Morgunblaðið - 20.04.2018, Side 27
Fjölskylda
Eiginkona Sigfúsar er Anna María
Pálsdóttir, f. 27.11. 1932, bókagerð-
armaður og húsfreyja. Hún er dóttir
Páls Sigurðssonar Steingrímssonar,
f. 25.7. 1887, d. 18.7. 1963, bónda á
Njálsstöðum í Norðurárdal í Vestur-
Húnavatnssýslu, síðar verkamanns í
Reykjavík, og k.h., Ingibjargar H.
Sigurðardóttur, f. 17.11. 1892, d.
24.12. 1986, húsfreyju.
Fyrri kona Sigfúsar var Jóhanna
Sigríður Sigurðardóttir, f. 16.10.
1942, fyrrv. kennari, skólastjóri og
yfirsjúkraþjálfari við Kópavogs-
hælið.
Synir Sigfúsar og Jóhönnu eru
Sigurður Kári Sigfússon, f. 12.9.
1962, bifvélavirki og bifreiðarstjóri
hjá Póstinum, búsettur í Reykjavík
og á hann tvær dætur; Árni Jón Sig-
fússon, f. 22.1. 1969, arkitekt hjá
Mannvirkjastofnun, búsettur í
Reykjavík en kona hans er Annetta
Björk Baldursdóttir Scheving, graf-
ískur hönnuður, og eiga þau tvo syni;
Pétur Jóhann Sigfússon, f. 21.4. 1972,
uppistandari og starfsmaður hjá 365,
búsettur í Garðabæ en kona hans er
Sigrún og á hann tvö börn; Sigfús
Róbert Sigfússon, f. 25.11. 1974, stál-
smiður og véliðnfræðingur og þjón-
ustustjóri hjá Skaganum 3X, búsett-
ur í Reykjavík en kona hans er Ólöf
Hildur Gísladóttir lögfræðingur og
eiga þau þrjú börn.
Börn Önnu Maríu eru Ingi Jón
Sverrisson, f. 28.3. 1951, fram-
kvæmdastjóri Tourist, búsettur í
Reykjavík en kona hans er Herdís
Þórunn Jónsdóttir leikskólakennari
og eiga þau þrjú börn; Björg Krist-
jana Sverrisdóttir, f. 25.6. 1952,
sjúkraliði í Noregi og á hún fimm
börn; Anna María Sverrisdóttir, f.
10.4. 1958, sérkennari við Foldaskóla,
búsett í Reykjavík og á hún þrjú
börn; Sverrir Þórhallur Sverrisson, f.
9.10. 1965, líffræðingur og kerf-
isfræðingur hjá Íslenskri erfðagrein-
ingu, búsettur í Reykjavík en kona
hans er Hrönn Ásgeirsdóttir grunn-
skólakennari og eiga þau þrjú börn.
Systir Sigfúsar er Ragnheiður
Dóra Árnadóttir, f. 8.7. 1933, hjúkr-
unarfræðingur á Akureyri, en maður
hennar er Pétur Breiðfjörð gull-
smiður.
Foreldrar Sigfúsar voru Árni Jón
Gíslason, f. 15.2. 1904, d. 13.8. 1964,
bifreiðarstjóri og síðast verslunar-
maður hjá Kaupfélagi Skagfirðinga á
Sauðárkróki, og k.h., Ástrún Sigfús-
dóttir, f. 21.10. 1897, d. 2.11. 1981,
húsfreyja á Sauðárkróki.
Sigfús J. Árnason
Helga Árnadóttir
húsfr. á Grund
Þorsteinn Þorláksson
b. á Grund í Þorvaldsdal
Petrea Þorsteinsdóttir
húsfr. í Hvammi, Mælifelli og á Sauðárkróki
Ástrún Sigfúsdóttir
húsfr. á Sauðárkróki
Sigfús Jónsson
pr. og oddviti í Hvammi í Laxárdal og á Mælifelli í
Skagafirði, síðar kaupf.stj. og alþm. á Sauðárkróki
Ástríður Sigurðardóttir
húsfr. á Víðimýri
Jón Árnason
skáld og hreppstj.
í Víðimýri
Jón Gíslason b. í Miðhúsum
Þorvaldur Óskarsson
bifvélav. á Sleitustöðum
Óskar Gíslason b.
á Sleitustöðum
Stefán Vagnsson
b. á Minni-Ökrum
Vagn Gíslason b.
á Minni-Ökrum
Þrúður
Gísladóttir
húsfr. í
Miðhúsum
Gísli
Jónsson
b. í
Miðhúsum
Stefán R.
Gíslason
kórstj. Heimis
Halla Rut
Stefáns-
dóttir
sóknar-
prestur á
Hofsósi
Sigurður
Guðmundsson
skólameistari
Sigurður Örlygsson
myndlistarmaður
Ingibjörg
Guðrún
Sigurðardóttir
húsfr. á
Æsustöðum
og í Mjóadal
í Bólstaðar-
hlíðarhr.
