Morgunblaðið - 20.04.2018, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. APRÍL 2018
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Strokufanginn hugsanlega á Spáni
Ekkert vitað um ferðir Sindra Ekki verið að rekja kort hans Engar nýjar upplýsingar frá Svíum
Andri Steinn Hilmarsson
ash@mbl.is
Líkur er á því að strokufanginn Sindri Þór Stef-
ánsson sé kominn til Spánar. Ólafur Helgi
Kjartansson, lögreglustjóri á Suðurnesjum,
segir þennan grun reistan á orðrómi þar um, en
segir þó að engin sannfærandi vísbending hafi
komið fram um að svo sé. Þegar Morgunblaðið
fór í prentun í gærkvöldi hafði lögregla engar
upplýsingar um ferðir Sindra Þórs frá því að
hann lenti á Arlanda-flugvellinum í Svíþjóð á
þriðjudagsmorgun, hvorki hvort hann hefði
flogið áfram frá flugvellinum né hvort hann
hefði farið út af flugvellinum og inn í Svíþjóð.
Sænska lögreglan hefur ekki getað veitt upplýs-
ingar um ferðir Sindra Þórs eftir að til Svíþjóð-
ar var komið. Ólafur Helgi segir enga ástæðu til
að ætla að sænsk lögregla standi sig ekki við
rannsókn málsins, en segir að það væri heppi-
legt að fá frá þeim upplýsingar. Í gærkvöldi
hafði leigubílstjórinn sem ók Sindra Þór að flug-
stöðinni aðfaranótt þriðjudagsins sem hann
flaug út til Svíþjóðar enn ekki gefið sig fram og
leit lögreglu að bílstjóranum ekki borið árang-
ur. Að sögn Ólafs Helga væri æskilegt að bíl-
stjórinn gæfi sig fram áður en lögregla gripi til
harðari aðgerða til að hafa uppi á viðkomandi,
en um er að ræða silfraðan Skoda-skutbíl. Ólaf-
ur segir að lögregla sé ekki að rekja kort Sindra
en það standi til að skoða þann möguleika í dag.
Sindri Þór er giftur, þriggja barna faðir,
fæddur árið 1986, og á hann að baki langan
sakaferil, meðal annars fjölda fíkniefna- og
þjófnaðarbrota. Síðasta dómsmálið tengt
Sindra Þór var í lok síðasta árs þegar lögregla
kom upp um kannabisræktun á Norðurlandi.
Á Linkedin-síðu Sindra Þórs kemur fram að
hann hafi lokið tölvunarfræðinámi við Háskól-
ann í Reykjavík árið 2015 og starfað við hug-
búnaðarþróun hjá íslensku hugbúnaðarfyrir-
tæki fyrsta árið eftir útskrift áður en hann
starfaði sjálfstætt og stofnaði eigin hugbúnað-
arfyrirtæki, en litlar sem engar upplýsingar er
að finna um fyrirtækið.
Sindri sat í gæsluvarðhaldi grunaður um að-
ild að einu stærsta þjófnaðarmáli Íslandssög-
unnar þar sem brotist var inn í þrjú gagnaver,
meðal annars hjá Advania á Fitjum og Borealis
Data Center í Borgarbyggð, og stolið tölvubún-
aði að andvirði 200 milljóna króna. Alls voru 23
handteknir við rannsókn málsins en Sindri var
sá eini í gæsluvarðhaldi þegar hann slapp og
telst málið enn óupplýst en innbrotunum hefur
verið lýst sem þaulskipulögðum. Búnaðurinn
var notaður til Bitcoin-graftar en Ólafur Helgi
segir í samtali við Morgunblaðið að aldrei hafi
komið fram við rannsókn málsins að rafmyntir
hafi verið á hörðum diskum tölvubúnaðarins
sem hvarf.
Að sögn Ólafs Helga hafa íslensk yfirvöld
afturkallað vegabréf Sindra Þórs, en hann þarf
gilt vegabréf ætli hann sér að yfirgefa Schen-
gen-svæðið.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Stefna íslenskra stjórnvalda hefur
lengi verið sú að nýta auðlindir hafs-
ins á ábyrgan hátt. Leyfi til hval-
veiða sem gefin voru út fyrir fimm
árum gilda út árið 2018 og heimildin
sem var gefin út byggðist á varfærn-
islegum ráðleggingum frá Hafrann-
sóknastofnun,“ segir Kristján Þór
Júlíusson, landbúnaðar- og sjávarút-
vegsráðherra, í samtali við Morgun-
blaðið.
Byrja 10. júní
Eins og fram hefur komið er hjá
Hval hf. nú unnið að rannsóknum á
möguleikum þess að nýta langreyð-
arkjöt í járnríkt fæðubótarefni.
Ræður þetta þeirri ákvörðun
stjórnenda fyrir-
tækisins að hefja
hvalveiðar á ný í
sumar, eftir
tveggja ára hlé.
Veiðarnar hefjast
um 10. júní næst-
komandi. Þeim
var hætt fyrir
tveimur árum
enda gekk út-
flutningur hvala-
afurða til Japans þá ekki sem skyldi.
Tíminn síðan hefur verið notaður til
að kanna möguleika á vinnslu ann-
arra afurða. Hvalur hf. hefur leyfi til
að veiða 161 langreyði í sumar, auk
þess sem nota má hluta af ónýttum
kvóta síðasta árs.
