Morgunblaðið - 23.04.2018, Síða 11

Morgunblaðið - 23.04.2018, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. APRÍL 2018 Framtak-Blossi er umboðsaðili fyrir VOLVO PENTA á Íslandi Dvergshöfða 27 , 110 Reykjavík | www.blossi.is | blossi@blossi.is Framtak-Blossi kappkostar að bjóða góða þjónustu og sanngjarnt verð á varahlutum. Hafið samband við Hafþór í síma 895-3144 eða hafthor@blossi.is VIÐTAL Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is „Í dag er staðan orðin slæm. Svo slæm að mér finnst ég ekki geta sleppt því að senda út þetta bréf þar sem ég kalla eftir hjálp.“ Á þessum orðum hefst opið bréf Aldísar Steindórsdóttur, sem sent var til u.þ.b. 120 viðtakenda, þar á meðal allra þingmanna, ráðherra, borgarstjóra Reykjavíkur og yfir- manna velferðarmála í borginni. Í bréfinu rekur Aldís aðstæður Stein- dórs Einarssonar, geðfatlaðs föður síns, sem hefur verið húsnæðislaus í um tvö ár og þrátt fyrir að hann hafi fengið þau svör í marga mán- uði að hann sé ofarlega á biðlista eftir félagslegu húsnæði hjá Reykjavíkurborg miðar ekkert í úr- lausn hans mála. Steindór hefur núna aðsetur hjá foreldrum sínum í íbúð þeirra sem er í fjölbýlishúsi fyrir eldri borgara, en heldur að mestu leyti til í bifreið sinni. Steindór, sem er fimmtugur, er 75% öryrki. Hann hlaut varanlegan framheilaskaða þegar hann varð fyrir bíl 14 ára gamall. Hann fór í sitt fyrsta geðrof um tvítugt og var þá greindur með geðhvarfasýki. Síðan þá hefur hann margoft verið lagður inn á geðdeild, hann misnot- aði áfengi og lyfseðilsskyld lyf um hríð, nokkrum sinnum þurfti að vista hann nauðugan á geðdeild og grípa þurfti til þess örþrifaráðs að svipta hann sjálfræði um tíma. Eft- ir langa innlögn á Kleppsspítala fyrir um tveimur árum hefur hann aldrei verið í betra jafnvægi, að sögn Aldísar sem segir að hann sé hættur í neyslu og vilji koma reglu á líf sitt. Til að það geti orðið að veruleika þurfi hann að komast í öruggt húsnæði. Sömu stöðluðu svörin „Ég hef ekki tölu á þeim fundum og viðtölum sem ég hef farið í út af húsnæðismálum pabba á þessum tveimur árum,“ segir Aldís. „Ég heyri yfirleitt sömu setningarnar, sömu stöðluðu svörin, en enginn býður upp á neinar lausnir.“ Hún segist hafa þurft að bíða lengi eftir að fá viðtal við umboðs- mann borgarbúa, hún hafði sam- band í janúar og fékk boð um viðtal í byrjun apríl. Þar bað hún hann að hafa milligöngu um að hún fengi að ræða við yfirmenn á velferðarsviði borgarinnar. Því var hafnað, þar sem umboðsmaðurinn átti að vera milliliður á milli hennar og sviðsins. „Ég er semsagt að tala við einn embættismann sem síðan segir öðr- um embættismanni allt það sem ég segi. Eru þetta góð vinnubrögð?“ spyr Aldís. Um miðjan febrúar síðastliðinn óskaði hún eftir að fá að hitta Dag B. Eggertsson borgarstjóra til að ræða málefni föður síns, ekki var orðið við þeirri beiðni en henni boð- ið í staðinn að ræða við fram- kvæmdastjóra þjónustumiðstöðvar Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða sem fer með málefni Steindórs. Við tók nokkurra vikna bið eftir því samtali. „Því miður var ekki mikið annað rætt þar en að svona væri staðan bara, því miður.“ Efstur á lista í marga mánuði Aldís segir að undanfarin tvö ár hafi Steindór ítrekað fengið þau svör frá þjónustumiðstöðinni að hann sé efstur á biðlista eftir fé- lagslegri íbúð hjá miðstöðinni. Á þeim tíma hefur hann verið til- nefndur í fjölda íbúða, en ekki feng- ið úthlutun. „Við getum ekki áfrýj- að úrskurðinum, þar sem þeir hljóða alltaf upp á synjun en ekki neitun,“ segir Aldís. „Við höfum heyrt um úrræði, eins og t.d. Víði- nes, fyrir heimilislaust fólk, og ég lagði til að hann færi þangað en fékk engin viðbrögð.“ Lítið hefur verið um svör við áðurnefndu bréfi, sem Aldís sendi m.a. til þingmanna og ráðherra. „Örfáir hafa svarað mér, flest svör- in hafa verið að bréfið hafi verið móttekið og annað ekki. Einn þing- maður svaraði og sagðist vona að allt færi vel, annar sagði að þetta væri virkilega slæm staða. Eins og það þurfi að segja mér það. Ég var ekki að biðja um staðfestingu á því sem ég veit, ég var að leita lausna fyrir pabba minn.