Örlygur Sigurðsson
listmálari
Ólafur Sigurðsson læknir á Akureyri
Steingrímur Sigurðsson listmálari
Sigfús Sigurðarson
verkstj. hjá RARIK
Ingibjörg Sigfúsdóttir
húsfr. á Sauðárkróki
Jón Sigfússon deildarstj. hjá
Kaupfélagi Skagfirðinga á Sauðárkróki
Páll Sigfússon b. á Hvíteyrum
Þrúður Jónsdóttir
húsfr. í Miðhúsum
Jón L. Árnason
stórmeistari í skák og
framkv.stj. Lífsverks
Ásgeir Þór Árnason
lögmaður og skákmaður
Árni Björnsson
lögfr. í Rvík
Margrét
Ásgeirsdóttir
húsfr. í Rvík
Ragnheiður Skúladóttir
læknir
Erla Björk
Skúladóttir leikari og
kvikmyndagerðarmaður
Aðalbjörg
Björnsdóttir
kennari í Rvík
Geir Magnússon fyrrv. framkv.stj.
Iceland Seafood í Bandaríkjunum
Magnús Jochumsson
póstmeistari í Rvík
Aðalbjörg
Jónsdóttir
húsfr. á
Arngerðareyri
og í Rvík
Jón Björnsson
b. í Miðhúsum
Guðrún Jónsdóttir
húsfr. í Miðhúsum
Gísli Þorfinnsson
b. í Miðhúsum í Blönduhlíð í Skagafirði
Guðrún Björnsdóttir
vinnukona á Þverá í Blönduhlíð, síðar á Siglufirði
Þorfinnur Hallsson
b. á Mosfelli í
Húnavatnssýslu
Úr frændgarði Sigfúsar J. Árnasonar
Árni Jón Gíslason
bílstj. og verslunarm. á Sauðárkróki
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. APRÍL 2018
90 ára
Birna Friðgeirsdóttir
Eyvör Stefánsdóttir
85 ára
Auður Þorbergsdóttir
Bergný Jóhannsdóttir
Jóhann G. Pétursson
Lilja G. Aðalsteinsdóttir
80 ára
Gissur Þór Sigurðsson
Guðríður H. Magnúsdóttir
75 ára
Auðunn Karlsson
Árni Sævar Jónsson
Esther Pétursdóttir
Sigrún D. Sighvatsdóttir
Þorgeir Lúðvíksson
70 ára
Halla Bergsdóttir
Jón R. Trampe
Sigrún Gerður Bogadóttir
Steingrímur Ó. Ellingsen
Sveinn Arason
60 ára
Alda Baldursdóttir
Arnar Bjarnason
Birgir Indriðason
Halldóra G. Ottósdóttir
Halldór Árnason
Hallur Sigurðsson
Ingvar Teitsson
Jón Sigurðsson
Kristján Friðrik Olgeirsson
Lóa Sigurðardóttir
Sigmundur Einar Ófeigsson
Steinunn Björnsdóttir
50 ára
Fadwa Mohammad Kadre
Al Soufi
Florentin-Dan Popovici
Gísli Einarsson
Guðný Leifsdóttir
Gunnar Ingi Hansson
Hilmir Valsson
Hólmfríður Ólöf Ólafsdóttir
Ingibjörg St Ingjaldsdóttir
Jakub Marek Gminski
Jóna Jóhanna Sveinsdóttir
Kenneth Walter Balys
Kolbrún Axelsdóttir Kjerúlf
Magnús Ó. Kristjánsson
Marian Bodor
Rolandas Pocius
Sigtryggur Hilmarsson
Svava Garðarsdóttir
Viorel Palici
Þorsteinn Ægir Þrastarson
40 ára
Abdellah Allam Toujani
Arngrímur Arnarson
Dagný Kristinsdóttir
Einar Kári Möller
Elísabet Ýr Sigurðardóttir
Guðmundur Kristjónsson
Guðný Karen Jónsdóttir
Harpa Magnúsdóttir
Helga Íris Ingólfsdóttir
Ivona Rut Geseviciute
Jófríður Ósk Hilmarsdóttir
Jón Hilmar Karlsson
30 ára
Arnór Guðmundsson
Ágúst Freyr Dansson
Ásmundur G. Ásmundsson
Einar Baldur Þorsteinsson
Eva Ingibjörg Leósdóttir
Grétar Már Sveinsson
Guðrún B. Frímannsdóttir
Íris Dröfn Brjánsdóttir
Jóhann J. Ingimundarson
Jóhann Már Sigurbjörnsson
Kristján Rúnar Egilsson
Linda S. Ásgeirsdóttir
Sigurjón Michael Duffield
Urður Anna Björnsdóttir
Til hamingju með daginn
30 ára Gísli Már ólst upp
á Eskifirði, býr þar, lauk
stúdentsprófi frá VA og
starfar hjá Brammer á
Reyðarfirði.
Maki: Lena Sóley Yngva-
dóttir, f. 1991, starfs-
maður við leikskólann á
Eskifirði.