Skiptar skoðanir eru um hvalveið-
ar og í umræðu síðustu daga hafa
heyrst ýmis sjónarmið um að veið-
arnar geti ógnað stærri hagsmunum
Íslendinga í viðskiptum. Jafnframt
geti þær gengið nærri viðkvæmum
stofnum. Um þetta segir Kristján
Þór að þegar fyrirliggjandi leyfi til
hvalveiða voru gefin út hafi gagnrýn-
endur sagt að veiðar á hval og um-
fjöllun um þær myndu koma til með
að skaða ferðaþjónustuna og jafnvel
fleira.
Annað en líffræði
„Við þekkjum alveg þróun við-
skipta og fjölgun ferðamanna á und-
anförnum árum. Það verður hver og
einn að draga sínar ályktanir út frá
þeim staðreyndum. Varðandi jafn-
vægi í lífríkinu hefur ráðgjöf vísinda-
manna Hafrannsóknastofnunar um
veiðar verið langt undir því sem er
líffræðileg varúðarmörk. Umræðan
um hvalveiðar eða bann við þeim
snýst því um eitthvað annað en líf-
fræðilega þætti,“ segir landbúnaðar-
og sjávarútvegsráðherra.
Veiðin undir varúðarmörkum
Ábyrg nýting og varfærnislegar ráðleggingar Óttast ekki að hagsmunir skaðist
Kristján Þór
Júlíusson
Morgunblaðið/Ómar
Hvalskurður Hvalur hf. hefur leyfi
til að veiða 161 langreyði í sumar.
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, sæmdi í
gær rússnesk-íslenska hljómsveitarstjórann og
píanistann Vladimir Ashkenazy stórkrossi hinn-
ar íslensku fálkaorðu við hátíðarathöfn á Bessa-
stöðum. Verðlaunin voru veitt fyrir framlag til
íslenskrar menningar og tónlistarlífs. Ashke-
nazy er aðalheiðursstjórnandi Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands og hefur áður verið sæmdur ridd-
arakrossi og stórriddarakrossi fálkaorðunnar. Í
kvöld mun Ashkenazy stýra tónleikum með sin-
fóníuhljómsveitinni og japanska píanistanum
Nobuyuki Tsujii í Hörpu. Þessi frækni mann-
skapur mun í nóvember halda í tónleikaferð til
Japans þar sem m.a. verða flutt verk eftir Chop-
in og Rakhmanínov.
Ashkenazy sæmdur stórkrossinum
Morgunblaðið/Eggert
Fagnaðarfundir á Bessastöðum
Myndlistarmað-
urinn Tryggvi
Ólafsson er hand-
hafi Verðlauna
Jóns Sigurðssonar
forseta árið 2018.
Það var tilkynnt á
hátíðarsamkomu í
Jónshúsi í Kaup-
mannahöfn í gær.
Stjórn Jónshúss
gerði tillögu um
verðlaunahafa til forsætisnefndar
Alþingis, sem formlega veitir verð-
launin. Í rökstuðningi stjórnarinnar
segir m.a.: „Tryggvi er sá íslenski
listmálari sem lengst hefur búið og
starfað í Danmörku. Þá hefur
Tryggvi haldið flestar listsýningar
af íslenskum málurum, alls um 35, í
Danmörku, auk fjölda samsýninga.“
Það var Steingrímur J. Sigfússon,
forseti Alþingis, sem afhenti verð-
launin. Gígja, dóttir Tryggva, veitti
þeim viðtöku fyrir hans hönd.
Tryggvi Ólafsson
hlýtur verðlaun Jóns
Tryggvi
Ólafsson
Heildarferða-
kostnaður
starfsmanna Al-
þingis árið 2017
nam 14,7 millj-
ónum króna.
Frá þessu var
greint í svari
Steingríms J.
Sigfússonar,
forseta Alþingis,
við fyrirspurn
Þorsteins Sæmundssonar, þing-
manns Miðflokksins. Greint var
frá því að 21 starfsmaður Alþing-
is hefði fengið dagpeninga vegna
utanlandsferða, alls um 7 millj-
ónir króna. Hæsta greiðsla til
eins starfsmanns Alþingis var
1.108.681 krónur. Útlagður
kostnaður fyrir vinnuföt var um
tvær milljónir. Meðalheildarlaun
starfsmanna á skrifstofunni voru
9.055.103 krónur.
Tæpar 15 milljónir
í ferðakostnað
Þorsteinn
Sæmundsson
Laust fyrir 10 í gærkvöldi sló öllu
rafmagni út í Þorlákshöfn og ná-
grenni. Samkvæmt upplýsingum
frá Landsneti mun spenni frá RA-
RIK hafa leyst út. Steinunn Þor-
steinsdóttir, upplýsingafulltrúi
Landsnets, sagði í samtali við
mbl.is að viðgerðarhópur hefði
verið sendur til bæjarins frá Sel-
fossi til þess að leita uppi ástæður
þess að spenninn leysti út.
Rafmagn komst aftur á um
klukkustund síðar eða laust fyrir
klukkan 11. Ekki höfðu fengist
upplýsingar um ástæður bilunar-
innar þegar Morgunblaðið fór í
prentun.
Alvarleg rafmagns-
bilun í Þorlákshöfn