Morgunblaðið - 20.04.2018, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 20.04.2018, Qupperneq 13
Æfing Einar Hjalti, Helgi Snær og Magnús Guðjón æfa í loftskammbyssusal Skotdeildar Keflavíkur. Helgi og Magnús klæðast skotgöllum sem þyngja og hægja á hjartslætti svo skytta sé stöðugri. í tölvustýrðum skotmörkum sem var mikil bylting fyrir starfsemi deildarinnar. Það má heyra á ung- lingunum að þar og á útisvæðinu sé mesta fúttið. Unglingar æfa frítt og hafa alla tíð gert, auk þess sem skotfimi stendur eldri nemendum grunnskólanna í Reykja- nesbæ til boða í vali. „Fyrsta auglýsta ung- lingaæfingin var líklega 2012. Svo fórum við að leggja að- eins meiri metnað í þetta. Aðstaðan hamlaði okkur hins vegar fram- an af og við náðum ekki eins langt og við vildum. Það breytti hins vegar öllu að fá að- stöðu hér í Sund- miðstöðinni og ekki skemmir að við erum al- veg í hjarta bæjarins.“ Bjarni segir helstu áskorunina vöxt deild- arinnar en búið sé að taka inn fleiri æfingastjóra til að dreifa álagi. „Þessi aðstaða breytti því að fólk, sumt unglingar, fór virkilega að vilja koma til að stunda þessar loftgreinar að einhverju ráði. Þar af leið- andi höfum við verið að bæta okkur sem íþróttafólk og efl- ast sem félag. Núna er sama- staður til þar sem fólk jafnvel bara kíkir inn til að segja hæ og spjalla, ekkert endilega til að skjóta.“ Alltaf hægt að bæta sig og setja sér ný markmið Vinirnir Einar Hjalti Gilbert, Helgi Snær Jónsson og Magnús Guðjón Jensson voru ekki í æf- ingaaðstöðunni til að segja hæ, þegar blaðamaður leit inn, enda á fullu að æfa sig fyr- ir Íslandsmót sem var í byrjun apríl. Magnús gerði sér lítið fyrir og setti nýtt Íslandsmet í unglingaflokki karla. Hann fékk samtals 566,6 stig. Fyrr á árinu setti Helgi Snær Íslandsmet. Þeir félagar hafa allir verið að æfa í rúmlega ár og hvöttu hver annan til æfinga. „Það var eiginlega Magnús sem dró mig hingað. Þá var Einar líka byrjaður að æfa og mig langaði til að vera með vinum mínum,“ segir Helgi Snær. Magnús segir pabba sinn hafa hvatt sig með í skotfimina eftir að Theodór yfirþjálfari hafði hvatt hann til að kíkja. – Hvað er það við skotfimina sem heillar? „Þetta er bara gaman. Maður getur alltaf verið að reyna að bæta sig og setja ný markmið. Svo verð- ur maður aldrei of gamall í þessa íþrótt, getur æft hana að eilífu.“ Það er Magnús sem vekur at- hygli á þessum staðreyndum og tekur jafnframt fram að í æfinga- salnum séu nú a.m.k. tveir karl- menn yfir sextugt. Það sé t.d. ekki möguleiki í þeim íþróttagreinum sem hann æfði áður, sundi og fót- bolta. Á útisvæðinu eru notaðar púðurbyssur, meira alvöru Einar segir þá vinina hafa ver- ið meðal fyrstu unglinganna til að koma og æfa. Þeir hafi fljótt náð góðum árangri í íþróttinni. „Eftir að við höfðum verið að æfa í tvo mánuði var Íslandsmót og við vorum bara strax orðnir góðir í þessu. Við fengum þá að vera sam- an í liði.“ – Eruð þið þá bestir sem lið eða eruð þið góðir einir sér? „Við erum bæði góðir sem lið og sem einstaklingar,“ segir Helgi sem bendir á að allir keppi þeir sem ein- staklingar og síð- an séu stig þeirra lögð saman og þannig myndi þeir sterkt lið. Framundan eru útiæfingar, sem Einar segir meira púður í en í innisvæðinu þó að kostir inni- svæðisins séu þeir að þar er alltaf hægt að æfa. „Á útisvæð- inu erum við með púðurbyssur. Það er meira alvöru myndi ég segja. Við erum þá líka að skjóta af 100 metra færi.“ Fjögur mót eru skipulögð á svæðinu í sumar sem vinirnir eru fullir tilhlökkunar yfir. Bjarni segir deildina með fimm auglýstar æf- ingar í viku, auk þess sem hægt sé að koma við á öllum tímum sem einhver er á staðnum og taka æf- ingu. Nýir iðkendur eru alltaf vel- komnir til að kynna sér aðstöðuna og prófa. Um viðveru sína tilkynna stjórnendur og þjálfarar á sam- félagsmiðlum. Unglingarnir æfa þó eingöngu með æfingastjóra eða þjálfara bæði á úti- og innisvæði. Allir spenntir að prófa að skjóta úr loftskammbyssu Nemendur í Holtaskóla geta tekið skotfimi í valgreinum 9. bekkjar. Valið er að frumkvæði skólans og þeir krakkar sem blaða- maður hitti í tíma sögðust hafa viljað prófa eitthvað nýtt. Einum fannst gaman að skjóta yf- irhöfuð og allir voru voða spenntir yfir því að fá að prófa að skjóta úr loft- skammbyssu, sem Theodór yfirþjálfari segir að sé á döfinni. „Þetta samstarf er vonandi bara byrjunin á einhverju stærra með skól- unum hér í Reykja- nesbæ. Auk þess að kenna þeim að skjóta förum við yfir hvernig á að standa, miða, halda á loft- riffli og loftskamm- byssu sem og öll ör- yggisatriði. Það vita það kannski ekki all- ir að skotfimi er slysalaus íþrótt á Íslandi og það í mjög langri sögu skotfimi á Íslandi. Skotfélag Reykjavíkur er elsta íþróttafélag á Íslandi, stofnað 1867. Fólk heldur stundum að þetta sé jaðaríþrótt en hún á sér rúmlega 150 ára sögu, einnig hér í Reykjanesbæ því Duus kaupmaður stofnaði skotfélag 1870. Eitt af húsum Duus var skot- hús.“ Val Nemendur í 9. bekk í Holtaskóla hafa í vetur getað tekið skotfimi í vali. Nú er fjórði nemendahópurinn hálfnaður með níu vikna námskeið, og allir ánægðir. „Auk þess að kenna þeim að skjóta förum við yfir hvernig á að standa, miða, halda á loftriffli og loft- skammbyssu sem og öll öryggisatriði. Það vita það kannski ekki allir að skotfimi er slysalaus íþrótt á Ís- landi og það í mjög langri sögu skotfimi á Íslandi. Fólk heldur stundum að þetta sé jaðaríþrótt en hún á sér rúmlega 150 ára sögu“ DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. APRÍL 2018 Skotfimi er ekki bara karlaíþrótt, þótt þeir séu vissulega fleiri í greininni. Sífellt fleiri stúlkur hafa komið í skotdeild Keflavíkur. Sigga Gísladóttir hóf að æfa skotfimi árið 2015 eftir að hafa farið með bekknum sínum í kynningu í aðstöðu deildarinnar, þá í 10. bekk í grunnskóla. Hún segist hafa náð gríðarlegum árangri með æfingum, m.a. fagnað Íslandsmeistaratitli. Spurð um hvað heilli hana við íþróttina, stendur ekki á svari: „Ég hef gaman af rólegum íþróttum eins og skák og skotfimi. Þessar greinar reyna mikið á þolinmæðina og það þarf færni til að geta stundað þessar greinar. Mér finnst félagsskapurinn í skotdeildinni líka frábær og andrúms- loftið. Skotfimin er virkilega skemmtileg íþrótt sem mér finnst að ætti að fá meiri viðurkenningu í samfélaginu.“ Skotfimin er eins og skák, þolinmæðisíþrótt SIGGA GÍSLADÓTTIR Ferðafélag Íslands skipuleggur sam- eiginlegan plokkdag á Degi jarðar, sunnudaginn 22. apríl. Almenningur, félagsmenn og meðlimir í öllum fjall- göngu- og hreyfihópum FÍ taka hönd- um saman og gera árás á plast og rusl í nágrenni Reykjavíkur. Mæting við bensínstöð Olís við Rauðavatn kl. 14 og þaðan verður plokkað í allar áttir til kl. 18. Hver og einn er hvattur til að taka með sér þrjá ruslasekki. Morgunblaðið/Árni Sæberg Sameiginlegt plokk, já, takk flísar fyrir vandláta PORCELANOSA Skútuvogi 6 - Sími 568 6755

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.