Morgunblaðið - 20.04.2018, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. APRÍL 2018
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Alls um 650 nemendur sem útskrif-
ast úr grunnskóla í vor hafa hug á
því að fá inngöngu í Verslunarskóla
Íslands. Verslunarskólinn hefur ver-
ið vinsælastur undanfarin ár en í ár
liggur straumurinn einnig inn í
Menntaskólann við Hamrahlíð og
Menntaskólann við Sund og mun-
urinn á milli þeirra og Verslunar-
skólans er minni en áður. Þó hefur
Versló yfirburði þegar aðeins er litið
á fyrsta val nemenda en hinir skól-
arnir koma sterkir inn þegar fyrsta
og annað val er lagt saman.
Lokið er forinnritun nemenda úr
10. bekk en nemendur geta bæst við
og endurskoðað afstöðu sína í maí og
fram til 8. júní þegar innritun lýkur.
Innritun eldri nemenda stendur yfir
og lýkur 31. maí.
Um 90% nemenda tóku þátt í for-
innritun að þessu sinni. Er þetta
meiri þátttaka en á síðasta ári, að
sögn Kristrúnar Birgisdóttur,
starfsmanns á greiningarsviði
Menntamálastofnunar. Fleiri eiga
eftir að bætast í hópinn því reynslan
sýnir að um 98% nemenda í hverjum
árgangi halda áfram, alls rúmlega
4.100 manns.
Flestir komast í óskaskólann
Þótt ekki hafi verið lokað fyrir
umsóknir og tölurnar eigi eftir að
breytast telur Kristrún að forinnrit-
unin gefi góða mynd af því hvert
nemendur vilji fara. Flestir komast í
þann skóla sem þeir óska helst en
10-13% í skóla samkvæmt vali 2 og
um 1% nemenda kemst ekki í þá
skóla sem þeir völdu í fyrsta og öðru
vali.
Taflan sem birt er hér með sýnir
að aðeins helmingur þeirra nemenda
sem hafa hug á að nema við Versl-
unarskóla Íslands munu komast þar
að því 650 nemendur sækja um þau
325 pláss sem laus eru fyrir nýnema.
Hlutfallið er litlu betra í Mennta-
skólanum við Hamrahlíð sem er
næstvinsælasti skólinn í ár.
Forinnritun nýnema í framhaldsskóla 2018
Skóli Val 1 Val 2 Samtals Nýnemapláss
Verzlunarskóli Íslands 496 154 650 325
Menntaskólinn við Hamrahlíð 282 314 596 290
Menntaskólinn við Sund 226 327 553 216
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ 181 321 502 190
Kvennaskólinn í Reykjavík 205 286 491 225
Tækniskólinn 237 236 473 350
Verkmenntaskólinn á Akureyri 192 211 403 180
Borgarholtsskóli 167 210 377 250
Menntaskólinn í Reykjavík 201 150 351 250
Menntaskólinn í Kópavogi 128 173 301 240
Menntaskólinn á Akureyri 188 101 289 200
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti 113 166 279 200
Flensborgarskólinn í Hafnarfirði 137 142 279 215
Fjölbrautaskóli Suðurnesja 174 71 245 247
Fjölbrautaskóli Suðurlands 156 59 215 175
Fjölbrautaskóli Vesturlands 98 35 133 120
Fjölbrautaskólinn við Ármúla 35 83 118 90
Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ 42 60 102 70
Menntaskólinn að Laugarvatni 46 55 101 54
Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra 43 31 74 66
Menntaskólinn á Egilsstöðum 46 21 67 65
Menntaskólinn á Ísafirði 54 13 67 68
Framhaldsskólinn á Laugum 18 40 58 30
Verkmenntaskóli Austurlands 25 23 48 35
Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum 34 5 39 49
Fjölbrautaskóli Snæfellinga 28 8 36 53
Menntaskóli Borgarfjarðar 19 15 34 30
Menntaskólinn á Tröllaskaga 16 15 31 25
Framhaldsskólinn í A-Skaftaf. 16 9 25 25
Framhaldsskólinn á Húsavík 13 10 23 23
Menntaskóli í tónlist 11 4 15 -
Fisktækniskóli Íslands ehf. 1 2 3 -
Námsflokkar Reykjavíkur 1 1 2 -
Heimild: MMS
Verslunarskólinn
er vinsælastur
Aukin aðsókn í MH og MS
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Mikilvægt er að myndaður verði
formlegur vettvangur þannig að þær
tillögur í öryggisátt, sem Rannsókn-
arnefnd samgönguslysa kemur með í
kjölfar slysa, óhappa og ýmissa at-
vika til sjós, leiði til úrbóta og að-
gerða. Eins og málum er háttað nú
skortir yfirsýn um hvort og hvernig
tillögurnar nýtast og því verður að
breyta í samstarfi við Samgöngu-
stofu, útgerðina og aðra eftir því sem
við á. Þetta segir Jón Árelíus Ing-
ólfsson sem er rannsóknarstjóri sigl-
ingasviðs nefndarinnar.