“ Hefur slæm áhrif á heilsuna Að sögn Aldísar gera heimilis- aðstæður Steindórs það að verkum að hann hefur ekki getað nýtt sér nein af þeim virkniúrræðum sem geðfötluðu fólki standa til boða í Reykjavík. „Hann er í eftirfylgni á vegum geðdeildar Landspítalans, en á meðan hann er í bílnum nánast allan daginn er hvorki rútína né festa í lífi hans og þess vegna nýt- ast úrræðin honum ekki. Ég er virkilega hrædd um hvaða áhrif þetta hefur á heilsufar hans.“ Aldís segir að Steindór treysti sér ekki til að sjá um eigin mál eða ræða við embættismenn. „Ég finn til með öllum þeim sem eru í sömu sporum og pabbi og eru ekki með neinn stuðning eða neinn til að tala fyrir sig. Ég hef verið talsmaður pabba, mætt fyrir hans hönd á fundi og gætt hagsmuna hans und- anfarin ár. Foreldrar hans gerðu það í 30 ár á undan, en þau eru orð- in öldruð og ráða ekki við það leng- ur. Samskipti okkar pabba snúast núna um biðlista og umsóknir, alls konar pappíra og að skrifa undir umboð. Þetta er ekki lengur eins og samskipti föður og dóttur og þetta er ekki hlutverk sem ég ætti að þurfa að vera í. Með því að senda bréfið vonaðist ég til þess að ein- hver tæki að sér að taka við ábyrgðinni,“ segir Aldís. Bréfið var síðasta úrræðið Fáir aðrir möguleikar en félags- leg íbúð standa Steindóri til boða, en hann sótti einnig nýverið um húsnæði á vegum Brynju, sem er hússjóður Öryrkjabandalagsins. Biðin þar er um þrjú ár. Aldís seg- ist varla geta hugsað þá hugsun til enda fái faðir hennar ekki fljótlega úrlausn sinna mála. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem Aldís segir sögu föður síns í fjöl- miðlum. „En þetta er líklega í síð- asta skiptið sem ég geri það,“ segir hún. „Mér finnst ekki þægilegt að segja opinberlega frá aðstæðum föður míns, sem er veikur maður sem hefur átt erfitt líf og á sér fáa málsvara. En ég hef reynt, án árangurs, allt sem mér dettur í hug, til að ná til þeirra sem hafa um þessi mál að segja. Núna er ég búin að tæma verkfærakassann. Að senda bréfið var síðasta úrræðið.“ Búin að tæma verkfærakassann  Steindór faðir Aldísar er geðfatlaður og hefur verið húsnæðislaus í tvö ár  Hann heldur að mestu leyti til í bíl sínum  Í opnu bréfi biðlar hún til þingmanna og yfirmanna velferðarmála um aðstoð Ljósmynd/Valgerður Björnsdóttir Aldís Steindórsdóttir „Mér finnst ekki þægilegt að segja opinberlega frá aðstæðum föður míns, sem er veikur maður sem hefur átt erfitt líf og á sér fáa málsvara,“ segir hún. „Ég hef reynt, án árangurs, allt sem mér dettur í hug, til að ná til þeirra sem hafa um þessi mál að segja. Bréfið var síðasta úrræðið.“ Sigþrúður Erla Arnardóttir er fram- kvæmdastjóri Þjónustumiðstöðvar Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða, sem fer með málefni Steindórs. Hún segist ekki geta tjáð sig um einstök mál skjólstæðinga mið- stöðvarinnar en segir að úthlutun félagslegs húsnæðis sé flókið mál og margir þættir hafi áhrif á ferlið. Fimm þjónustumiðstöðvar séu í borginni, í hverri og einni þeirra sé forgangslisti og þegar félagslegar íbúðir á vegum borgarinnar losni séu listarnir bornir saman. Oft ger- ist, að sá sem er í forgangi hjá einni miðstöð þurfi að bíða um skeið, þar sem þeir sem séu í for- gangi hjá öðrum miðstöðvum séu taldir þurfa meira á húsnæðinu að ingsíbúðum í félagslega kerfinu. Þær séu fáar og margir sæki um þær. Spurð um bið eftir félags- legum íbúðum segir Sigþrúður að hún sé mislöng eftir því hver eigi í hlut og hver þörfin sé, en dæmi séu um að fólk bíði eftir íbúð í nokkur ár. Biðlistinn lengist ár frá ári Nú bíða 965 manns eftir félagslegu húsnæði í Reykjavík, samkvæmt upplýsingum frá velferðarsviði borgarinnar. Biðtími er mislangur, í fyrra var meðalbið 38 mánuðir, rúm þrjú ár, sem var tveimur mánuðum lengra en árið á undan og níu mánuðum lengri tími en árið 2014. halda. Umsóknirnar fara inn í al- menna úthlutun, sem er miðlæg hjá velferðarsviði og þar er for- gangsraðað í þágu þeirra sem eru í mestri þörf. Skortur á einstaklingsíbúðum „Því miður er ekki nægilegur fjöldi íbúða í boði og við myndum gjarn- an vilja sjá fleiri íbúðir í úthlutun,“ segir Sigþrúður. Er sá, sem er efstur á biðlista í hverju hverfi, ekki með mestu þörf- ina? „Já, það er rétt. En þeir sem eru efstir á biðlista í öðrum hverf- um geta verið metnir í enn meiri þörf.“ Annar þáttur, sem hún segir að hafi áhrif, er skortur á einstakl- 965 eru á biðlista eftir félagslegu húsnæði í Reykjavík og meðalbiðtími er 38 mánuðir „ÞVÍ MIÐUR ER EKKI NÆGILEGUR FJÖLDI ÍBÚÐA Í BOÐI“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.