Morgunblaðið - 23.04.2018, Blaðsíða 26
VIÐTAL
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Það styttist í Listahátíð í Reykjavík
og von á mikilli menningarveislu
dagana 1. til 17. júní. Vigdís Jakobs-
dóttir er listrænn stjórnandi hátíð-
arinnar og segir að það hafi gefið
skipuleggjendum dýrmætt andrými
að ákveðið skyldi að láta tvö ár líða á
milli Listahátíða frekar en að halda
viðburðinn árlega.
„Að fá svona góðan tíma á milli
hátíða til að hugsa málin og ráðast í
löngu þarfa stefnumótunarvinnu
hefur verið alger lúxus,“ segir Vig-
dís sem hefur m.a. notað tímann til
að ræða við fjölda fólks í íslensku
menningarlífi um eðli og hlutverk
hátíðarinnar. „Ég gat gefið mér tíma
til að hlusta, taka inn það sem fólk
hafði að segja og meta stöðuna. Kom
ýmislegt fram við þessa vinnu, bæði
jákvætt og neikvætt, en augljóst að
fólki þykir vænt um hátíðina og
finnst þessi listviðburður skipta
máli. Það er líka ákveðinn ljómi for-
tíðarþrár yfir Listahátíð í Reykjavík
enda var lengi vel ekki um aðrar
listahátíðir að ræða. Eru margir sem
minnast þess hversu mikil eftir-
vænting ríkti þegar dagskrá Lista-
hátíðar var tilkynnt og að oft var
beðið í röðum eftir miðum.“
Síðan þá hefur menningarlands-
lagið gjörbreyst. Stórir og smáir
listviðburðir eru í boði árið um kring
og enginn skortur á metnaðarfullum
menningarhátíðum. „Hjá starfsfólki
Reykjavíkurborgar hef ég heyrt að í
borginni séu árlega haldnar í kring-
um 70 hátíðir af ýmsum toga. Ég
reikna með að að minnsta kosti
helmingur þeirra geti flokkast sem
listahátíðir og þar af margar mjög
sérhæfðar.“ Vigdís segir Listahátíð í
Reykjavík samt enn halda sérstöðu
sinni. „Hún er t.d. eina listahátíðin
sem bæði ríki og borg standa að baki
og er viðburður sem hefur allar
helstu listastofnanir landsins og öll
fagfélög listafólks sem sitt bakland.
Hátíðin er þverfagleg og breið og er
fyrir löngu orðin að mikilvægri lista-
stofnun sem komin er á kortið er-
lendis rétt eins og heima fyrir.“
Hátíð fyrir alla
Stefnumótunarvinnan leiddi með-
al annars í ljós áhyggjur af að Lista-
hátíð í Reykjavík væri smám saman
að missa tengslin við almenning.
„Sumum hefur þótt hátíðin ekki vera
lengur sú hátíð fólksins sem hún var,
sem er að hluta til skiljanlegt þegar
framboðið á listviðburðum og ann-
arri afþreyingu er orðið svona mikið.
En dagskráin að þessu sinni miðar
að því að snúa þessari þróun við og
láta hátíðina teygja sig betur út til
allra borgarbúa og landsmanna,
bæði hvað snýr að verkefnavali en
líka hvað varðar staðsetningar við-
burða og hvernig þeim er komið á
framfæri.“
Meðal breytinga í þessa veru
nefnir Vigdís að Klúbbur Listahátíð-
ar verður endurvakinn í ár. Klúbb-
urinn mun leggja hluta Hafnarhúss
undir sig og þar verður ókeypis dag-
skrá alla daga hátíðarinnar. „Við
teygjum okkur líka langt út fyrir
miðbæinn, og verðum t.d. með götu-
leikhús við Egilshöll í Grafarvogi,
leiksýningu í Blesugróf og danssýn-
ingu á Eiðistorgi. Listamenn halda
tónleika á dvalarheimilum og hjúkr-
unarstofnunum og í Breiðholti verð-
ur m.a. sýning á ljósmyndum Spessa
af Breiðhyltingum, efnt til dans-
partís í Asparfelli og haldnir tón-
leikar undir vatnsyfirborðinu í Öldu-
selslaug,“ segir Vigdís. „Við viljum
að dagskráin höfði til fjölbreytts
hóps fólks og sé aðgengileg sem
allra flestum. Fjölskyldudagskrá há-
tíðarinnar er til dæmis einstaklega
vegleg – því Listhátíð á að vera fyrir
allar kynslóðir . Ef við ætlum að
höfða til fjölbreyttari hóps skiptir
líka máli að alls konar listafólk sé
sýnilegt á hátíðinni og þannig er mér
það t.d. sérstök ánægja að vera að fá
tónlistarkonuna Gaelynn Lea til
landsins, en hún notar hjólastól og
hefur sökum líkamsbyggingar sinn-
Færa hátíðina nær fólkinu
Það virðist hafa heppnast vel að breyta Listahátíð í Reykjavík í tvíæring Fjárhagslegar stoðir
hátíðarinnar eru sterkari og ráðrúm gafst til að meta hvar hátíðin stendur og hvert hún á að stefna
Morgunblaðið/Valli
Þróun „Sumum hefur þótt hátíðin ekki vera lengur sú hátíð fólksins sem
hún var, sem er að hluta til skiljanlegt þegar framboðið á listviðburðum og
annarri afþreyingu er orðið svona mikið,“ segir Vigdís Jakobsdóttir.