160 tilkynningar árlega
Í dag verður haldin á vegum
Slysavarnaskóla sjómanna, Alþjóða-
samtaka sjóbjörgunarskóla og sam-
göngu- og sveitarstjórnarráðuneyt-
isins ráðstefna sem ber yfirskriftina
Öryggismál sjófarenda. Þar verður
farið heildstætt yfir þau mál frá ýms-
um hliðum af frummælendum sem
koma víða frá. Jón Árelíus mun þar
fjalla um rannsóknir á slysum sem
orðið hafa við sjávarsíðuna síðustu
ár. Einnig þá breytingu sem orðið
hefur á starfi Rannsóknarnefndar
samgönguslysa í seinni tíð, en ný lög
voru sett um starfsemina árið 2013.
„Við höfum gjarnan fengið 130 til
160 tilkynningar árlega og það sem
af er líðandi ári eru málin orðin um
fjörutíu. Við óskum þess að fá til-
kynningar um öll frávik sem verða,
svo þau séu að minnsta kosti til á
skrá. Stundum er engin ástæða til
rannsókna eða annars. Hins vegar
geta sum atvik verið mjög lúmsk,
það er að það sem virðist minnihátt-
ar óhapp geti leitt af sér varanlegan
skaða og líkamstjón. Því er mikil-
vægt að við fáum að minnsta kosti
vitneskju um tilvikin.“
Neyðarástand um borð
Jón Árelíus getur þess að í fyrr-
nefndum lögum frá 2013 sé að finna
nýtt ákvæði um eftirfylgni rann-
sóknarnefndarinnar. Þeim sem til-
lögum í öryggisátt er beint að, skuli
innan þriggja mánaða gera nefnd-
inni grein fyrir hvernig brugðist hafi
verið við þeim. Nefndin hafi svo tvo
mánuði til að meta hvort viðbrögð
séu fullnægjandi.
Meðal tillagna í öryggisátt, sem
nefndin hefur sett fram, eru þær
sem snúa að mönnum farþegaskipa.
Tildrög þess eru þau að í ágúst 2016
kom upp reykur í vélarrúmi skút-
unnar Hauks, sem þá var í hvala-
skoðunarferð úti á Skjálfandaflóa.
Vegna viðhaldsleysis hafði gasrör
farið frá aðalvél og gasið fyllt vél-
arrúm. Skipstjóranum tókst að sigla
skútunni fyrir eigin vélarafli til hafn-
ar á Húsavík, en áður en þangað kom
höfðu björgunarsveitir á svæðinu
verið kallaðar út.
Fram kom í máli skipstjórans við
rannsókn að tveggja manna áhöfn
væri of lítið þegar neyðarástand
skapaðist. Skipstjórinn hefði einnig
vélstjórn með höndum og leiðsögu-
maður um borð gæti ekki sinnt öllu
sem þyrfti í neyðarástandi. Rann-
sóknarnefndin hefur því lagt til við
Samgöngustofu að forsendur fyrir
mönnun farþegaskipa verði endur-
skoðaðar.
Tillögurnar í skoðun
„Við höfum ekki fengið nein önnur
svör en að tillögur okkar um endur-
skoðun á mönnun verði skoðaðar.
Það er algjörlega úrvinnsluatriði
Samgöngustofu eða annarra þeirra
sem setja reglurnar hver útfærslan
skuli vera. Það er mjög breytilegt
milli stærðar skipa og báta, haf-
svæða og annars, hver mönnun far-
þegaskipa skuli vera; það er fjöldi í
áhöfn. Öryggis vegna er mjög mik-
ilvægt að þessu verði komið í skýran
farveg, því farþegaflutningar á sjó
eru grein sem vex mjög hratt og þá
þurfa öll mál að vera á hreinu,“ segir
Jón Árelíus.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Húsavík Of fáir voru til að sinna því sem þurfti þegar reykur kom upp í
vélarrúmi hvalaskoðunarbátsins Hauks 2016. Öryggistillögur liggja fyrir.