Sonur: Emil Gíslason, f.
2014.
Foreldrar: Magnús
Guðnason, f. 1960, og
Jóna Mekkín Jónsdóttir, f.
1960.
Gísli Már
Magnússon
30 ára Eyrún ólst upp í
Kópavogi, býr þar, lauk
prófi sem sjúkraliði,
stundar nú nám í hjúkr-
unarfræði við HÍ og starf-
ar á Ísafold í Garðabæ.
Systur: Helga Björg, f.
1979, búsett í Danmörku,
og Eva, f. 1990, sjúkra-
þjálfari í Danmörku.
Foreldrar: Guðrún Þórs,
f. 1958, skurðhjúkrunar-
fræðingur, og Eðvald Eð-
valdsson, f. 1959, húsa-
smiður.
Eyrún
Eðvaldsdóttir
40 ára Óli Örn lauk BA-
prófi í uppeldis- og
menntunarfræði frá HÍ og
er forstöðumaður Fönix.
Maki: Karen G. Elísabet-
ardóttir, f. 1977, deildar-
stjóri á leikskóla.
Börn: Hlynur, f. 1999;
Helgi Júlíus, f. 2008; Sig-
ríður Kristín, f. 2010, og
Einar Atli, f. 2014.
Foreldrar: Sigríður K.
Ólafsdóttir, f. 1951, og Atli
Þór Helgason, f. 1950, d.
1980.
Óli Örn
Atlason
Jenna Huld Eysteinsdóttir hefur var-
ið doktorsritgerð sína í læknavísindum
við læknadeild Háskóla Íslands. Rit-
gerðin ber heitið: Áhrif Bláa lóns með-
ferðar á psoriasis miðað við hefð-
bundna UVB ljósameðferð. (The effect
of balneophototherapy in the Blue
Lagoon in Iceland on psoriasis comp-
ared with phototherapy alone). Um-
sjónarkennari var Jón Hjaltalín Ólafs-
son, dósent við læknadeild Háskóla
Íslands, og leiðbeinandi var Bárður
Sigurgeirsson, aðjunkt við sömu deild.
Sóri (e. psoriasis) er langvinnur bólgu-
sjúkdómur í húð þar sem T frumur
leika veigamikið hlutverk í meingerð-
inni, sérstaklega Th1/Tc1 og Th17/
Tc17 frumur. Fyrri rannsóknir benda til
þess að samsett meðferð með böðun í
Bláa Lóninu (BL) og ljósameðferð sé
áhrifarík meðferð gegn sóra. Markmið
rannsóknarinnar var að meta klínísk,
sálfélagsleg, vefjafræðileg og ónæm-
isfræðileg áhrif samsettrar meðferðar
í BL á sórasjúklinga samanborið við
hefðbundna ljósameðferð með slemb-
iraðaðri framskyggnri samanburð-
arrannsókn. Tólf sórasjúklingar tóku
þátt í forrannsókn þar sem ónæm-
isfræðilegar aðferðir voru prófaðar
fyrir stærri rann-
sóknina þar sem
68 sórasjúklingar
tóku þátt og
slembiraðað í þrjá
meðferðarhópa: 1)
göngudeild-
armeðferð í BL, 2)
innlögn í BL, og 3)
hefðbundin ljósa-
meðferð. Niðurstöður sýndu að 68-
73% sjúklinga sem fengu samsetta
meðferð í BL náðu meira en 75% klín-
ískum bata eftir 6 vikna meðferð,
samanborið við 16% sjúklinga sem
fengu hefðbundna ljósameðferð. Sál-
félagslegur og vefjafræðilegur bati var
í góðri fylgni við klínískan bata ásamt
því að það þurfti UVB geislun til að ná
þessum bata. Þessar niðurstöður
staðfesta að samsett meðferð í BL er
klínískt áhrifaríkari meðferð en hefð-
bundin ljósameðferð, og gefur til
kynna að sóri Th17/Tc17 og Th22/
Tc22 miðlaður bólgusjúkdómur, ekki
Th1/Tc1 miðlaður. Ekki hefur áður ver-
ið sýnt fram á að húðsækni viðtakarnir
CCR4, CCR10 og húðfesti viðtakinn
CD103 nær hverfi í blóði sórasjúklinga
eftir meðferð.
Jenna Huld Eysteinsdóttir
Jenna Huld Eysteinsdóttir er fædd 1976. Hún lauk stúdentsprófi af náttúru-
fræðibraut Fjölbrautaskóla Vesturlands 1996, embættisprófi í læknisfræði frá HÍ
2005 og sérnámi í húð- og kynsjúkdómalækningum við Sahlgrenska sjúkrahúsið
í Gautaborg 2014. Jenna Huld hóf doktorsnám við læknadeild Háskóla Íslands ár-
ið 2008 og hefur frá árinu 2015 starfað á Húðlæknastöðinni Smáratorgi. Börn
hennar eru Katrín Rós Bárðardóttir, Hlynur Þór Bárðarson og Dagur Þór
Bárðarson.
Doktor