Morgunblaðið - 13.04.2018, Síða 40
40 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. APRÍL 2018
Skráning í áheyrnarprufur fyrir
söngleikinn Matthildi, sem frum-
sýndur verður í Borgarleikhúsinu í
mars á næsta ári, fór fram í leikhús-
inu í fyrradag og mættu hvorki
meira né minna en 1119 börn.
Áheyrnarprufurnar munu fara
fram næstu daga í leikhúsinu og
eru þær fyrir börn fædd 2006-2011.
Skráningin gekk vel fyrir sig
þrátt fyrir þennan mikla fjölda og
náði röðin út að næsta inngangi
Kringlunnar, samkvæmt tilkynn-
ingu. Leikstjóri sýningarinnar,
Bergur Þór Ingólfsson, og danshöf-
undur hennar, Lee Proud, fá það
erfiða hlutverk að velja úr þessum
gríðarstóra hópi umsækjenda.
Matthildur er tiltölulega nýr
söngleikur byggður á samnefndri
sögu enska barnabókahöfundarins
Roald Dahl. Söngleikurinn var
frumsýndur hjá Royal Shakespeare
Company í Stratfort-upon-Avon ár-
ið 2010 og var síðar fluttur á West
End og Broadway. Hefur hann hlot-
ið hátt í hundrað verðlaun og þar af
16 sem besti söngleikurinn.
Ljósmynd/Sigurjón Sigurjónsson
Barnafjöld Frá skráningunni í áheyrnarprufur fyrir Matthildi í Borgarleikhúsinu í fyrradag.
1119 börn skráðu sig í áheyrnarprufur
Rampage
Harðhausinn Dwayne Johnson fer
með hlutverk Davis Okoye sem er
sérfræðingur í prímötum. Hann á í
sérstöku vinasambandi við albínó-
górilluna George sem er bráðgáf-
uð. Tilraun er gerð á górillunni sem
fer að stækka gríðarlega og verður
á endanum risavaxin líkt og King
Kong. Og George er ekki eina
stökkbreytta skrímslið því ýmsar
ófreskjur taka að herja á Norður-
Ameríku og Okoye reynir allt hvað
hann getur að búa til mótefni gegn
efninu sem sprautað var í dýrin og
bjarga með því heiminum.
Leikstjóri myndarinnar er Brad
Peyton og með aðalhlutverk fara,
auk Johnson, þau Naomie Harris,
Malin Akerman, Jeffrey Dean
Morgan og Jake Lacy.
Metacritic: 47/100
The Strangers: Prey at Night
Hrollvekja um fjögurra manna fjöl-
skyldu, hjón og tvö börn þeirra,
sem eru á ferðalagi og gista eina
nótt í bústað á afskekktum stað.
Einver virðist búa í bústaðnum og
eftir að fjölskyldan hefur komið sér
vel fyrir kemur í ljós að hún hefur
verið leidd í dauðagildru.
Leikstjóri er Johannes Roberts og
með aðalhlutverk fara Christina
Hendricks, Bailee Madison, Martin
Henderson, Emma Bellomy og
Lewis Pullman. Metacritic: 49/100
Hamfarir Ógurlega albínógórillan
George í hasarmyndinni Rampage.
Ógnarstór albínó-
górilla og dauðagildra
Bíófrumsýningar
Sýningin Við mið // at present
verður í Listasafni Sigurjóns Ólafs-
sonar í dag kl. 17 og er hún sam-
starfsverkefni Listasafns Íslands,
Listaháskóla Íslands og Háskóla Ís-
lands. Á henni má sjá ný verk unnin
af meistaranemum í myndlist við
Listaháskóla Íslands en meistara-
nemar í listfræði við Háskóla Ís-
lands fara með sýningarstjórn.
Verkin eru fjölbreytt og víðfeðm
og spanna ólíka efnismeðferð, að
því er fram kemur í tilkynningu og
eiga öll sameiginlegt að vera sköp-
uð sérstaklega inn í rými safnsins.
Þau eru innblásin af skúlptúrverk-
um Sigurjóns, safninu sem tileinkað
er honum og staðháttum á Laugar-
nesinu þar sem safnið er.
Um sýninguna segir m.a. í til-
kynningu að á henni standi ekkert í
stað, verkin tengist handan tungu-
málsins og gestum sé boðið að
skyggnast inn í þá sköpun og tján-
ingu sem eigi sér stað í hinu efn-
islega. „Hér er samvinnan og hið
óljósa samtal í forgrunni sem teygir
anga sína bæði aftur í tímann og
fram á við,“ segir í tilkynningunni
og að titill sýningarinnar ávarpi
þrjú stef í senn, þ.e. „við“ sem sé
heildin sem við séum öll hluti af,
hrærumst í og snertum; „mið“ sem
sé gróska fundarstaðarins og sam-
talið sem skapast við það að leita á
ný mið og „viðmið“ sem sé fortíðin
sem lifir áfram og núið sem sé stöð-
ugt að verða til.
Sýningarstjórar eru Ásgerður
Júníusdóttir, Ragnheiður K. Sig-
urðardóttir, Sunna Ástþórsdóttir
og Þorgerður Þórhallsdóttir.
Sýningastjórar Þorgerður Þórhallsdóttir
og Sunna Ástþórsdóttir stýra myndlistar-
sýningunni ásamt tveimur öðrum.
Ekkert stendur í stað í safni Sigurjóns
Doktor Proktor og
tímabaðkarið
Bíó Paradís 18.00
Doktor Proktor og
prumpuduftið
Bíó Paradís 18.00
Hleyptu sól í hjartað
Listakonan Isabelle er í stöð-
ugri leit að hinni sönnu ást.
