonar, bónda þar, og Þóru Árnadóttur húsfreyju. Sonur Vigdísar er 1) Steindór Rafn Theódórsson, f. 28.7. 1953, húsasmiður, í sambúð með Brynju Bjarnadóttur stuðningsfulltrúa, bú- sett í Reykjavík og eiga þau tvö börn saman auk fóstursonar en fyr- ir átti Steindór eina dóttur og Brynja átti fyrir tvö börn. Börn Vigdísar og Árna eru 2) Bjarni, f. 29.4. 1961, bygginga- tæknifræðingur í Reykjavík, kvænt- ur Emilíu Sigurðardóttur kennara og eiga þau tvær dætur og einn son; 3) Sigvaldi, f. 1.2. 1963, véla- verkfræðingur í Reykajvík, kvænt- ur Nichadu Tanuttunya en Sigvaldi á tvær dætur úr fyrra sambandi og eldri dóttir hans, Vigdís á fjögur börn; 4) Steinunn, f. 9.4. 1965, org- anisti og tónmenntakennari í Borg- arnesi og á hún einn son og tvær dætur, en Árni, sonur Steinunnar, á þrjá syni; 5) Þóra, f. 21.5. 1967, líf- fræðingur og kennari í MB, búsett á Brennistöðum, gift Hafsteini Ó. Þórissyni og eiga þau saman tvo syni en Hafsteinn á eina dóttur úr fyrra hjónabandi. Fósturbörn Vigdísar eru: 6) Kristín Birgisdóttir, f. 1.4 1960, garðyrkjufræðingur, gift Heiðari Sigurðssyni feldskera og eiga þau tvær dætur og einn son, en Heiðar á son úr fyrra sambandi; 7) Sigur- björn Birgisson, f. 8.2. 1962, læknir í Abu Dhabi og á hann einn son og eina dóttur; og 8) Kjartan Örn Ein- arsson, f. 2.4. 1978, búsettur í Reykjavík, í sambúð með Huldu Magnúsdóttur og eiga þau eina dóttur auk þess sem Kjartan á þrjú börn úr fyrra sambandi og Hulda á dóttur úr fyrra sambandi. Systkini Vigdísar voru: Benedikt, f. 18.4. 1925, d. 10.10 1997, lengi skólastjóri Héraðsskólans á Laug- arvatni; Jón, f. 25.9. 1927, d. 4. 9 2000, bóndi á Ausu; og Margrét Geppert, f. 25.12. 1930, d. 24. 6 2015 menntaskólakennari í Kanada. Foreldrar Vigdísar voru Sigvaldi Jónsson, f. 22.8. 1892, d. 22.10. 1970, bóndi í Ausu í Andakíl, og Steinunn Benediktsdóttir, f. 21.4. 1892, d. 25.11. 1959, kennari og hús- freyja. Vigdís Guðlaug Sigvaldadóttir Steinunn Sæmundsdóttir húsfr. á Ármóti og í Langholti, af Auðsholtsætt Guðmundur Hannesson hreppstj. á Flóagafli, Ármóti og í Langholti í Flóa Margrét Guðmundsdóttir húsfr. á Hallanda og Langsstöðum Benedikt Guðmundsson b. á Hallanda í Hraungerðishr. og Langsstöðum í Flóa Steinunn Benediktsdóttir húsfr. og kennari í Ausu Ragnhildur Sigurðardóttir húsfr. í Burðarholti Guðmundur Benediktsson b. i Burðarholti í Þykkvabæ Margrét Geppert menntaskólakennari í Kanada Benedikt Sigvaldason skólastj. Héraðsskólans á Laugarvatni Pálmi Guðmundsson kennari Ragnhildur Helga Jónsdóttir safnvörður á Hvanneyri Sigvaldi Jónsson b. á Hægindi Jón Sigvaldason b. í Ausu Ástríður Hallsteinsdóttir húsfr. húsfr. í Gilstreymi og Múlakoti Ásmundur Gunnarsson b. í Gilstreymi og Múlakoti Ragnhildur