Morgunblaðið - 28.04.2018, Side 50
50 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. APRÍL 2018
Sigrún Elíasdóttir rithöfundur á 40 ára afmæli í dag. Hún er meðMA-próf í sagnfræði og ritlist og hefur aðallega verið að skrifafyrir börn, meðal annars fyrir Menntamálastofnun, bæði skáld-
sögur og sagnfræðirit, meðal annars bók um Rómönsku Ameríku.
Sigrún skrifaði einnig ævisögu afa síns, Jóhannesar Arasonar sem
var frá Seljalandi í Gufudalssveit. Sú bók heitir Kallar hann mig kall-
ar hann sig og kom út fyrir fimm árum.
„Ég er í sumarbústað með vinkonum mínum á Vatni í Haukadal og
fer ekki heim fyrr en á sunnudag. Við erum að gera hlaðvarp um ís-
lenskt handverk sem verður hýst hjá Kjarnanum. Tíu þættir verða í
fyrstu seríu sem byrjar í haust og af nógu er að taka.“
„Annars eru bara vorverkin framundan í sveitinni enda sauðburður
handan við hornið.“ Sigrún og fjölskylda halda nokkrar kindur og
hænur þar sem þau búa á Ferjubakka 4 í Borgarfirði, en Sigrún er
þaðan. „Einhvern veginn var hugsunin hjá mér alltaf sú að hér ætti ég
heima, þótt ég dveldi um tíma við nám í Reykjavík.“
Eiginmaður hennar er Ívar Örn Reynisson, framkvæmdastjóri hjá
Garðar – best. Þau eiga synina Erni, f. 2016 og Orra, f. 2011.
Rithöfundurinn Sigrún stödd heima á Ferjubakka í Borgarfirði.
Vinnur að þáttum um
íslenskt handverk
Sigrún Elíasdóttir er fertug í dag
A
uður Hildur Hákonar-
dóttir fæddist 28. apríl
1938 í Reykjavík og ólst
þar upp við Bústaða-
veginn. Hún lauk námi
sem myndvefari frá Myndlista- og
handíðaskóla Íslands 1968, stundaði
nám í sömu grein við Edinburgh
College of Art 1969 og lauk vefn-
aðarkennaraprófi frá Myndlista- og
handíðaskólanum 1980.
Hildur var kennari við Myndlista-
og handíðaskóla Íslands 1969-75,
skólastjóri þar 1975-78 og stunda-
kennari þar til 1981, var forstöðu-
maður Byggða- og listasafns Árnes-
inga á Selfossi 1986-93 er hún dró sig
í hlé vegna slysfara en hefur svo ver-
ið forstöðumaður Listasafns Árnes-
inga í hlutastarfi frá 1.3. 1998 uns
safnið flutti í Hveragerði.
Hildur vann að myndvefnaði 1969-
Hildur Hákonardóttir listakona – 80 ára
Vefarinn „Textere er latneska orðið yfir að vefa og textíll er náskylt orðinu text sem táknar frásögn. Við ófum
löngu áður en við fórum að skrifa og þess vegna er talað um söguþráð og uppstöðu ritverks,“ segir Hildur.
Fjölbreyttur ferill
mikillar baráttukonu
1. maí ganga Hildur er lengst til hægri í rauðri kápu.
NÝ ÞJÓNUSTA
FYRIR ÁSKRIFENDUR
HLJÓÐMOGGI FYRIR
FÓLK Á FERÐ
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu
mynd af nýjum borgara eða
mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í
einn mánuð.
Hægt er að senda mynd
og texta af slóðinnimbl.
is/islendingar eða á
islendingar@mbl.is
Á „Íslendinga“ síðum
Morgunblaðsins er
meðal annars sagt frá
merkum viðburðum
í lífi fólks, svo sem
hjónavígslum,
barnsfæðingum
eða öðrum
tímamótum.