Morgunblaðið - 20.04.2018, Síða 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. APRÍL 2018
FÆREYJAR
2 fullorðnir með fólksbíl.
verð á mann frá
ISK14.700
DANMÖRK
2 fullorðnir með fólksbíl.
verð á mann frá
ISK27.400
Vikulegar siglingar allt árið til Færeyja og Danmerkur.
Stangarhyl 1 | 110 Reykjavík | Sími: 570-8600
Smyril Line Seyðisfjörður 4702808 |
info@smyril-line.is | www.smyrilline.is
Taktu bílinn með
til Færeyja eða
Danmerkur
Bæklingurinn
okkar fyrir 2018 er
kominn út. Í honum
finnur þú fullt af
tilboðum og
verðdæmum. Hægt
er að nálgast hann á
www.smyrilline.is
Bókaðu
núna og
tryggðu
þér pláss
DagnýKrist-ins-
dóttir, kennari
og formaður
Aftureldingar, á
40 ára afmæli í
dag. Hún er
deildarstjóri yf-
ir miðstigi í
Varmárskóla í
Mosfellsbæ og
tók við þeirri
stöðu núna í
janúar.
„Ég er því
ekki í daglegri
kennslu lengur
og sakna þess
aðeins en mér
finnst þessi nýja
staða skemmti-
leg og er mjög
ánægð í
vinnunni.“
Dagný hefur
verið formaður
Ungmenna-
félagsins Aftureldingar í þrjú ár. Í félaginu eru um 2.000 iðkendur
og þar af eru 1.100-1.200 börn og unglingar.
„Það er allt fínt að frétta af félaginu, konurnar eru komnar í úr-
slit í blakinu og við vorum að stofna hjóladeild. Það eru því komnar
ellefu deildir í Aftureldingu.“
Auk þessa er Dagný að klára meistaranám í forystu og stjórnun
við Háskólann á Bifröst og skilar lokaritgerðinni um næstu mán-
aðamót.
„Ritgerðin fjallar um starfsþróun kennara, hvernig þeir haga
sinni endurmenntun og hvernig að henni er staðið. Í ritgerðinni ber
ég saman starfsþróun kennara á höfuðborgarsvæðinu og á norðan-
verðum Vestfjörðum.“
Dagný var með 60 manna afmælisveislu hjá sér á miðvikudags-
kvöldið. „Í dag fer ég í vinnuna og seinnipartinn verð ég rittúlkur
fyrir Öryrkjabandalagið, en ég sinni því starfi eftir þörfum.“ Rit-
túlkur er aðstoðarmaður heyrnarskertra, en hann skrifar niður allt
sem fram fer svo hinn heyrnarskerti geti fylgst með.
Eiginmaður Dagnýjar er Haukur Örn Harðarson, tölvunarfræð-
ingur hjá Advania Mobile Pay, og synir þeirra eru Kristinn Breki 18
ára, Arnar Páll 14 ára og Tómas Orri 11 ára.
Formaður, deildar-
stjóri, rittúlkur og nemi
Dagný Kristinsdóttir er fertug í dag
Fjölskyldan Við
fermingu miðsonarins
á sunnudaginn var.
S
igfús Jón Árnason fæddist
á Sauðárkróki 20.4. 1938
og ólst þar upp.
Vegna tímabundinna
berklaveikinda móður
hans var hann í fóstri í þrjú ár hjá
hjónunum á Hofi á Höfðaströnd,
þeim Jóni Jónssyni og Sigurlínu
Björnsdóttur sem voru vinafólk for-
eldra hans. Auk var hann þar í sveit á
sumrin til 16 ára aldurs.
Sigfús var í Barnaskóla Sauðár-
króks, lauk landsprófi frá Gagn-
fræðaskóla Sauðárkróks, lauk stúd-
entsprófi frá MA 1959, stundaði nám í
alkirkjufræðum í Vieux-Villez í
Frakklandi á vegum Alkirkjuráðsins
1961, lauk embættisprófi í guðfræði
við HÍ 1965, sótti námskeið í eðlis-
fræði 1970 og 1972, stundaði fram-
haldsnám í litúrgískum fræðum við
La Sazara Congregazione Per il
Culto Divino í Róm 1977, nám í
kirkjulistasögu og hagnýtri guðfæði
við Johannes-Guttenberg Universität
í Mainz í Þýskalandi árið 1990-91.
Sigfús var vélstjóri á togaranum
Skagfirðingi sumrin 1959-65, var
stundakennari við VÍ 1961-62, varð
sóknarprestur í Miklabæ í Blöndu-
hlíð 1965, var jafnframt ráðinn far-
prestur í Sauðárkróksprestakalli frá
1973-74 og 1976. Hann var sókn-
arprestur á Sauðárkróki 1977-80, var
skipaður sóknarprestur í Hofs-
prestakalli 1980, var bóndi á Hofi frá
1981 og prófastur í Múlaprófasts-
dæmi frá 1999 og til starfsloka 2004.
Sigfús kenndi við Barnaskólann í
Akrahreppi 1965-77. Hann var próf-
dómari við Steinsstaðaskóla í Skaga-
firði 1966-71, stundakennari við Hús-
mæðraskólann á Löngumýri 1973-74,
við Barnaskólann á Sauðárkróki
1977-80, við Gagnfræðaskóla Sauð-
árkróks 1977-80, við Námsflokka
Sauðárkróks 1977-79, við Grunnskól-
ann á Vopnafirði 1980-90 og 1991-93.
Hann var tungumálakennari við ME
á Vopnafirði með hléum frá 1992.
Sigfús var trúnaðarmaður kennara við
Barnaskólann í Akrahreppi 1977, sat í
stjórn Hólafélagsins um árabil, for-
maður Alexanderssjóðs frá 1980, for-
maður Veiðifélags Hofsár 1983-89, sat
í barnaverndarnefnd Vopnafjarðar
1987-91, sat í héraðsnefnd Múlapró-
fastsdæmis 1988-99 og formaður þess
frá 1990.
Sigfús hefur ætíð haft áhuga á helgi-
haldi kirkjunnar og hefur verið hlynnt-
ur því að færa það til eldra forms: „Það
má segja að Róbert Abraham Ott-
ósson hafi öðrum fremur haft áhrif á
okkur, nemendur í guðfræðideildinni,
ekki síst með hugmyndum sínum um
kirkjutónlist. Hann kenndi við guð-
fræðideildina og varð síðar söng-
málastjóri Þjóðkirkjunnar. Ég hef t.d.
verið hlynntur því að hafa altarisgöngu
við hverja messu í heimakirkju.
En svona hugmyndir fengu mis-
jafnar undirtektir og ég man að ein-
hverjir blaðamenn kölluðu þær „kaþ-
ólskt kennderí og grallaragaul“.
Sigfús Jón Árnason, fyrrv. prófastur og kennari – 80 ára
Hjónin Sigfús Jón Árnason, fyrrv. prófastur og kennari, og k.h., Anna María Pálsdóttir bókagerðarmaður.
Hefur ætíð haft áhuga
á helgihaldi kirkjunnar
Reykjavík Anna
Elísabeth Lleshi
fæddist 2. mars
2017 kl. 12.18. Hún
vó 1.082 g og var
39,5 cm löng. For-
eldrar hennar eru
Guðrún Lilja
Önnudóttir og
Gerard Lleshi.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinumynd af nýjum borgara eðamynd af brúðhjónum fá fría áskrift
að Morgunblaðinu í einnmánuð.
Hægt er að sendamynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón