Morgunblaðið - 28.04.2018, Blaðsíða 23
Helga Rós Indriðadóttir,
Varmahlíð
„Það þarf virkilega að huga að
því að bæta heimaþjónustuna og
ég veit það að það er að þrengj-
ast á dvalarheimilinu, sem auð-
vitað heyrir ekki undir sveit-
arstjórn heldur ríkið, en
sveitarstjórn getur einbeitt sér að
heimaþjónustunni. Það mætti
kannski færa þá þjónustu nær
fólkinu. Við hérna í dreifbýlinu
erum ekkert alveg kát með for-
gangsröðun, það þarf að passa
þetta. Það eru tækifæri í því
fólgin líka.“
við getum kannski fengið eitthvað
meira eða gert eitthvað meira, fjár-
mögnun verði kannski auðveldari til
þess að við getum gert eitthvað stórt,“
segir Lee Ann og minnist á hugmyndir
um gagnaver, sem lengi hafa verið í
umræðunni, sem dæmi um það hve
hægt uppbygging gangi á svæðinu.
Sporin hræða ef til vill
„Ég hef ekki séð neitt sem segir
af hverju við ættum að sameinast, en
svo sem ekkert sem hefur útilokað það
heldur,“ segir Reynir Lýðsson, útibús-
stjóri hjá Fiskmarkaði Íslands á
Skagaströnd. Hann segir þó marga
vera að spá í þessum sameining-
armálum.
Reynir segir að sveitarfélögin á
svæðinu vinni vel saman í mörgum
málum og samstarf sé nauðsynlegt.
„En erum við að fara að sameinast til
að fækka kennurum og sameina skóla?
Ef það verður allsherjar sameining,
eigum við eftir að fækka störfum? Er
það ekki oft þannig að þeir þjappi sam-
an bekkjum? Sporin hræða ef til vill,“
segir Reynir og vísar til reynslu af öðr-
um sameiningum sveitarfélaga víða
um land.
Hann segir að á Skagaströnd sé
fyrirhugað að reisa smábátabryggju,
sem verði mikil lyftistöng fyrir þá
þarna á bryggjunni. „Það er mjög já-
kvætt. Það er búið að taka svolítinn
tíma og búið að taka það einu sinni eða
tvisvar út af dagskrá. En nú skilst mér
að það eigi að byrja þetta í vor. Það er
nóg til að gleðja mig,“ segir Reynir.
Að sögn Reynis er ekki slegist um
það á Skagaströnd að taka sæti í sveit-
arstjórn. „En maður verður bara að
láta heyra í sér ef það eitthvað sem
maður vill fá breytt.“
Lee Ann Maginnis,
Blönduósi
„Það er alveg fullt af
góðum hlutum að gerast
hérna og það er mikil
uppbygging og fólki fjölg-
ar eitthvað aðeins, en
þetta er mesta láglauna-
svæðið á Íslandi. Við er-
um samt með sjúkrahús,
grunnskóla og leikskóla,
stóra sýslumanns-
skrifstofu og Vinnu-
málastofnun en það virð-
ist ekki skila sér til að
draga að menntað fólk.“
Reynir Lýðsson,
Skagaströnd
„Við verðum vel varir
við samþjöppun á kvóta.
Mjög mikið sko. En það
hafa verið keyptir sex-
átta bátar í staðinn á
síðasta einu og hálfu
árinu, svo við verðum
að vera jákvæðir með
það. Það er mjög flott,
en þeir eru reyndar allir
kvótalausir svo menn
eru að treysta á strand-
veiði og grásleppu.“
Pétur Björnsson,
Sauðárkróki
„Það vantar leiguíbúðir. Ég
held að það sé aðalatriðið hér.
Þeir voru nú að stofna eitthvert
félag, leigufélag og það komst
einhver skriður á að byggja í
fyrra. Það vantar samt leigu-
íbúðir. Maður verður var við
það að þeir sem vilja koma
hingað eiga í erfiðleikum með
að finna húsnæði og atvinnurek-
endur eiga erfitt með að finna
húsnæði fyrir starfsfólk. Það er
mín tilfinning.“
Morgunblaðið/Eggert
„Fyrst og síðast eru það atvinnu-
málin. Það eru þau sem brenna
mest á okkur, að leita leiða til að
fá fjölbreyttara atvinnulíf og
styðja við það sem er. Svo eru það
byggðamál, sem eru kannski í
framhaldi af því,“ segir Auðunn
Steinn Sigurðsson, útibússtjóri í
Arion banka á Blönduósi.
