Morgunblaðið - 20.04.2018, Page 29

Morgunblaðið - 20.04.2018, Page 29
DÆGRADVÖL 29 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. APRÍL 2018 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú átt yfirleitt annríkt og reynir að hafa mörg verkefni í gangi í einu. Þar að auki ertu mjög skapandi og tekur það sem þú ert að fást við alvarlega. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú þarft að athuga vel hvernig þú setur hlutina fram því það skiptir sköpum að allir skilji hvert þú ert að fara. Þér er það kapps- mál að segja öðrum þína hlið á málunum. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þetta er góður dagur til að njóta samvista við vini þína. Fólk sem hugsar eins og þú, talar eins og þú og lætur eins og þú er auðvitað snillingar. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Gerðu sjálfum þér greiða og áttaðu þig á því að þú hefur gott af því að fara eitt- hvað afsíðis og njóta þess að vera í einrúmi. Láttu það eftir þér og hafðu ekki áhyggjur. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Svo virðist sem þú hafir ekki komið öll- um þínum málum í höfn. Mundu að það eru fleiri en ein hlið á hverju máli og því getur verið erfitt að finna sannleikskjarnann. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Reyndu að beina orku þinni til góðra verka en eyddu henni ekki í einskis vert karp. Breytingar breytinganna vegna gefast nefni- lega yfirleitt illa. 23. sept. - 22. okt.  Vog Það er aldrei of seint að brydda upp á nýjungum og beina orku sinni inn á aðrar brautir en þessar venjulegu. Biddu um hjálp jafnvel þegar þú þarfnast hennar ekki. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Eitthvað fer illa fyrir brjóstið á þér og þú þarft að halda sjálfsstjórn. Oftast heldur þú þig vita hvað gerist, en nú veistu það ekki. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Hlutirnir ganga oft betur og hraðar fyrir sig ef þú reynir að verja þig fyrir umhverfinu. Nýttu tímann til að soga inn í þig allar nýjungar sem fyrir þig bera. 22. des. - 19. janúar Steingeit Öfugt við það sem fólk álítur er tíminn vinur sem vinnur að háleitustu mark- miðum manns. Njóttu andartaksins og leyfðu þér að sinna því sem veitir þér mesta gleði. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Hristu af þér alla hræðslu og helltu þér í það sem þig langar mest að gera. Komdu þér upp föstu skipulagi sem tryggir afköst þín. 19. feb. - 20. mars Fiskar Segðu öðrum frá áformum þínum því viðbrögð þeirra geta reynst þér nýtileg. Ein leið til að berjast fyrir lífreglum þínum er að lifa eftir þeim. Faðir minn hefði sagt, að JónIngvar Jónsson væri „gam- ansamur“ þegar hann orti þetta á Boðnarmiði út af nýjustu tíðindum: Enn í klandri er hann Sindri, oft um lögin hnaut. Ekki nokkur held ég hindri hann sem alltaf flaut. Virðist þó af valdstjórn blindri vera rudd hans braut. Út af ljótu lagabroti lagði ei niður skott. Af iðrun svo í Sognar-sloti sýndi engan vott og með snotru Kötu í Koti kom sér því á brott. Páll Imsland heilsar leirliði í logninu svofelldum orðum: „Það er eins og sæki að mér fyrri part dags nú orðið og allir tilburðir til yrk- inga enda með draugagangslimri. Sála mín hlýtur að vera eitthvað villt í tímanum, þetta er jú yrkisefni rökkurs og nátta“: Guðleif í Gjábakkakoti var gagnkunn því moldveggjasloti, getin og fædd þar, grátin og mædd þar og gekk aftur gólandi’ í skoti. Á sunnudaginn orti Pétur Stef- ánsson: Dýrðarinnar dagur er, dreg ég glaður andann. Ljúft finnst mér að lifa hér laus við þynnku fjandann. Friðrik Steingrímsson gat ekki á sér setið: Á sunnudögum eflaust er úr þér drykkju víma, en andansþynnka af þér fer aldrei nokkurntíma. Og Ingólfur Ómar: Kappinn slyngi kætir menn kveður ljóð í hrönnum. Þó mun ljóst að eimir enn af andans timburmönnum. Hér koma tvær stökur úr Húna- þingi. Sú fyrri eftir Jón á Geira- stöðum: Gleði raskast, vantar vín verður brask að gera. Ef að taska opnast mín á þar flaska að vera. Þessa orti Nikulás skáldi: Höldum gleði hátt á loft helst það seður gaman; þetta skeður ekki oft að við kveðum saman. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af Sindra, drauga- gangi og þynnku Til skoðunar er hvað gera skulivarðandi þjóðarleikvang knatt- spyrnufólks á Íslandi, Laugardals- völlinn. Ljóst er að gera þarf á honum breytingar, eða reisa nýjan leikvang til að standast þær kröf- ur sem gerðar eru af Alþjóða- knattspyrnusambandinu. Ísland fær undanþágu en ef aðstaðan breytist ekki gæti Ísland þurft að spila landsleiki sína erlendis. Sama staða er uppi varðandi Laugardalshöllina þegar kemur að handbolta- og körfuboltalandslið- unum. Laugardalshöllin er á und- anþágu hjá alþjóða samböndunum. x x x Skattgreiðendum hefur vænt-anlega brugðið við að heyra tölurnar sem gefnar voru upp. Þær voru upp undir 20 milljarða. Eins og bent var á í leiðaranum í gær var gert ráð fyrir því að kostnaðaráætlun myndi halda sem ekki er nú alltaf raunin nema síð- ur sé. x x x Víkverji getur ekki dæmt umhvaða leið sé best að fara í þessum efnum en ágætt væri ef mannvirkið mætti nýta í fleira en þá fáu fótboltaleiki á ári sem Ís- lendingar kjósa að fjölmenna á. x x x Þeir sem eru andstæðingar flug-vallarins í Vatnsmýri, eða eru mótfallnir staðsetningunni skulum við segja, segja gjarnan að illa fari á því að vera með flugvöll á verð- mætu byggingarlandi í miðri borg. Farsælla sé þétta byggð og færa völlinn, helst út fyrir borgina. x x x Líklega mætti nota sömu rökvarðandi fótboltaleikvang í miðri borg. Þegar andstæðingar flugvallarins í Vatnsmýri komast á snoðir um að fótboltaleikvangur sé í miðri borginni í Laugardalnum þá eru þeir líklegir til að vilja flytja hann til Keflavíkur eða í Hvassahraun. Verulega mætti þétta byggð með því að flytja fót- boltavöllinn og Laugardalur er vafalítið verðmætt byggingarland. vikverji@mbl.is Víkverji Hjá Guði er hjálpræði mitt og veg- semd, minn örugga klett og athvarf mitt hef ég í Guði. (Sálm: 62.8) Bæjarlind 8-10 201 Kópavogur sími 510 7300 www.ag.is ag@ag.isSTOFNAÐ 1956 DÍMON Hönnuður Erla Sólveig Óskarsdóttir Íslensk hönnun & handverk

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.