Bíó Paradís 22.15
The Florida Project
Hin sex ára gamla Moonee
elst upp í skugga Disney
World ásamt uppreisnar-
gjarnri og ástríkri móður
sinni.
Morgunblaðið bbbmn
Metacritic 92/100
IMDb 7,7/10
Bíó Paradís 22.30
Nonni og Manni
Þættir 3 og 4.
Bíó Paradís 18.00
Grease
40 ára afmælissýning.
Bíó Paradís 20.00
Loving Vincent
Bíó Paradís 22.00
Rampage 12
Davis Okoye er sérfræðingur
í prímötum sem hefur mynd-
að sérstakt vináttusamband
við górilluna George.
Metacritic 47100
IMDb 6,6/10
Sambíóin Álfabakka 15.20,
17.40, 20.00, 22.20
Sambíóin Egilshöll 17.40,
20.00, 22.20
Sambíóin Kringlunni 17.20,
19.40, 22.00
Sambíóin Akureyri 17.40,
20.00, 22.20
Sambíóin Keflavík 17.40,
20.00, 22.20
Strangers:
Prey at Night 16
Fjölskylda gistir í hjólhýsa-
garði á afskekktum stað
þegar þrír grímuklæddir
geðsjúkir einstaklingar koma
í heimsókn.
Metacritic 49/100
IMDb 5,8/10
Smárabíó 19.10, 20.00,
21.30, 22.10
Háskólabíó 18.10, 21.00
The Death of Stalin
Metacritic 88/100
IMDb 7,2/10
Háskólabíó 18.20, 21.10
Borgarbíó Akureyri 21.30
Borgarbíó Akureyri 17.15
Tomb Raider 12
Metacritic 47/100
IMDb 7,3/10
Sambíóin Álfabakka 17.20,
22.20
Sambíóin Egilshöll 20.00,
22.30
Hostiles 16
Metacritic 65/100
IMDb 7,3/10
Smárabíó 19.40, 22.30
Háskólabíó 17.50
Pacific Rim:
Uprising 12
Metacritic 46/100
IMDb 6,1/10
Smárabíó 16.50, 19.20
Black Panther 12
Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 87/100
IMDb 7,1/10
Sambíóin Álfabakka 19.40
Andið eðlilega Morgunblaðið bbbbm
IMDb 8,2/10
Háskólabíó 18.10
Bíó Paradís 20.00
Red Sparrow 16
Metacritic 56/100
IMDb 5,4/10
Smárabíó 22.00
The Shape of
Water 16
Morgunblaðið bbbnn
Metacritic 86/100
IMDb 7,8/10
Háskólabíó 20.40
Death Wish 16
Metacritic 31/100
IMDb 6,1/10
Laugarásbíó 17.40, 20.00
Pétur Kanína
Pétur reynir að lauma sér
inn í grænmetisgarð nýja
bóndans og þeir há mikla
baráttu.
Laugarásbíó 17.50
Laugarásbíó 15.40
Sambíóin Egilshöll 17.40
Smárabíó 15.20, 17.40
Borgarbíó Akureyri 17.30
Lói – þú flýgur aldrei
einn Lói er ófleygur þegar haustið
kemur og farfuglarnir fljúga
suður á bóginn.
Morgunblaðið bbbbn
Smárabíó 15.30, 17.40
Bling Mun fallegur hringur, eða
hugrekkið sem þarf til að
bjarga borginni frá illum vél-
mennaher, sigra hjarta
æskuástar Sam?
Sambíóin Álfabakka 15.40
Víti í Vestmanna-
eyjum Morgunblaðið bbbbn
Sambíóin Álfabakka 15.40,
18.00, 20.00
Sambíóin Egilshöll 17.40
Sambíóin Kringlunni 16.40
Sambíóin Akureyri 17.00
Sambíóin Keflavík 17.00
Fjölskylda ein býr á afviknum stað í algjörri
þögn. Ótti við óþekkta ógn vofir yfir, og ræðst á
þau við hvert einasta hljóð sem þau gefa frá sér.
Metacritic 80/100
IMDb 8,4/10
Sambíóin Álfabakka 17.40, 20.20, 22.20
Sambíóin Egilshöll 20.00, 22.50
Sambíóin Kringlunni 19.00, 21.00, 23.00
Sambíóin Akureyri 22.20
Sambíóin Keflavík 22.10
A Quiet Place 16
Ready Player One 12
Morgunblaðið bbbnn
Metacritic 65/100
IMDb 8,0/10
Laugarásbíó 17.00, 22.10
Sambíóin Álfabakka 17.30,
20.30, 22.20
Sambíóin Egilshöll 17.00, 20.00,
22.10
Sambíóin Kringlunni 16.40,
19.40, 22.35
Sambíóin Akureyri 19.20
Sambíóin Keflavík 19.20
Blockers 12
Þrír foreldrar sem hafa í sameiningu fylgst með dætrum sín-
um vaxa úr grasi komast á snoðir um leynisamkomulag sem
felur í sér að dæturnar ætla sér að missa meydóminn á út-
skriftarballi sem nálgast.
Metacritic 73/100
IMDb 6,2/10
Laugarásbíó 20.00, 22.20
Smárabíó 16.50, 17.00, 19.50,
22.10
Háskólabíó 20.50
Borgarbíó Akureyri 19.30
Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðum kvikmyndahúsanna
Kvikmyndir
bíóhúsanna
mbl.is/bio