Endurskoða verði
mönnun farþegaskipa
Tillögur í öryggisátt
» Skýrar reglur um eftirlit
með hífibúnaði fiskiskipa.
» Sjómenn á þilfari séu ávallt
búnir björgunarvestum.
» Úttekt á björgunarbúning-
um.
» Reglur um neyðarstöðv-
unarbúnað í fiskiskip <15 m.
» Viðvörunarbúnaður um sjó-
söfnun í lestum fiskiskipa.
» Efla fræðslu um stöðugleika
fiskiskipa með áherslu á of-
hleðslu.
» Ofhleðsla verði refsiverð.
» Herferð um hlustvörslu sjó-
manna á neyðarbylgju.
Tillögum rannsóknarnefndar verði fylgt betur eftir
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Þetta er gleðidagur hér í Garða-
bænum. Ég finn ekki annað en íbúar
séu ánægðir með hvernig til hefur
tekist með þessar framkvæmdir,
sem eru eitt stærsta verkefni
sveitarfélagsins á þessu kjör-
tímabili,“ segir Gunnar Einarsson,
bæjarstjóri í Garðabæ.
Pottar og laug endurnýjuð
Fjölmenni var viðstatt þegar Ás-
garðslaug í Garðabæ var opnuð að
nýju í gærmorgun eftir miklar
endurbætur. Öll yfirborðsefni í bað-
klefum og sundlaug hafa verið
endurnýjuð. Byggðir hafa verið nýir
pottar, heitir og kaldir, sem og vað-
og setlaug með barnarennibraut.
Gufubaðið hefur verið endurnýjað
og nýjar útisturtur settar upp. Þá
hafa útiklefar og -sturtur verið
endurnýjaðar og útbúnir nýir klefar
fyrir fatlað fólk.
Í byrjun maí verður svo sett upp
lyfta í lauginni sem bætir verulega
aðgengi fyrir fatlaða. Ný girðing er
umhverfis allt sundlaugarsvæðið og
í nýju vaktherbergi er fullkomið eft-
irlitskerfi. Innandyra var gólf í dans-
sal lagað og rými opnað við hlið sal-
arins þar sem þrekaðstaða
almennings verður. Heildarkostn-
aður við þessar framkvæmdir er um
900 milljónir króna.
„Upphafið að þessu var undir-
skriftalisti þar sem um 500 fasta-
gestir laugarinnar skoruðu á bæjar-
yfirvöld að gera endurbætur á
lauginni, eins og við líka gerðum.
Fólk hefur auðvitað ýmsar skoðanir
á því hvernig svona aðstaða skuli
vera og lætur þær í ljós, en ég held
að flestir séu ánægðir með hvernig
til hefur tekist,“ segir bæjarstjórinn.
Heilsueflandi samfélag
Við opnun sundlaugarinnar undir-
rituðu Gunnar bæjarstjóri og Alma
Möller landlæknir samninga milli
Garðabæjar og embættis Land-
læknis um þáttttöku Garðabæjar í
verkefninu Heilsueflandi samfélag.
Undir þess merkjum eru helstu
áhersluþættir landlæknis og er þeim
ætlað að ná til allra aldurshópa í
samfélaginu og stuðla að góðri
heilsu, vellíðan og auknum lífs-
gæðum. Þessi atriði segir Gunnar að
falli vel að þeirri stefnu sem rekin sé
í Garðabæ. Bærinn leggi íþróttum
og heilsueflandi starfi lið, bæði með
styrkjum og aðstöðu. Sé slíkt fallið
til þess að bæta heilsu bæjarbúa á
líkama og sál. Hluti af þessu verk-
efni sé að nú fá börn yngri en 18 ára
fá ókeypis aðgang í sundlaugar bæj-
arins. Það eru Álftanes- og Ásgarðs-
laugar sem verða í tilraunaskyni
opnar til kl. 22 í sumar.
Betri sundlaug í
Garðabæ í notkun
Endurnýjun í Ásgarði 900 millj. kr.
Sundsöngur Laugargestir voru glaðir í bragði og ekki
varð karlakórssöngurinn til að draga úr stemningunni.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Heilsa Alma Möller landlæknir og Gunnar Einarsson
undirrituðu samning um Heilsueflandi samfélag.