„Við erum nú hérna við þjóð-
veginn, en við njótum kannski
ekkert endilega alltaf góðs af því
eins og við myndum vilja og fólk
heldur. Vegurinn liggur svona
beint í gegn um bæinn, en við
hefðum kosið að ferðamaðurinn
stoppaði meira hjá okkur. Það er
meira hérna heldur en bara N1-
sjoppan,“ segir Auðunn og nefnir
sem dæmi að fjármagn hafi ný-
lega fengist frá ríkinu til að bæta
aðgengi ferðamanna að Þrístöp-
um, þar sem síðasta aftakan hér-
lendis fór fram, og laga aðgengi
að Hrútey.
„Byggðaþróun hefur verið nið-
ur á við hjá okkur hérna und-
anfarin ár. Reyndar hefur íbúum
Blönduósbæjar fjölgað, fjölgaði á
síðasta ári um rétt rúmlega þrjá-
tíu. Við erum allavega komin yfir
900 núna, það er jákvæð þróun
hvað það varðar. Við erum nokk-
uð sátt við það.“
Í bankanum á Blönduósi
Morgunblaðið/Eggert
Brim Blanda ryður sér leið í gegn um öldurnar fyrir botni Húnaflóa.
Njóta ekki góðs
af þjóðvegi eitt
Morgunblaðið/Eggert
Útibússtjóri Auðunn Steinn.
Kristín Lind er frá Sauðár-
króki og hún segir að þar sé ekki
skortur á atvinnutækifærum. Það
virðist þó ekki duga til að halda
unga fólkinu á staðnum. „Mér
finnst svolítið margir vera að
sækja í burtu í skóla,“ segir Krist-
ín og er þá að tala um fólk á
menntaskólaaldri, sem kýs frekar
að fara til Akureyrar eða Reykja-
víkur í framhaldsskóla. Aðgangur
að námi er einmitt það mikilvæg-
asta í huga Egils, en hann er úr
Eyjafirði og valdi að koma á Sauð-
árkrók í skóla vegna þess að þar
er boðið upp á nám á hestabraut.
FNV býður upp á dreifnám
frá Blönduósi, Hvammstanga og
Hólmavík, í þeirri viðleitni að
bjóða ungmennunum á þeim stöð-
um upp á að búa heima örlítið
lengur, allavega eitt ár inn í fram-
haldsskólann.
Nína Guðbjörg segist hafa
prófað þetta fyrirkomulag. „Þetta
er mjög sniðugt fyrir þá sem vilja
vera heima og læra í þessu, en í
mínu tilfelli lærði ég ekkert á því
að vera þarna. Ég tók eftir að ein-
kunnirnar lækkuðu, því ég fékk
ekki nægilega mikla athygli frá
kennurunum. Þess vegna kom ég
hingað,“ segir Nína Guðbjörg.
„Það eru svona sögur á
Blönduósi líka, fólk fellur þar al-
veg bara trekk í trekk,“ bætir
Gísli við.
Gísli segist hafa heyrt af um-
ræðum um sameiningu sveitarfé-
laganna í Austur-Húnavatnssýslu.
Hann telur ólíklegt að þar verði
ráðist í sameiningu á næstunni.
„Þetta er ekki að fara að gerast.
Það eru sum sveitarfélög sem
græða aðeins meira á því að hafa
þetta aðskilið. Það er líka alveg
hrikalegur rígur á milli Skaga-
strandar og Blönduóss.“
Næst verður komið við á Vest-
urlandi og fjallað um það sem
brennur á íbúum svæðisins fyrir
sveitarstjórnarkosningarnar í vor.
Á fimmtudaginn
56 10 000
TAXI
BSR
Góð þjónusta
yfir 90 ár10%
afsláttur
fyrir 67 ára
og eldri