ar þurft að finna nýja leið til þess að
leika á fiðlu. Hún notar hana eins og
lítið selló og syngur sínar eigin tón-
smíðar.“
Ekki er nóg með að hátíðin dreif-
ist víðar um borgina heldur nær hún
til allra landsmanna. „Við viljum
auka aðgengi landsbyggðarinnar að
viðburðinum og höfum m.a. gert það
í gegnum árin með góðu samstarfi
við RÚV sem hefur tekið upp við-
burði á hátíðinni og sýnt í sjónvarpi
eða flutt í útvarpi. Að þessu sinni,
sem hluti af dagskrá Listahátíðar,
verður m.a. líka hægt að heimsækja
hirðingjatjöld í öllum landshlutum
og hlusta þar á leikverk eftir Hörpu
Arnardóttur,“ útskýrir Vigdís.
„Vestur á Ísafirði efnum við síðan til
tónleika Strokkvartettsins Sigga og
Jóns Marínós Jónssonar fiðlusmiðs.“
Betra svigrúm til að
skipuleggja og kynna
Að vanda mun heldur ekki skorta
stórviðburði á Listahátíð. Verður
t.d. að nefna flutning verksins
EDDU eftir Bandaríkjamanninn
Robert Wilson. Sýningin er um-
fangsmesta erlenda verkefni Lista-
hátíðar að þessu sinni en verkið
hlaut verðlaun í Noregi sem leik-
húsviðburður ársins 2017. Ný ópera
Daníels Bjarnasonar, Bræður, verð-
ur sýnd í Eldborgarsal Hörpu og
Sinfóníuhljómsveit Íslands flytur
Upprisusinfóníu Mahlers undir
stjórn Osmos Vänskäs. Ríkir líka
mikil eftirvænting eftir tónleikum
bandaríska stórleikarans Bills
Murrays með sellóleikaranum Jan
Vogler og félögum.
„Við sjáum að erlendir ferðamenn
eru greinilega að skipuleggja heim-
sóknir sínar til Íslands í kringum
viðburði eins og t.d. tónleika Bills
Murrays og í kringum Listahátíð al-
mennt,“ segir Vigdís og bendir á að
einn kostur þess að láta tvö ár líða á
milli hátíða sé að kynna megi dag-
skrána með fyrirvara og þannig auð-
velda erlendum gestum að skipu-
leggja betur heimsókn sína til
landsins. „Við tilkynntum nokkra
26 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. APRÍL 2018
Nýlöguð
humarsúpa
Opið virka daga 10.00 - 18.15 | laugardaga 11.00 - 15.00
Gnoðarvogi 44 | 104 Reykjavík | sími: 588 8686
Glæný lúða
Gómsætir og girnilegir réttir í fiskborði
fyrir þig til að taka með heim
Ný línuýsa
Klaustur-
bleikja
»Barnamenning-
arhátíð í Reykjavík
lauk í gær og var boðið
upp á fjölda viðburða
yfir helgina. Þeirra á
meðal var sýning á
brúðuleikritinu Pétur
og úlfurinn á Brúðu-
lofti Þjóðleikhússins
en hún var hluti af
Unga, sviðslistahátíð
Assitej.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Spennt Tryggvi Einarsson og Hulda
Jóhannesdóttir í leikhúsinu.
Brúðuleikhús meðal viðburða á Barnamenni