Ásmundsdóttir húsfr. í Mávahlíð og að Kvígsstöðum Jón Guðmundsson b. í Mávahlíð og að Kvígsstöðum í Andakíl Rannveig Ólafsdóttir húsfr. í Brennu Guðmundur Sigurðsson b. í Brennu í Lundarreykjadal Úr frændgarði Vigdísar Guðlaugar Sigvaldadóttur Sigvaldi Jónsson b. í Ausu í Andakíl í Borgarfirði Dýravinurinn Vigdís hefur alltaf skilið jafnt þarfir manna sem málleysingja. ÍSLENDINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. APRÍL 2018 Vigfús Ólafsson fæddist á Rauf-arfelli undir Eyjafjöllum 13.4.1918. Foreldrar hans voru Ólafur Gísli Vigfússon, skipstjóri í Vestmannaeyjum, og k.h., Kristín Jónsdóttir. Ólafur Gísli var sonur Vigfúsar Jónssonar, bónda á Raufarfelli, og Kristínar Brandsdóttur frá Miðbæli, en Kristín Jónsdóttir var dóttir Jóns Einarssonar, vinnumanns á Miðbæl- isbökkum. Bróðir Ólafs Gísla var Guðjón, bóndi á Raufarfelli, faðir Mörtu, húsfreyju í Berjanesi, ömmu Mörtu Guðjónsdóttur borgarfulltrúa og Sólveigar Ingadóttur, héraðsdóm- ara á Selfossi. Kona Vigfúsar var Ragnheiður Jónsdóttir og synir þeirra Ólafur raf- magnsverkfræðingur og Bergsteinn, sem tók próf frá Sjómannaskóla Ís- lands, sveinspróf í smíðum og hefur sinnt bókmenntafræði. Vigfús flutti til Vestmannaeyja með foreldrum sínum er hann var fimm ára og bjó þar lengst af. Hann tók próf frá Kennaraskóla Íslands 1938, stúdentspróf frá Laugarvatni 1964, en veturinn 1976- 77 fékk hann orlof til frekara náms við kennaraháskóla í Noregi. Vigfús kenndi við barnaskólann í Eyjum til 1959, tók þá við skólastjórn í V-Eyjafjallaskóla á Seljalandi, varð skólastjóri Gagnfræðaskólans á Hellu 1962 og skólastjóri Gagnfræðaskól- ans í Eyjum 1974-80. Hann var grannholda, sterkur og spengilegur, æfði og keppti í hlaupum á yngri ár- um, var formaður Íþróttabandalags Vestmannaeyja fyrstu fimm árin, var prýðilegur skákmaður og keppnis- maður í skák fyrir Vestmannaeyinga. Vigfús þótti frábær kennari. Um hann segir Páll Steingrímsson kvik- myndagerðarmaður í minningar- grein: „Þessar línur eru skrifaðar til að minnast óvenjulegs leiðbeinanda og sagnamanns sem hreif nemendur með sér og opnaði jafnvel böldnum strákum heima sem skildu þá eftir kjálkasíða í stundarlok með spurn í augum.“ Vigfús lést 25.10. 2000. Merkir Íslendingar Vigfús Ólafsson 95 ára Helga Guðbjörnsdóttir 90 ára Einar Jóhann Jónsson 85 ára Edda Kristinsdóttir Vigdís Sigvaldadóttir 80 ára Guðbjörg Þórðardóttir Hreinn Sveinsson Ingibjörg Steinsdóttir 75 ára Guðjón Elíasson Inga Björk Ingólfsdóttir Ingunn Vilhjálmsdóttir Kristinn Sigtryggsson Sverrir Sigurðsson 70 ára Elínborg Ragnarsdóttir Guðmundur B. Kjartansson Gunnar Guðmundsson Inga Lilja Snorradóttir Margrét Jónína Þórarinsdóttir Sjöfn Sóley Sveinsdóttir Stefán B. Sigurðsson 60 ára Bjarmi