Morgunblaðið - 20.04.2018, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 20.04.2018, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. APRÍL 2018 HEKLA / LAUGAVEGUR 170-174 / HEKLA.IS Þegar sentimetrarnir skipta máli. 20% afsláttur af bremsum og 10% afsláttur af bremsuvið- gerðum í apríl. Þorgerður Anna Gunnarsdóttir thorgerdur@mbl.is „Í Arion banka á ég reikning sem ég stofnaði fyrir fjörutíu árum í Bún- aðarbankanum. Ég er búinn að eiga við þá farsæl viðskipti og hef alltaf staðið við mitt. Svo kemur upp eitt tilfelli og mér er stillt upp eins og einhverjum fjárglæframanni,“ segir Þorvaldur Ingi Jónsson, en mál hans gegn Arion banka var tekið fyrir í Hæstarétti á miðvikudag. Í apríl á síðasta ári dæmdi Héraðsdómur Reykjavíkur Arion banka til þess að fella niður kreditkortafærslur Þor- valdar og þáverandi konu hans sem lent höfðu í svikum við kaup á spjaldtölvu á Tenerife árið 2015. Greiðslurnar sem um ræðir nema um 1,4 milljónum íslenskra króna. Aðdragandi málsins var með þeim hætti að Þorvaldur kynntist versl- unareigendum á Tenerife þegar hann var þar í fríi með þáverandi eiginkonu sinni árið 2015. Með þeim hafði skapast ákveðið traust, enda var þarna um atvinnusvikara að ræða. Þorvaldur hugðist kaupa af þeim spjaldtölvu og hafði greitt fyrir hana með peningum, alls 365 evrur, en þegar hann fékk hana afhenta nokkrum dögum síðar var honum tjáð að vildi hann fá ábyrgðartrygg- ingu á tækið þyrfti hann að greiða með kreditkorti. Þegar hann sló inn pin-númer kortsins var honum tjáð að vandamál hefði komið upp með tenginguna, og sló hann pin-númerið á kortinu alls þrisvar sinnum inn, og var tjáð í hvert sinn að greiðslan hefði ekki gengið í gegn. Þá brá hann á það ráð að ná í kort þáver- andi eiginkonu sinnar. Síðar kom í ljós að í fyrri tvö skiptin hafði korta- greiðslunum raunverulega verið hafnað, enda voru þær langt yfir heimildarmörkum, eða 1.335.299 kr. og 962.592 kr. Í þriðju tilraun er fjárhæðin innan heimilda hjá Val- itor, 695.205 kr. og út af korti þáver- andi eiginkonu hans voru teknar 680.351 kr. Þorvaldur segir Valitor þarna hafa brugðist eftirlitshlutverki sínu þegar erlendis frá sé reynt að taka út mjög háar fjárhæðir sem séu úr öllu samhengi við almenn viðskipti einstaklinga. Tveimur dögum síðar fékk Þorvaldur skilaboð frá Arion banka, en kortin hans voru stillt þannig að ef mánaðarlegar úttektir á aðalkortinu færu upp fyrir 500.000 kr. átti hann að fá tafarlausa tilkynn- ingu. Þorvaldur hringdi um- svifalaust í Valitor þar sem hann fékk þær upplýsingar að öllum færslunum hefði verið synjað. Hann fékk þó engar upplýsingar um upp- hæðir meintra synjaðra færslna, en var tjáð að hann þyrfti að mæta á skrifstofu Valitors og leggja fram kvörtun vegna kortafærslu. Þegar heim var komið kom í ljós að vegna þess að hann hafði notað pin-númer hefðu færslurnar farið í gegn. Reikningar um kaup á dýrri Mac- tölvu voru sendir til Valitors, en Þor- valdur benti þeim á að einungis sér- stakir söluaðilar hefðu heimild til að selja búnað frá Apple og bað Valitor um að krefjast staðfestingar á að verslunin hefði slíka heimild. Valitor vísaði málinu frá og sendi það til inn- heimtu hjá Arion banka. Þorvaldur vildi ekki að aðrir myndu lenda í svikum eins og hann og kærði málið til lögregluyfirvalda á Spáni og málið fór fyrir dómstóla á Tenerife. Hann óskaði eftir aðstoð frá Arion