Morgunblaðið - 23.04.2018, Qupperneq 13
Ljósmynd/Óskar Pétur Friðriksson
Sigurvegari Árný Heiðarsdóttir stendur við verðlaunapeninga og bikara sem hún hefur unnið í frjálsum íþróttum.
koma frjálsum íþróttum aftur í
gang. Hún fékk mig með í það verk-
efni.
Þegar Anna Día flutti frá Eyj-
um tók ég við og sá um frjálsar
íþróttir í 19 ár,“ segir Árný og bætir
við að hún hafi tekið börnin sín þrjú
með á æfingar og komið þeim til að
æfa.
„Ég fór að hita upp og hlaupa
með krökkunum og smátt og smátt
byrjaði ég að æfa á ný. Ég tók þátt í
fyrsta frjálsíþróttamótinu þrítug og
fyrsta Norðurlandamótinu 35 ára,“
segir Árný og útskýrir að frjáls-
íþróttakonur keppi í öldungaflokki
30 ára á Íslandi en 35 ára erlendis.
Karlar taki þátt 35 ára á Íslandi og
40 ára erlendis. Þeir eru víst seinni
að þroskast en við,“ segir Árný og
hlær.
Árný þakkar genunum góðan
árangur í frjálsum, heilbrigðu líferni
og Guði.
„Sjáðu mig, pabba og börnin
mín og svo eru börn bróður míns
bæði landsliðsmenn í knattspyrnu,
þau Gunnar Heiðar og Berglind Þor-
valdsbörn. Það skiptir mjög miklu
máli fyrir heilbrigðan líkama að
reykja hvorki né drekka og vera
ekki í neinu rugli,“ segir Árný og
bætir við að trúin á Guð hafi gefið
sér kraft og traust.
„Ég hef lent í meiðslum og veik-
indum á keppnisferlinum og á marg-
ar sögur af því hvernig bæn og
traust mitt á Guði hjálpaði mér yfir
erfiðleikana,“ segir Árný.
Hún minnist þess sérstaklega
þegar hún var fimmtug á leið á
heimsmeistaramót öldunga í San
Sebastian.
„Ég varð að æfa tæknina, þrátt
fyrir ómögulegar aðstæður, á mal-
arvellinum í Eyjum og reif vöðva.
Ég fór út og keppti en hefði kannski
átt að sleppa því. Ef ég hefði ekki
slasast er ég viss um að ég hefði orð-
ið heimsmeistari en þess í stað lenti
ég í þriðja sæti af 19 keppendum,
sem var reyndar gott miðað við
meiðslin. Ég hafði náð betri árangri í
þrístökki en sú sem varð heims-
meistari,“
Árný segir að það sé aldrei of
seint að byrja að æfa og frjálsar
íþróttir hafi gefið sér mikla gleði og
heilbrigði.
Blind níræð kona í hlaupi
„Það er kona sem er 20 árum
yngri en ég sem æfir crossfit. Hún
bað mig að aðstoða sig við æfingar.
Við hlupum saman og ég, 63 ára,
hljóp hraðar en hún,“ segir Árný og
bætir við að þegar hún var að byrja
að keppa á öldungamótum hafi hún
séð blinda níræða konu í keppninni.
„Dóttir hennar hljóp með henni
og blinda konan hélt í band því þær
máttu ekki leiðast. Það er gott fyrir
líkama og sál að hreyfa sig.“
Árný rak gistiheimilið Árnýju í
yfir 20 ár en seldi það syni sínum í
fyrra. Hún segist hafa hjálpað hon-
um í fyrrasumar þegar hann var að
koma sér af stað en nú njóti hún lífs-
ins og ferðist mikið.
„Það er eins gott að njóta áður
en það er of seint. Nú geri ég það
sem mig langar. Ég fer í metabolic
þrisvar í viku, ég er elst þar og með
þeim fljótustu að hlaupa. Tvo daga í
viku reyni ég að æfa frjálsar og fara
í sund á hverjum degi,“ segir Árný.
„Þegar ég slasaði mig 50 ára
hélt ég að gæti ekki æft meira. Ég
gafst ekki upp og æfði mig en ekki of
mikið, fór í heita pottinn og grét þar
stundum af sársauka en ég náði mér
á strik aftur,“ segir Árný og bætir
við það geti næstum allir hreyft sig
og ef fólk geti ekki hlaupið þá geti
það gengið.
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. APRÍL 2018
Verumgáfuð ogborðum
fisk
Plokkfiskur
- Hollur kostur tilbúinn á 5mín.
Kveðja Grímur kokkur • www.grimurkokkur.is
Hollt og
fljótlegt[ ]
ÁNMSG
P
R
E
N
T
U
N
.IS
Kolbrún Björnsdóttir grasalæknir og
Jóhanna Björk Briem jóga Nidra-
leiðbeinandi bjóða konum á seinna
þroskaskeiði, oftast kallað breyt-
ingaskeiðið, upp á 4 vikna námskeið
þar sem markmiðið er að benda kon-
um á leiðir til þess að nýta seinna
þroskaskeiðið til umbreytinga. Öðl-
ast meira jafnvægi, gefa lífinu nýja
merkingu, setja sér ásetning fyrir
framtíðina, fræðast um styrkjandi
jurtir og mataræði og fara í djúpa
slökun í gegnum jóga Nidra.
Unnið er í litlum hópum þar sem
hver og einn þátttakandi skoðar líð-
an, merkingu og tilgang í lífinu og
finnur út hvort og hvaða breytingar
hún þurfi að gera.
Í gegnum sjálfsskoðun er þátttak-
endum kennt að setja sér ásetning
fyrir lífið út frá eigin forsendum og
vilja.
Í gegnum jóga Nidra-djúpslökun er
unnið með ásetninginn.
Námskeiðin fara fram mánudag-
anna 23. og 30. apríl og 7. og 14. maí.
Jákvætt breytingaskeið
Thinkstock
Umbreyting Öll lífsskeið eru þroskaskeið sem hægt er að njóta góðs af.
Möguleiki á að nota seinna
þroskaskeiðið til umbreytinga
Fjórum sinnum á
verðlaunapalli á
heimsmeistaramóti
FERILL ÁRNÝJAR Í FLOKKI ÖLDUNGA
Heimsmeistaramót
1995, Buffaló í Bandaríkjunum, 2. sæti í þrí-
stökki.
1997, Suður Afríka, 2. sæti í þrístökki.
2005, San Sebastian á Spáni, 3. sæti í langstökki
og þrístökki.
2006, Austurríki, 2. sæti.
Norðurlandameistari
1991, 1995, 2001 , 2004 og 2006.
Íslandsmeistari
Langstökk, þrístökk, 100 metra hlaup, 200 metra
hlaup.
Íslandsmet
Þrístökk.
Önnur afrek
2006, Íþróttamaður öldunga.
2002, 2003 og 2004, stigahæsta kona í frjálsum.
2001, 2002, 2003 og 2005, frjálsíþróttamaður
Óðins.
Aðrar viðurkenningar
Heiðursmerki Frjálsíþróttasambands Íslands: Silf-
urmerki 1995 og eirmerki 1988
Heiðursmerki ÍBV: Silfurmerki 1997 og sérstök
viðurkenning 1994
Íþróttafélagið Óðinn: Gullmerki árið 2001
Eyjafréttir í Vestmannaeyjum: Fréttapýramídinn
árið 1995