A. Sigurgarðarsson Hannibal J. Kjartansson Kristrún Sigurjónsdóttir Rannveig Christensen Steinar Jónsson Þórarinn Sigurbergsson 50 ára Bogi Theódór Ellertsson Heimir Ingvason Jón Reykjalín Björnsson Karl Sædal Sveinbjörnsson Margrét Smáradóttir Theódór Kristjánsson Ægir Jóhannsson 40 ára Anna K. Gunnarsdóttir Belinda Ýr Hilmarsdóttir Bjarkey Gunnlaugsdóttir Bjarki Jónas Magnússon Bryndís Guðmundsdóttir Elsa Nore Freyr Gígja Gunnarsson Haraldur Líndal Pétursson Hildur Eiríksdóttir Ian Paul McShane Jónína K. Sigtryggsdóttir Nicoleta Carmen Tanase Ólafur Arnarsson Pálmi Rafn Eiríksson Sigríður E. Guðmundsdóttir Simun Rúnarsson Sævar Þröstur Eysteinsson Viðar Guðmundsson Þórir Gunnarsson Þórunn Ásta Ólafsdóttir 30 ára Aron Óskarsson Ásrún Jóhannesdóttir Benedikt Orri Birgisson Bianca Floriana Bichea Birkir Örn Hauksson Björn Atli Davíðsson Bryndís Guðmundsdóttir Eiríkur Ingi Eyvindsson Gunnar Dofri Ólafsson Halldór K. Halldórsson Helga Lind Mar Helgi Héðinsson Hlynur Jónsson Jón Benjamín Halldóruson Karen Irena Mejna Kristján Freyr Þrastarson Magnús S. Magnússon Marcin W. Nabakowski Mateusz Gomela Rakel Sif Níelsdóttir Snævar Örn Jónsson Tryggvi Stefánsson Til hamingju með daginn 30 ára Snævar ólst upp á Sauðárkróki, býr í Reykja- vík, lauk sveinsprófi í vél- fræði og síðan í rafvirkjun og er rafvirki í Reykjavík. Maki: Auður Alfa Ólafs- dóttir, f. 1989, hagfræð- ingur hjá ASÍ. Börn: Ronja Mist, f. 2008; og Erpur Kári, f. 2009 (stjúpsonur). Foreldrar: Jón Pálmason, f. 1957, og Sigrún Alda Sighvatsdóttir, f. 1961. Þau búa á Sauðárkróki. Snævar Örn Jónsson 30 ára Jón ólst upp í Garðabæ, býr þar, lauk BSc-prófi í viðskiptafræði og BSc-prófi í íþrótta- fræði frá HR og er vá- tryggingaráðgjafi hjá VÍS. Maki: Helga Lára Grét- arsdóttir, f. 1987, verk- fræðingur hjá Marel. Sonur: Grétar, f. 2015. Móðir: Halldóra Jóns- dóttir, f. 1955, hjúkrunar- fræðingur við Landspítala Háskólasjúkrahús, búsett í Garðabæ. Jón Benjamín Halldóruson 30 ára Helgi ólst upp á Geiteyjarströnd við Mý- vatn, býr þar, lauk MSc- prófi í viðskiptafræði, rek- ur fjölskyldufyrirtæki, sit- ur í sveitastjórn og stjórn Sparisjóðs Suður- Þingeyinga. Maki: Rannveig Ólafs- dóttir, f. 1989, fulltrúi sýslumanns. Foreldrar: Héðinn Sverr- isson, f. 1949, bóndi, og Hulda Finnlaugsdóttir, f. 1953, kennari. Helgi Héðinsson )553 1620 Lauga-ás hefur frá 1979 boðið viðskiptavinum sínum upp á úrval af réttum þar sem hráefni, þekking og íslenskar hefðir hafa verið höfð að leiðarljósi. Laugarásvegi 1, 104 Reykjavík laugaas@laugaas.is • laugaas.is Við bjóðum m.a. upp á: Súpur Grænmetisrétti Pastarétti Fiskrétti Kjötrétti Hamborgara Samlokur Barnamatseðil Eftirrétti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.