banka og Valitor við að kosta lögmann en var synjað og því fór málið ekki í gegn. Hins vegar nýttust gögnin úr máli Þorvaldar til þess að uppræta stórfellda glæpa- starfsemi á Kanarí og Tenerife. Tal- ið er að glæpasamtök á svæðinu hafi svikið yfir 1,5 milljónir evra út úr þúsundum ferðamanna, og yfir 30 manns voru handteknir í tengslum við starfsemina, en samtökin eru auk þess talin hafa átt vitorðsmenn innan bankakerfisins. „Þegar það lá fyrir að stunduð var skipulögð glæpastarfssemi spurði ég Valitor og Arion banka hvort ekki væri tímabært að leggja niður kröf- una og reyna þess í stað að sækja á bankann á Tenerife sem var með starfsmann innanborðs sem hafði tekið þátt í svikunum.“ Niðurstaða Héraðsdóms Reykja- víkur í málinu var afgerandi og í honum sagði: „Þótt á það verði fallist að stefnendur hafi sýnt af sér van- gæslu þegar þau slógu inn PIN- númer sín með framangreindum hætti verður ekki talið að stefnendur hafi sýnt af sér stórkostlegt gáleysi við meðferð korta sinna eða upplýs- inga þeim tengdra, eða brotið þann- ig gegn kortaskilmálum stefnda, að þau hafi firrt sig rétti til þess að krefjast síðar niðurfellingar á færslum samkvæmt fyrrgreindum skilmálum.“ Bankanum var gert að leggja niður kröfuna, auk þess að greiða parinu sameiginlega 1,1 millj- ón í málskostnað. Arion banki sætti sig ekki við úr- skurðinn og áfrýjaði til Hæstaréttar þar sem málið var, eins og áður sagði, tekið fyrir á miðvikudag. Þor- valdur ætlar að Arion banki hafi eytt mun meiri fjármunum í málaferlin heldur en virði kröfunnar sem þeim var gert að leggja niður. „Þetta eru sár mál og það er mjög erfitt að þeir skuli ganga fram með þessum hætti, gefa ekki tommu eftir og hafa ekki sýnt neina burði til að verja viðskiptaumhverfi sitt. Kortaviðskipti geta ekki gengið upp nema hægt sé að treysta þeim sem eru með posana. Það getur því ekki talist annað en stórkostleg van- ræksla að hálfu Arion banka og Val- itors að gera ekkert til að kæra og stöðva svikarana.“ Stillt upp sem fjárglæframanni  Svikinn um 1,4 milljónir króna á Tenerife  Arion banki dæmdur til að fella niður færslurnar  Bankinn áfrýjaði til Hæstaréttar  Sakar Valitor og bankann um alvarlega vanrækslu og ábyrgðarleysi Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Glæpastarfsemi Þorvaldur segir Arion banka og Valitor ekkert hafa gert til að kæra og stöðva svikin. Þorvaldur kostaði sjálfur löggiltar þýðingar á tveimur fréttum úr spænskum fjölmiðlum tengdar mál- inu. Í frétt La Provincia frá janúar 2017 kemur fram að ríkislögreglan hafi leyst upp glæpasamtök í kjöl- far handtöku 31 manns sem talin eru hafa svikið yfir 1,5 milljónir evra út úr rúmlega eitt þúsund er- lendum ferðamönnum á suðurhluta Tenerife og Gran Canaria. Í fréttinni kemur fram að glæpasamtökin hafi laðað ferðamenn að verslunum sín- um með mjög lágu vöruverði, en þegar kom að því að greiða fyrir vörurn- ar væri greiðslukortunum ítrekað rennt í gegnum posa sem tekinn hefði verið á leigu hjá bankastarfsmönnum sem þáðu greiðslur fyrir vikið. Í frétt fjölmiðilsins Canarias Ahora frá mars sama ár kemur fram að tólf hafi verið handteknir fyrir að hafa haft yfir 436.000 evrur, jafnvirði 54 milljóna króna af ferðamönnum á Gran Canaria með svipuðum aðferð- um. Glæpaalda á Tenerife ÞEKKT STARFSEMI Á SPÁNI Ljósmynd/Getty Images

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.