Morgunblaðið - 28.04.2018, Síða 8

Morgunblaðið - 28.04.2018, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2018 Á Hornafirði er fyrirhugað að safna matarolíu sem til fellur á heimilum og koma til endurvinnslu. Bæjarráð sveitarfélagsins hefur samþykkt kaup á 360 trektum sem hægt er að skrúfa ofan á gosílát. Bryndís Bjarnarson, upplýsinga-og umhverfisfulltrúi, segir hugmyndina sótta til Akureyrar, en nú þegar sé tekið á móti olíu frá fyrirtækjum á Höfn. Með þessu minnki álag á frá- veitukerfið, en olía setjist innan á lagnir. Olían verði endurunnin og í raun sé um þarft umhverfisverkefni að ræða. Fram kemur í fundargerð bæjar- ráðs Hornafjarðar að leitað var til fyr- irtækisins EcoFunnel í Svíþjóð eftir tilboði í trektirnar. Kostnaður við kaup á 360 trektum er 91.735. krónur og verður trektunum úthlutað frítt til þeirra sem óska að taka þátt í söfnun á matarolíu. Einnig hefur verið rætt við Íslenska Gámafélagið sem hefur samþykkt að taka við olíu frá íbúum á flokkunarstöð sveitarfélagsins. Þá kemur fram í fundargerðinni að Umhverfissamtök Austur-Skafta- fellssýslu hafa lýst áhuga á að koma að innleiðingu á þessu verki. aij@mbl.is Safna og endurvinna matarolíu  Olíutrektir fyrir heimili í Hornafirði Fossavatnsgangan á Ísafirði fer fram í dag, þar sem keppt verður í þremur vegalengdum, 12,5 km, 25 km og 50 km. Fjöldi skíðamanna er nú staddur í bænum, en eins og kom fram í Morgunblaðinu nýverið þá er Ísafjörður „löngu uppseldur“ þessa helgi. Keppnin hófst sl. fimmtudag með tveimur greinum, í blíðskaparveðri. Úrslit í 25 km svonefndum skíða- skautum urðu þau að Rússinn Ilia Chernousov sigraði, Snorri Eyþór Einarsson varð í öðru sæti og Alex- ander Panzhinskiy frá Rússlandi varð í þriðja sæti. Í 5 km göngu í karlaflokki sigraði Ástmar Helgi Kristinsson og Auður Hrönn Freysdóttir sigraði í kvennaflokki. Einnig fór fram Fjölskyldufossavatnið sl. fimmtu- dag þar sem genginn var 1 km. Þar láta ungir gönguskíðamenn ljós sitt skína. Stóra gangan í dag  Fossavatnsgangan haldin á Ísafirði Ljósmynd/Ásgeir Þrastarson Skíðaganga Vel viðraði til skíðagöngu á Ísafirði sl. fimmtudag. Það tísta fleiri en Trump. Kansl-arinn ungi, Sebastian Kurz, sagði frá því í tísti sínu í gær að austurrísk stjórnvöld hygðust á næstunni fara í gegnum lagabálka landsins og hreinsa til.    Kurz sagði að íAusturríki væri of mikil skrif- finnska og reglu- verk. Hann sagði að stjórn sín ætlaði að bregðast við því og að í fyrstu lotu yrðu 2.500 lög og reglu- gerðir aflögð í þeim tilgangi að skapa meira rými fyrir al- menning.    Hann útskýrðimálið þannig í tilkynningu að stjórnvöld vildu vinna að umbótum, þar með talið einföldun regluverks.    Kurz sagði: „Við búum við stöð-ugan vöxt skriffinnskunnar og regluverksins. Með því minnkar sífellt frelsi og ábyrgð einstakling- anna.“ Hann bætti við að þetta ylli fyrirtækjum líka vaxandi vanda.    Austurrísk stjórnvöld ætla aðvinna hratt að þessu verkefni, sem varakanslarinn Heinz- Christian Strache sagði „löngu tímabæra hreinsun lagafrumskóg- arins,“ sem mundi gera þjónustu hins opinbera nútímalegri og auka á réttaröryggi og skýrleika lag- anna.    Það er án efa rétt hjá stjórnvöld-um í Vín að einföldun reglu- verksins sé löngu tímabær.    En væri ekki tímabært að þaðheyrðist líka að minnsta kosti örlítið tíst um slíka hreinsun hér á landi? Sebastian Kurz Löngu tímabær lagahreinsun STAKSTEINAR Heinz-Christian Strache Veður víða um heim 27.4., kl. 18.00 Reykjavík 6 skúrir Bolungarvík 1 alskýjað Akureyri 6 skýjað Nuuk 4 skýjað Þórshöfn 5 skýjað Ósló 8 skúrir Kaupmannahöfn 12 skýjað Stokkhólmur 9 heiðskírt Helsinki 8 skúrir Lúxemborg 18 heiðskírt Brussel 16 heiðskírt Dublin 9 skýjað Glasgow 11 léttskýjað London 10 skúrir París 17 skýjað Amsterdam 13 léttskýjað Hamborg 14 heiðskírt Berlín 16 heiðskírt Vín 18 heiðskírt Moskva 12 heiðskírt Algarve 21 heiðskírt Madríd 22 léttskýjað Barcelona 19 léttskýjað Mallorca 20 heiðskírt Róm 23 heiðskírt Aþena 26 léttskýjað Winnipeg 4 alskýjað Montreal 7 alskýjað New York 11 rigning Chicago 10 heiðskírt Orlando 27 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 28. apríl Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 5:10 21:42 ÍSAFJÖRÐUR 5:00 22:01 SIGLUFJÖRÐUR 4:43 21:45 DJÚPIVOGUR 4:36 21:15 VATNASKEMMTIGARÐUR Aqua Islandia and Eden garden Um er að ræða Vatnaskemmti- garð ásamt skráðri kennitölu 601113-0820. Áætluð staðsetning er 7 km. frá Þorlákshöfn. Teikningar gera ráð fyrir: • Vatnaskemmtigarði • Golfvelli • Veitingastöðum • 108 íbúðm • 200 manna ráðstefnusal • 1000 m undir gleri TIL SÖLU Nánari upplýsingar á: micasa@simnet.is eða í síma 897 3608

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.